Morgunblaðið - 19.03.1985, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 19. MARZ 1985
3
Veikt kall heyrðist
í Gnúpverjahreppi
Talstöðin náði ekki til byggða:
Morgun blaöið/ Júlíus
Komið af fjalli, Sigurjón Hannesson
fremstur.
yfirlögregluþjónn á Hvolsvelli, í
samtali við blaðamann Mbl. í gær.
„Þeir höfðu hitt Selfyssing, sem
hafði hitt þetta fólk í skálanum í
Hrafntinnuskeri um sexleytið á
laugardagskvöldið. Þá var allt í
góðu lagi — en það var jafnframt
Ijóst, að það hafði gert vitlaust
veður á fjallinu eftir hádegi á
sunnudag," sagði Valgeir.
Rúmum tveimur tímum eftir að
kallið barst frá Hafnarfirði lögðu
tveir lögreglumenn á fjallabíl upp
frá Hvolsvelli. Þeir fundu bíla
ferðafólksins fljótlega á Dóma-
dalsleið í Sölvahrauni og þá voru
kallaðar út björgunarsveitir frá
Hvolsvelli og Hellu, vaskir menn á
vélsleðum. Um svipað leyti fór
flugvél í loftið frá Hellu með tvo
björgunarsveitarmenn um borð og
gerðar voru ráðstafanir til að
þyrlur frá Reykjavík tækju þátt í
leitinni.
Um það leyti sem bóndasonur-
inn á Sandlæk heyrði kall ferða-
fólksins voru tíu björgunarsveit-
armenn að leggja upp á vélsleðum
frá Selfossi og verið var að undir-
búa frekara leitarflug frá Reykja-
vík og Vík.
— í sama mund og björgunarmenn frá Hellu
fundu ferðalangana tólf
Morgunblaðið/RAX
Ferðalanganir á fjallinu þegar þeir fundust um hádegisbil í gær.
ÍONUR bóndans á Sandlæk í Gnúpverjahreppi sat við farstöðina sína þar
leima laust fyrir kl. 13 í gær þegar hann heyrði skyndilega veikt kall. Það
iom fri vélsleðafólkinu, sem tugir manna höfðu leitað að síðan eldsnemma
im morguninn úr lofti og i liði. Skilaboðin voru þau, að allir væru heilir á
lúfi í skila Ferðafélags lslands í Hrafntinnuskeri og að þau væru að búa sig
il heimfarar.
Við þessi tíðindi létti mönnum
nikið í stjórnstöð leitarinnar á
ögreglustöðinni á Hvolsvelli.
Dangað bárust boð um hálfþrjú í
yrrinótt frá lögreglunni í Hafn-
irfirði, sem hafði fengið tilkynn-
ngu frá áhyggjufullum aðstand-
mdum um að fólkið hefði eKki
ikilað sér á tilsettum tíma.
„Ég fór strax að leita frekari
ipplýsinga og hafði tal af björg-
inarsveitarmönnum á Hellu, sem
löfðu verið á svæðinu á laugar-
lag,“ sagði Valgeir Guðmundsson,
Morgunbladið/Július
Ingólfur Guðlaugsson og kona hans,
Margrét Ægisdóttir. Ingólfur varð
viðskila við hópinn i kófinu.
Þorsteinn Pálsson um húsnæðismálin:
„Miða að því að
yarðveita sjálfs-
eignarkerfiðu
„I meginatriðum er þarna um að
ræða hugmyndir sem miða að því að “
breyta húsnæðiskerfinu í verulegum
atriðum, fyrst og fremst i þann veg að
nýta fjirmagnið meir í þigu þeirra
sem eru að koma sér upp þaki yfir
höfuðið í fyrsta sinn og draga úr þeim
mikla mun sem nú er i lánum til
kaupa i notuðum íbúðum og til ný-
hygginga," sagði Þorsteinn Pilsson,
formaður Sjilfstæðisflokksins, í sam-
tali við Morgunblaðið um þær tillögur
í húsnæðismilum, sem nú eru til um-
ræðu í þingflokknum.
„Á þingflokksfundinum var lögð
fram skýrsla um stöðu þessara
mála með ákveðnum tillögum um
breytingar á húsnæðiskerfinu.
Þessi skýrsla er unnin af sérstökum
starfshópi, sem ég kom á fót í lok
febrúar og lauk sinu starfi í morg-
un. Við lukum ekki umræðu um
þetta en stefnum að þvi að gera það
á miðvikudag, þannig að ekki er
hægt að greina frá niðurstöðum
nema í meginatriðum," sagði Þor-
steinn.
„Þetta er grundvallarbreyting á
kerfinu sjálfu og miðar að því að
varðveita sjálfseignarstefnuna og
auðvelda fólki að hefjast handa um
að koma sér þaki yfir höfuðið. Hinn
þáttur málsins lýtur að þeim vanda
sem menn eru að glíma við nú
vegna þess mikla misgengis sem
skapaðist vegna óðaverðbólgunn-
ar.“
Þorsteinn sagði að bæði væri um
að ræða tillögur um að nýta það
fjármagn betur sem fyrir er í hús-
næðislánakerfinu, og tillögur um að
auka það fjármagn.
Alþjóðlega skákmótið á Húsavík:
Staðan óljós vegna
fjölda biðskáka
STADAN er mjög óljós á alþjóólega
skákmótinu á Húsavík vegna fjölda
biöskáka, en einungis tókst að Ijúka
tveimur skákum í fjórðu umferð sem
fram fér í gær.
Helgi Óiafsson vann Pálma Pét-
ursson og Norðmaðurinn Helmers
og Bandaríkjamaðurinn Lomb-
ardy gerðu jafntefli. Hinar skák-
irnar fóru í bið og átti að tefla þær
áfram klukkan 11 í gærkveldi.
Sjá frásögn af fyrstu þremur
umferðunum á bls. 58.
Fjögurra vélsleða-
manna saknað nyrðra
Akureyri, 18. mare.
í GÆRKVÖLDi var saknað 4ra mannaferða. Þrír vélsleðamenn
vélsleðamanna af Árskógsströnd og
frá Dalvík, sem farið höfðu fram á
fjöll á laugardagsmorgun og lagt
upp frá Öxnadalsheiði um
svonefndar Kaldbaksdal. Förinni
mun hafa verið heitið í skálann við
Laugarfell.
Þegar þeir skiluðu sér ekki til
byggða á tilsettum tíma, var far-
ið að svipast um eftir þeim.
Flugvél flaug fram að Laugarfelli
í morgun, en var ekki vör neinna
Edvald B.
Malmquist
látinn
EDVALD B. Malmquist, yfirmats-
maður garðávaxta, lést í sjúkrahúsi
sunnudaginn 17. mars sl. á 67. ald-
ursári. Edvald hafði átt við erfiðan
sjúkdóm að stríða í rúmt ár.
Edvald B. Malmquist fæddist á
Reyðarfirði 24. febrúar 1919.
Hann stundaði búfræðikandidats-
nám í Noregi á árunum 1937—40.
Eftir heimkomuna gerðist hann
ráðunautur Búnaðarsambands
Austurlands til 1943, en næstu 3
árin var hann ráðunautur Búnað-
arsambands Eyjafjarðar og garð-
yrkjuráðunautur Akureyrar. Á ár-
inu 1947 réðst Edvald til Reykja-
víkurborgar og var ræktunarráðu-
nautur borgarinnar, auk þess sem
hann hafði með stofnun Skóla-
garða Reykjavíkur að gera og
stjórnun Vinnuskóla Reykjavíkur.
Á árunum 1957—59 gerðist hann
garðyrkjubóndi í Biskupstungum,
en réðst svo sölumaður til
Grænmetisverslunar landbúnað-
arins frá 1959 til 1962, er hann
varð yfirmatsmaður garðávaxta
lögðu upp í leit eftir hádegið í dag
og um nónbil voru hjálparsveit
skáta og flugbjörgunarsveit Ak-
ureyrar kallaðar út til leitar. Þær
voru rétt ófarnar af stað, þegar
boð komu um það að mennirnir
fjórir væru komnir til byggða í
Öxnárdal, heilir á húfi. Þeir
höfðu hreppt storm og skafrenn-
ing og búið um sig í snjóhúsi í
nótt. Að öðru leyti hafði ekki
væst um þá. Sv.P.
Edvald B. Malmquist
og gegndi því starfi upp frá því.
Edvald lagði mikið til félags-
mála, var um árabil formaður og í
stjórn Garðyrkjufélags íslands,
formaður og í stjórn Landssam-
bands blandaðra karlakóra, for-
maður og í stjórn Jarðræktarfé-
lags Reykjavíkur og leysti af
hendi ýmis önnur trúnaðarstörf.
Eftirlifandi eiginkona Edvalds
er Ásta Th. Malmquist.
Hringdu f 33272 og tjn en varir ertn kominn í sælkeraheim
Vcitingahallarinnar og Hallagarðsins fyrir hreintalmúgaverð.
Veitingar
fyrir 10-70
manna hópa
í glæsilegum
salarkynnum
Veitingahall-
arinnarÉB^
Veitingahöllin og
Hallargaröurinn bjóöa
smærri hópum upp á
glæsilega aöstööu og
konunglegan viöur-
gjörning á vægu veröi.
Við bjóöum aöstööu til
hádegis- eöa kvöld-
veröafunda svo og
veisluhalda fyrir 10—70
manns. Komiö og
skoöið aöstööu okkar i
hjarta borgarinnar og
kynnist gæðum og
veröi veitinganna.
í Húsi verslunarinnar
viö K ringlumýra rbraut