Morgunblaðið - 19.03.1985, Blaðsíða 59

Morgunblaðið - 19.03.1985, Blaðsíða 59
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 19. MARZ 1985 59 Dalvík: Vinna hafin á ný eftir verkfall Dalrík, 18. raara. EFTIR sjómannaverkfall er nú vinna hafin að nýju í öllum fiskverk- unarhúsum á Dalvík. Sama dag og verkfall leystist lögðu netabátar net sín og fyrsti togarinn kom til löndunar á föstu- dagsmorgun. Það var Björgúlfur, sem kom með 103 lestir af þorski og sama dag kom Dalborg með 28 lestir af rækju. Þá landaði Sólfell frá Hrísey hér 13 lestum af rækju og í dag er verið að landa úr togur- unum Björgvin 115 lestum og Baldri 65 lestum. Frá Dalvík eru nú gerðir út 5 netabátar en sá sjötti, Bliki EA-12 er í slipp á Akureyri þar sem verið er að byggja yfir bátinn. Afli neta- báta var fyrir verkfall allgóður, en að því loknu virðist afli hafa dreg- ist saman. Þ6 er það von þeirra, sem héðan róa, að afli glæðist aft- ur þannig að þeir þurfi ekki að sækja í aðrar verstöðvar á þessari vetrarvertíð eins og undanfarin ár. Rækjuverksmiðja Söltunarfé- lags Dalvíkur hefur hafið vinnslu að nýju, en á henni hafa verið gerðar gagngerar breytingar. Komið hefur verið upp lausfryst- ingu á rækju og aukið við annan búnað þannig að afköst verksmiðj- unnar aukast og skilar hún jafn- framt betri vöru. Einn opinn bátur hefur stundað hrognkelsaveiði og hefur afli verið góður. Grásleppukarlar eru nú þessa dagana að byrja að leggja net sín. Fréttaritarar. Norræna húsið: Hvernig gera á borgir að- laðandi árið um kring ARKITEKTAFÉLAG fslands hefur fengið hingað til lands tvo Kanada- menn, frá samtökunum „The Live- able Winter Association", og munu þau funda með arkitektum auk þess sem þau halda opinberan fyrirlestur í Norræna húsinu f dag klukkan 16.00. Norman Pressman og Xenia Zepic munu tala um aðferðir til að gera miðborgir á norðurslóðum aðlaðandi allan ársins hring. Fjallað verður annars vegar fræðilega um hegðun manna í svölu loftslagi og hins vegar sýnd dæmi frá ýmsum löndum um að- ferðir til að laga byggt umhverfi eftir óblíðu veðurfari. Fundurinn er öllum opinn og aðgangur er ókeypis. Nafn féll niður í FRÉTT Mbl. sl. fimmtudag um aldarafmæli Brynjúlfs Sigfússon- ar tónskálds í Vestmannaeyjum, féll niður nafn Bryndísar dóttur hans í upptalningu. Mbl. biðst velvirðingar á þessum mistökum. Flóamarkaður á Sauðárkróki Miðvikudaginn 20. mars nk. ætla hjúkrunarfræðingar við Sjúkrahús Skagfirðinga að halda flóamarkað til styrktar Hjúkrun- ar- og dvalarheimili aldraðra á Sauðárkróki. Margt góðra muna verður á markaðnum, bæði nýtt og notað, og verð við allra hæfi. Flóamarkaðurinn byrjar kl. 15.00 þann 20. mars og verður í anddyri Heilsugæslustöðvarinnar. (Fréttatilkynning) □ □ □ □ □ □ □ □ □ □ □ □ □ □ □ □ □ □ □ □ □ □ □ □ □ □ Vid erum komin VöruJoftið S'9tuni 3. meö stórútsöíu Mikid af þessum vörum eru glænýjar jv------;.T:r. Beknagerðin A vömkminu þennan lista vel!! Jakkaföt frá kr. 2.500,- Stakir herrajakkar frá kr. 990,- Rúskinnsjakkar, fóðraðir, frá kr. 2.800,- Rúskinnsjakkar ófóöraðir frá kr. 2.500,- Vattúlpur frá kr. 1.990,- Herrapeysur frá kr. 490,- Varmaháskólabolir frá kr.- 450,- Bolir frá kr. 90,- Herraskyrtur frá kr. 350,- Dömublússur frá kr. 350,- Gallabuxur frá kr. 400,- Dömupeysur frá kr. 590,- Kakhi-buxur frá kr. 790,- Barnagallabuxur frá kr. 450,- Barnakakhi-buxur frá kr. 600,- Barnapeysur frá kr. 150,- Vinnusloppar frá kr. 450,- Vinnublússur frá kr. 350,- Vinnusamfestingar frá kr. 1.150,- Rafsuðugallar frá kr. 990,- Hvítir samfestingar frá kr. 650,- Loðfóðraöar Pólarúlpur frá kr. 2.500,- Sumarsportjakkar frá kr. 450,- Herrasokkar frá kr. 50,- Ódýra borðið, allt á kr. 90,- Mikiö og gott úrval af efnum, kakhi-, popplín-ullarefni frá kr. 100,- pr. m. Ullarefni frá kr. 150,- pr. m. Ýmis efni frá kr. 80,- pr. m.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.