Morgunblaðið - 09.02.1985, Qupperneq 42

Morgunblaðið - 09.02.1985, Qupperneq 42
42 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 9. FEBRÚAR 1985 fclk í fréttum COSPER Söng- og leikkonan Cher Bono er nú 39 ára gömul og var nýlega kjörn af ein- hverjum sérfræðingum „verst klædda kona“ síðasta árs. Er það engin nýlunda hjá Cher og hún veit að það er tekið mjög hæfilegt mark á slíkum spekúlöntum. En það er annað sem hún hefur meiri áhyggjur af þessa dagana, hún er nefni- lega að verða gjaldþrota. Þannig er mál með vexti, að Cher keypti sér risastórt einbýlishús í Beverly Hills, óhemju dýran bústað, og lét innrétta allt í forn- egypskum stfl. Þetta kostaði allt miklar fúlgur og hún fékk ærin bankalán, enda láns- traustið í himnalagi. En Cher hefur ætlað sér um of, hún ræður ekki við afborganirnar og lífsstflinn í senn og bank- arnir eru að missa þolinmæðina. Sambýlismaður- inn, leikarinn Josh Donan, sem er 31 árs getur ekkert aðhafst, hann er atvinnulaus og leggur ekkert í búið. Ekki er útséð um hvernig þessu máli lyktar. Gísli Rúnar Jónsson Cher lýst gjald- þrota? Cher Bono hefur miklar peninga- áhyggjur þessa dagana. örn Áraason Jönmdur Guðmundsson Þórhalhir L Sigurósson (Laddi) Nýr kabarett í smíðum „Söguspaug ’85“ ÞESSA dagana er æfður ó fullu í Súlnasal Hótel Sögu nýr kabarett sem taka á til sýningar í næstu viku. Blm. sló á þráðinn til eins þátt- takandans, Gísla Rúnars Jónsson- ar, og reyndi að forvitnast aðeins nánar um efni kabarettsins. „Þetta nefnist „Söguspaug ’85“ og er nýr kabarett sem við fimm félagar erum að æfa, þ.e.a.s. ég, Örn Árnason, Pálmi Gestsson, Jörundur og Laddi. Það er af- skaplega erfitt að útlista efnið i smáatriðum en umgjörðin, sem var í fyrra á kabarettnum, heldur sér að mestu. Það eina sem ég get fullyrt er að við látum pólitíkus- ana og dægurþras algjörlega í friði. Það er mikið um látbragðs- leik, söng og tónlist og óhætt að segja að það verði mikið fyrir aug- að. Vilhjálmur Guðjónsson stjórnar kabarett-hljómsveitinni, þ.e. hún er innhverfan á hljómsveit Magga Kjartans er leikur fyrir dansinum. Maraþonknattspyrnumennirnir, aftari röð frá vinstri: Ólafur, Steinar, Guóni, Rúnar og i fremri röó: Jóhann, Halldór, Yngvi og Helgi. Stutt 5 mínútna hlé aó veróa búió og því eins gott aó koma sér i skóna. Léku fótbolta samfleytt í 24 klst. Nokkrir skólafélagar í 9. bekk Fellaskóla hófu aó leika maraþon- fótbolta föstudagskvöldió 1. febrú- ar klukkarn 23.30 og léku stanz- laust í 24 klukkustundir eóa þar til klukkan var oróin 23.30 á laugar- dagskvöld. Þetta voru 8 drengir og tóku þeir sér 5 mínútna hlé á hverri klukkustund. Drengirnir, sem þetta gerðu, voru: Helgi Bjarnason, Yngvi R. Gunnarsson, Halldór Snorrason, Jóhann P. Kristbjörnsson, Rún- ar Kristinsson, Steinar ö. Ingi- mundarson, Guðni H. Grétars- son og Ólafur I. Arnarson. Leik- urinn fór fram undir leiðsögn tveggja kennara og þegar upp var staðið höfðu verið skoruð um 1.000 mörk. Tilgangur keppninnar var að safna í ferðasjóð 9. bekkjar og var áheitum safnaö vikuna áður af nemendum 9. bekkjar. Ekki er Ijóst hve mikið safnaðist við þennan maraþonleik þeina fé- laga. Hlé í maraþonfótboltanum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.