Morgunblaðið - 09.02.1985, Blaðsíða 12
12
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 9. FEBRÚAR 1985
28611
Opid kl. 2-4 í dag.
Einstaklíngsíbúö
40 fm á 1. haBö, samþykkt.
Álfaskeiö - 2ja herb.
70 fm á 2. hæö, bílskúr.
Langholtsv. - 2ja herb.
80 fm á jarðhæö, samþykkt.
Lokastígur - 2ja herb.
60 fm risibúö, litur vel út, samþykkt.
Skúlagata - 2ja herb.
55 fm I kjallara, samþykkt.
Sogavegur - 2ja herb.
70 fm nýfeg á jaröhæö, mjög góö.
2ja herb. íbúöir
m.a. viö Framnesveg, Grettisgötu,
Hraunbæ, Langholtsveg og Reykja-
vikurveg.
Álagrandi - 3ja herb.
85 fm jaröhæö, fullfrágengin.
Hraunbær - 3ja herb.
100 fm á 1. hæð Skipti á 4ra-5 herb. ib.
i Hraunbæ æskileg.
Hverfisgata - 3ja herb.
100 fm á 2. hæö, sanngjarnt verö.
Rofabær - 3ja herb.
90 fm á 2. hæö, mjög snyrtileg.
3ja herb. íbúöir
m.a. viö Grettisgötu, I Hölahverfi, Hraun-
bæ, viö Laugaveg, Leifsgötu, Vestur-
berg og Hofsvallagötu.
Kaplaskjólsv. - 5 herb.
140fmhæöogris. stigi úr holi milli hæöa.
Smáíbúöahverfi - 6 herb.
135 fm ib. á 1. hasö og 16 fm herb. i kj.
meö baöi. A haBÖ: 2 stofur 38 fm, 3 svefn-
herb. 16, 15 og 10 fm ♦ sjónvarpshol 10'
fm, mikiö af skápum. i kjallara: 16 fm
meö baöi. Hlti sér. Bilsk. 32 fm innanmál.
Sérhæö - Langholtsvegi
80 fm á hæð I tvib. Bilsk. 27 «m. Góöur
garður.
Sérhæö í vesturbænum
120 fm á hæð, suðursvalir. bflsk. 30 fm.
Parhús - Kleppsholti
Hæö og ris 160 fm ♦ 60 fm i kj. Nylegt hús.
Seyöisfjöröur - einb.hús
130 fm á einni hæð, að mestu frágengið.
VHI taka ibúð á Stór-Reykjavfkursvæð-
inu uppi kaupverð.
Einb.h. - Landsbyggöin
Selfoss, Vogar, Hafnir. Bolungarvik,
Eyrarbakki, Egilsstaöir, Þorlákshöfn og
víöar.
Höfum kaupanda
aö einbýlishúsi ca. 200-400 fm á miö-
borgarsvæöinu. VIII kaupa strax.
Höfum kaupanda
aö verslunarhúsnaBöi viö umferöargötu
ca. 100-200 fm. Vill kaupa strax.
Höfum kaupendur
aö fjölda eigna af öllum stæröum og
geröum, m.a. iönaöarhúsnæöi frá 50 fm
til 4000 fm.
Höfum kaupanda
aö 300-350 fm einbýlishúsi, vel staösettu
meö góöu útsýni, meö möguleika á 2
ibúöum Skipti á 220 fm einb.húsi á
besta staö gæti komiö til greina.
Hús og Eignir
Bankastrœti 6, s. 28611.
LúMk Oázuraraon hrt, e. 17877.
EIGNAÞJÓNUSTAN
FASTEIGNA- OG SKIPASALA
HVERFISGÖTU 98
(horni Barónstígs).
SÍMAR 26650—27380.
Opiö í dag og á
morgun frá kl. 1-4
Eignir í ákv. sölu:
2ja og 3ja herb.
Krummahólar. Mjög góö
3ja herb. 90 fm á 4. hæð ásamt
bílskýli og frystiklefa. Verð 1700
þús.
Barmahlíö. 93 fm 3ja herb.
kj.ib. Mjög mikiö endurnýjuö.
Verð 1800 þús.
Öldugata. Ca. 85 fm 3ja
herb. nýstandsett ib. á 3. hæö.
Verð 1700 þús.
Álfhólsvegur Kóp. 3ja
herb. á 2. hæð. Verð 1700 þús.
Helgubraut Kóp. 3ja herb.
á 1. hæö. Verö 1700 þús.
4ra herb.
Furugrund. 110 fm
stórglæsil. ib. á 3. hæð ásamt
23 fm herb. i kj. sem hefur aö-
gang aö snyrtingu og sturtu.
Verð 2,5 millj.
Kríuhólar. Ca. 110 fm á 3.
hæö. Ný sameign. Verö 1850 þús.
Bergstaöastræti. 105 fm á
2. hæö. Mjög góö ib. Verö 2,1
millj.
Kópavogsbraut. 3ja-4ra
herb. stórgóö ib. I þribýti ásamt
bilskúr. Danfoss. Nýtt eldhús.
Verö 2,1 millj.
5 herb. - sérhæðir
Nýbýlavegur Kóp. góö 3ja
herb. sérh. ásamt sérþvottah.
og stóru herb. i kj. Bilsk. Verö
2,3 millj.
Bugöulækur. 5 herb. ib. á
3. hæö. Stór svefnherb. Dan-
foss. Suöursvalir. Verö 2,2 millj.
Kaplaskjólsvegur. 5-6
herb. ca. 140 fm endaibúö. Verð
2.3 millj.
Á Hellissandi. 160 fm sér-
hæö i steinhúsi ásamt 75 fm
bilskúr. Æskileg skipti á ib. á
Rvk-svæöinu. Verö 1,5 millj.
Einbýli - raðhús
Hverfisgata. 4ra-5 herb.
parhús á tveimur hæöum. Nýtt
eldhús. Danfoss. Verö 1800--
1850 þús.
Vfóihvammur. stórgiæsii.
nánast nýtt einb.hús 200 fm
ásamt bilsk. á þessum rólega og
vinsæla staó. Svalir á þrjár
hliöar. Verö 5,3 millj.
Kambasel. Ca. 230 fm
glæsil. raöhús ásamt bilsk. Verö
4 mlllj.
Kleifarsel. 220 fm raöh. á
tveim hæöum ásamt bílsk. Verö
4.3 millj.
Öldugata Hafn. 5 herb.
einb.hús. Mjög laglegt i alla
staöi Verö 2,5 millj.
Skodum og verdmetum
samdægurs
Lögm.: Högni Jónsson hdl.
Auglýsinga-
síminn er 2 24 80
á
ÁBYRGD - REYNSLA - ÖRYGGI
FASTEIGNASALAN
HÁTÚN
NÓATÚNI 17
21870-20998
OPIÐ í DAG 1-4
HILMAR VALDIMARSSON S. 687225
HLÖOVER SIGURDSSON S. 13044
ÚRVAL FASTEIGNA ViÐ ALLRA HÆFI
SK ATT APISTILL/ Bergur Guönason
Tekju-og gjaldaliðir
í pistli sem þessum er von-
laust að gera tekju- og gjaldalið-
um skattaframtalsins nokkur
tæmandi skil. Því mun ég fara
einskonar jakahlaup um fram-
talið, í þeirri von að einhver sár-
þjáður framteljandi finni eitt-
hvað bitastætt í hugleiðingum
þessum.
Einn er sá þáttur tekjuhug-
taksins, sem ég hefi ekki minnst
á í þessum pistlum mínum til
þessa. Það eru svokölluð hlunn-
indi. Allstaðar í nágrannalönd-
um okkar hafa hlunnindi hvers-
konar stöðugt orðið þýðingar-
meiri í kjörum almennings. Þar
hugsar fólk fyrst og fremst um
það að fá ýmiss konar hlunnindi
frá vinnuveitendum sínum ofan
á sjálf launin án þess að greiða
hærri skatta.Á Fróni kalla menn
þetta „félagsmálapakka" í kjara-
deilum. Allir vita hvernig beinu
kauphækkanirnar hverfa í verð-
lagið og skattinn og kaupmátt-
urinn dvínar þrátt fyrir krónu-
hækkun í launaumslaginu. Nú í
seinni tíð virðist svo sem hlunn-
indi séu að verða vinsæl hér á
landi. Þau algengustu eru: bif-
reiðahlunnindi, ferðahlunnindi,
fæðis- og húsnæðishlunnindi,
fatahlunnindi ofl. Ég ætla að
fjalla stuttlega um þesa tekju-
þætti.
A. Bifreiðahlunnindi
Þessi hlunnindi gerast á
þrennan hátt. Annaðhvort hefur
launþeginn bíl vinnuveitandans
til afnota að hluta eða öllu leyti,
sér að kostnaðarlausu, eða
vinnuveitandinn greiðir allan
rekstrarkostnað bifreiðar laun-
þegans skv. framvísuðum reikn-
ingum. í þriðja lagi og kannski
er það algengasta formið, hefur
launþeginn bifreiðastyrk frá
vinnuveitandanum, gjarnan í
samræmi við notkun bifreiðar
launþegans í þágu vinnuveitand-
ans.
Ég hygg að flestir, sem njóta
þessara hlunninda, viðurkenni
að í þeim felist viss kjarabót.
Skattalög gera að vísu ráð fyrir
að gerð sé grein fyrir þessum
hlunnindum á skattframtali við-
komandi með það markmið i
huga, að fríðindin séu skattlögð.
Þrátt fyrir þau ákvæði fer ekki á
milli mála, að bifreiðastyrkir
a.m.k. í einkarekstrinum, eru svo
ríflegir, að launþeginn hagnast,
stundum vel á bílastyrknum sín-
um.
Ég veit dæmi um yfir kr.
300.000 — í bílastyrk, svo menn
geta séð að talsvert svigrúm er
fyrir afgang.
Mati skattyfirvalda á bifreiða-
hlunnindum er mjög í hóf stillt,
a.m.k. ef tölur FÍB um rekstr-
arkostnað bifreiða eru trúverð-
ugar.
B. Ferðahlunnindi
Enginn vafi er á skattskyldu
þessara hlunninda, þ.e.a.s.
þeirra ferðahlunninda sem flest-
um koma í hug þegar þessi mál
ber á góma. Flugfélög og ferða-
skrifstofur veita starfsmönnum
sínum frfar ferðir eða afsláttar-
ferðir, væntanlega sem kaup-
uppbót. Þessi hlunnindi skila sér
illa til skatts, en eru að sjálf-
sögðu auðskattlögð ef vilji er
fyrir hendi.
Annarskonar ferðahlunnindi
fyrirfinnast. Það eru fjölmargir
aðilar, aðallega i opinberri þjón-
ustu, sem fá dagpeninga, ferfta-
peninga.o.s.frv. Þessir aðilar
dvelja oft stóran hluta ársins
erlendis, á vegum vinnuveitanda.
Slíkt ferðafé fæst allt frádregið
skatti, en slyngir ferðalangar fá
væna kaupuppbót upp úr krafs-
inu. Hér er oft um verulegar
fjárhæðir að ræða.
Enginn misskilji þessar
vangaveltur þannig, að því fólki,
sem þessara hlunninda nýtur, sé
það of gott. Þetta eru einfaldlega
staðreyndir, sem öllum eru
kunnar, sem vilja vita.
Fæðis- og hús-
næðishlunnindi
Matsreglur skattyfirvalda á
þessum hlunnindum eru mjög
svo hóflegar. Hér er um þægindi
og reyndar peningaígildi að
ræða, sem oftast eru mönnum
dýrmætari en einhverjar óveru-
legar matsupphæðir sem greiða
þarf skatt af. í þessum flokki
hlunninda er risnufé. Risna var
algeng áður fyrr, en vegna ímu-
gusts skattyfirvalda, hefur risn-
an fallið niður í seinni tíð. í stað-
inn hafa menn skattfrjálsan
kostnaðarreikning (expense acc-
ount), sem þýðir að vinnuveit-
andinn greiðir risnu launþegans
skv. reikningum sem síðan fara í
bókhald vinnuveitandans. Mér
sýnist að opinberir aðilar láti
ekki sitt eftir liggja í þessu
formi hlunninda. Hlunnindi
launþegans hér felast að sjáif-
sögðu í neyzlu matar og oft
dýrra veiga, sem aðrir borga
fyrir hann, en kosta vænan
skilding.
Fatahlunnindi
Þessi „hlunnindi" eru eitthvað
það vitlausasta, sem fyrirfinnst
á tekjuhlið framtalsins. Menn
eru skikkaðir til að ganga í ein-
kennisbúningum, t.d. lögreglu-
menn, flugliðar ofl. Síðan mega
þessir menn borga skatta af
þessari kvöð, sem á þá er lögð af
vinnuveitandanum, oftast ríkinu
sjálfu. Ég vona að þessi vitleysa
verði felld niður sem fyrst, því
eftir nánari umhugsun um þessi
„hlunnindi", setur að manni
hlátur. { þennan hlægilega flokk
má setja „símahlunnindi" sem
færð eru mönnum til tekna,
sennilega vegna þess að vinnu-
veitandinn krefst þess að laun-
þeginn hafi sima og noti hann á
nóttu sem degi, detti vinnuveit-
andanum í hug að kalla viðkom-
andi til vinnu. Menn sem fá
„símahlunnindi" til tekna, ættu
miklu frekar að fá símafrádrátt.
Leiðbeiningar, sem fylgja
skattframtali, hafa að geyma it-
arlegar reglur um meðferð hinna
ýmsu hlunninda, sem ég hef gert
að umtalsefni í dag. Ég get full-
yrt, að hlunnindin eru það tekju-
form, sem kemur launþegum
betur, en bein krónutöluhækkun
launa. Skattyfirvöld hafa ekki
tök á því að sundurgreina
skattfjráls einkanot frá raun-
verulegum ■ rekstrarkostnaði,
sem hlunnindin eiga einungis að
ná til. Ég leyfi mér að lauma
þessu til tvíeykis Alþýðusam-
bandsins. Hann Magnús er fyrir
löngu búinn að átta sig á þessu.
A morgun verður drepið niður
fæti á gjaldahlið framtalsins.
Sæl að sinni.
Bergur Guðnason hdl.
Forhlið hÚ88 Verkfræðingafélags íslands og Lífeyrissjóðs verkfreðinga mun líta svona út. Arkitektar eru Egill
Guðmundsson og Þórarinn Þórarinsson.
Verkfræðingafélagið reisir hús fyrir starfsemi sína
GRUNNUR Verkfræðingahússins,
sem rís við Suðurlandsbraut, er nú
fullunnin og á næstunni verður
bygging hússins boðin ÚL
Húsið rís á svokölluðum Ás-
mundarreit norðan við Suður-
landsbraut, skáhallt á móti Hótel
Esju. Áætlaður kostnaður við hús-
ið, sem verður á þremur hæðum og
samtals 1570 m*, er 33 milljónir
króna. Verkfræðingafélag íslands
á 60% hússins, en Lífeyrissjóður
verkfræðinga 40%.
Á jarðhæð hússins verður rúm-
lega 100 manna fundarsalur
ásamt hliðarherbergjum og
geymslum. Lífeyrissjóðurinn verð-
ur til húsa á fyrstu hæð, aðsetur
Verkfræðingafélags Islands verð-
ur á annarri hæð og á efstu hæð er
bókasafn, kaffistofa og líkams-
ræktarsalur. Áformað er að félag-
ið og lífeyrissjóðurinn geti flutt I
húsið fyrri hluta næsta árs.