Morgunblaðið - 07.03.1985, Side 26

Morgunblaðið - 07.03.1985, Side 26
26 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 7. MARZ 1985 Áttu í basli með TÆKNIHEITIN? Þú ert ekki einn um það Tækniorð vefjast fyrir niörgum, nemendum í m tækniskólum og framhalds- skólum, starfsmönnum fyrirtækja á sviði tæknibúnaðar og mörgum öðrum sem í vinnutíma eða frítíma hafa ensk tækniorð fyrir augunum. Við hjá MÍMI bjóðum uppá námskeið í TÆKNIEN SKU II.—22. mars, kl. 16—18 Farið verður í gegnum sérhæfð tækniheiti og málfar tæknimanna á ýmsum sviðum með hjálp myndbanda og ýmissa annarra hjálpargagna. Áhersla verður lögð á samræður á tæknimáli. Kennari: Nick Hanningen Innritun í síma 10004 og 21655 GREIÐSLUKORTAMÓNUSTA MÁLASKÓLINN Brautarholti 4 Frá Aquino-réttarhöldunum á Filippseyjum Heraclides Morales (til vinstri) reynir að bera kennsl á fylgdarmenn Aquinos þegar hann var skotinn til bana. Til greina koma 26 sakborningar. Hann hélt því fram að Claro Lat liðþjálfl (sem er standandi) hefði verið einn af fylgdarmönnunum. Yfirmaður heraflans, Fabian C. Ver hershöfðingi, lítur upp. Spáð miklu afhroði frjálsra demókrata Kosið í þremur ríkjum í V-Þýskalandi: Berlín, 6. mars. AP. KOSIÐ VERÐUR í þremur ríkjum í Vestur-Þýskalandi á sunnudag, Vestur- Berlín, Saar og Hesse. Því er spáð, að flokkur Frjálsra demókrata muni gjalda mikið afhroð, en umhverfisverndarsinnar styrki stöðu sína verulega. í Vestur-Berlín stendur aðal- baráttan um embætti borgar- stjóra. Talið er að hvorki núver- andi borgarstjóri, Eberhard Di- epgen úr flokki Kristilegra demó- krata, né Hans Apel, fyrrverandi varnarmálaráðherra, sem er frambjóðandi jafnaðarmanna, vinni hreinan meirihluta vegna framboðs stjórnmálaflokks rót- tækra vinstri sinna, sem nefnist Hinn kosturinn. f Saar er kosið til ríkisþingsins og ræðst þá hvort Oskar Lafont- aine, hinn róttæki borgarstjóri Saarbrúcken, verður næsti ríkis- stjóri. Lafontaine, sem er í vinstri armi Jafnaðarmannaflokksins, er hlynntur úrsögn Vestur-Þýska- lands úr hernaðarsamstarfi NATO-ríkja og yfirlýstur and- stæðingur kjarnorkuvopna. Hann hefur verið nefndur sem kanslara- efni jafnaðarmanna í kosningun- um 1987. í Hesse er kosið til þings og sveitarstjórna, og hafa deilur, sem þar hafa geisað að undanförnu um Líf og dauði síamstvíbura Lundúnum, 6. mars. AP. Síamstvíburasystur, sem fæddust á föstudaginn, voru á gjörgæslu- deild, en ekki í bráðri lífshættu, eftir tfu klukkustunda skurðaðgerð til að skilja þær að. Síamstvíburabræður sem fæddust á mánudag dóu í dag meðan á aðskilnaðaruppskurði stóð. Þeir deildu hjarta og það var bilað. Búkar systranna tveggja voru samfastir að framanverðu og hafa þær báðar hjarta, en deildu lifur. Hjarta annarrar er gallað og auk þess er hún nýrnaveik. Var nokk- uð óttast um líf hennar, en hún var þó ekki í bráðri lífshættu eftir aðgerðina og nokkrar vonir stóðu þá til að takast mætti að bjarga henni. umhverfismál og atvinnuleysi, sett mikinn svip á kosningabarátt- una. Jafnaðarmenn hafa meiri- hluta á ríkisþinginu, sem situr í Wiesbaden, en þarfnast stuðnings Græningja, flokks umhverfis- verndarsinna, til að halda völdum. Talið er fullvíst að í öllum ríkj- unum þremur muni flokkur Græn- ingja styrkja stöðu sína, sem þriðji stærsti stjórnmálaflokkur landsins, en Frjálsir demókratar, sem aðild eiga að sambandsstjórn- inni í Bonn, tapa miklu fylgi. Hinn kosturinn í Vestur-Berlín, sem er í tengslum við flokk Græningja, er talinn geta fengið allt að 18% fylgi í kosningunum. Árið 1981 fékk listinn, sem berst m.a. fyrir því að banna bifreiðaakstur í borginni og fækka í herliði banda- manna þar, 7% atkvæða. Auk ýmissa héraðsmála snúast kosningarnar í ríkjunum þremur um atvinnuleysið í Vestur-Þýska- landi, sem ér 10%, efasemdir sem fram hafa komið um greiðslugetu almannatrygginga, áhyggjur vegna uppsetningu meðaldrægu kjarnorkueldflauganna og fjár- málahneyksli það, sem tengist Flick-fyrirtækjasamsteypunni. Andlega mengunin í Kína fer vaxandi: „Wham“ heldur þar tvenna hljómleika Lundúnum, 6. mtre. AP. BRESKU poppsveinarnir Andrew Kínversk ungmenni eru sólgin í sungið fjögur „Wham!“-lög inn á Ridgeley og George Michael, sem vestræna popptónlist, en það sést síðustu hljómplötu sína. skipa hinn geysivinsæla dúett best á því, að lítt eða óþekktar Fyrri hljómleikarnir verða í „Wham!“ munu halda í hljómleika- hljómsveitir hafa iðulega fyllt „Leikfimisal alþýðunnar" í Peking ferðalag til Kína í næsta mánuði. hljómleikahallir í landinu. „Wham!“ 7. aprfl, hinir sfðari í Operuhöllinni í Munu þeir koma fram í Peking og eiga mikið fylgi í Kína, þannig hafa Canton 11. aprfl. Ferð þeirra Ridge- Canton. Eigi er langt síðan að Kín- fimm kfnverskir poppsöngvarar ley og Michael er þannig tilkomin, verjar álitu alla vestræna tónlist, hljóðritað nýjasta lag „Wham!“, *ð kínverskir sendiráðsmenn hlýddu einkum dægurlagatónlist, „andlega „Careless Whisper" á síðustu * Wham! á hljómleikum í Tókýó mengun", en nú er öldin önnur á hljómplötum sínum og einn alvin- fynt skömmu og viðræður fóru fram þeim bæ. sælasti poppsöngvari Kína hefur strax í kjölfarið.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.