Morgunblaðið - 19.03.1985, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 19.03.1985, Blaðsíða 20
20 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIDJUDAGUR 19. MARZ 1985 Leikurinn æsist og biAskýlið leikur eitt hlutverkið. Nemendur Verslunarskólans íeika ævintýrið um Rauðhettu í nútímaiegri umgerð Reykjavík nú? „Þetta er hið sígilda minni um afvegaleiddar sálir, freistingarn- ar sem verða á vegi manneskjunn- ar og hvernig hún bregst við þeim,“ segir Helgi þegar hann hefur tyllt sér niður hjá blaða- manni, ásamt Rauöhettu og úlfin- um, þeim Ólöfu Ýr Wright og Þorsteini Bachmann. „Allir þekkja Rauðhettu," segja þau, „en við höfum gert okkar út- gáfu af henni í því umhverfi sem krakkar alast upp við f dag. Ný- byggingahverfi þar sem hættur leynast í hverjum grunni, skurði og „stillasa". Það má leggja það út af sögunni að hún fjalli um frelsi, sem byggir á sjálfsákvörðunarrétti hvers og eins, þó að úlfurinn sé pönkari, refurinn pabbadrengur, björninn slúbbert, veiðimaðurinn venjuleg reykvísk lögga og búið sé að byggja í kringum hús ömmunn- ar.“ — En Rauðhetta, hvernig er hún ? „Rauðhetta er stelpa, sem á efn- aða foreldra og er alltaf að reyna að vera sjálfstæð, en er það ekki,“ segir Ólöf Ýr. „Hún er lfka alltaf að leita að ævintýrinu og finnur það,“ bætir hún við og vfkur nú sögunni að úlfinum. Þorsteinn segist hafa reglulega gaman af því að fá að vera ógn allra, svona til tilbreytingar. „Olf- urinn er ruddi, sem allir eru hræddir við,“ segir hann. Hann er gaur sem hætti í skóla og snýr aftur heim i hverfið eftir að hafa verið á sjónum. Hann vill breyta sér, en er alltaf úlfur, af þvf að hann á enga aðra kosti f llfinu. Úlfurinn getur verið blíður og er það viö Rauðhettu örstutta stund, en samt heldur hann sama striki og verður aldrei annað en ruddi.“ — Talinu víkur aðeins úr stein- steyptum og mótatimbruðum frumskógi Rauðhettu og félaga að hefðbundnum, og óhefðbundnum, vandamálum skólasýninga. Það gengu nefnilega engir kennarar út úr Versló á dögunum svo það hef- ur verið erfitt að fá tíma til þess að æfa, segja þau. „Það hefur þurft að berjast talsvert fyrir þessu leikriti. Það er ekki komin nein hefð á leiklist- ina í skólanum og leikrit hafa ekki verið sett upp reglulega. En við ætlum að reyna að koma leik- listinni inn f lögin og þá ætti þetta að verða auðveldara," segir Þorsteinn, en þau Ólöf eru bæði f stjórn nemendafélagsins. í þessari sýningu eru leikendur tólf, leikstjórinn er eins og áður sagði Helgi Björnsson og hann á lika heiðurinn af leikmyndinni, sem er „stór og mikil en full af einföldum Iausnum“. Lýsinguna annast Lárus Björnsson og Stefán Baldursson þýddi verkið. Rauðhetta tiplar svo með úlfinn á hælunum innan um mótatimbr- ið f samkomusal Verslunarskól- ans næstu vikuna og svona í lokin má geta þess, að í þessari sýningu hefur úlfurinn ekki lyst á að sporðrenna ömmunni, heldur hendir henni inn í strætóskýli. En Rauðhettu gleypir hann hins veg- ar „eins og honum einum er lag- ið“- H.H„S. „Af hverju ertu með svona stór... ? u-m m*-*'r** Morgunblaöið/Árni Sœberg. Rauðhetta í biðskýlinu og úlfurinn í svörtu leðri Rauðhetta litla er á leið til ömmu sinnar. Hún stendur ein í biðskýlinu með körfuna sína og skimar ótta- slegin upp í tréverkið, sem umlýkur hálfbyggða blokkina á horninu og út að dimmri tjörninni, sem er ekkert annað en húsgrunnur, fullur af rign- ingarvatni. Skyldi úlfurinn leynast þarna einhvers staðar í næturhúmi nýbyggingahverfisins? Eða var þetta ekki annars ein- hvern veginn svona? Ef til vill ekki alveg. En f upp- færslu Listafélags Verslunarskóla tslands, sem var frumsýnd í skólanum sl. sunnudagskvöld, er umgjörð ævintýrisins sígilda um Rauðhettu, ömmu hennar og úlfinn ógurlega eitthvað á þessa vegu. Ævintýrið, eða réttara sagt leikrit sovéska skáldsins Evgeny Szchwartz um Rauðhettu, sem svo aftur byggir á hinni einu sönnu Rauðhettu þeirra Grimm-bræðra, fær n.ú samt að halda sér aö mestu hjá Verslingum. Hefur b'.ra verið dulítið staðfært af leik- stjóranum, Helga Björnssyni, leikara. Og hvað er t.d. líklegra en það, að úlfurinn væri veikur fyrir svörtu leðri, tilheyrði hann kyn- slóðinni milli tektar og tvftugs f M orgunbl aftift/Bj arni Ólöf Ýr Wright (Rauðhetta), Þorsteinn Bachmann (úlfurinn) og Helgi Björnsson (leikstjérinn) umhverfi sem líkist leikmyndinni sem hefur verið komið upp í Verslunarskólanum. Amman, sem búið er að byggja í kring um, veiðimað- urinn ( kunnuglegu gervi og loks snákurinn, kvenvera sem er ekki af sama sauðahúsi og Rauðhetta og reyndar ný í ævintýrinu, í kröppum dans. í Þrjú hótel í Reykja- vík aðilar að nor- rænu gistisamstarfi Á blaðamannafundi þar sem norræna gistisamstarfíð var kynnL Frá vinstri eru Konráð Guðmundsson, hótelstjóri á Hótel Sögu, Kari Busland frá Nor- egi, Emil Guðmundsson, hótelstjóri á Hótel Loftleiðum og Einar Olgeirsson, hótelstjóri á Hótel Esju. ÞRJÚ hótel í Reykjavík hafa gerst aðilar að norrænu samstarfi sem auðveldar hótelpantanir, veitir ódýrari gistingu og er ætlað að hvetja fólk til ferðalaga milli landa. Hótelin eru Hótel Loftleiðir, Hótel Esja og Hótel Saga. í þessu sam- starfí er 101 hótel í Noregi, Dan- mörku, Svíþjóð og Finnlandi. Á blaðamannafundi, sem hót- elin þrjú boðuðu til ásamt Flug- leiðum og tveimur Norðmönnum, sem starfað hafa að þessum mál- um um nokkra hríð, kom fram að afsláttur, sem þessi nýja gisti- áætlun veitir, er 15%—40% pró- sent af venjulegu hótelverði. Innifalið í hverri gistingu er morgunverður. í enskumælandi löndum geng- ur þessi gisti- og ferðamáti undir nafninu „go as you please" sem þýðir að gestir geta komið til gistihússins með litlum fyrir- vara, gist eina til þrjár nætur á hverjum stað og haldið síðan áfram ferðinni til næsta gisti- staðar og gist þar í þrjár nætur með þessum afsláttarkjörum. Hins vegar fæst gistiaðstaða með þessum kjörum aðeins ef pláss er á hótelinu. Þó er hægt að panta pláss með allt að þriggja vikna fyrirvara og er þá sá sem gistir á afsláttarkjörunum tryggður fyrir að fá inni hafi verið pláss þegar pöntunin var gerð. Að öðr- um kosti getur korthafi snúið sér til næsta hótels i nágrenninu. Hótelskírteinið kostar 40 norskar krónur og gildir í júní, júh' og ágúst. Á blaðamanna- Pl fllr v sjÆ & fundinum kom fram að vetrar- skírteini væri í athugun og yrði það þá með svipuðu fyrirkomu- lap. Á fundinum kom fram að Is- land nýtur góðs af þessu, sér- staklega hvað varðar auglýs- ingastarfsemi. Hótelskírteini eru seld út um allan heim og þau samtök er standa að þessu, en þau nefnast Hains, eru mjög þekkt. Fyrir íslendinga sem ætla að ferðast til Norðurlanda er þetta mjög ákjósanlegt fyrir- komulag. Sömuleiðis er aðild fs- lensku hótelanna þriggja erlend- um ferðamönnum hvati til ls- landsferðar. Hótelskírteinin verða seld á hótelunum þremur hér á landi og á ferðaskrifstofum. ÖIl verð eru bundin norskum krónum. Á komandi sumri er búist við að margir Bandaríkjamenn not- færi sér þessa nýju ferðatilhögun á Norðurlöndum. Þar í landi hafa norrænu samtökin marga um- boðsmenn og ferðaskrifstofu, sem selja gistingu samkvæmt þessu fyrirkomulagi. Einnig eru söluaðilar margir í Evrópulönd- um. Alls eru 110 söluaðilar utan Norðurlandanna. VJterkurog k-/ hagkvæmur auglýsingamiöill!
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.