Morgunblaðið - 07.03.1985, Side 3
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 7. MARZ 1985
3
Stórkostleg tilfinning að fá
aftur sitt eigið barn í fangið
— segir Lena Betak, sem á fæðingar-
deild Landspítalans var látin fá ann-
arrar konu barn og fara með það heim
„JÚ, ÞETTA er dóttir mín, svo
mikið er víst. Það er stórkostleg
tilfinning að vera aftur komin
með sitt barn í fangið, eftir að
hafa alið önn fyrir öðru barni og
gefið því brjóst,“ segir Lena
Betak, dönsk stúlka, í samtali við
blaðamann Morgunblaðsins, en
Lena varð fyrir þeirri reynslu að
vera í fyrradag send heim af fæð-
ingardeild Landspítalans, með
barn sem ekki var hennar eigið.
Segist Lena þá hafa annast ann-
arrar konu barn í tvo daga á
fæðingardeild Landspítalans, eða
allt frá því að það barn fæddist.
1'i‘gar mistökin uppgötvuðust var
hringt í Lenu og henni sagt af
mistökunum og hún beðin um að
koma með barnið, hvað hún gerði
og fékk þá sitt eigið barn.
„Það sem þarna gerðist er
martröð allra fæðingardeilda,
en hvernig þetta gat gerst, get
ég ekki sagt á þessu stigi," sagði
Gunnar Biering læknir á fæð-
ingardeildinni í samtali við
Morgunblaðið, er hann var
spurður hvernig svona mistök
gætu átt sér stað. Gunnar sagði
að unnið væri að rannsókn
málsins, því það þyrfti að kanna
algjörlega ofan í kjölinn, áður
en nokkrar skýringar á mistök-
unum yrðu gefnar af hálfu
stofnunarinnar. Gunnar sagði
að svona lagað hefði aldrei áður
gerst hér á landi.
Blaðamaður Morgunblaðsins
hitti Lenu að máli við fæðingar-
deildina síðdegis í gær, þegar
hún ásamt manni sínum Tim,
dótturinni Liv og nýfæddu dótt-
urinni, voru á leið í heimsókn til
konu þeirrar sem uppgötvaði
mistökin, en hún er ennþá á
fæðingardeildinni, þar sem
dóttir hennar, sem send var
með Lenu, fæddist sl. sunnudag,
og var því ekki nema tveggja
daga gömul þegar hún var send
„heim“. „Börnin líktust talsvert,
en samt sem áður fannst mér að
barnið sem ég fór heim með,
væri yngra en dóttir mín, því
hún fæddist 28. febrúar, en
barnið sem ég fór heim með
fæddist 3. mars. Ég var bara
nýkomin heim, þegar það var
hringt í mig, en þá hafði konan
sem var með mitt barn tekið
eftir því að það var ekki hennar
barn, enda var armbandið með
mínu nafni á dóttur rninni,"
segir Lena.
Lena, maður hennar Tim, og
dætur þeirra Liv og nú einnig sú
Öll fjölskyldan sameinuð á nýjan leik. Lena og Tim Betak með dætur sínar Liv og þá nýfæddu. MorgunbiaAið/Emilía
nýfædda, búa á Vallá á Kjalar-
nesi. Þau fóru strax og höfðu
barnaskipti í fyrradag þegar
mistökin uppgötvuðust.
Lena segist enga skýringu
hafa fengið á þessum mistökum
hjá fæðingardeildinni, „en mis-
tökin eru tvímælalaust hjúkr-
unarfólksins,“ segir Lena, „því
börnunum var víxlað í vöggum."
Lena og Tim segjast vera
mjög fegin að þessu er lokið og
segjast bæði sannfærð um að nú
séu þau með sína réttu dóttur.
Morgunblaðinu tókst ekki í
gær að fá samtal við móður þess
barns sem sent var heim með
Lenu.
RENAULT11
AST VIÐ FYRSTU KYHNI
Renautt 11 hefUr fengið margar vidurkenningar fyrlr frábæra hönnun og flöðrunln er engu lík. Rymi og þægindi koma öilum
í gott skap. Komdu og reyndu hann, pað verður ást við fyrstu kynni. Þú getur reitt þig á Renault
KRISTINN GUDNASON HF.
SUÐURLANDSBRAUT 20, SÍMI 686633