Morgunblaðið - 19.03.1985, Blaðsíða 57
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIDJUDAGUR 19. MARZ 1985
57
Ráðstefna í Nairobi mark-
ar lok kvennaáratugarins
Kvennaráðstefna, sem markar lok
kvennaáratugarins verður haldin í
Nairobi, höfuðborg Kenýa, í sumar,
15.—26. júlí. ísland sendir nefnd á
ráðstefnuna og skipa hana þær Sig-
ríður Snævarr, sendiráðunautur,
sem er formaður nefndarinnar, Est-
er Guðmundsdóttir, formaður
Kvenréttindafélags íslands, Gerður
Steinþórsdóttir, cand. mag., Guðríð-
ur Þorsteinsdóttir, formaður Jafn-
réttisráðs og María Pétursdóttir,
formaður Kvenfélagasambands ís-
lands.
Sigríður Snævarr, sendiráðu-
nautur, er nýkomin af undirbún-
ingsfundi, sem haldinn var í Vín-
arborg á vegum Sameinuðu þjóð-
anna og var hún spurð um undir-
búning á vegum SÞ að ráðstefn-
unni. Hún sagði, að SÞ hefðu hald-
ið fagráðstefnur um ýmis mál til
að veita upplýsingar og vekja at-
hygli á einhverjum vandamálum
og aðildarríkin leitast við að finna
sameiginlegar lausnir á þeim, en
síðasta fagráðstefnan var mann-
fjðldaráðstefna SÞ í Mexíkó
sumarið 1984. Árið 1972 var
ákveðið að tileinka konum einn
áratug og hófst hann árið 1975.
Það ár var haldin fyrsta ráðstefna
SÞ um kvennamálefni. Þar var
samþykkt lokaskjal um það hvaða
árangri ríkisstjórnirnar, sem eru
aðilar að SÞ, og samtökin sjálf,
vonast til að ná. Árið 1980 var
haldin ráðstefna í Kaupmanna-
höfn til að fara yfir það sem áunn-
ist hafði og ákveðið nánar um að-
gerðir í framhaldi af því. Ráð-
stefnan í Nairobi metur síðan ár-
angur starfsins undanfarin 10 ár.
„Á undirbúningsfundinum í Vín
kom fram, að ekki hefði náðst sá
árangur sem vonast hefði verið til,
en engu að síður hefðu málefni
kvenna hlotið verulegan framgang
og væri nauðsynlegt að svo yrði
áfram," sagði Sigríður. „Ákveðið
var að marka stefnuna fram til
næstu aldamóta og voru lögð fram
drög að lokasamþykkt ráðstefn-
unnar. Kjörorð ráðstefnunnar
verða jafnrétti, framþróun, frið-
ur“, sem eru raunar kjörorð
kvennaáratugarins. En það eru
einnig aukakjörorð, sem eru „at-
vinna, menntun og heilbrigði“.
Drög að lokasamþykkt ráðstefn-
unnar eru miðuð við þessi kjör-
orð.“
Sigríður sagði, að undir liðnum
jafnrétti mætti nefna samning um
afnám alls misréttis gegn konum,
sem gekk í gildi árið 1984. „Einar
Ágústsson sendiherra, þáverandi
formaður sendinefndar íslands,
undirritaði hann fyrir Islands
hönd á kvennaráðstefnunni I
Kaupmannahöfn og hann liggur
nú fyrir Alþingi til fullgildingar,"
sagði Sigríður. „Jafnframt kemur
frma í drögum að lokasamþykkt-
inni á sviði jafnréttismála, að
nauðsynlegt sé að konur slíti sér
ekki aðeins út með óhóflegu
vinnuálagi, heldur fái að glíma við
Öll verkefni sem móta samfélagið.
Fræðslufundur
Kaupþings hf.:
„Geta verð-
tryggð lán
étið upp
eign þína?“
í KVÖLD klukkan 20.30 efnir Kaup-
þing hf. til almenns fræðslufundar
um efnið „Geta verðtryggð lán étið
upp eign þína“.
Frummælendur verða dr. Pétur
Blöndal stærðfræðingur og Stefán
Ingólfsson verkfræðingur. Fund-
urinn verður haldinn í Kristalssal
Hótel Loftleiða. öllum er heimill
aðgangur meðan húsrúm leyfir,
segir í frétt frá Kaupþingi.
Sigríður Snævarr, sendiráðunautur.
Til þess þarf að breyta viðteknum
hugmyndum um stöðu kvenna og
gera þarf hverjum einstaklingi
kleift að þroska hæfileika sína og
beita sér að hvaða sviði sem er án
tillits til kynferðis. Það sé ekki að-
eins konum í hag, heldur öllum
einstaklingum og samfélaginu
sjálfu.
Varðandi þróunarliðinn má geta
þess, að það voru atkvæði þróun-
arríkjanna sem réðu úrslitum á
sínum tíma um að kvennaáratug
var komið á,“ sagði Sigríður.
„Konur eru fjölmennastar í
þróunarríkjunum og þar eru
vandamálin mest og ærið verk að
vinna. Þá er lögð á það áhersla að
í samskiptum þróunarríkjanna og
iðnríkja verði tekið tillit til þarfa
kvenna í þróunarlöndunum, því
oft á tíðum hefur þróunarhjálp
verið því marki brennd að hún
hefur jafnvel skaðað hagsmuni
kvenna í þróunarríkjum, eða ekki
bætt þeirra hlut til jafns við karla.
Loks er farið fram á að viður-
kennd verði og efld viðleitni
kvenna til að vinna að friði í heim-
inum.“
Sigríður sagði, að á undirbún-
ingsfundinum í Vín hefði ekki
komið nógu skýrt fram hver stefn-
an yrði í framtíðinni. „Það hafa
komið upp hugmyndir um annan
kvennaáratug. Hugur virðist einn-
ig vera í mönnum að staðan verði
metin á 4 ára fresti. Það er ljóst
að það er ekki nóg að leggja fram
metnaðarfullar áætlanir um það
hvernig bæta eigi hag kvenna,
heldur verður að sjá til þess að
þeim gefist tími til þess. Aukinn
hlutur kvenna í þjóðfélögum má
ekki verða til þess að þær beri tvö-
falda byrði , en það er sú stað-
reynd sem blasir við nú,“, sagði
Sigríður Snævarr að lokum.
• •
TOLLSKJOL
og verðútreikningar
MARKMIÐ:
Tilgangur námskeiðsins er að auka þekkingu þeirra sem
innflutning stunda og stuðla þar með að bættum af-
köstum og tímasparnaði hjá viðkomandi aðilum. Kunn-
áttvleysi í gerð tollskýrslna og verðútreiknings hefur
hafl í för með sér ómælt erfiði fyrir margan manninn, en
þetta námskeið á að kynna þátttakendum hvernig þessi
mál ganga fyrir sig.
EFNI:
- Helstu skjöl og eyðublöð við tollafgreiðslu og notkun
þeirra.
- Meginþættir laga og reglugerða er gilda við tollaf-
greiðslu vara.
- Grundvallaratriði tollflokkunar.
- Helstu reglur við verðútreikning.
- Gerð verða raunhæf verkefni.
PÁTTTAKENDUR:
Námskeiðið er einkum ætlað þeim sem stunda innflutn-
ing í smáum stíl og iðnrekendum, sem ekki hafa mikinn
innflutning. Einnig er námskeiðið kjörið fyrir þá, sem
eru að heíja eða hyggjast hefja störf við tollskýrslugerð og
verðútreikninga.
LEIÐBEINANDI:
Karl Garðarsson við-
skiptafræðingur frá
Háskóla íslands. Starf-
ar nú sem deildarstjóri
á skrifstofu tollstjóra.
TÍMI - STAÐUR:
25.-26. mars kl. 13.30—17.30.
Síðumúli 23.
ATH.: Starfsmenntunarsjóðir SFR og STRV og Versl-
unarmannafélags Reykjavíkur styrkja félagsmenn sína
til þátttöku á þessu námskeiði. Upplýsingar gefa við-
komandi skrifstofur.
STJÓRNUNARFÉLAG
ÍSIANDS !»23
Bremsuklossar
Spindilkúlur
Stýrisendar
o.fl.
Fyrir
evrópska og japanska bíla.
Heildsala — Smásala
Armúla 36. sfmi 82424. Pósthólf 4180. 104Reyk|avík