Morgunblaðið - 19.03.1985, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 19.03.1985, Blaðsíða 6
6 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 19. MARZ 1985 ÚTVARP / S JÓN VARP GRETA GARBO Það er fátt notalegra en sitja í kyrrð kvöldsins og hlusta á útvarpsleikrit. Þú kemur þér vel fyrir í útvarpsstólnum, kaffið nýbrennt og ilmandi og hinir bet- ur stæðu hafa máski dregið silfur- pappírinn af Mozartkonfektinu, en húsbyggjendur og aðrir dauðlegir verða að láta sér nægja að flysja vaxpappírinn utanaf holtakexinu, og viti menn, óháð verðbólgustigi lyftist töfrastóllinn þinn á öldum ljósvakans inni litla notalega íbúð. Það sést út á Tjörnina á milli hús- anna hérna á móti ... segir hún Ása skriftan í nýja fimmtudags- leikritinu hans Andrésar Indriða- sonar. „Fáðu þér sæti, góði. Sestu í þennan góða stól þarna." Og þar með hefir undrið gerst. Þú ert ekki lengur i útvarpsstólnum heima hjá þér heldur boðinn velkominn inní stofu til hennar Soffíu gömlu og þar kynnistu ekki bara þessari indælu gömlu konu, heldur og kettinum hennar henni Gretu Garbó er Ketill Larsen leikur og svo náttúrulega skriftunni Ásu, sem er hér í vettvangskönnun ... „eins og það heitir," segir Ása þeg- ar Soffía gamla furðar sig á starfa stúlkunnar og tilburðum Gutt- orms kvikmyndaleikstjóra er náttúrulega fylgir skriftunni sinni vopnaður ljósmyndavél: Ég er nokkurs konar ritari hjá leikstjór- anum, eiginlega. Merki tökurnar ... skrifa niður athugasemdir hans ... hugmyndir og þannig sem ég minni hann svo á ... segir Ása til frekari skýringar á þessum undarlega starfa sínum, en einsog lesandann máski grunar ætlar Guttormur kvikmyndaleikstjóri máski að filma i íbúðinni hennar Soffíu gömlu. Rétt til getið lesend- ur góðir en gallinn er bara sá að Ása hefir vart undan að rita niður nýjar og nýjar hugmyndir, er fæð- ast við hvert skref hjá Guttormi. Þannig er kisinn hennar Soffíu, hún Gréta Garbó, skyndilega orð- inn aðalpersónan í handriti nýrrar myndar Guttorms. Nœstum í mark Vafalaust ætlar Andrés Ind- riðason höfundur nýjasta fimmtu- dagsleikritsins, „Gréta Garbo fær hlutverk“, sér að fletta ofan af stælum ungu kvikmyndaleik- stjóranna, þá hann lætur Guttorm fá hverja furðuhugmyndina á fæt- ur annarri í ibúð Soffíu gömlu, uns að lokum er úti um hið upp- haflega kvikmyndahandrit er rak hann á vettvang og þar með dúfnaher er ónefndur maður hafði i marga mánuði tamið fyrir kvik- myndaleikstjórann, en þess í stað er kominn til sögunnar hinn aldni köttur Gréta Garbo, sem náttúru- lega á að leika hér ógnvald sam- kvæmt formúlu Poe. Gegn rudda- mennsku og fagmannsstælum Guttorms leikstjóra stefnir Andr- és svo litillátu og ljúfu aldamóta- barni og manneskjulegri stelpu- skjátu er á allt sitt undir því að krassa hugmyndir hins árásar- gjarna leikstjóra á blað um leið og þær koma fyrir myndauga „sénís- ins“. Lokaorð Ég held að Andrési Indriðasyni hafi tekist bara þokkalega að fletta ofan af Guttormi leikstjóra, með fyrrgreindum vinnuhætti, þó stundum hafi nú gamla konan ver- ið dregin dálítið einföldum drátt- um og sömuleiðis skriftan, en Guttormur í meðförum Égils ólafssonar situr enn í „útvarps- stólnum" mínum ljóslifandi. Kannski hefir Egill haft nærtæka fyrirmynd að styðjast við, þá hann dró upp mynd þessa atkvæðamikla leikstjóra, er greinilega hefir vak- ið öfund í brjósti ónefndra kollega. Ólafur M. Jóhannesson ■■■■ Fjórði þáttur- 0040 inn um skyndi- — hjálp er á dagskrá sjónvarps í kvöld og fjallar hann um lost. Fjallað verður hvað valdi losti, hvaða vörnum við getum komið við gegn yf- irvofandi losti og hvernig við róum hinn slasaða. í bókinni Skyndihjálp eftir Uffe Kirk, sem Rauði A B Skyndihjálp kross íslands gaf út 1978, segir m.a. um lost (sjá mynd): A. Þessi geymir táknar blóðrás líkamans, rýmið, sem hjarta, slag- æðar, háræðar og bláæðar mynda. B. Venjulega er blóð í öllu æðakerfinu, geymirinn er fullur, vegg- irnir eru þandir og þrýst- ingur á blóðrásarkerfinu. C. Við lost er blóðmagn- ið í hringrásinni of lítið í samanburði við blóðrás- arrýmið, blóðið í geymin- um verður of lítið. Þetta getur átt sér stað með tvennu móti.C-1. Geymir- inn heldur stærð sinni, en - fjallað um lost blóðmagnið minnkar. Þetta á sér stað þegar áverki orsakar mikla blæðingu (það kemur gat á tankinn), eða þegar blóðvatn síast út, svo sem við mikinn bruna (geym- irinn verður óþéttur). 02. Blóömagnið helst óbreytt, en kassinn stækkar. Þetta á sér stað í meira eða minna mæli þegar lost er yfirvofandi, þar eð háræð- arnar í sumum hlutum líkamans (vöðvum og kviðarholi) lamast og víkka. ótti og sársauki geta hér einnig verið vald- andi og haft þau áhrif, að æðakerfið stækkar ennþá meira. Sum eiturefni valda einnig víkkun á æðakerfinu. D. Blóðgeymirinn í manninum hefur stút að ofan, höfuð með heilan- um. Ef maður með lost er uppréttur, nær blóðið ekki til höfuðsins sökum þessa að þrýstingurinn hefur minnkað í æðakerfinu. Heilinn fær því ekki nægilegt súrefni. Slíkt ástand er lífshættulegt. E. Rétt skyndihjálp handa manni með lost er fólgin í því að leggja geyminn, þ.e. líkamann, útaf, þannig að höfuðið sé lægst. Með því móti eru mestar horfur á, að heilinn fái nægilegt blóð og þá jafnframt súr- efni. D Hallmar Sigurðsson leik- stýrir. Landið gullna Elidor - 9. og síðasti þáttur m í kvöld kl. 20.00 00 verður fluttur ““ níundi og síð- asti þáttur framhalds- leikritsins „Landið gullna Elidor" eftir Alan Garner i útvarpsleikgerð Maj Samzelius. Þýðinguna gerði Sverrir Hólmarsson. Þessi þáttur nefnist „Söngur Findhorns". { áttunda þætti komust krakkarnir í raun um að skuggamennirnir frá Eli- dor voru á næstu grösum og biðu færist að ná dýrgripum Elidor. Þau ákváðu að grafa dýrgrip- ina upp og hafa þá inni í húsinu þangað til þau fyndu annan stað fyrir þá. Um kvöldið, þegar for- eldrar þeirra höfðu farið að heiman, reyndu menn- irnir að brjótast inn í hús- ið. Krakkarnir ákváðu að forða sér með dýrgripina niður í borgina og flakka um hana til þess að menn- irnir næðu þeim ekki. En allt í einu voru þau komin á gamlar slóðir í nágrenni við Fimmtudagsgötu þar sem allt hið dularfulla hafði byrjað. Leikendur í níunda þætti eru: Viðar Eggerts- son, Emil Gunnar Guð- mundsson, Kjartan Bjarg- mundsson, Kristján Franklín Magnús, Sólveig Pálsdóttir og Bjarni Ingv- arsson. Tæknimenn eru Vigfús Ingvarsson og Áslaug Sturlaugsdóttir. Tónlist samdi Lárus Grímsson, leikstjóri er Hallmar Sig- urðsson. Lárus Grímsson samdi tón- listina. ÚTVARP ÞRIÐJUDAGUR 19. mars 7.00 Veðurfregnir. Fréttir. Bæn. A virkum degi. 7.25 Leikfimi. 7.55 Daglegt mál. Endurt. þáttur Valdimars Gunnars- sonar frá kvöldinu áöur. 8.00 Fréttir. Dagskrá. 8.15 Veöurfregnir. Morgunorð: — Bryndls Vlg- lundsdóttir talar. 9.00 Fréttir. 9.05 Morgunstund barnanna: .Agnarögn" eftir Pál H. Jónsson. Flytjendur: Páll H. Jónsson, Heimir Pálsson og Hildur Heimisdóttir (10). 9.20 Leikfimi. 9.30 Tilkynn- ingar. Tónleikar. 9.45 Þing- fréttir. 10.00 Fréttir. 10.10 Veður- fregnir. Forustugr. dagbl. (útdr.). 10.45 .Man ég þaö sem löngu leið“. Ragnheiður Víggós- dóttir sér um þáttinn. 11.15 Viö Pollinn. Umsjón: Ingi- mar Eydal. (RÚVAK.) 12.00 Dagskrá. Tónleikar. Til- kynningar. 12JtO Fréttir. 12.45 Veður- fregnir. Tilkynningar. Tón- leikar 13.20 Barnagaman. Umsjón: Sólveig Pálsdóttir. 13.30 Söngleikja- og kvik- myndatónlist. 14.00 .Blessuö skepnan" eftir James Herriot. Bryndis Vlg- lundsdóttir les þýðingu sina (29). 14.30 Miðdegistónleikar. Erwin Laszlo leikur planólög eftir Jean Sibelius. 14.45 Upptaktur. — Guð- mundur Benediktsson. 15.30 Tilkynningar. Tónleikar. 16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15 Veðurfregnir. 16.20 Slödegistónleikar. a. Sinfónla nr. 2 I a-moll op. 55 eftir Camille Saint-Saéns. Sinfóniuhljómsveit franska útvarpsins leikur; Jean Mart- inon stjórnar. b. .Romeó og Júlla", ball- ettsvlta nr. 1 eftir Sergej Prokofjeff. .National"-sin- fónluhljómsveitin I Washingt- on leikur; Mstislav Rostropo- vitsj stjórnar. 17.10 Slðdegisútvarp. 19.25 Svlfum seglum þöndum — fyrri hluti. Heimildarmynd um norska fjölskyldu sem sigldi kringum jörðina á skútunni sinni. Feröin tók alls fimm ár þvl aö vlöa var staldrað viö. Þýðandi Jóhanna Jóhanns- dóttir. (Nordvision — Norska sjón- varpið.) 19.50 Fréttaágrip á táknmáli. 20.00 Fréttir og veður. 18.00 Fréttir á ensku. Tilkynningar. 18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins. 19.00 Kvöldfréttir. Tilkynningar. 19.50 Daglegt mál. Siguröur G. Tómasson flytur þáttinn. 20.00 Barna- og unglingaleikrit: „Landið gullna Elidor" eftir Alan Garner. 9. og slöasti þáttur: Syngdu Findhorn. Út- varpsleikgerö: Maj Samzeli- us. Þýöandi: Sverrir Hólm- arsson. Leikstjóri: Hallmar Sigurösson. Tónlist: Lárus Grlmsson. Leikendur: Viöar Eggertsson, Emil Gunnar Guðmundsson, Kjartan Bjargmundsson, Kristján Franklln Magnús, Sólveig ÞRIÐJUDAGUR 19. mars 20.30 Auglýsingar og dagskrá. 20.40 Skyridihjálp. Fjóröi þáttur. Lost. Umsjónarmenn: Ómar Friö- þjófsson og Halldór Pálsson. 20.45 Heilsað upp á fólk. 10. Guölaug Siguröardóttir. Rafn Jónsson ræðir viö Guö- laugu Sigurðardóttur á út- nyrðingsstððum I Valla- hreppi á Fljótsdalshéraði. Tal þeirra snýst m.a. um fræöslumál en Guölaug var lengi farkennari á Héraöi. Pálsdóttir og Bjarni Ingvars- son. 20.30 I framvaröasveit. Guörún Guölaugsdóttir ræöir við Gunnar Guðbjartsson. Þrlðji þáttur. 21.05 Tónllst eftir Jórunni Viö- ar. a. Hugleiöingar um fimm gamlar stemmur. b. Fjórtán tilbrlgði um Is- lenskt þjóðlag. Höfundurinn leikur á pfanó. 21.30 Útvarpssagan: „Folda" eftir Thor Vilhjámsson. Höfundur les (5). 22.00 Lestur Passlusálma (38). 22.15 Veðurfregnir. Fréttir. Dagskrá morgundagsins. Orö kvöldsins. 22.35 Frá tónlistarhátlðinni ( 21.20 Derrick. 10. Dr. Römer og maður árs- ins. Þýskur sakamálamynda- flokkur (sextán þáttum. Aöalhlutverk: Horst Tappert og Fritz Wepper. Þýöandi Veturliöi Guönason. 22.20 Kastljós. Þáttur um erlend málefni. Umsjónarmaöur Ogmundur Jónasson. 22.50 Fréttir I dagskrárlok. Salzburg sl. sumar. Einleikarasveitin I Vlnarborg leikur. Einleikari og stjórn- andi: James Levine. a. Planókonsert nr. 12 I A-dúr K. 414 eftir Wolfgang Amadeus Mozart. b. Strengjakvartett I cls-moll op. 131 eftir Ludwig van Beethoven. 23.45 Fréttir. Dagskrárlok. ÞRIÐJUDAGUR 19. mars 10.00—12.00 Morgunþáttur Stjórnandi: Páll Þorsteins- son. 14.00—15.00 Vagg og velta Stjórnandi: Glsli Sveinn Loftsson. 15.00—16.00 Með slnu lagi Lög leikin af islenskum hljómplötum. Stjórnandi: Svavar Gests. 16.00—17.00 Þjóölagaþáttur Stjórnandi: Kristján Sigur- jónsson. 17.00—18.00 Frlstund Unglingaþáttur. Stjórnandi: Eövarð Ingólfs- son. SJÓNVARP
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.