Morgunblaðið - 13.03.1985, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐID, MIDVIKUDAGUR 13. MARZ 1985
43
Jóhann B. Jóns-
son - Minning
Jói frændi er farinn yfir móð-
una miklu. Hann var einn af þess-
um þöglu hetjum þessa lands, sem
vinna sitt starf og skila sínu hlut-
verki í lífinu hávaða- og möglun-
arlaust.
Jói var óhemju duglegur og at-
orkusamur maður. Hann vann oft
langan vinnudag og stritaði mikið.
Það sem hjálpaði honum til að
halda heilsu gegnum öll þessi ár
og allt þetta strit, var, að hann var
óvenjulega reglusamur maður.
Hann fór til dæmis jafnan
snemma að sofa á kvöldin, jafnvel
fyrir kl. 9. Hann reykti ekki tóbak
né drakk vín. Jói var einnig ein-
hleypur alla ævi en samt engin
mannafæla.
Jói var einn af þessum fáu
mönnum nú um stundir sem aflaði
fjár hraðar en hann eyddi. Hann
barst samt aldrei á i lifinu né bjó
ríkmannlega. Hann hafði jafnan
vaðið fyrir neðan sig og átti vara-
sjóð til vondu áranna. Þetta er
sjaldgæfur kostur hjá hinum al-
menna borgara nú á tímum.
Minnugur er ég þess eitt sinn er
Jói var að fara austur á land á
nýja Volvonum sinum í sumarfrí
með fjölskylduna. Hann var mikill
náttúrudýrkandi eins og fjöl-
skylda hans öll reyndar og fór
gjarna á sumrin í langar útilegur
upp um fjöll og fyrnindi.
I þetta sinn ætlaði hann heim á
æskuslóðir fjölskyldunnar í Loð-
mundarfjörð. Daginn áður en
ferðalagið hefst verður hann fyrir
því óhappi að lenda á árekstri á
nýja fína bílnum sínum og stór-
skemma eða hálfeyðileggja hann.
Jóhann lét það samt ekki aftra sér
frá því að fara í ferðina. Hann átti
varasjóð. — Hann labbaði sig ein-
faldlega uppá í umboð dró upp
budduna og keypti annan Volvo
eins og þann sem hann eyðilagði.
Síðan var lagt af stað, og er ekki
annað vitað en ferðin hafi gengið
að óskum eftir það.
Jói náði meðalaldri íslenskra
karlmanna eins og hann er skráð-
ur í opinberum skýrslum. Hann
valdi sér ævistarf sem reyndi mik-
ið á líkamlegt þrek hans, og um
tíma leit út fyrir að erfiðið ætlaði
að skemma heilsu hans varanlega.
Fyrir tilstilli tækniframfara í
læknavísindum tókst að koma Jó-
hanni aftur á fætur eftir nokkra
uppskurði í mjöðm og lærum. Tók
hann þá aftur til við fyrri iðju og
komst nánast til fullrar heilsu.
Mesta afrek Jóa um dagana var
sennilega það hvernig hann stóð
að því að skilja við þett líf. Við hin
sem fáum að vera eftir um sinn
megum mikið af því læra.
Svo vill til að Jói vissi með góð-
um fyrirvara að vist hans myndi
senn ljúka hér. Hann tók þeirri
vitneskju með miklu jafnaðargeði.
I stað þess að æðrast eða leggjast
í þunglyndi eins ýmsir hefðu
sjálfsagt gert, þá tók hann sig til á
meðan tími var til og heilsan
leyfði og fór í sérstakt ferðalag
um landið til að kveðja vini sína
og skyldmenni og gekk síðan frá
öllum sfnum málum þannig að
hann skuldaði engum neitt og eng-
inn hefði neitt uppá hann að
klaga.
Þegar hann hafði lokið við að
ganga frá sínum málum við sam-
ferðamenn sína var hann tilbúinn
til að taka á við næsta verkefni, að
kveðja þennan táradal. Hann tók
Skoðanakannanir í Svíþjóð:
Jafnaðar flokkurinn
sækir í sig veðrið
Stokkbólmi, II. mirx. Fri fréttariura MornaabUAniim.
Jafnaðarflokkurinn sænski sækir {
sig veðrið og vinnur jafnt og þétt á
forskot borgaralegu flokkanna, sam-
glettni og vilja til að túlka einfald-
ar sálir í sannleiksleit. Það er að
vísu ekki nema annar þeirra sem í
alvöru veltir fyrir sér spurningum
um sannleik og lygi, hvað sé
blekking og hvað ekki, en hinn
nægjusami og fávísi smitast af fé-
laga sinum.
Gleðikonur þeirra Ragnheiðar
Thorsteinsson, Unnar Magnús-
dóttur og Rósu K. Benediktsdóttur
eru skemmtilegar týpur túlkaðar
af einlægri leikgleði. 1 söngnum
náðu þær góðum árangri.
Ólafur Birgisson leikur Nakinn
mann sem er í felum í öskutunnu
eftir að hafa lent í því að þurfa
óvænt að flýja frá viðhaldinu.
Þetta er fínn maður heldur betur í
vanda staddur. Hann þarf að reiða
sig á hjálp götusópara og Manns i
kjólfötum. ólafur sýnir okkur
vandræðaskap Nakta mannsins.
Ekki síðri er Valdimar Óskarsson
í hlutverki Manns i kjólfötum.
Geirlaug Magnúsdóttir er hressi-
legur Lögregluþjónn.
í litlum, en litríkum hlutverkum
eru Björn G. Markússon, Birgir
Bárðarson, Skarphéðinn Gunn-
arsson og Sigrún Linda Ström.
Hljóðfæraleikur var vel af
hendi leystur, leikmynd áhugaleik
samboðin og sömuleiðis lýsing.
Þegar á allt er litið verður ekki
annað sagt en Valgeir Skagfjörð
leikstjóri geti verið ánægður með
sýninguna. Sem betur fer hefur
hann valið þá leið að ofbjóða ekki
óreyndum leikurum. Einþáttung-
ur eftir Fo er alveg nógu erfitt
verkefni.
kvæmt tveimur nýjum skoðanakönn-
unum um fylgi stjórnmálaflokkanna.
Ganga Svíar til kosninga í septem-
ber og getur margt skeð í millitíð-
inni.
Tvær stofnanir, sem fram-
kvæma skoðanakannanir í nafni
Gallupstofnunarinnar, birtu um
helgina niðurstöður nýjustu kann-
anna sinna á fylgi flokkanna.
Samkvæmt þeim báðum njóta
borgaraflokkarnir fylgis meiri-
hluta kjósenda, en saxast hefur á
forskot þeirra frá því fyrr í vetur.
Samkvæmt annarri könnuninni
er forskot borgaraflokkanna 5%,
en hálft prósent, samkvæmt hinni.
Ekki er um að ræða neinar veru-
legar breytingar á fylgi flokkanna,
miðað við fyrri kannanir. Jafnað-
armannaflokkurinn styrkir þó
stöðu sína fyrst og fremst á kostn-
að Miðflokksins, flokks Thorbjörn
Fálldin fyrrum forsætisráðherra.
Jarðarfarar-
skreytingar
Kistuskreytingar, krans-
ar, krossar.
Græna höndin
Gróörarstöö viö Hagkaup,
simi 82895.
því með sömu rósemi og æðruleysi
og öllu öðru sem hann tók sér fyrir
hendur, og honum lánaðist að yf-
irgefa þennan heim án þess að
nokkurn skugga bæri á hetjulund
hans og virðugleika. Megi sem
flestir taka sér líf hans til fyrir-
myndar. Blessuð sé minning hans.
Reynir Hugason
Dóttir min, móöir okkar, tengdamóöir og amma,
KRISTÍN MARÍA SIGÞÓRSDÓTTIR,
Kleppsvegi 38,
veröur jarösett frá Dómkirkjunni fimmtudaginn 14. marskl. 10.30.
Þeim sem vilja minnast hinnar látnu er bent á Krabbameinsfélag
islands.
Sigríöur Jónsdóttir,
Höröur Sigurjónsson, Rannveig Ingvarsdóttir,
Sigþór Sigurjónsson, Kristfn Sophusdóttir,
og barnabörn.
t
Innilegustu þakkir fyrir auösýnda samúö og vináttu við fráfall eigin-
manns mins, tengdafööur og afa,
CARLSGUNNARSROCKSÉN,
fyrrverandi vararæóismanns.
Einnig sérstakar þakkir til starfsfólks öldrunardeildar Land-
spitalans, Hátúni 10B, 4. hseö, fyrir góöa umönnun.
Helga Rocksén,
Karl-Erik Rocksén, Halldóra Ásgrfmsdóttir,
Helga Karlsdóttir, Ásgeröur Karlsdóttir,
Gunnhildur Karlsdóttir.