Morgunblaðið - 09.02.1985, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 09.02.1985, Blaðsíða 6
6 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 9. FEBRÚAR 1985 ÚTVARP / S JÓN VARP Atgervis- flóttinn Fimmtudagsumræðan á rás 1 snerist að þessu sinni um þann mikla skort á hjúkrunar- fræðingum er við blasir á sjúkra- stofnunum þessa dagana. Guðrún Guðlaugsdóttir fréttamaður stýrði umræðunum og fórst vel úr hendi. Þó fannst mér er líða tók á um- ræðurnar eins og botninn dytti úr öllu saman, enda málið kannski þannig vaxið að ekki var hægt um vik að halda uppi líflegri umræðu í þær sextíu mínútur er „fimmtu- dagsumræðan" gleypir i dag- skránni. Þannig töngluðust við- mælendur Guðrúnar stöðugt á því sama undir lokin og bar þar hæst vangaveltur um ástæðurnar fyrir hinum alvarlega skorti á hjúkrun- arfræðingum. Ég verð að játa, að mér tókst ekki að aðgreina af neinni nákvæmni sjónarmið við- mælenda Guðrúnar, en þeir voru Ingibjörg Magnúsdóttir, deildar- stjóri í heilbrigðisráðuneytinu, Sigþrúður Ingimundardóttir, for- maður Hjúkrunarfélags íslands, Símon Steingrímsson, stjórnar- formaður ríkisspitalanna, Jóhann- es Pálmason, forstöðumaður Borg- arspítalans, og Vigdís Magnús- dóttir, hjúkrunarforstjóri Land- spítalans. Einnig vil ég taka fram áður en ég vík að efnisinntaki „fimmtudagsumræðunnar" að mér heyrðist á viðmælendum Guðrún- ar að þeir væru ekki að öllu leyti sammála um ástæðurnar fyrir hinum alvarlega hjúkrunarfræð- ingaskorti. Láglaunastarf Nú, en mín eigin niðurstaða eft- ir að hafa hlýtt á fyrrgreinda „fimmtudagsumræðu" varð sem sé þessi: Hinn alvarlegi skortur á hjúkrunarfræðingum stafar í fyrsta lagi af lágum iaunum. Starfið er lýjandi, ábyrgðarmikið og krefst sérmenntunar, en samt eru laun hjúkrunarfræðinga hér helmingi lægri en í Danmörku, svo dæmi sé tekið. { öðu lagi er oftast um vaktavinnu að ræða, en slík vinna samrýmist illa heimilis- haldi. í þessu samhandi má minna á, að af þeim 320 sem hér stunda hjúkrunamám eru aðeins 15 karl- ar. Einnig var á það minnt, að það hefur gengið vel að manna heilsu- gæslustöðvar (vantar þar aðeins í 2—3 stöðugildi) en í slíkum stöðv- um tiðkast ekki vaktavinna. t þriðja lagi kom fram ákveðin gagnrýni í þessari umræðu á stefnuna í menntunarmálum hjúkrunarfræðinga, var þeirri skoðun hreyft að mönnum hefði hér ekki auðnast að marka lang- tímastefnu í menntunarmálum heilbrigðisstétta. Leiðréttingar er þörf Ég gæti tínt fleira til úr pessari „fimmtudagsumræðu" Guðrúnar Guðlaugsdóttur. En ég vil ekki þreyta lesendur á talnaflóði og öðrum álíka sparðatíningi. Mitt persónulega álit á þessu máli er það, að ég tel skortinn á hjúkrun- arfræðingum anga af enn stærra vandamáli. Þetta vandamál helg- ast af hinum lágu launum sér- menntaðra ríkisstarfsmanna. Hjúkrunarfræðingar hafa ákveðna sérmenntun og þeir sjá, eins og aðrir slíkir hjá ríkinu, hvernig nánast ófaglært fólk á hinum frjálsa vinnumarkaði siglir frammúr i launum. Þess vegna veljast ekki karlmenn í þetta starf og giftu konurnar kjósa að sinna því í ígripum. Ef þessi þróun verð- ur ekki stöðvuð mjög bráðlega verður víðar skortur á sérmennt- uðum, hæfum starfskrafti, en á spítulum þessa lands. ólafur M. Jóhannesson Hér og nú — fréttaþáttur um hitt og þetta ■■■■ Fréttaþáttur- 1 A 00 inn Hér og nú A tt er að venju á dagskrá útvarps í dag kl. 14. Stjórnendur að þessu sinni eru Þorgrímur Gestsson, Friðrik Páll Jónsson og Erna Indriða- dóttir hjá RÚVAK. Fyrst verða hundamál á döfinni en í dag rennur út frestur til að skrá hunda sína hér í Reykjavík. í því sambandi verður rætt við einn hundaeiganda í borg- inni, Jón Kristjánsson, og fylgst verður með þegar hann þjálfar hundana sína tvo í öskjuhlíðinni. Þá verður spjallað við Odd Rúnar Hjartarson, framkvæmdastjóra Heil- brigðiseftirlits Reykjavík- ur, um hundahaldið í borginni. Friðrik Páll, einn stjórnenda þáttarins, er nýkominn úr ferð um þurrkasvæði Eþíópíu og mun hann skýra frá því sem fyrir augu og eyru bar, en sem kunnugt er sveltur þar fjöldi fólks heilu hungri. Þá verða kennaramálin tekin fyrir en eins og fram hefur komið hafa tæplega fimm hundruð fram- haldsskólakennarar á landinu boðað uppsagnir frá og með 1. marz nk. í því sambandi verður rætt við nokkra kennara og að- gerðir þær sem eru í vændum. Loks verður Erna Ind- riðadóttir með sinn skerf að norðan. Hún mun fyrst fjalla um hugsanlegt þróunarsamfélag fyrir norðan en síðan ræðir hún við 10 ára gamla norð- lenska stelpu sem fyrir skömmu datt heldur betur í lukkupottinn er hún vann Skoda-bifreið í happdrætti. Tónlistarkrossgátan Hér birtist tónlistarkrossgáta rásar 2 númer 19. Þátt- ur Jóns Gröndal er á dagskrá rásar 2 á sunnudag kl. 15 og gefst hlustendum þá kostur á að svara einföldum spurningum um tónlist og ráða krossgátuna um leið. Lausnir sendist til: .. , „ Kíkumtvarpið ráa 2, Hvumleiti 60 108 Reykjavfk. — Merkt TónlisUrkromgitan. Aðalleikarar myndarinnar. Astvinurinn ■i Síðari laugar- 40 dagsmyndin er — bandarísk og nefnist Ástvinurinn, (The Loved One). Myndin er frá árinu 1965 og er gerð eftir samnefndri skáldsögu eft- ir Evelyn Waugh. Myndin gerist í Kali- forníu. Bretinn Dennis Barlow starfar sem að- stoðarmaður hjá útfarar- þjónustu sem sér um greftranir gæludýra. í myndinni er gert nap- urt gys að útfararsiðum í Bandaríkjunum og nær það hámarki með hug- myndum kunningja sögu- hetjunnar um að sjá ást- vinunum einnig fyrir himnaför. Leikstjóri er Tony Rich- ardson en með aðalhlut- verk fara Robert Morse, John Gielgud, Rod Steig- er, Liberace, Anjanette Comer og Jonathan Wint- ers. Demantsránið ■■ Fyrri laugar- 00 dagsmyndin er bandarísk frá árinu 1972 og nefnist Demantsránið (Hot Rock). John Archibald Dort- munder, sem leikinn er af átrúnaðargoðinu Robert Redford, er kominn á göt- urnar á ný eftir fjögurra ára fangelsisvist. Mágur hans, sem er engu minni skúrkur en hann sjálfur, gerir honum tilboð sem er fólgið í því að ræna verð- lausum afrískum demanti af Brooklyn-safninu i New York. Dortmunder er fús til að leggja á ráðin um þjófnaðinn er hann fréttir að afrískur sendiherra er fús til að greiða hvað sem er fyrir demantinn. Tveir aðrir skálkar slást í förina með þeim tveimur og saman ráðast þeir til atlögu. En margt fer öðruvísi en ætlað er. Leikstjóri er Peter Yat- es en með aðalhlutverk fara Robert Redford, George Segal, Zero Most- el, Paul Sand og Ron Leib- man. Skúrkarnir fjórir sem fara með aðalhlutverkin í myndinni. ÚTVARP LAUGARDAGUR 9. febrúar 7.00 Veðurfregnir. Fréttir. Bæn. Tónleikar., þulur velur og kynnir. 7.25 Leikfimi. Tón- leikar. 8.00 Fréttir. Dagskrá. Morg- unorð — Hrefna Tynes talar. 8.15 Veðurfregnir. 8.30 Forustugr. dagbl. (útdr.) tónleikar. 8.55 Daglegt mál. Endurt. þáttur Valdimars Gunnarssonar frá kvöldinu áður. 9.00 Fréttir. Tilkynningar. Tónleikar. 9.30 Óskalðg sjúklinga. Helga Þ. Stephensen kynnir. (10.00 Fréttir. 10.10 Veður- fregnir.) Oskalög sjúklinga, frh. 11.20 Eitthvað fyrir alla. Sig- urður Helgason stjórnar þætti fyrir börn. 12.00 Dagskrá. Tónleikar. Til- kynningar. 12.20 Fréttir. 12.45 Veður- fregnir. Tilkynningar. Tón- leikar 14.00 Hér og nú. Fréttaþáttur i vikulokin. 15.15 Listapopp. — Gunnar Salvarsson. 16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15 Veðurfregnir. 16.20 íslenskt mál. Guðrún Kvaran flytur þáttinn. 16.30 Bókaþáttur. Umsjón: Njörður P. Njarðvlk. 17.10 Alban Berg (100 ára minning) a. Atli Heimir Sveinsson flyt- ur inngangsorð. b. .Sieben frúhe Lieder" c. Planósónata op. 1. d. Fjórir þættir op. 5. Ellsabet Erlingsdóttir syngur, Kristinn Gestsson leikur á pl- anó og Kjartan Óskarsson á klarinettu. 18.10 Tónleikar. Tilkynningar 14A5 Enska knattspyrnan Fyrsta deild: Liverpool — Arsenal. Bein útsending frá 14.55—16.45. 17.15 íþróttir. Umsjónarmaður Ingólfur Hannesson. 19.00 Margeir og Agestein. Einvlginu lýkur. Jóhann Hjartarson flytur skákskýringar. 19.25 Ævintýri H.C. Ander- sens. 1. Tindátinn staðfasti. Danskur brúðumyndaflokkur I þremur þáttum. Sögurnar eru skreyttar með teikning- um og klippimyndum eftir H.C. Andersen. Þýðandi J6- hanna Jóhannsdóttir. Þulur Marla Siguröardóttir. (Nord- vision — Danska sjónvarp- ið.) 18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins. 19.00 Kvöldfréttir. Tilkynningar. 19.35 Ur vöndu að ráða. Hlustendur leita til útvarpsins með vandamál. 20.00 Útvarpssaga barnanna: .Ævintýri úr Eyjum" eftir Jón Sveinsson. Gunnar Stefáns- son endar lestur þýöingar 9. febrúar 19.50 Fréttaágrip á táknmáli. 20.00 Fréttir og veður. 20.25 Auglýsingar og dagskrá. 20.35 Við feðginin. Fjóröi þáttur. Breskur gamanmyndaflokk- ur I þrettán þáttum. Þýðandi Þrándur Thoroddsen. 21.00 Demantsrániö (Hot Rock) Bandarlsk blómynd frá 1972. Leikstjori Peter Yates. Aðalhlutverk: Robert Red- ford, George Segal, Zero Mostel, Paul Sand og Ron Lebman. Fjórir skálkar taka höndum saman um aö komast yfir demant, sem vart veröur metinn til fjár og varöveittur er á safni I New York. Þýðandi Kristmann Eiösson. Freysteins Gunnarssonar (23). 20.20 Harmonikuþáttur. Um- sjón: Bjarni Marteinsson. 20.50 Björn Jónsson ritstjóri og barátta hans I bindindismál- um. Halldór Kristjánsson tók saman dagskrána. Lesarar með honum: Asgeröur Ingi- marsdóttir, Jón F. Hjartar, 22.40 Astvinurinn (The Loved One) Bandarlsk blómynd frá 1956, gerö eftir samnefndri skáldsögu eftir Evelyn Waugh. Leikstjóri Tony Rich- ardson. Aðalhlutverk: Robert Morse, John Gielgud, Rod Steiger, Liberace, Anjanette Comer og Jonathan Winters. Myndin gerist i Kalifornlu þar sem ungur Breti fer að fást við útfararþjónustu sem sér um greftranir gæludýra. I myndinni er gert napurt gys að útfararsiðum I Bandarfkj- unum og nær það hámarki meö hugmyndum kunningja söguhetjunnar um að sjá ástvinunum einnig fyrir himnaför. Þýðandi Jóhanna Þráinsdóttir. 00.40 Dagskrárlok. Gunnar Þorláksson, Sigur- laug Sævarsdóttir og Sigrún Gissurardóttir. 21.35 Kvöldtónleikar. Þættir úr slgildum tónverkum. 22.00 Lestur Passlusálma (6). 22.15 Veðurfregnir. Fréttir. Dagskrá morgundagsins. Orð kvöldsins. 22.35 Þriöji heimurinn. Þáttur I umsjá Jóns Orms Halldórs- sonar. 23.15 Hljómskálamúslk. Um- sjón: Jón örn Marinósson. 00.50 Fréttir. Dagskrárlok. Næturútvarp frá rás 2 til kl. 03.00. 14J0—18.00 Léttur laugar- dagur Stjórnandi: Asgeir Tómas- son. 16.00—18.00 Milli mála Stjórnandi: Helgi Már Barða- son. Hlé 24410—24.45 Listapopp Endurtekinn þáttur frá rás 1. Stjórnandi: Gunnar Salvars- son. 24A5—03.00 Næturvaktin Stjórnandi: Margrét Blöndal. Ftásirnar samtengdar að lok- inni dagskrá rásar 1. SJÓNVARP LAUGARDAGUR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.