Morgunblaðið - 07.03.1985, Page 16

Morgunblaðið - 07.03.1985, Page 16
16 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 7. MARZ 1985 Tillögur að nýrri reglugerð um kjötmat: „Nauðsynlegt að fræða al- menning betur um matiða — segir dr. Sigurgeir Þorgeirsson „ÁRANGUR kjötmats veltur fyrst og fremst á því að almenningur þekki það og leggi það að einhverju leyti til grundvallar við kjötinnkaup sín. Ef það er ekki er tilgangur matsins ákaflega hæpinn,“ sagði dr. Sigurgeir Þorgeirsson, ritari nefndar sem Pálmi Jónsson skipaði í landbúnaðarráðherratíð sinni, til að endurskoða reglugerðina um slátrun, mat og meðferð sláturafurða. Nefndin hefur haldið yfir 30 talið varða. Að fengnum þeim um- Fyrsta flokks lambakjöt sagað niður. fundi á því tveggja og hálfs árs tímabili sem hún hefur starfað. Hún hefur nú samið drög að nýrri reglugerð og sent þau til umsagnar þeim aðilum sem málið er einkum sögnum verður gengið endanlega frá tillögum að nýrri reglugerð og þær afhentar landbúnaðarráð- herra. Nefndin leggur til nokkrar breytingar á mati kinda-, nauta- og þegar spurt er hvort þú viljir nótu - það er öruggara Það er freistandi að segja nei, þegar þér stendur til boða ríflegur afsláttur. En nótulaus viðskipti geta komið þér í koll. Sá sem býður slíkt er um leið að firra sig ábyrgð á unnu verki. Samkvæmt lögum og reglugerðum um söluskatt og bókhald er öllum þeim sem selja vöru og þjónustu skylt að gefa út reikninga vegna viðskiptanna. Reikningar eiga að vera töluSettir fyrirfram og kaupandi á að fá eitt eintak. Sé um söluskattsskylda vöru eða þjónustu að ræða á það að koma greinilega fram á reikningi. FJÁRMÁLARÁÐUNEYTIÐ svínakjöts. Rætt var við Sigurgeir um þau mál á dögunum. Hann var fyrst spurður að því hverju væri helst ábótavant í nú- gildandi matsreglum. „Gagnrýni hefur komið fram um að matið væri ekki nógu markvisst. Sem dæmi um það hefur verið nefnt að 1. flokkur dilkakjöts er eins konar safnflokk- ur sem rúmar mjög ólíkar gerðir kjöts, allt frá rýru kjöti upp í held- ur feitt úrvalskjöt. Þá hefur fram- kvæmd matsins verið gagnrýnd; að ósamræmis gætti í matinu á milli staða. Einnig hefur verið rætt um að vinnslukjötið væri flokkað í óþarflega marga flokka. Að lokum er það alltaf umdeilt hvort yfirleitt eigi að meta kjöt. Þá er hægt að nefna vanda við kjötmatið, sem við þurftum að taka á. Það er hversu erfitt hefur reynst að láta gæða- flokkamatið halda sér í gegnum sölukerfið. Oft hefur leikið grunur á að lakari flokkar séu seldir sem betri flokkar," sagði Sigurgeir. „Þær reglur sem við leggjum til að taki við,“ sagði Sigurgeir að- spurður um tillögur nefndarinnar „gera ráð fyrir stórauknum kröfum til hæfni matsmanna. Við gerum ráð fyrir að þeir þurfi að sækja námskeið og standast próf að þeim loknum til að öðlast réttindi sem matsmenn. Lagt er til að þeir verði hreyfanlegir á milli sláturhúsa til að auka samræmi í matinu. Lagðar eru til veigamiklar breyt- ingar á matsreglunum sjálfum, sem miða að því að gera matið mark- vissara. Þáttur fitunnar í matinu er aukinn, þ.e. meira er lagt upp úr því að flokka eftir fitumagni en áður. Þetta á við allar tegundir kjöts, en sérstaklega þó dilkakjötið þar sem tekin er upp tvöföld flokkun, ann- arsvegar eftir vaxtarlagi og vöðva- fyllingu og hinsvegar eftir fitustigi. Þá er vinnslukjötsflokkunum fækk- að um helming, úr 12 í 6. Við gerum einnig tillögur um ákveðnar reglur um merkingu á kjöti, sem m.a. byggjast á því að litamerkja umbúðir eftir gæða- flokkum. Nú þegar eru í gildi reglur um ákveðna liti á merkimiðum sem notaðir eru á heila skrokka i slát- urhúsunum en við leggjum til að þessar litamerkingar verði látnar ná í gegnum allt sölukerfið, alveg þar til varan er komin í hendur neytandans. Um leið er nauðsynlegt að auka kynningu og fræðslu meðal almennings á því á hverju kjötmat- ið byggist og til hvers það er, enda er það undirstaða þess að kjötmatið sem slíkt komi að notum." Það er gjarnan litið á kjötmatið sem eitthvað sem bændur fá greitt fyrir kjötið eftir. Hinn almenni neytandi verður ekki svo mikið var við mismunandi flokka kjöts í inn- kaupum sínum. Hvað vilt þú segja um þetta? „Áð mínu mati á að vera hægt að ganga að kjötinu aðgreindu í kjöt- borðum verslana með glöggum merkingum þannig að fólk geti val- ið sér kjöt við hæfi, t.d. magurt kjöt án þess að eiga það á hættu að fá feitt kjöt með. Svona er kjötið ekki boðið fram í dag og mikill hluti þeirra kvartana sem berast er vegna þess að fólk fær kjötið ekki með því fitustigi sem það óskar. Það tel ég <}ð sé eingöngu vegna þess að söluaðilar leggja sig ekki nógu vel fram við að þjóna fólki. Til dæmis má nefna það að magrasta kjötið, þ.e. 2. flokkur, liggur eftir óselt í árslok hjá afurðasölunum, á sama tima og sífellt er hamrað á því að allir vilji borða magurt kjöt. Það ætti að vera höfuðverkefni afurðasölufélaga landbúnaðarins, ekki síst vegna þess hvernig nú árar í landbúnaði, að þjóna sem best kröfum neytenda um fjölbreytt úr- val kjöts sem og annarra búvara," sagði dr. Sigurgeir Þorgeirsson að lokum. 75 _ _iiglýsinga- síminn er224 80

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.