Morgunblaðið - 19.03.1985, Side 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 19. MARZ 1985
Tólf ferðalangar grófu sig í fönn við Hrafntinmusken
„Vorum sex tíma að
grafa í ofsaveðri“
„ÞAÐ BAR í sjálfu sér ekkert út af hjá okkur annað en ad vid lentum í
vitlausu veðri. Það hefur eitthvað borið út af hjá einhverju af okkar fólki í
bænum og þess vegna hefur þessi leit farið af stað. Okkur þykir það mjög
miður — ekki síst vegna þess, að okkar fólk á að vita að við getum alltaf
tafist um einn dag á fjöllum," sagði Sigurjón Hannesson, oddviti í hópi
vélsleðamannanna tólf, sem leitað var að norðaustan við Heklu í gærmorg-
un, þegar Morgunblaðsmenn hittu ferðalangana að máli á Dómadalsleið í
Sölvahrauni síðdegis í gær.
Laugardagskvöld
í Landmannahelli
Sigurjóni og ferðafélögum hans
úr Vélsleðaklúbbnum Meiði sagð-
ist svo frá, að þau hefðu haldið úr
Reykjavík síðdegis á föstudag, tólf
saman með níu vélsleða á fjórum
jeppum. Ferðinni var heitið í
Hrafntinnusker, þar sem þau ætl-
uðu að verja helginni og fara á
sleðunum um umhverfið. Þau voru
vel búin og öll þaulvön ferðalögum
á fjöllum. Aðfaranótt laugardags-
ins gistu þau í Landmannahelli en
héldu síðan eftir hádegið lengra
inn í landið að Hrafntinnuskeri,
þar sem Ferðafélag íslands hefur
reist myndarlegan skála.
„Veðrið var alveg yndislegt á
laugardaginn og við skemmtum
okkur prýðilega," sögðu þau. „Þeg-
ar við ætluðum svo að halda heim-
leiðis eftir hádegi á sunnudaginn
gerði skyndilega vitlaust veður.
Við vorum rétt nýlega lögð af stað
frá skálanum en sáum strax, að
við kæmumst ekki þangað aftur,
svo við grófum okkur í skafl og
höfðumst þar við um nóttina."
Sex tíma mokstur
í veðurofsa
Konurnar fimm í hópnum sögðu
að snjóhúsið hefði verið „betra en
nokkuð einbýlishús — meira að
segja hillur til að þurrka fötin
okkar á.“ En það gekk ekki átaka-
laust að grafa allan hópinn í fönn.
Þau voru að vísu með þrjár skófl-
ur, þar af aðeins eina góða, en veð-
urofsinn var slíkur, að það var
ekki fyrr en undir kvöldmat, eftir
sex tíma mokstur, sem snjóhúsið
var tilbúið. Þau voru með þrjá
prímusa með sér, sem þau notuðu
til að hlýja sér við og þurrka gegn-
vot föt sín. — Farstöðina, sem var
í kassa á einum sleðanum, tókst
þeim ekki að komast í.
„Það má vel koma fram,“ sagði
einn úr hópnum, Ingólfur Guð-
laugsson, „að talstöð, sem hefði
komið okkur að gagni við að láta
vita af okkur, er slík munaðarvara
vegna hárra tolla, að það er ekki á
færi nema efnafólks að eiga slíkt.
En ef við hefðum verið með slíka
stöð hefði verið hægt að spara
mikla peninga i útkalli alls þessa
fórnfúsa björgunarsveitafólks. Við
höfum verið að reyna að komast
undir hatt einhverrar björgun-
arsveitarinnar, svo við getum
fengið niðurfellda tolla af góðri
talstöð og það er ekki útséð með
hvernig það fer.“
Hópurinn við Ferðafélagsskálann í Hrafntinnuskeri.
Einn týndur —
skalf sér til hita
Ingólfur var raunar eini maður-
inn úr hópnum, sem lenti i raun-
verulegum hrakningum í ferðinni.
Hann varð viðskila við hópinn í
kófinu þegar þau reyndu að brjót-
ast aftur aö Ferðafélagsskálanum
í Hrafntinnuskeri. „Allt í einu var
ég einn,“ sagði hann, „og þegar ég
átti ekki nema kannski hundrað
metra eftir í skálann bilaði sleð-
inn og þá var ekkert um annað að
ræða en að grafa sig í fönn og
hafast þar við uns veðrinu slotaði.
Þá lærði ég hvernig maður getur
skolfið sér til hita! Eg hef oft verið
á fjöllum og lent í ýmsu en engu
þessu líku. Það versta var, að ég
var ekki með neitt með mér nema
það sem ég stóð í. Ég neita því
ekki að ég svaf ekki mikið og var
orðinn býsna kaldur um morgun-
inn þegar veðrinu slotaði og við
náðum saman á ný. Þá hlýjuðu
konurnar mér og færðu mig í
þurrt."
„Víst saknaði ég bónda míns,“
sagði eiginkona Ingólfs, Margrét
Ægisdóttir. „Við vissum þó að
hann var ekki langt undan — við
gældum við þá tilhugsun að hann
hefði komist í skálann og væri
þar. Æ, það var ósköp gott að sjá
hann aftur."
Talstöövarsamband
eftir langa mæðu
Sigurjón Hannesson sagði það
hafa verið „ónotalegt þegar Ing-
ólfur hvarf. En ég er búinn að
þekkja piltinn lengi og vissi að það
kom aðeins tvennt til: annaðhvort
hefði hann komist í skálann eða
þá að hann hefði grafið sig i skafl,
svo ég hafði engar sérstakar
áhyggjur af honum.“
Veðrinu slotaði um birtingu í
gærmorgun. Þá héldu þau f Ferða-
félagsskálann og reyndu árang-
urslaust að nota loftnet, sem þar
er, til að ná talstöðvarsambandi
til byggða. Þau gerðu sömuleiðis
við sleðana tvo, sem höfðu bilað.
Morgunblaftia/RAX
Um hádegi, þegar þau voru um
það bil að vera tilbúin til brottfar-
ar, heyrðu þau í útvarpi að leit að
þeim stæði yfir. Þá tók Sigurjón
sig til, fór með farstöðina upp á
hæsta tindinn í fjöllóttu landinu
og reyndi enn að kalla. í þetta
skipti bar það árangur — í þann
mund sem hann náði sambandi við
bóndasoninn á Sandlæk bar að
þrjá björgunarsveitarmenn á
vélsleðum frá Hellu. Þau voru svo
komin að bílum sínum í Sölva-
hrauni laust fyrir klukkan sex í
gærkvöld, þar sem fleiri björgun-
arsveitarmenn tóku á móti þeim.
Tólfmenningarnir eru úr
Reykjavík, Hafnarfirði og Garða-
bæ. Þau heita: Sigurjón Hannes-
son, Björg Freysdóttir, Grímur
Antonsson, Þuríður Antonsdóttir,
Kári Elíasson, Guðrún Hallvarðs-
dóttir, Björn Björnsson, Alma
Guðmundsdóttir, Ingólfur Guð-
laugsson, Margrét Ægisdóttir,
Ingi Sævar Oddsson og Gunnlaug-
ur Ingimundarson.
íslendingur eftirlýstur fyr-
ir stórfelld fjársvik í Noregi
Osló, 18. mara. Frá frétUriUru Mbl., J&n Erik Lauré.
Banki, bflafyrirtæki og kona fri
Þrindbeimi eru meðal aðila, sem
fimmtíu og fjögurra ira gamall ís-
lenskur maður gabbaði gróflega ið-
ur en hann lét sig hverfa fri Noregi
með u.þ.b. 325.000 illa fengnar
norskar krénur I farangrinum. En sú
upphæð er um 1.430.000 I íslenskum
krónum.
Álitið er að maðurinn haldi sig
nú á íslandi og hefur norska lög-
reglan beðið starfsbræður sina á
íslandi að yfirheyra hann.
Bæði bankinn og bílafyrirtækið
hafa kært manninn fyrir fjársvik,
en hann fékk 100.000 n.kr. að láni
hjá Fellesbanken i Þrándheimi til
þess að koma á fót verslun með
notaða bila sl. sumar. Komið hef-
ur á daginn að undirskriftir
ábyrgðarmanna, sem maðurinn
sýndi í bankanum við lántökuna,
voru falsaðar.
Þá fékk Islendingurinn sex bíla,
að verðmæti 250.000 krónur, hjá
bifreiðafyrirtækinu Ullern Bil í
Osló, en greiddi þá aldrei.
„Við höfum beðið íslensku lög-
regluna að yfirheyra þennan 54
ára gamla mann. Hann stakk af
frá Noregi í fyrrahaust og heldur
sig sennilega á íslandi, en okkur
vitanlega hefur lögreglan ekki enn
haft uppi á honum. Ekki verður
krafist gæsluvarðhalds yfir mann-
inum fyrr en yfirheyrslur hafa
farið fram,“ sagði Eivind Engen,
deildarstjóri lögreglunnar 1
Þrándheimi, við fréttaritara Mbl.
Engen sagði einnig, að þegar
maðurinn tók 100.000 króna lánið í
Fellesbankanum í Þrándheimi,
hefði hann verið í sambúð með
norskri konu f bænum. Fölsuðu
undirókriftirnar, sem haiui fékk
lánið út á, voru nöfn á nokkrum
nágrönnum hans.
Við svo búið hélt maðurinn til
Osló og gerði samning við Ullern
Bil um að selja bíla fyrirtækisins í
Þrándheimi. Innan fárra vikna
fékk hann sex bíla, að andvirði
250.000 krónur, frá Ullern Bil til
sölu. Bílana seldi hann en fyrir-
tækið sá aldrei krónu af ágóðan-
um.
Þegar ljóst varð að dráttur var
orðinn á að maðurinn skilaði af
sér greiðslunum gekk fyrirtækið
hart að honum. Hann sýndi þá
skjöl, þar sem hin norska sambýl-
iskona hans ábyrgðist greiðsluna
og gefið var veð í íbúðum í hennar
eign. Einnig þessi skjöl voru föls-
STJÓRN Kjördæmisráðs Sjálfstæðis-
flokksins í Reykjaneskjördæmi mót-
mælti á fundi í gær þeirri ákvörðun
landbúnaðarráðherra, að veita dótt-
urfyrirtæki SÍS leyfi til vatnstöku í
Grindavík. Ályktun ráðsins er svo-
hljóðandi, en undir hana rita Gísli
Ólafsson formaður, Erna Mathiesen,
Bragi Mikaelsson, Guðjón Þorláks-
son, Þorvaldur Ó. Karlsson, Jón
Bjarni Þorsteinsson og Kristrún
Helgadóttir:
uð og hefur maðurinn þvf einnig
svikið vinkonu sfna.
Þar sem veðin voru fölsuð og
þeir er keypu bílana af íslendingn-
um gerðu það í góðri trú, hefur
Ullern Bil ekki tekist að fá bættan
skaðann. „Við gerum okkur engar
vonir um að endurheimta þessar
250.000 krónur," sagði fulltrúi Ull-
ern Bil f samtali við Mbl.
Bifreiðaverslunin, sem maður-
inn sagðist vera að stofna, komst
aldrei á laggirnar. Hann keypti
aldrei húsnæði undir verslunina,
en lögreglan heldur þó að hann
hafi ætlað að koma á fót fyrir-
tæki. Peningarnir frá bankanum
og bflafyrirtækinu hafa að öllum
líkindum runnið til daglegra þarfa
mannsins. En þó að hér sé um að
„Stjórn Kjördæmisráðs Sjálf-
stæðisflokksins f Reykjaneskjör-
dæmi mótmælir harðlega þeirri
ákvörðun landbúnaðarráðherra að
veita fyrirtæki Sambands íslenskra
samvinnufélaga, Islandslaxi hf.,
heimild til að nýta heitt vatn úr
landi Staðar í Grindavík gegn
endurgjaldi, sem ekki er f neinu
samræmi við það, sem eðlilegt má
telja.
Stjórn Kjörda?misráðs mótmælir
ræða 325.000 krónur hefur lögregl-
an ekki orðið þess vör, að maður-
inn hafi lifað sérstöku munaðar-
lffi.
„Við erum ekki þeirrar skoðun-
ar að hin norska vinkona íslend-
ingsins hafi verið f vitorði með
honum. Hún hefur að öllum lík-
indum látið ginnast, lfkt og bank-
inn og bílafyrirtækið," sagði lög-
reglan i Þrándheimi.
Samkvæmt refsilögum, sem
hægt væri að dæma manninn eft-
ir, gæti dómurinn orðið allt að
þriggja ára fangelsisvist. Ef ís-
lenska lögreglan hefur hendur f
hári hans og verði hann fluttur til
Noregs og dæmdur þar, eru líkur á
að hann fái að afplána dóminn f
fslensku fangelsi.
einnig harðlega heimild ráðherrans
til sama aðila til töku á allt að 350
sekúndulítrum á fersku vatni, þeg-
ar ekki liggur fyrir, hver áhrif slikt
vatnstaka kann að hafa á hags-
muni byggðalaganna á Reykjanesi.
Stjórn Kjördæmisráðs telur, að
forréttindi þau, sem landbúnaðar-
ráðherra hefur veitt SÍS með þess-
um samningi við íslandslax hf. séu
slík, að ekki verði við unað.“
Jósef Liljendal Sigurðsson
Ódæðisverkið
í Kópavogi:
Rannsókn
skammt á
veg komin
RANNSÓKN á morði Jósefs
Liljendals Sigurðssonar er
enn skammt á veg komin.
Sigurður Adolf Frederiksen!
sem hefur játað að hafa orð-
ið Jósef að bana, var yfir-
heyrður um helgina, en til-
drög ódæðisverksins eru enn
óljós. Sigurður var úrskurð-
aður í Sakadómi Kópavogs í
gæzluvarðhald til 1. júní
næstkomandi að kröfu
Rannsóknarlögreglu ríkis-
ins. Unnið hefur verið að
gagnaöflun og vitni í málinu
kvödd til skýrslutöku.
Kjördæmisráð Sjálfstæðisflokksins í Reykjaneskjördæmi:
Mótmæla leyfistöku
íslandslax hf. á vatni