Morgunblaðið - 07.03.1985, Síða 52
52
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 7. MARZ 1985
hafa pantað
far til íslands
á Skotaleikinn
SKOTAR leika gegn íslendingum
hér i landi (vor í heimsmeistara-
keppninni í knattspyrnu sem
kunnugt er. Skv. upplýsingum
Morgunblaösins er næsta víst að
nokkur hundruö áhangendur
skoska liösina koma hingaö til
lands i leikinn.
Jóhann D. Jónsson hjá Flugleiö-
um í London sagöi í samtali viö
Mbi. aö liölega 500 pantanir lægju
nú þegar fyrir um ferö á leikinn í
Skotlandi, en þeim gæti auövitaö
fjölgaö. „Hótelpláss í Reykjavík
kemur þó til meö aö takmarka
þann fjölda sem fer á leikinn,"
sagöi Jóhann.
Þegar írska landsliðiö lék hér á
landi í september 1983 komu með
því um 100 manns og setti sá hóp-
ur talsveröan svip á Reykjavík
meðan hann dvaldi hér.
Sá fjöldi sem kemur meö Skot-
unum veröur sá mesti er fylgt hefur
knattspyrnuliöi hingaö til lands.
Hassis sigraöi
í Vasagöngunni
VASAGANGAN er elsta trimm-
ganga sem fram fer órlega í Evr-
ópu, hún fór fram i sunnudag í
Gruellingdal í Svíþjóö. Þetta var í
62. skiptiö sem þessi ganga fer
fam og voru þátttakendur 13.300
þar af 1.300 erlendir og 500 konur
sem er mesti fjöldi kvenna frá
upphafi. f Vasagöngunni eru
gengnir 88,8 kílómetrar og er hún
ein fjölmennasta og vinsælasta
skíöaganga í Evrópu.
Bengt Hassis frá Svíþjóö sem
var í ööru sæti 1984 sigraöi á
sunnudaginn á tímanum 4:45,43
klukkustundir sem er lakasti tími
síöan 1978 þegar Frakkinn Jean
Pierre Pierrat sigraði. Skíöafæri í
brautinni var frekar erfitt, nýfallinn
snjór og 10 stiga frost.
Orjan Blomquist frá Svíþjóð
varö í ööru sæti, hann var í þriöja
sæti í fyrra. Lars Frykberg sem
sigraði í göngunni 1982 varö í
þriöja sæti, fjóröi var enn einn Svíi
Anders Blomquist sem var einnig í
fjóröa sæti á síöasta ári.
Svíar áttu níu fyrstu menn í
göngunni, besta árangri erlendu
keppendanna náöi Svisslendingur-
inn Konrad Hallenbarter sem hafn-
aöi í 10. sæti 2,3 mínútum á eftir
sigurvegaranum.
Besta árangri Norömanna sem
fjölmenntu í þessa göngu náöi
Magnar Rismyr sem hafnaöi í 12.
sæti.
Besti tími sem náöst hefur í
J>loiiiunMnbit» "
mm
göngu þessari frá upphafi er
3:58,08 klukkustundir.
Fyrst var keppt í Vasagöngunni
1922, hún er nefnd eftir Gustav
Vasa Svíakonungi sem var uppi
eftir aldamótin 1500.
Bordeaux efst
í Frakklandi
LEIKIÐ var í 1. deildinni í knattspyrnu í Frakk-
landi um siöustu helgi, úrslit leikja voru þessi:
Nantes — Metz 1—0
Brest — Auxerre 2—0
Toulon — Lens 1—0
Monaco — Strasbourg 3—0
Pais S.G. — Tours 2—0
Toulouse — R.C. París 1—3
Nancy — Rouen 2—2
Laval — Marseille 4—2
Staöa efstu liöa í 1. deildinni í Frakklandi er
þessi. stjg
Bordeaux 45
Nantes 38
Toulon 33
Auxerre 32
Monaco 30
Brest 30
Morgunblaðid/ Júlíus
• ívar Webster spilaöi mjög vel í gær gegn Val. Hann skoraöi 22 stig og hirti fjöldann allan af fráköstum.
Gífurleg spenna í Hafnarfirði;
„Heppnin var okkar megin“
— sagöi Jón Steingrímsson Val í gær eftir sigurinn
FYRSTI leikurinn í úrslita-
keppni KFÍ fór fram í gær-
Getrauna- spá MBL. 1 Sundsy Mirror Sunday People Sunday Expraaa ! * i ö «1 1 Sunday Tstagraph SAMTALS
1 X 2
Coventry — QPR 1 1 1 X 1 1 5 1 0
Norwich — Aston Villa X 1 1 X X X 2 4 0
Nott. For. — Newcastle 1 1 1 1 1 1 6 0 0
Sunderland — Arsenal 1 X X 2 1 2 2 2 2
Cardiff — Fulham 2 2 X 2 X X 0 3 3
Carlisle — Grimsby 2 X X X 2 X 0 2 4
C. Palace — Wolves 1 1 1 1 2 1 5 0 1
Leeds — Huddersfield 1 1 1 1 1 1 6 0 0
Man. City — Middlesbrough 1 1 1 1 1 1 6 0 0
Oldham — Blackburn X X 2 2 2 X 0 3 3
Sheff. Utd. — Oxford 2 2 2 X X 2 0 2 4
Shrewsbury — Charlton X 1 1 1 1 1 5 1 0
kvöldi, þaö var viðureign Hauka
og Vals í meistaraflokki karla í
Hafnarfiröi. Valur sigraöi meö
aöeins einu stigi, 80—79, í stór-
skemmtilegum og jöfnum leik.
Staöan í hálfleik var 40—37
fyrir Hauka.
„Þetta voru mjög ánægjuleg
úrslit fyrir okkur, viö vorum
heppnir í kvöld, sigurinn heföi al-
veg eins geta endað hjá Hauk-
um. Leikurinn á mánudagskvöld
viö Haukana veröur án efa erfið-
ur,“ sagöi Jón Steingrímsson,
leikmaöur Vals, eftir leikinn í
Hafnarfirði í gærkvöldi.
Fyrri hálfleikur var frekar
sveiflukenndur, jafnræði var
með liðunum framan af upp í
4—4, síðan tóku Haukarnir mik-
inn sprett og komust mest í 14
stiga forystu um miðjan hálfleik-
inn, 25—11, en Valsmenn gáfust
aldrei upp og söxuöu hægt og
bítandi á forskot Hauka og náöu
að minnka muninn í aðeins þrjú
stig í hálfleik, 40—37. Ivar
Webster var mjög góöur í fyrri
hálfleiknum, skoraöi 14 stig og
náöi fjölda frákasta.
Síðari hálfleikur var jafn frá
fyrstu mínútu. Valsmönnum
tókst aö jafna strax í 3. mínútu
hálfleiksins, 44—44, síðan var
jafnt á með liðunum það sem
eftir var hálfleiksins og mátti sjá
tölur eins og 52—52, 58—58, og
þegar hálfleikurinn var hálfnaöur
var enn jafnt, 68—68. Síöan
voru Haukarnir með frumkvæðið
í leiknum, þegar tvær og hálf
mínúta var eftir af leiknum var
staöan 77—74 fyrir Hauka,
Valsmenn geröu síöan næstu
þrjár körfur og breyttu stöðunni
í 78—77 sér í hag og voru þá
aöeins tvær mínútur eftir af
leiknum. Pálmar skoraöi næstu
körfu og kom Haukum yfir og
voru þá ein og hálf mínúta eftir
af leiknum, Valsmenn hófu sókn
og héldu knettinum þar til 22
sekúndur voru eftir, en Torfi
Magnússon skoraöi þá sigur-
körfu Vals og sigurinn í höfn,
80—79 fyrir Val.
Leikurinn var mjög vel leikinn
af beggja hálfu, sigurinn gat al-
veg eins endað hjá Haukum.
Spenna var allan leiktímann og
þá sérstaklega lokamínúturnar.
Bestir í liöi Vals voru þeir Jón
Steingrímsson, Torfi Magnússon
og Kristján Ágústsson, annars
átti allt Valsliöiö góöan dag.
Bestu menn Hauka voru Ivar
Webster og Pálmar Sigurðsson,
aðrir leikmenn komu einnig vel
frá leiknum.
Stig Hauka: Ivar Webster 22,
Pálmar Sigurðsson 19, Henning
Henningsson 12, Hálfdán Mark-
ússon 8, Kristinn Kristinsson 7,
Reynir Kristjánsson 1.
Stig Vals: Jón Steingrímsson
20, Kristján Ágústsson 16, Torfi
Magnússon 16, Sigurður Bjarna-
son 12, Leifur Gústafsson 7,
Tómas Holton 7, Einar Ólafsson
2.
Dómarar voru þeir Jóhann
Dagur og Rob lliffe og dæmdu
þeir mjög vel.
— VJ.