Morgunblaðið - 07.03.1985, Side 6
6
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 7. MARZ 1985
Höfðings-
lundin
r
Aþriðjudagskvöldið heilsaði
sjónvarpsmaðurinn Ingvi
Hrafn uppá merkiskonu í þættin-
um Heilsað uppá fólk, er hann brá
sér að Hurðarbaki í Borgarfirði til
fundar við Sigríði Sigurjónsdóttur
frá Álafossi. Sigríður er hin glæsi-
legasta kona, höfðingleg og frjáls-
leg í framkomu, enda hvílir líf
hennar á styrkum stoðum mennt-
unar og menningarlegs viðhorfs,
er faðir hennar, hinn landsþekkti
Sigurjón á Álafossi, innrætti
henni og systkinum hennar frá
blautu barnsbeini. „Pabbi var að
mestu sjálfmenntaður og hann
vildi að við krakkarnir lærðum
sem allra mest,“ sagði Sigríður á
einum stað í spjallinu. Þessi at-
hyglisverðu ummæli aldamóta-
mannsins frá Álafossi ríma við þá
hugsun er fram kom í spjalli
Sverris Diego við Jón Sigurðsson
Járnblendiforstjóra í síðdegisút-
varpi rásar 1 fyrr um daginn, en
þar sagði Jón meðal annars: Þekk-
ing, og fyrst og fremst þekking,
bætir lífskjörin í þessu landi, því
það er ekki endalaus olía á hafs-
botni sem hægt er að ausa af.
Aflgjafi framtíðar
Þannig líta tveir merkir menn
till þekkingar sem aflgjafa er hef-
ur manninn ekki aðeins til hæða í
ríki andans og gerir hann frjáls-
legan og höfðinglegan að hætti
Sigríðar frá Álafossi, heldur
styrkir og þann efnahagslega
grunn er mannlífið hvílir á.
Raunar virðist mér sem þeir
Sigurjón og Jón séu ekki einir um
að mæna til þekkingarfjársjóðs-
ins, þar í sveit skipa sér allir
helstu forystumenn dagsins í dag
með Steingrím Hermannssón í
fararbroddi: Traustur þekk-
ingargrundvöllur og menntun
ungu kynslóðarinnar er okkar
dýrmætasti fjársjóður. Eitthvað á
þessa leið mæltist Steingrími í
áramótaræðunni.
Ég hef þá trú að fyrrgreind hug-
sjón Steingríms forsætisráðherra
nái fram að ganga undir forystu
núverandi menntamálaráðherra.
Ég byggi þessa skoðun mína á því
að Ragnhildur kemur úr menning-
arlegu umhverfi líkt og höfðings-
konan frá Álafossi. Sá sem er
fóstraður í slíku umhverfi skilur
gildi menningar og fræðslustarfs.
Því á Ragnhildur Helgadóttir í
raun samleið með þeim framhalds-
skólakennurum, sem nú hafa sagt
upp störfum sínum, en þessir
kennarar sjá fram á að fræðslu-
kerfið muni grotna niður á næstu
árum fáist ekki leiðrétting launa-
kjara. Þessir menn una því ein-
faldlega ekki að geta ekki vegna
yfirvinnuþrælkunar hafið sóknina
af fullum þunga til hærra þekk-
ingarstigs er síðar leiðir til betri
lífskjara þjóðarinnar.
Þjóðarátak
Það vill svo til að sá er hér stýr-
ir penna hefir þann heiður að taka
ár hvert við fjölda nemenda er
eiga í námserfiðleikum vegna lé-
legs undirbúnings, er oft stafar af
vankunnáttu réttindalausra kenn-
ara á hinum lægri skólastigum.
Hugsið ykkur ef hið sama á eftir
að gerast í framhaldsskólum
landsins? Kæru lesendur, við get-
um endalaust rifist um réttmæti
verkfallsaðgerða og í guðanna
bænum mótmælið ef ykkur sýnist
svo fyrrgreindri afstöðu minni til
aðgerða framhaldsskólakennara
er nátturulega litast mjög af því að
ég er sjálfur búinn að segja upp,
en getum við ekki öll verið sam-
mála þeim Sigurjóni á Álafossi,
Jóni Járnblendiforstjóra og
Steingrími forsætisráðherra um
lífsnauðsyn aukinnar þekkingar-
öflunar og styrkari menntunar-
legrar undirstöðu — að hér sé þörf
þjóðarátaks?
Úlafur M.
Jóhannesson.
ÚTVARP / S JÓN VARP
Fyrrverandi þingmenn
Vesturlands segja frá
■i í dag kl. 11.30
30 verður á
““ dagskrá út-
varps fjórði þáttur Eð-
varðs Ingólfssonar í
þáttaröðinni Fyrrverandi
þingmenn Vesturlands
segja frá. Að þessu sinni
spjallar Eðvarð við Jósef
H. Þorgeirsson lögfræðing
sem sat á þingi fyrir
Sjálfstæðisflokkinn frá
árinu 1978 til 1983, eða tvö
kjörtímabil.
Eðvarð sagði í samtali
við Morgunblaðið að í
þáttum þessum væri að-
Rætt verður við Jósef H.
Þorgeirsson fyrrum þing-
mann Sjálfstæðisflokksins.
eins lítillega vikið að
þingferli viðmælanda
hans. Þættirnir eru í létt-
um dúr og spjallað við
þingmennina fyrrverandi
um þeirra æsku- og upp-
vaxtarár, áhuagamál og í
raun og veru allt milli
himins og jarðar.
Þáttur þessi er sem fyrr
segir sá fjórði í röðinni en
alls verða þættirnir sjö
talsins. í næstu þremur
þáttum verður rætt við
Jónas Árnason, Ingiberg
J. Hannesson og Benedikt
Gröndal.
Þriðji maðurinn
■■■ í kvöld kl. 21 er
00 á dagskrá rásar
““ 2 þátturinn
Þriðji maðurinn sem
hleypt var af stokkunum
fyrir viku. Stjórnendur
þáttarins eru þeir Ingólf-
ur Margeirsson og Arni
Þórarinsson.
í fyrsta þættinum var
borgarstjórinn okkar,
Davíð Oddsson, „þriðji
maðurinn" en í kvöld er
það Guðrún Helgadóttir,
alþingismaður og rithöf-
undur. Spjallað verður við
hana um líðandi stund og
leikin tónlist, bæði að
hennar vali og stjórnenda
þáttarins.
Guðrún Helgadóttir, alþing-
ismaður og rithöfundur.
Tónlistarkrossgátan
Hér birtist tónlistar-
krossgáta rásar 2 númer
21. Þáttur Jóns Gröndal
er á dagskrá rásar 2 á
sunnudag 10. marz kl. 15.
Gefst þá hlustendum
kostur á að svara einföld-
um spurningum um tón-
list og tónlistarmenn og
ráða krossgátuna um leið.
Lesendur Morgunblaðsins
hafa vafalaust veitt því
eftirtekt að krossgáta er
nú birt tveimur dögum
fyrr en áður og er ástæða
þess sú að að nú hafa allur
Vestfjarðakjálkinn og
stærsti hluti Norðurlands
bæst í hlustendahóp rásar
tvö. Þar sem ferðir eru
stopular til þessara lands-
hluta þótti ráðlegt að
birta krossgátuna fyrr.
Rétt svör sendist til
Ríkisútvarpsins, rás 2,
Hvassaleiti 60, 108
Reykjavík, merkt Tónlist-
arkrossgátan.
Chet Baker
Frá tónleikum Chets
Baker í Gamla bíói
■■■■ Á rás 2 í kvöld
OO 00 kl. 23 verður
— klukkustundar
langur þáttur frá tónleik-
um trompetleikarans
Chet Bakers í Gamla Bíói
3. febrúar sl. Stjórnandi
þáttarins er Vernharður
Linnet.
Að sögn Vernharðs er
Chet Baker einn af
fremstu trompetleikurum
jazzins og er þar að auki
hinn ágætasti söngvari.
Heimsfrægð hlaut hann
sem trompetleikari Gerry
Mulligans á árunum
1952-53, en áður hafði
hann m.a. leikið með
Charlie Parker.
Chet Baker var árum
saman kjörinn trompet-
leikari jazzins í árlegum
kosningum Down Beat og
annarra tónlistartíma-
rita. Hann heimsótti ís-
land árið 1955 og aftur í
febrúar sl. sem fyrr segir.
Um nokkurt árabil átti
Baker í baráttu við hið
hvíta eitur en sigraði það
fyrir rúmum áratug, að
sögn Vernharðs.
í þættinum í kvöld
verður rætt við þá sem
léku með Baker í Gamla
Bíói, þá Kristján Magn-
ússon, Tómas Einarsson
og Svein óla Jónsson.
Loks verður spjallað við
Jónatan Garðarsson rit-
ara Djazzvakningar en
Baker kom hingað til
lands á vegum hennar.
ÚTVARP
FIMMTUDAGUR
7. mars
7.00 Veöurfregnir. Fréttir.
Bæn.
A virkum degi. 7.25 Leikfimi.
8.00 Fréttir. Dagskrá. 8.15
Veöurfregnir.
Morgunorð: — Sigurveig
Guömundsdóttir talar.
9.00 Fréttir.
9.05 Morgunstund barnanna:
„Agnarögn" eftir Pál H.
Jónsson. Flytjendur: Páll H.
Jónsson. Heimir Pálsson og
Hildur Heimisdóttir (2).
9.20 Leikfimi. 9.30 Tilkynn-
ingar. Tónleikar. 9.45 Þing-
fréttir.
10.00 Fréttir. 10.10 Veður-
fregnir. Forustugr. dagbl.
(útdr ). Tónleikar.
11.00 „Ég man þá tlð." Lög frá
liðnum árum. Umsjón: Her-
mann Ragnar Stefánsson.
11.30 Fyrrverandi þingmenn
Vesturlands segja frá. Eð-
varð Ingólfsson ræðir við
Jósep Þorgeirsson.
12.00 Dagskrá. Tónleikar. Til-
kynningar
12.20 Fréttir. 12.45 Veður-
fregnir. Tilkynningar. Tón-
leikar
13^0 Barnagaman. Umsjón:
Anna Ringsted (RÚVAK).
13.30 Tónleikar.
14.00 „Blessuð skepnan" eftir
James Herriot. Bryndls Vlg-
lundsdóttir les þýðingu slna
(21).
14J0 A frlvaktinni. Sigrún Sig-
urðardóttir kynnir óskalög
sjómanna.
15.30 Tilkynningar. Tónleikar.
16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15
Veðurfregnir.
16i0 Slödegistónleikar.
a. Fiðlusónata I A-dúr op.
100 eftir Johannes Brahms.
Pinchas Zukerman og Daniel
Barenboim leika.
b. Strengjakvartett nr. 16 I
F-dúr op. 135 eftir Ludwig
van Beethoven. Budapest-
kvartettinn leikur.
17.10 Slðdegisútvarp
Tilkynningar
19.15 A döfinni.
Umsjónarmaður Karl Sig-
tryggsson. Kynnir Birna
Hrólfsdóttir.
19.25 Krakkarnir I hverfinu.
12. Benjamln viörar hundinn.
Kanadlskur myndaflokkkur
um hversdagsleg atvik I llfi
nokkurra borgarbarna. Þýð-
andi Kristrún Þórðardóttir.
19.50 Fréttaágrip á táknmáli.
20.00 Fréttir og veður.
20.30 Kastljós.
Þáttur um innlend málefni.
Umsjónarmaður Sigurveig
Jónsdóttir.
18/45 Veöurfregnir. Dagskrá
kvðldsins.
19.00 Kvöldfréttir. Tilkynningar.
19Æ0 Daglegt mál. Sigurður G.
Tómasson flytur þáttinn.
20.00 Hvlskur. Umsjón: Hörður
Siguröarson.
20.30 Kvöld I Mývatnssveit.
Umsjón: Jónas Jónasson.
(RUVAK).
21.25 Frá tónleikum Kamm-
ersveitar Reykjavlkur I As-
kirkju 4. des. sl. Strengja-
sextett I B-dúr op. 18 eftir
Johannes Brahms. Rut Ing-
21.15 Mezzoforte.
Hljómsveitin Mezzoforte leik-
ur á alþjóðlegri djasshátlð I
Montreux I Sviss árið 1984.
22.35 Ráðgátan I Oberwald.
(II mistero di Oberwald.) It-
ölsk sjónvarpsmynd gerð
eftir leikritinu „Þrlhöfða ern-
inum" eftir Jean Cocteau.
Leikstjóri Michelangelo Ant-
onioni. Aðalhlutverk: Monica
Vitti og Paolo Bonacelli.
Myndin gerist I Evrópu á öld-
inni sem leiö. Konungshjónin
þar bera svipmót af Ellsa-
betu keisaradrottningu Aust-
ólfsdóttir og Szymon Kuran
leika á fiðlu, Helga Þórar-
insdóttir og Robert Gibbons
á vlólu, Inga Rós Ingólfs-
dóttir og Arnþór Jónsson
leika á selló.
22.00 Lestur Passlusálma. (28)
22.15 Veðgrfregnir. Fréttir.
Dagskrá morgundagsins.
Orð kvöldsins.
22.35 Fimmtudagsumræðan
— Um nýskipan útvarps-
mála. Umsjón: Helgi Péturs-
son.
23/45 Fréttir. Dagskrárlok.
urrlkis og Lúðvlk II. Bæjara-
kóngi. Er sagan hefst hefur
konungur verið myrtur en
ekkjan hefur flúið hirðina og
ferðast millí halla sinna.
Fjendur krúnunnar senda
ungt skáld til höfuðs drottn-
ingu og ber fundum þelrra
saman I Oberwaldhöll. Sam-
skipti þeirra verða þó ólíkt
vinsamlegri en til var ætlasí.
Þýðandi Þurlður Magnús-
dóttir.
00.45 Fréttir I dagskrárlok.
10.00—12.00 Morgunþáttur.
Gestur þáttarins er Guðrún
Helgadóttir, rithöfundur og
alþingismaður.
14.00—15.00 Dægurflugur
Stjórnandi: Leópold Sveins-
son.
15.00—16.00 I gegnum tlðina
Stjórnandi: Ragnheiður
Davlösdóttir.
16.00—17.00 Bylgjur
Framsækin rokktónlist.
Stjórnendur: Asmundur
Jónsson og Arni Danlel Júll-
usson.
17.00—18.00 Einu sinni áður
var
Vinsæl lög frá 1955 til 1962
— Rokktlmabiliö.
Stjórnandi: Bertram Möller.
Hlé
20.00—21.00 Vinsældalisti
hlustenda rásar 2
10 vinsælustu lögin leikin.
Stjórnandi: Páll Þorsteins-
son.
21.00—22.00 Þriðji maðurinn
Stjórnendur: Ingólfur Mar-
geirsson og Arni Þórarinsson
22.00—23.00 Rökkurtónar
Stjórnandi: Svavar Gests.
23.00—24.00 Fluttur verður
hluti af tónleikum Chet Bak-
ers I Gamla blói þann 2.
febrúar sl.
SJÓNVARP
FÖSTUDAGUR
8. mars