Morgunblaðið - 09.02.1985, Blaðsíða 24
24
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 9. FEBRÚAR 1985
• •
Oldungadeildarþing-
maður og Frakki með
geimskutlu 3. mars
('ayc Canaveral, Florída, 8. febrúar. AP.
NÆ8TA Dug bandarískrar geim-
skutlu er á dagskrá 3. mars nk„ 11
dögum seinna en áætlaö var. Stafar
seinkunin af erfiðleikum vegna
líraingar einangrunarflísa, sem
verja skutluna fyrir hita, að því er
Bandaríska geimferðastofnunin til-
kynnti í gær.
1 sjö manna áhöfn skutlunnar
að þessu sinni verða m.a. banda-
riskur öldungadeildarþingmaður,
Jake Garn, repúblikani frá Utah,
og fyrsti franski geimfarinn,
Patrick Baudry.
Carrington
í Danmörku
kaupmannahöín, 8. febrúar. AP:
CARRINGTON lávarður hvatti
Dani til þess að auka herútgjöld í
dag í lok heimsóknar sinnar til
Kau pmannahaf nar.
Hann sagði að loknum viðræð-
um við Poul Schluter forsætis-
ráðherra og aðra danska ráð-
herra: „Ég hef ekki gagnrýnt
upphæð herútgjaldanna. Ég
hvatti þá aðeins til að eyða
meiru.“
Carrington ætlar að heim-
sækja öll 16 aðildarlönd Atl-
antshafsbandalagsins til þess
„kynnast hugmyndum og vanda-
málum hinna einstöku ríkja“.
Aðspurður hvort Atlantshafs-
bandalagið hefði áhyggjur af
þeirri ákvörðun ríkisstjórnar
Nýja Sjálands að neita að leyfa
kjarnorkuknúnum skipum eða
skipum búnum kjarnorkuvopn-
Veður
Lagst
Akureyri
Amsterdam +1
Aþena 6
Barcelona
Bertín +8
BrOssei
Chicago
Oublin
Feneyjar
Frankfurt
Gent
Helsínki
Hong Kong
Jerúsalem
Kaupm.hotn
Las Palmas
Lissabon
London
Los Angeles
Lúxemborg
+19
4
+23
16
5
+9
13
3
6
21
+22
+18
+5
+20
4
+5
Mallorka
Miami
Montreal
Moskva
New York
Osió
París
Peking
Reykjavík
Rio de Janeiro 17
Rðmaborg 9
Stokkhólmur +16
Sydney 16
Tófcýó 7
Vínarborg 1
Þórshötn
Haest
+6
2
17
16
+3
+7
5
5
4
7
+15
18
13
+«
15
4
19
+1
17
18
29
+15
+11
+1
+6
8
5
1
32
16
+5
22
10
9
3
skýjað
skýjað
hetöskírt
lóttsk.
skýjað
heiðskírt
hetóskírt
rigning
atskýjað
skýjað
skýjað
heiðskírt
rigning
akýjað
heiðskírt
vantar
rigning
alskýjað
skýjað
skýjað
skýjað
skýjað
skýjað
skýjað
heiðskirt
skýjað
snjðk.
skýjað
skýjað
i-:x-i.L+
fwKiflCnt
heiðskirt
skýjað
skýjað
skýjað
O'
INNLENT
KIM FAGNAÐ
Símamynd/AP
Lee Min-woo, formaður Nýja lýðræðisflokksins í Kóreu, flutti litla tölu í flugstöðinni í Seoul þegar hann beið
þar ásamt mörgu fólki öðru eftir komu andófsmannsins Kim Dae-jung, sem verið hefur í útlegð í Bandaríkjun-
um. Stuðningsmenn Kim sáu hann þó ekki í þetta sinn því að öryggisverðir fluttu hann strax á brott í bifreið til
að engin hætta væri á að einhverjir öfgamenn gætu sýnt honum banatilræði.
Grænlensk syrpa:
Vísindarannsóknir og
lækkun á vöruverði
Carrington lávarður
um að koma til ný-sjálenzkra
hafna sagði Carrington:
„Það er nóg mig fyrir mig að
hafa áhyggjur af vandamálum 16
NATO-landa og skipti ég mér því
ekki af vandamálum annarra."
Kaupmannahöfn, 8. febrúar. Frá NJ. Bruun, GrænlandsfrétUriUra Mbl.
SEX danskir vísindamenn ætla nú
í sumar að rannsaka 85 milljón
ára gamla steingervinga í Norð-
austur-Grænlandi, suðvestur af
Pearylandi, og ákaflega merkilega
jurt, sem þar vex.
Steingervingarnir eru svokall-
aðir ammónítar eða ammonshorn,
útdauð sælindýr af kolkrabbakyni,
sem varðveist hafa í kalksteins-
lögum. Þar sem þeir finnast var
land áfast Svalbarða fyrir 50—75
milljónum ára. Jurtin, sem vís-
indamennirnir ætla að skoða, er
furðuleg að því leyti, að hún getur
ýtt undir eigin vöxt með því að
Bretar vilja
við fulltrúa
Ixoadon, 8. ífbrMr. AP.
BRETAR buðust til þess í dag að ræða við Líbýumenn til að bæta sambúð
þjóðanna í framhaldi af því að þeir hafa sleppt brezkum gíslum.
Sir Geoffrey Howe utanríkis-
ráðherra sagði í skriflegri yfirlýs-
ingu í Neðri málstofunni að slíkar
viðræður gætu farið fram fyrir
milligöngu ftala. Hins vegar sagði
hann að ekki stæði til „í fyrir-
sjáanlegri framtíð" að taka aftur
upp stjórnmálasamband við Líb-
ýu.
Richard Luce aðstoðarutanrík-
isráðherra sagði í sjónvarpsviðtali
að nú væri það undir Líbýu-
mönnum komið hvort þeir vildu
sýna að þeir hefðu áhuga á eðli-
legum samskiptum siðaðra ríkja.
í yfirlýsingu Howes var ekki
vikið að þeirri staðhæfingu Mo-
ammar Khadafys Líbýuleiðtoga
að hann gerði ráð fyrir því að
Bretar mundu senda líbýska and-
ófsmenn, sem búa í útlegð í Bret-
landi, heim til Líbýu.
Fjórir Bretar, sem Líbýumenn
hafa látið lausa, komu heim í
gærkvöldi, níu mánuðum eftir að
þeir voru teknir í gíslingu. Með
ræða
Líbýu
þeim var Terry Waite, sendimaður
erkibiskupsins af Kantaraborg,
Roberts Runcie, sem samdi við
Khadafy um að gislarnir yrðu
látnir lausir.
í Manchester er mikill við-
búnaður vegna réttarhalda gegn
fjórum Líbýumönnum, sem eru
ákærðir fyrir sprengjuárásir á
andstæðinga Khadafys, sem þar
búa, í mars í fyrra.
Bretar slitu stjórnmálasam-
bandi við Líbýu þegar lögreglu-
kona var skotin til bana úr sendi-
ráði Líbýu í Lundúnum í apríl.
framleiða hita fyrir þá plöntu-
hluta, sem eru í vexti.
Motzfeldt heiöursdoktor
Jonathan Motzfeldt, formaður
landsstjórnarinnar, verður í maí
nk. kjörinn heiðursdoktor í stjórn-
málavísindum við háskólann í Al-
aska að sögn Grönlandsposten.
Titilinn fær hann fyrir starf sitt
sem samningamaðúr og ráðgjafi
og sem fyrsti leiðtogi grænlensku
heimastjórnarinnar.
Komnir úr EB
Grænlendingar eru nú formlega
lausir úr Evrópubandalaginu og
eru fyrstu áhrifin verðlækkun á
ýmsum daglegum nauðsynjum.
Geta þeir nú keypt vörurnar á
heimsmarkaðsverði og þurfa ekki
lengur að lúta þeim prísum, sem
EB ákveður. Allar mjólkurafurðir
hafa lækkað í verði og einnig
hveiti, sykur og kaffi. Mjólkurlítr-
inn kostar nú fimm kr. danskar,
250 gr. af smjöri kr. 8,50 og ostur-
inn kostar nú 32 kr. kílóið. Kjöt
hefur líka lækkað í raun en það
kemur ekki fram hjá neytendum
vegna þess, að landsstjórnin lagði
á það toll til að vernda innlenda
framleiðslu selkjöts, hvalkjöts,
lambakjöts og fugla.
Bandaríkin:
Lungnakrabbi brátt tíð-
ast krabbameina í konum
38.600 konur deyja úr sjúkdómnum á þessu ári
New Yorfc, 8. Tebrfcar. AP.
Lungnakrabbi mun ó þessu ári
verða flestum bandarískum kon-
um að aldurtila af öllum tegundum
krabbameins. Ríkisstjórnin ætti að
hjálpa til við að hefta útbreiðslu
þessa sjúkdóms með því að herða
á reglum um tóbaksauglýsingar,
sem ætlað er að hafa áhrif á konur
og unglinga, að því er talsmaður
bandariska krabbameinsfélagsins
sagði í gær, fimmtudag.
„Við höfum vitað það um
nokkurt skeið, að reykingavenj-
ur kvenna mundu hugsanlega
leiða til aukinnar dánartíðni
meðal þeirra af völdum lungna-
krabba,“ sagði dr. Robert J.
McKenna, forseti krabbameins-
félagsins, á fréttamannafundi.
Samkvæmt spá félagsins
munu 38.600 konur látast úr
lungnakrabbameini á þessu ári,
um 200 fleiri en úr brjóstkrabba.
Lungnakrabbi leggur einnig
langtum fleiri karla að velli en
nokkurt annað krabbamein, að
sögn McKenna.
„Konur, sem um þessar mund-
ir verða lungnakrabba að bráð,
eru flestar hverjar í hópi þeirra
sem hófu reykingar upp úr
seinni heimsstyrjöldinni," sagði
McKenna. Að minnsta kosti 75%
lungnakrabbatilfellanna má
rekja beint til reykinga, þannig
að u.þ.b. 29.000 kvennanna, sem
deyja munu á þessu ári af völd-
um lungnakrabbameins, „hafa
sjálfar valdið mestu um hvernig
fer,“ sagði hann.