Morgunblaðið - 13.03.1985, Qupperneq 59
MORGUNBLAÐIÐ, MIDVIKUDAGUR 13. MARZ 1985
58
VELVAKANDI
SVARAR i SÍMA
10100 KL. 11-12
FRÁ MÁNUDEGI
TIL
ym_______
Saltvinnsla og þurrís
Pálmi Stefánsson skrifar:
Þegar skoðuð er saltvinnsla á
Spáni (Ibiza), sést að notuð eru
stór, grunn 16n, sem sjó er hleypt
inn í og sólin síðan látin um að
eima vatnið úr sjónum, en saltið
krystallast út á botni lónsins.
Á íslandi er Íítið um yl sólar, en
víða nóg um jarðhita. Ef til vill
mætti byggja svipuð lón og útbúa
þau með geislahitun i botni og
nýta þar með jarðhitann til að
eima burt vatnið úr sjónum.
En auðvitað ætti að nota sama
hráefnið og á Spáni, þ.e. sjó úr
Atlantsálum, en ekki jarðsjó, sem
Af Ögmundi
Andréssyni
Ingimar F. Jóhannsson skrifar:
Góði Velvakandi.
Mig langar til að spyrjast fyrir
um það hvort nokkur viti um bréf,
vísur eða hvers konar skjöl skrifuð
af Ögmundi Andréssyni bónda og
skáldi á Hellu í Beruvík á Snæ-
fellsnesi (hann var faðir Karvels
Ögmundssonar útgerðarmanns í
Njarðvík).
Allar upplýsingar um þetta
væru vel þegnar og eins ef nokkur
veit til um það hvort tekin hafi
verið ljósmynd af þessum mæta
manni. Ögmundur Ándrésson var
Snæfellingur, fæddur 1855 og lést
1923. Bjó hann lengst af á Hellu í
Beruvík en síðar á Hellissandi.
Er þessum spurningum aðallega
beint til eldri lesenda Morgun-
blaðsins og hafi einhver vitneskju
um það sem spurt er um, er við-
komandi hvattur til að láta frá sér
heyra.
veldur ýmsum örðugleikum vegna
kísilinnihalds.
í lítt notaðri stærstu borholu
heims (?) á Reykjanesi væri
sjálfsagt nokkur ylur til að eima
drjúgan sjó í beinni samkeppni við
sólina á Spáni. Ennfremur mætti
nota eitthvað af öllu CO2-
loftinu, sem kemur úr borholunni
og framleiða þurrís með einfaldri
þjöppun lofttegundarinnar.
Auk þess sem þurrís er mjög
hreinlegur í notkun, þarf helmingi
minna af honum en venjulegum ís
til að kæla sama magn fisks, en
þetta kæmi sér vel við loftflutn-
inga á fiski, þar sem munar um
hvert kílóið í flutningskostnaði.
Hrafnista í Hafnarfírði.
Hafnarfjarðarvagninn
nemi staðar hjá Hrafnistu
Vilhelmína Böðvarsdóttir skrif-
ar:
Mig langar til að koma á
framfæri til forráðamanna
strætisvagna Hafnarfjarðar
hvort að þeir geti ekki hagað
ferðum þannig að sá vagn er fer
um Norðurbæinn aki að Hrafn-
istu, þó ekki væri nema á
klukkustundar fresti.
Þarna búa hundruð manna
auk þess sem fjöldi fólks vinnur
þarna. Og ekki hafa allir umráð
yfir bifreið. Aldraða fólkið sem
þarna býr er margt það vel á sig
komið að það getur auðveldlega
farið á milli staða þó það sé
kannski ekki í stakk búið til að
aka sjálft. Að ganga frá gatna-
mótunum þar sem vagninn
stoppar, er útilokað nema fyrir
ungt og fullfrískt fólk.
Með þessum samgönguörðug-
leikum dregur úr sambandi
þessa fólks við utanaðkomandi
og það einangrar sig meira en
þörf er á. Það tæki ekki nema
um fimm mínútur að fara þenn-
an litla krók hjá elliheimilinu.
Ég vona að þeir sem hlut eiga
að máli taki þetta til athugunar
hið bráðasta. Með fyrirfram
þakklæti.
Launin skerð-
ast á kránum
John Helgason skrifar:
Löngum gleymast lyklar í skránum
launin margra skerðast á kránum.
Dinglar skreið uns dettur af ránum
dýr er veiðiréttur á ánum.
Utsölumarkaðurinn
Álfheimum 4
Síðustu dagar útsölunnar standa nú yfir.
Útsölunni lýkur á laugardag.
Allir kjólar kr. 395.-
Allar buxur kr. 300.-
Allar peysur kr. 250.-
Gerid góð kaup.
Útsölumarkaðurinn
Álfheimum 4, sími 34155.
Hröð umsetning og skipulagning í lagerhaldi eru
mikilvægir þættir í öllum hagkvæmum rekstri.
Kynnið ykkur kosti „FLOW STORAGE" lager kerfisins
frá INTERROLL.
• Sama vörumagn á helmingi minni gólffleti.
• Mun betri nýting á vinnuafli og tækjum t.d. lyfturum.
• Öll vöruafgreiðsla verður mun léttari.
• Færri tilfærslur vöru og minni keyrsla innanhúss.
• Eðlilegri hringrás, þ.e. elsta varan afgreiðist alltaf fyrst.
INTERROLL afgreiðir allt lagerkerfið tilsniðið að
þörfum hvers og eins og í hvaða stærð sem er.
INTERROLL hefur 20 ára reynslu við lausn hvers-
konar flutnings- og vörugeymsluvandamála.
Leytið upplýsinga.
INTERROLt
Umboðsmenn INTERROLL á íslandi:
UMBOÐS- OG HEILDVERSLUN
LÁGMÚLI5, 108 REYKJA VIK, SÍMI: 91-685222
PÚSTHÚLF: 887, 121 REYKJA VIK