Morgunblaðið - 09.02.1985, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 9. FEBRtJAR 1985
21
5. I VI. kafla frumvarpsins er gert
ráð fyrir því að iðnaðar-
ráðherra setji reglugerð um
greiðslu olíustyrkja og greiðslu
styrkja til húseigenda til kaupa
og breytinga á kyndibúnaði, svo
að nýta megi hvers konar inn-
lenda orkugjafa.
f þessu frumvarpi eru mjög
mikilvæg nýmæli til hagsbóta
fyrir þá húseigendur, sem búa vð
dýra orkugjafa. Nú þegar hefur
dregist um of að koma endurbót-
um frumvarpsins til fram-
kvæmda.
Á sama tíma og tekjur í dreif-
býli hafa dregist stórlega saman
vegna samdráttar í landbúnaði og
sjávarútvegi er nauðsynlegt að
knýja fram þau lagafrumvörp,
sem leiða augljóslega til hagsbóta
fyrir dreifbýlisbúa á hinum köldu
svæðum, sem svo hafa verið nefnd.
Þess er að vænta að þingmenn láti
ekki dragast að afgreiða frum-
varpið, þegar það kemur fyrir
þingið á ný.
Fjárfestum í
sparnaði
Svo sem að framan er getið hef-
ur starf húshitunarnefndar SSVK
einkum beinst að orkuverði en þó
ekki síður aðgerðum til orku-
sparnaðar í íbúðarhúsnæði og vil
ég fara nokkrum orðum um það.
Engum vafa er undirorpið, að
stór hluti íbúðarhúsnæðis uppfyll-
ir ekki þær kröfur sem bygg-
ingarreglugerð gerir um einangr-
un og frágang byggingarhluta.
Með byggingarreglugerðinni
sem gerð var 1979, voru hertar
kröfur um einangrun húsnæðis.
Á síðasta ári var gerð breyting
á þeim hluta reglugerðar sem
fjallar um einangrun. Kröfur voru
hertar svo sem eðlilegt var.
Húshitunarnefnd SSVK hefur
haft forgöngu um að hvetja hús-
eigendur til aðgerða í því skyni að
draga úr orkunotkun.
í þorpunum fjórum á Snæfells-
nesi og í Búðardal var unnið
skipulega að þessu verkefni. Bygg-
ingarfulltrúar staðanna völdu úr
þau hús, sem tekin voru til skoð-
unar í fyrsta áfanga, og var leitast
við að velja þau, sem allt benti til
að þyrftu aðgerða við. Húseigend-
um var veitt ráðgjöf um endur-
bætur og veittar upplýsingar um
þann sparnað sem mismunandi
aðgerðir gæfu.
f fyrrnefndu frumvarpi um
jöfnun húshitunarkostnaðar er
ákvæði um aðgerðir til orkusparn-
aðar.
Hvað sem líður öðrum verkefn-
um má fullyrða, að aðgerðir til
orkusparnaðar eru einhver mikil-
vægustu verkefnin.
Fjárfesting í sparnaðaraðgerð-
um á þessu sviði skilar sér fljótt
auk þess sem endurbætur á hús-
næði tryggja verðgildi þeirra.
Hagkvæm lán og styrki á því
hiklaust að veita til þess að herða
á aðgerðum.
Sveitarfélögum og orkusölufyr-
irtækjum ætti að fela átakið í
þessum efnum fremur en að mið-
stýra því frá ráðuneyti. Sveitarfé-
lögin á Vesturlandi hafa sannað
með framtaki sínu að orkusparn-
aðarátakið er vel komið í þeirra
höndum. Þess er að vænta að
framhald geti orðið á þessu verk-
efni og fjárfest verði í sparnaðar-
aðgerðum. í þeim tilgangi að vekja
athygli á mikilvægi þessa mála-
flokks er þessi grein skrifuð.
Sturla Bödrarsson er sveitarstjóri í
Stykkishólmi.
Fróóleikur og
skemmtun
fyrirháa semlága!
Kristniboðssamkom-
ur hjá KFUM og K
FJÓRAR kristniboðssamkomur
verða haldnar í húsi KFUM og
KFIIK við Hverfisgötu í Hafnar-
firði og hefst sú fyrsta þeirra
sunnudaginn 10. febrúar kl.
20.30. Verða síðan samkomur á
sama stað og tíma þrjú næstu
kvöld. íslenskt kristniboð verður
kynnt í máli og myndum, mikið
sungið og fiuttar hugvekjur.
Meðfylgjandi mynd cr frá Afríku
þar sem íslenskir kristniboðar
hafa starfað í rúm 30 ár og veitt
margvíslega hjálp. Starfið er Oár-
magnað með gjöfum.
Á fyrstu samkomunni tala
hjónin Valdís Magnúsdóttir og
Kjartan Jónsson sem starfað
hafa á íslensku kristniboðs-
stöðinni Cheparería í Kenýa,
meðal Pókotmanna. Á mánu-
dagskvöldið munu Kjartan
Jónsson og Stína Gísladóttir
sjá um efni samkomunnar
ásamt söngflokknum „Sífa“.
Nú starfa tvenn hjón á veg-
um Kristniboðssambandsins i
Eþíópíu og ein í Kenýu. Á sam-
komunum í Hafnarfirði verður
tekið á móti gjöfum til starfs-
ins, en það er algjörlega borið
uppi af frjálsum framlögum.
Állir eru velkomnir á
kristniboðssamkomurnar.
F RAKKAR SEGJA
...að þegar maðurinn fari að
gefa gaum að umhverfi sínu
og þróa smekk sinn, þá sé
grunnur lífshamingjunnar
lagður. Aðlaðandi og
þægileg hýbýli eru
ramminn utan um líf hvers
manns. Og til þessa ramma
ber að vanda. Hurð skiptir
máli; og veggklæðing,
sólbekkur, eldhúsinn-
rétting, eldavél, fataskápur.
Og lika leikfimigrindin -
vitanlega, þvf að á okkar
tfmum hafa menn lært að
hraustur líkami þarf sína
umönnun; ekki síður en
________________sálin.
Trúlega finnur þú eitt-
hvað hjá okkur í TRÉ-X
-BÚÐINNI til að betrum-
bæta þitt umhverfi. Það
fæst nefnilega fleira en
þig grunar í TRÉ-x-bÚðinni
VIÐ GETLJM VÍST EKKI SELT
ÞÉR LÍFSHAMINGJUNA
— en erum hinsvegar með hluti sem bj(KV.i hcnni heim
TRÉ-X
HUÐIN
Ármúla 17 simar 84585/84461