Morgunblaðið - 19.03.1985, Blaðsíða 56
56
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 19. MARZ 1985
Ferðir BSRB og Samvinnuferða-Landsýn
til Kaupmannahafnar:
Sjö þúsund kr.
aðeins innborgun
— segir Hans Indriðason hjá Flugleiðum
ÞKIR BSRB-félagar sem keyptu sér farmiða til Kaupmannahafnar og heim
aftur á vegum Samvinnuferða-Landsýn sl. laugardagsmorgun fyrir aðeins 7.000
kr., eftir að hafa staðið { fleiri klukkutíma í biðröð, hafa að sögn Hans
Indriðasonar framkvæmdastjóra söludeildar Flugleiða aðeins greitt inn á ferða-
kostnað. Ferðir þessar verða farnar á svokölluðum IT-fargjöldum, sem Hans
sagði að ekki vaeri hægt að selja, samkvæmt reglugerð samgönguráðuneytisins,
án þess að frekari þjónusta væri seld með, þ.e. kaup á afnotum af bflaleigubíl,
sumarhúsi, hóteli eða áframhaldandi ferðum frá Kaupmannahöfn, svo dæmi
séu nefnd.
Hans sagði: „Þarna er samkvæmt
reglugerð um að ræða heildar-
pakka, svo greiðsla fyrir flugferð-
irnar einar sér á kr. 7.000 kr. eru
aðeins innborgun, ef farið verður að
lögum. Það getur enginn gengið inn
á ferðaskrifstofu og keypt slíkar
ferðir einar sér samkvæmt reglu-
gerð um IT-leiguflug, eða svonefnd-
ar altækar-ferðir." Hans sagði
ennfremur að Flugleiðir hefðu í
þessu tilfelli gert heildar-
samkomulag við Samvinnuferðir,
Landsýn, svipað og á síðasta sumri.
Haraldur Steinþórsson fram-
kvæmdastjóri Bandalags starfs-
manna ríkis og bæja sagði, að
ferðanefnd BSRB hefði fyrst athug-
að um leiguflug og að hún hefði
haft í höndum tilboð um leiguflug
erlendis frá. Eftir nána athugun
hefði tilboði Flugleiða verið tekið á
verði sem kom mjög nálægt erlenda
tilboðinu. Hann sagði rétt vera að
samningurinn fæli i sér útvegun á
þjónustu og ekki mætti selja ferð-
irnar einar sér. Mjög margir hyggð-
ust taka bílaleigu, aðrir fá hótel-
þjónustu o.s.frv.
Margir þeirra sem biðu aðfara-
nótt laugardagsins, allt frá því kl. 3
um nóttina, hafa lýst óánægju með
það fyrirkomulag sem haft var á
sölu farmiðanna. Haraldur var
spurður, hvort ekki hefði komið til
tals að nota aðrar aðferðir. Hann
sagði ferðanefnd hafa rætt það mál,
en ákveðið hefði verið að fara þessa
leið. Hann tiltók dæmi um reynslu
annarra verkalýðsfélaga, svo sem
VR þar sem auglýst hefði verið eftir
skriflegum umsóknum um 30—40
flugsæti og hefði VR borist á
fimmta hundrað umsóknir sem þeir
hefðu lent i stökustu vandræðum
með að vinna úr.
Það kom og fram í viðtali við
Harald Steinþórsson, að BSRB út-
hlutar nk. laugardag vikuferðum til
Álasunds á kr. 4.800 flugið. Að
þeirri úthlutun verður þannig stað-
ið, að ferðirnar verða seldar á
skrifstofum BSRB nk. laugardags-
morgun, BSRB-félögum í þeirri röð
sem þeir mæta á staðinn, en frekari
kostnaður við þær ferðir liggur ekki
fyrir.
Þeir sem lentu í þremur efstu sætunum í stærðfræðikeppni framhaldsskólanna: Hákon Guðbjartsson, sigurveg-
ari keppninnar er í miðið. Hinir tveir voru jafnir að stigum, en þeir eru Bjarni Gunnarsson, til vinstri, og Ágúst
Sverrir Egilsson, til hægri. Allir eru þeir í Menntaskólanum í Reykjavík.
MR-ingar í þremur efstu sætunum í
stærðfræðikeppni framhaldsskólanna
SIGURVEGARI í stærðfræðikeppni
framhaldsskólanema, er fram fór sl.
laugardag, varð Hákon Guðbjarts-
son, Menntaskólanum í Reykjavík.
Bjarni Gunnarsson og Ágúst Sverrir
Egilsson, báðir úr MR, urðu jafnir
að stigum og lentu í öðru til þriðja
sætL
í úrslitakeppnina mættu sjö til
leiks, en þeir náðu bestum árangri
í forkeppninni, sem fram fór
nokkru áður. Keppendur fengust
við fjögurra tíma verkefni, sem á
voru sex dæmi. Peningaverðlaun
voru veitt frá IBM á íslandi.
Á þessum tíma fyllast tónlistarhallir Vínarborgar
af perlum listasögunnar. Óperur á borð við Boris
Godunow, Aida og Cavalleria Rusticana, margir
ballettar, þ á m Rómeó og lúlía og stórhljómsveitir
undir stjórn frægra hljómsveitarstjóra
Nær fiálfnuð er saga ...
Þ0 getur gengið um sögusvið miðalda í þessari
töfrancíi borg, sótt fjölda leiksýninga, notið
veitinga- og kaffihúsa heimsborgarinnar, teygað
eðalvín með vínbændum Grinzing, trallað með
jassgeggjurum og verslað fyrir verð sem kemur þér
þægilega á óvart.
Spennandi skoðunarferðir um
Austurríki, Ungverjaland og Tékkóslóvakíu
Frá Vínarborg gefstþér tækifæritil aðheimsækja
og skoða fjölda heillandi staða Litið er inn í hús
meistara Haydn í dagsferð til Burgenland og
Rohrau. Siglt á Dóná f dagsferð til Wachau f 2ja
daga ferðum gefst tækifæri til að sjá hinar
einstæðu borgir Budapest og Prag
Komið við í Zell am See og Salzburg
Síðustu fimm dagana njóta gestirnir lífsins í
hinum fræga ferðamannabæ í Ölpunum, Zell am
See, og í Salzburg, sem sannarlega erein fallegasta
borg álfunnar Ekið er til staðanna í mjög
þægilegum langferðabíl. Heim er flogið þ. 12 júní
frá Salzburg
ífaiandi
Vesturqotu q, sími 17445
Auk framantaldra komust í úr-
slit: Agnar R. Agnarsson MS,
Rögnvaldur Möller MH, Sigurður
Áss Grétarsson MR og Vilmundur
Pálmason MK.
Markmið keppninnar er að efla
áhuga nemenda í framhaldsskól-
um á stærðfræði og beitingu
hennar, efla tengsl milli nemenda
og kennara hinna ýmsu fram-
haldsskóla og kynna almenningi
stærðfræðileg verkefni með aðstoð
fjölmiðla.
Benedikt Jóhannesson, formað-
ur Félags raungreinakennara í
framhaldsskólum, sagði i samtali
við Mbl. að áhugi væri mikill fyrir
því að koma sigurvegurum áfram í
keppni erlendis og á ólympíuleik-
ana í stærðfræði sem fram fara í
Helsinki í júlí í sumar. „En fjár-
mögnunin er nokkuð vandamál og
þyrfti hún að koma frá Mennta-
málaráðuneytinu, ef af því yrði,“
sagði Benedikt. „Þetta er fyrsta
stærðfræðikeppnin sem haldin er
hér á landi, á vegum framhalds-
skólanna, en markmiðið er að hafa
þetta árlegan viðburð. Okkur
finnst að vel hafi til tekist."
Að keppninni stóðu Félag
raungreinakennara og íslenska
stærðfræðafélagið, en keppnin var
að fullu kostuð af IBM á íslandi.
LOKAVERKEFNI, laugardaginn
16. marz 1985 kl. 9—13.
Gjörið svo vel að byrja hvert
dæmi á nýju blaði. Merkið öll
blöðin.
Dæmi 1.
Tvær tölur x og y fullnægja jöfn-
Dæmi 2.
Fyrir hvaða rauntölur gildir
ójafnan
4x‘
Finnið x og y.
9x*y
0x+2
■ 243.
< 2x + 9?
(1 + VI + 2x)z
Dæmi 3.
Verksmiðja sem framleiðir krist-
alskúlur handa spákonum sendir
hverja kúlu sérpakkaða í tenings-
laga kassa, sem hefur (innri) hlið-
arlengd nákvæmlega jafna þver-
máli kúlunnar. Um hver áramót,
þegar verksmiðjan sendir út spá-
kúlur fyrir næsta ár, gefur hún
föstum viðskiptavinum vasaút-
gáfu af spákúlunni, sem er það
stór að hún passar nákvæmlega í
eitt hornið á kassanum, þegar búið
er að koma stóru kúlunni þar
fyrir. Hvað er þvermál minni kúl-
unnar ef hinnar er gefið?
Dæmi 4.
Hversu margar af náttúrlegu töl-
unum frá 1 til 1000 eru deilanlegar
með að minnsta kosti einni af töl-
unum 3, 5 eða 7?
Dæmi 5.
í rétthyrndum þríhyrningi með
gefinni langhlið c er miðlínan á
langhliðina rúmfræðilegt meðal-
tal af skammhliðunum, þ.e.a.s.
hefur lengdina ab, þar sem a og
b eru skammhliðarnar. Hvernig
má teikna þríhyrninginn með
hringfara og reglustiku?
Dæmi 6.
Gerum ráð fyrir að f og g séu föll
sem eru skilgreind fyrir allar
rauntölur og fullnægja jöfnunni
í(x+y) + f(x + y) = 2f(x)g(y)
fyrir öll x og y. Gerum enn fremur
ráð fyrir að f sé ekki núllfallið og
að | f(x) | S 1 fyrir öll x. Sýnið að
|g(y)| á 1 fyrir öll y.
Tæp 10 þúsund tonn af loðnu
bárust á land á laugardag
lestir. Á föstudag tilkynntu eftir-
talin skip um afla: Sæberg SU,
170, Erling KE, 380, Þórshamar
GK, 400, Helga II, 530, Heimaey
VE, 300, Bergur VE, 120, Harpa
RE, 600, Kap II VE, 150, Víkur-
berg GK, 300 og ísleifur VE 180
lestir.
FIMMTÁN skip tilkynntu loðnu-
nefnd afla á laugardag, samtals
9.960 lestir. Eftir er að veiða um 50
þúsund tonn af loðnukvótanum. Á
fimmtudag varð heildarveiðin 2.970
lestir, á föstudag varð aflinn 3.130
lestir.
Eftirtalin skip tilkynntu afla á
laugardag Erling KE 380 tonn,
Víkingur AK 700, Gullberg VE
590, Sighvatur Bjarnason VE 640,
Júpiter RE 1300, Gígjan 250, Kap
II VE 680, Dagfari 530, Víkurberg
GK 550, Börkur NK 1000, Bergur
VE 450, Heimaey VE 450, Guð-
mundur RE 780, ísleifur VE 650,
Helga II 520.
Til viðbótar þeim skipum, sem
áður er getið í Morgunblaðinu, til-
kynntu eftirtalin skip um afla á
fimmtudag: Víkingur AK, 500,
Júpíter RE, 550, Heimaey VE, 70,
Gullberg VE, 100, Skarðsvík SH,
100, Sighvatur Bjarnason VE 30
Afborgunar-
laus í 2 ár
í FRÉTT Morgunblaðsins síðast-
liðinn laugardag um nýjan lána-
flokk í Lífeyrissjóði verzlunar-
manna láðist að geta þess, að ný
lán að upphæð 400 þúsund krónur
eru afborgunarlaus fyrstu tvö ár-
in. Þessi ián til þeirra, sem eru að
eignast sína fyrstu húseign, eru til
37 ára.