Morgunblaðið - 09.02.1985, Side 2

Morgunblaðið - 09.02.1985, Side 2
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 9. PEBRÚAR 1985 Nýskipan í peningamálum: Seðlabankinn með kaupþing innan tveggja mánaða RÍKISSTJÓRNIN fyrirhugar nokkra nýskipan í peningamálum, í tengsl- um við aðgerðir þa-r sem hún hefur ákveðið í efnahagsmálum og voru kynntar fréttamönnum í gær. Meðal þeirra er ákvörðun um að Seðlabanki íslands setji á fót kaupþing, og upplýsti forsætisráðherra í gær að búast mætti við því að það væri komið á fót innan tveggja mánaða. Þá er stefnt að samræmingu stöðu viðkomandi banka, en jafn- aðflutningsgjalda, upptöku virð- isaukaskatts í stað söluskatts, fækkun viðskiptabanka, að lík- indum með þeim hætti að Út- vegsbankinn verður lagður niður eða sameinaður Búnaðarbankan- um. Nýjar reglur verða settar um erlendar lántökur. Heimildir banka til ábyrgða og erlendrar lántöku til að endurlána ein- staklingum eða fyrirtækjum eiga m.a. að taka mið af eiginfjár- Nýsköpun atvinnu- lífs og sjóda: 50 milljónir í tilraunir NEFND sú sem unnið hefur að gerð frumvarps um nýsköpun at- vinnulífs og sjóða, í beinu fram- haldi af ákvörðunum ríkis- stjórnarinnar frá því í septem- ber sl. er nú að Ijúka störfum, eins og Steingrímur Hermanns- son forsætisráðherra upplýsti fréttamenn um í gær. Þar er gert ráð fyrir að 500 milljónum verði varið í þessa nýsköpun og uppstokkun. Akveðið hefur verið að verja 50 milljónum króna til rann- sókna- og tilraunastarfsemi og samkvæmt því sem forsæt- isráðherra upplýsti blm. Mbl. þá verður um 300 milljónum króna veitt til þróunarfyrir- tækis þess sem verður sam- eign ríkisins og einkaaðila. Gerir forsætisráðherra ráð fyrir þvi að nefndin ljúki störfum sínum um miðjan þennan mánuð. framt verði einkaaðilum heimilt innan ákveðinna marka, að taka erlend lán, enda komi hvorki til banka- né ríkisábyrgð. Lög verða sett um greiðslu- korta- og afborgunarviðskipti og settar verða almennar reglur í samráði við hagsmunaaðila, sem tryggja aðhald að útlánum líf- eyrissjóða. Stefnir ríkisstjórnin að því að endanleg útfærsla ofangreindra atriða verði til um- fjöllunar í viðræðum við aðila vinnumarkaðarins. MorgunblaAiA/ÓI.K.llag. Efnahagsaðgerðirnar kynntar á fundi blaðamanna { gær. Talið frá vinstri: Albert Guðmundsson, fjármálaráðherra, Steingrímur Hermannsson, forsætisráðherra, og Þórður Friðjónsson, efnahagsráðunautur ríkisstjórnarinnar. Sjómenn boða til verkfalls 17. febrúan Nauðsynlegt neyðarúrræði © INNLENT Sjómannasamband íslands og Farmanna- og fiskimannasam- bandið boðuðu í gær til verkfalls á fiskiskipaflotanum. Kemur verk- fallið til framkvæmda hjá báðum aðilum klukkan 18 sunnudaginn 17. febrúar næstkomandi. Sátta- semjari hefur boðað deiluaðila til fundar í næstu viku. Óskar Vigfús- son, formaður SSÍ, og Guðjón A. Kristjánsson, forseti FFÍ, segja báðir, að verkfallsboðunin sé neyð- arúrræði og þeir voni, að ekki þurfi til þess að koma að sjómenn leggi niður vinnu. Guðjón A. Kristjánsson sagði í samtali við Morgunblaðið, að fé- lagsmenn hans hefðu fullan vilja til þess að ná samkomulagi áður en til verkfalls kæmi. Hins vegar væru um tveir mánuðir síðan samningum hefði verið sagt upp. í rúman mánuð hefði verið reynt að sitja á sáttafundum, en það hefði ekkert gengið. Því væri engin leið fyrir sjómenn önnur til að knýja fram raunverulegar viðræður. Að sumu leyti væri út- gerðin aflögufær, en vafalaust gætu stjórnvöld átt stóran þátt í að þoka þessum málum í átt til samkomulags. Þau hefðu átt stærstan hlut í því að hleypa málunum í þann hnút, sem þau væru í nú með setningu laganna — segja formenn sjómannasamtakanna um kostnaðarhlutdeild. Yrði hún felld niður eða slakað verulega á henni gæti það verið til mikilla bóta. Ennfremur gætu þau beitt sér fyrir úrbótum í lífeyris- og tryggingamálum sjómanna. Oskar Vigfússon sagði í sam- tali við Morgunblaðið, að nær öll sambandsfélög SSÍ stæðu að þessari verkfallsboðun. Þrjú fé- lög væru utan við þetta og önnur þrjú tækju ákvörðun sína á mánudag. Ef til verkfalls kæmi, sem hann vonaði að ekki yrði, væri það víðtækasta verkfall, sem sjómannastéttin hefði staðið að. Sjómenn teldu, að viðsemj- endur þeirra hefðu ekki sýnt nokkra viðleitni í þá átt að ræða kröfur sjómanna og hann mót- mælti því, að sjómenn hefðu ekki lagt sig fram til þess að ná raunhæfum viðræðum. „Þetta er neyðarúrræði og við erum að berjast fyrir lífsafkomu okkar. Þessi víðtæka verkfallsboðun sýnir það svart á hvítu, að sjó- mannastéttin er ekki ánægð með sinn hlut í dag,“ sagði Óskar Vigfússon. Þorskaflinn í janúar 70 % meiri en í fyrra Heildarfiskaflinn nær þrisvar sinnum meiri ÞORSKAFLI landsmanna í janúar síðastliðnum varð 70% meiri en í sama mánuði í fyrra. Annar botn- fiskafli var hins vegar örlítið minni, en heildarbotnfiskaflinn varð um þriðjungi meiri. Heildarafli lands- manna í mánuðinum var 156.729 lestir eða nær þrisvar sinnum meiri en í sama mánuði í fyrra. Munar þar mestu um 116.000 lesta loðnuafla. Þorskafli báta í janúar nú varð 10.076 lestir en í fyrra 6.909. Ann- ar botnfiskafli nam 4.313 lestum nú en 6.114 í fyrra. Þá er bæði rækju- og hörpudiskafli meiri nú en í fyrra. Þorskafli togara var í janúar nú 12.114 lestir en 6.110 lestir í fyrra. Annar botnfiskafli var 10.049 lest- ir nú en 8.592 í fyrra. Heildarafli Lánskjaravísitalan hefur hækkað um 34 % umfram kauptaxta: „Étur upp íbúðir fólks á skömmum tíma“ — segir Guðmundur Árnason, formaður Lífeyrissjóðs ríkisins FRÁ því í júní 1979, þegar láns- kjaravísitalan var fyrst reiknuð út, hefur hún hækkað um 34% um- fram kauptaxta verkamanna. Lánskjaravísitalan er nú 1050 stig tniðað við 100 í júní 1979 en lægsti taxti Dagsbrúnar sem gjarnan er miðað við væri nú 783 miðað við lOOíjúní 1979. Hrafn Magnússon, fram- kvæmdastjóri Sambands al- mennra lífeyrissjóða, sagði í samtali við blm. Mbl. að þessi mismunur hefði orðið á miðju ári 1983 og haldist allt árið 1984. Hinsvegar hefði kaupið hækkað meira en lánskjaravísitalan ef tekin væru 6 eða 12 mánaða tímabil til baka frá deginum í dag. „Við áttum okkur á þessum mikla vanda sem er hjá mörgum lántakendum. Fólk hefur ekki áttað sig á þessum verðtryggðu lánum enda var yfirleitt gert ráð fyrir því þegar verðtryggingin var tekin upp að kauptaxtarnir myndu hækka meira en láns- kjaravísitalan. Það hlýtur að koma að því að lífeyrissjóðirnir geri það upp við sig hvort þeir vilji lækka ný lán til sjóðfélaga, til að geta lengt lánin hjá þeim sem þegar hafa fengið lán hjá lífeyrissjóðunum," sagði Hrafn þegar hann var spurður að því hvort SAL-sjóðirnir væru að huga að þessum málum með það að markmiði að létta greiðslu- byrði lánanna. Guðmundur Árnason, formað- ur stjórnar Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins, sagði að aðgerðir til að létta greiðslu- byrði lána lífeyrissjóðsins hefðu ekki verið ræddar í stjórn sjóðs- ins en taldi að það hlyti að koma til umræðu á næsta stjórnar- fundi. Sagði hann að óhjá- kvæmilegt væri að gera eitthvað í þessum málum, hugsanlega með því að lengja lánin en það togaðist á við það að mikil ásókn væri í lán úr sjóðnum. Guð- mundur sagði að vart hefði orðið við vaxandi erfiðleika hjá sjóð- félögum með að standa í skilum með afborganir af lánum. Leng- ing lána myndi leysa vanda lán- takenda í bili en það bil sem myndast hefði á milli vinnu- launa og lánskjaravísitölu æti upp íbúðir fólks á skömmum tíma. togaranna varð því 22.163 lestir nú en 14.702 í fyrra. Heildaraflinn nú í janúar var 156.729 lestir. Þar af var loðna 116.639 lestir, þorskur 22.190, ann- ar botnfiskur 14.362, hörpudiskur 2.272 og rækja 1.250. Heildarafl- inn í janúar 1984 var 31.393 lestir. Þar af var loðna 804 lestir, þorsk- ur 13.019, annar botnfiskur 14.706, hörpudiskur 1.737 og rækja 1.127 lestir. Árið 1983 var heildaraflinn 32.508 lestir. Þar af var engin loðna, 554 lestir af síld, þorskur 18.478, annar botnfiskur 11.374, hörpudiskur 1.373 og rækja 729 lestir. Upplýsingar þessar eru fengnar frá Fiskifélagi íslands og miðast við bráðabirgðatölur hvert ár. Varðskip dælir olíu í Flatey VARÐSKIPIÐ Týr dældi í gær 30 þúsund lítrum af olíu í land í Flatey fyrir OLÍS. Nýja olíuskipið, Kyndill, getur ekki athafnað sig við Flatey, nema við mjög góð skilyrði. Að sögn Þórðar Asgeirssonar forstjóra OLÍS er oft leitað til Landhelgisgæzlunnar til slíkra verka. Hann sagði rétt vera, að nýi Kyndill kæmist ekki að við Flatey þar sem hann væri mun stærri en gamli Kyndill, þó ætti skipið að geta athafnað sig þar við góð skil- yrði. Nýi Kyndill liggur nú við bryggju í Reykjavík vegna verk- falls undirmanna á kaupskipum.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.