Morgunblaðið - 19.03.1985, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 19. MARZ 1985
27
Brezkir kennarar
efna til verkfalla
London, 18. marz. AP.
BREZKIR grunnskólakennarar
lögðu niður vinnu víðs vegar um
land í dag, mánudag, til að leggja
áherzlu á kröfur sínar um betri
launakjör. Búist er við að framhald
verði á aðgerðum kennara út vik-
una.
London, 18. mnrz. AP.
ARGASTA vetrarveður gekk yfir
Bretlandseyjar um helgina, þó vorið
hefjist á miðvikudaginn samkvemt
árstíðaskipan innfeddra.
Landsmenn fengu heldur betur
að kenna á slyddu, hagléli og bylj-
andi stórhríð, svo eitthvað sé
nefnt. Veðurfarið hafði í för með
Tvö stærstu kennarafélögin
hafa skipulagt skæruverkföll og
lögðu 11.600 kennarar niður
vinnu í Englandi og Wales og
16.000 kennarar í Skotlandi.
Nemendur þeirra eru rúmlega
800 þúsund.
sér algjöra ringlureið á vegum
víða um land og mynduðust langar
bílaraðir þar sem árekstrar voru
tíðir. Var snjór víðast til vand-
ræða og ófært var um skosku há-
löndin.
Ekki er talin von á batnmandi
veður næstu daga, hvað sem mið-
vikudeginum líður.
Látið var til skarar skríða í
kjördæmum ráðherra í brezku
ríkisstjórninni í dag. 1 kennara-
félögunum tveimur, sem að að-
gerðum standa, eru 339 þúsund
kennarar.
Þriðju kennarasamtökin, sem
í eru 95 þúsund kennarar, tóku
hins vegar ekki þátt í aðgerðun-
um og skýrðu afstöðu sína í heil-
síðuauglýsingum í blöðum í dag.
Þar segir að „auðvitað séu allir
kennarar reiðir og vonsviknir"
vegna lágra launa og lítillar
framavonar innan skólakerfis-
ins, en skæruverkföll þjóni eng-
um tilgangi. Kváðust samtökin
fremur vilja halda áfram samn-
ingaviðræðum, en vísa málinu í
gerðardóm ef þær færu út um
þúfur.
Vetrarveður á
Bretlandseyjum
Gorbachev var leiðtoginn
í forföllum Chernenkos
Moskvu, 18. marz. AP.
LJÓST er, að Mikhail Gorbachev,
hinn nýi leiðtogi sovézka kommún-
istaflokksins, var hvað eftir annað í
forsæti á fundum stjórnmálaráðsins
og miðstjórnarflokksins í veikinda-
forföllum Konstantins Chernenkos á
þeim 13 mánuðum, sem sá síðar-
nefndi var leiðtogi kommúnista-
flokksins.
Kemur þetta fram í ræðu, sem
Andrei Gromyko, utanríkisráð-
herra, flutti, er Gorbachev var
skipaður í stöðu flokksleiðtoga, en
ræða þessi var birt í dag.
Þetta þykir staðfesta þá skoðun
margra sérfræðinga á Vesturlönd-
um varðandi Sovétríkin, að Gorb-
achev hafi um all langt skeið verið
næst valdamesti maður þar. I
ræðu sinni lýsir Gromyko
frammistöðu Gorbachevs á þann
veg, að hann hafi staðið sig
„frábærlega vel“ í forföllum
Gorbachev
Chernenkos. Að þeim síðarnefnda
er hins vegar varla vikið i ræð-
unni, sem er 1.100 orð að lengd.
Austur-Þýskaland:
Ríkið styður kirkjustarf
Berlín, 18. mars. AP.
NÝJAR kirkjur hafa tekið til
starfa í þremur borgum Austur-
Þýskalands á síðastliðnum sex
vikum og notið til þess stuðnings
ríkisins, að því er hin opinbera
fréttastofa ADN greindi frá á
sunnudag.
Var hér um að ræða kirkjur í
borgunum Gotha, Gera og Ros-
tock, og kvað frettastofan þær
hafa verið reistar í samvinnu
kirkju og ríkis.
Þá sagði fréttastofan, að tveir
nýir söfnuðir hefðu verið stofn-
aðir í Austur-Berlín og séð fyrir
húsnæði. „Þá eru 70 aðrar bygg-
ingar, kirkjur og kapellur, í
smíðum í Austur-Þýskalandi
um þessar mundir," sagði ADN.
Alls er talið, að um 10.000
guðshús séu nú í Austur-Þýska-
landi. Um 3.000 þeirra hafa ver-
ið endurbyggð eftir eyðilegg-
ingar seinni heimsstyrjaldar-
innar, margar fyrir gjafafé að
vestan.
GENGI
GJALDMIÐLA
Dollarinn
lækkar
London, 18. marz. AP.
Bandaríkjadollar féll talsvert
gagnvart helztu gjaldmiðlum
heims í dag eftir að Richard Cel-
este, ríkisstjóri í Ohio í Banda-
ríkjunum, lét framlengja lokun
70 lánastofnanna f þessu ríki um
tvo daga.
Gengi pundsins var i dag
hærra en nokkru sinni síðan
15 febrúar sl. og fengust fyrir
það 1,10625 dollarar síðdegis í
dag. (1,0860). Gengi dollarans
var að öðru leyti þannig, að
fyrir hann fengust 3,3505
vestur-þýzk mörk (3,3700),
2,8620 svissneskir frankar
(2,8865), 10,2410 franskir
frankar (10,3550), 3,7920 hol-
lenzk gyllini (3,8260), 2.120,00
ítalskar lírur (2.135,00),
1,38225 kanadískir dollarar
(1,3875) og 260,075 jen (260.80).
Sviss:
70 bifreið-
ir í árekstri
Genf, 18. m»rs. AP.
SKYNDILEG snjókoma setti allt
úr skorðum í vestanverðu Sviss um
helgina og olli fjöldaárekstrum og
umferðartruflunura á þjóðvegum
víða í þessum landshluta.
Á laugardagskvöld lentu 70
bifreiðar í keðjuárekstri nálægt
Lausanne og stöðvuðu alla um-
ferð á hraðbrautinni við Genf-
arvatn í nokkrar klukkustundir.
Að sögn lögreglu slösuðust 10
manns, en enginn alvarlega.
Varð árekstur þessi, svo og
keðjuárekstrar í Fribourg-hér-
aði og á Bernar-svæðinu, eftir að
hríðað hafði í u.þ.b. klukkutíma
og mældist úrkoman um 15
sentimetrar, að sögn svissneska
blaðsins La Suisse á sunnudag.
Kim kosinn forseti
lýðræðissamtaka
Seoul, 18. marz. AP.
Stjórnarandstöðuleiðtoginn Kim
Dae Jung var í dag kosinn formaður
samtaka, sem berjast fyrir fram-
gangi lýðræðis í Kóreu. Er hann ann-
ar tveggja formanna samtakanna
ásamt Kim Yong Sam, sem var í
forystu þeirra, sem stofnuðu sam-
tökin í maí í fyrra.
Blöð í Seoul sögðu um helgina
að kominn væri upp klofningur í
röðum stjórnarandstæðinga. Eftir
kosningu Kims, sem annars for-
manns hreyfingarinnar, og
áherzlu beggja formannanna á
einingu þeirra og samstöðu í dag,
virðist sem sú fullyrðing eigi ekki
við mikil rök að styðjast.
Samtökin fyrir framgangi lýð-
ræðis stóðu að stofnun Nýja lýð-
ræðisflokks Kóreu, sem varð
næststærsti flokkur landrns og
stærsti stjórnarandstöðuflokk.ur-
inn eftir kosningar í fyrra mánuði.
Þrumustuð i
Þórscaf
Föstudags- og laugar-
dagskvöld
Matur framreiddur
frá kl. 20.
Þríréttaður kvöldverður
Þórskabarett, Anna Vilhjfclma og
Einar Júlíusaon hafa gert stormandi
lukku að undanförnu. Uppselt hefur
verið i mrt undanfarnar helgar.
Pantið miöa timanlega í mat nasstu
|a i uim uoootu
tu danshljómsveitir lands'"
1 o9 ^
k\/\\h\á\rns
i
Vinnuhópar.09 _
* Pantið borö
timanlega.
Simi 23333
og 23335