Morgunblaðið - 13.03.1985, Síða 58

Morgunblaðið - 13.03.1985, Síða 58
-58 MORGUNBLAÐIÐ, MIDVIKUDAGUR 13. MARZ 1985 „'Ak tM til einhveija. scm er mei göLLiS i augnhæS T" TM B»o. u.s. Pat. Ott.-aH rlohts resarved ®19M Los Anflelss Tlmes Syrxllcate Ég vil aðeins minna á að þetta er ekki tesía heimilisins. HÖGNI HREKKVtSI Kreiritari mælir með því að hluti Seðlabankabyggingarinnar verði notaður undir heilsugKslustöð. A5 slá tvær flugur í einu höggi 6283-8426 skrifar: Mig langar til að koma á framfæri þakklæti til lækna og annars starfsfólks á Heilsu- gæslustöðinni í Fossvogi. Ég er búinn að eiga talsverð samskipti við starfsfólkið frá því að stöðin var opnuð. Þetta fólk er atltaf tilbúið til að veita alla þá þjón- ustu sem þarna er fyrir hendi, eiginlega hvenær sem er. Allt stendur heima sem það segir og á ég þar sérstaklega við læknana sem þar starfa, en slíkt er fátítt með ríkis- eða borgarstofnanir. Væri nú ekki ráð, þar sem svo marga hér í borginni vantar heimilislækni þó að nóg sé til af þeim, að taka hluta af Seðla- bankabyggingunni undir heilsu- gæslustöð þar sem heimilis- lækna skortir tilfinnanlega hús- næði að manni skilst? Þarna væri hægt að slá tvær flugur í einu höggi því þá gætu þeir sem við bankann starfa, verið undir stöðugu lækniseftirliti. Mér finnst ekki veita af, af öllu þessu rugli að dæma sem úr bankanum kemur, s.s. vaxtarugl og annað. Af beitningamönnum Ég undirritaður hef starfað sem beitningamaður vertíðabundið undanfarin ár og í því starfi hef ég orðið var margvíslegs misskiln- ings á milli vinnuveitenda, stétt- arfélags og starfsþega. Engin heildarlög virðast vera til um beitningu og eru þess jafnvel dæmi að beitningamenn séu ekki skráðir í stéttarfélög þ.e.a.s. laun- þegi ótryggður að störfum hjá vin- nuveitanda. Lög um stéttarstöðu beitningamanna á útilegu hef ég heldur ekki fundið þ.e.a.s. hvar eigi að skipa akkorðsvinnu á sjó í launaskala. Einnig má minnast á beitningavélavinnu, uppsagnar- frest og veikindafrávik í akkorðs- beitningu, verkskiptingu eða verk- skil á tengdri starfsemi og þannig mætti lengi telja. Einhvern tíma ætti sjómanna- félögunum sem þegið hafa stéttar- félagsgreiðslur beitningamanna að hafa unnist til að vinna að mál- um þeirra þá heilu öld sem beitn- ing hefur verið stunduð á Islandi og vil ég skora á sjómannafélögin að ræða þessi mál við viðsemjend- ur þeirra. Að lokum. Þar sem akkorðs- beitningamenn eru ólögskráðir landmenn og eru aðnjótandi skattafrádráttar af þeim sökum eiga þeir þá ekki rétt á að skrá sig atvinnulausa hjá sjómannafélög- unum þar sem ekkert hefur heyrst um að verið sé að semja fyrir þá í þessu verkfalli? Hver væri lífeyr- isréttur minn ef ég hefði ekki ver- ið skráður í stéttarfélag né lífeyr- issjóð síðastliðin ár? Fengi ég at- vinnuleysisbætur? En slysabæt- ur? Virðingarfyllst, Konráó Kl. Björgólfsson. Þessir hringdu . . . Körlum gert hátt undir höfði í sjónvarpi Sjónvarpsáhorfandi hringdi: Fréttir sjónvarps og frétta- skýringaþættir hafa oft vakið athygli mína fyrir það hve miklu oftar viðmælendur eru karlmenn en kvenmenn. T.d. nefni ég Kastljós Ög- mundar Jónassonar eftir ára- mótin um árið 1984 þar sem hann ræddi við tíu karlmenn en engar konur. Um daginn var hann svo aftur með þátt um Tre- holt o.fl. Bogi Ágústsson var með fréttaskýringu frá Ósló. Þar tal- aði hann við fólk úti á götu, fyrst ungan mann, síðan konu og loks allnokkra karlmenn sem ég náði ekki að kasta tölu á. Að þessu loknu sagði Bogi að þetta hefði verið álit almennings í Ósló á Treholt-málinu. Síðan kom Ögmundur aftur á skjáinn og þá með tvo karlmenn sér við hlið til að ræða afvopnunarmál stór- veldanna! Hefur aldrei komið til greina að skylda íslenska fréttamenn til að hafa til jafns konur og karla að viðmælendum sínum? Það svona hvarflar að manni að kon- ur teljist orðið ekki lengur til al- mennings sbr. orð Boga. Gjalddaga tíunda hvers mánaðar María Jóhanna hringdi: Ég er mjög óhress með að það skuli vera gjalddagi á Visa- kortum 2. hvers mánaðar og veit ég að sama er að segja um marga fleiri. Eftir 2. koma fullir dráttarvextir á skuldina, ekki dagvextir heldur heilir mánað- arvextir, þó að aðeins sé farið einn dag framyfir. Sumir fá ekki útborgað fyrr en 2. og þó að maður fái útborgað 1. er ekki þar með sagt að maður komist í hvert einasta skipti í tæka tíð til að greiða, þegar kannski hálfur dagur er til um- ráða. Hvernig er svo með þá sem búa úti á landi. Póstsamgöngur eru oft stopular vegna veðra og hvers á það fólk að gjalda sem ekki fær tilkynninguna í tæka tíð? Stundum er mér sendur reikningurinn í pósthólf manns- ins míns og fæ hann því ekki í tæka tíð. Því ekki að hafa gjalddaga t.d. þann 10. hvers mánaðar, það myndi auðvelda mörgum og þá kæmist fólk hjá því að þurfa að greiða þessa gífurlegu dráttar- vexti sem á engan hátt eru rétt- látir.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.