Morgunblaðið - 19.03.1985, Page 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 19. MARZ 1985
Svipmynd frá fundi HlK á sunnudag
Dreífirit á fundi HÍK:
Fjármálaráðuneytið um kennaradeilunæ
„í ríkisstjórninni hefur
ekki verið ágreining-
ur um meðferð málsins“
í TILEFNI af samþykkt
launamálaráðs BHMR 15. mars
1985 með áskorun um að ganga til
samninga við Hið íslenska kenn-
arafélag og yfirlýsingum ýmissa
aðila í fjölmiðlum síðustu daga um
sama efni vill fjármálaráðuneytið
upplýsa eftirfarandi:
1. Kennarar í HlK fengu, eins
og aðrir félagar í BHM,
endurskoðun á samningi sín-
um til samræmis við niður-
stöður úr verkfalli BSRB. Þar
var um að ræða tæplega 20%
launahækkun.
2 Kröfur kennara, sem fyrst
voru lagðar fram fastmótaðar
19. febrúar sl., gerðu ráð fyrir
rúmlega 100% hækkun þessu
til viðbótar.
„Kjaradómur hefur ekki leng-
ur með mál kennara að gera“
— sumir telja að kennarar eigi ekki að hlíta
niðurstöðu Kjaradóms,“ segir formaður HÍK
HIÐ ÍSLENSKA kennarafélag hélt fund á Hótel Sögu á sunnudag og boðaði
m.a. alla þingmenn á fundinn. í upphafi fundar flutti Gunnar G. Schram
ávarp, en framsögumenn voru Heimir Pálsson, menntaskólakennari, Lavst
Riemann Hansen, formaður félags menntaskólakennara í Danmörku, And-
ers Frivold, formaður félags framhaldsskólakennara i Noregi, Stefán Ólafs-
son, formaður Launamálaráðs BHMR, Anna Hildur Hildibrandsdóttir, nemi,
Eiríkur Hjálmarsson, stúdent, og Guðlaug Teitsdóttir, fulltrúi Kennarasam-
bands fslands.
Fundinn sátu um 700 manns og
urðu nokkrar umræður að loknum
framsöguræðum. Þingmennirnir
Árni Johnsen og Halldór Blöndal
tóku til máls, Helga Finnsdóttir,
nemi, sté einnig í pontu auk
Gunnlaugs Ástgeirssonar, vara-
formanns HÍK, og fleiri.
f ræðu sinni tilkynnti Guðlaug
Teitsdóttir, að Kermarasambandið
hefði ákveðið að styrkja HÍK með
250 þúsund krónum. Einnig væri
nú verið að undirbúa fjársöfnun
meðal félagsmanna KÍ i sama til-
gangi.
Formenn félaga framhalds-
skólakennara í Danmörku og i
Noregi, þeir Lavst Riemann Han-
sen og Ánders Frivold, sögðu, að
HÍK stæði til boða 2,5 millj.
sænskra króna lán, samkvæmt
samningi félaga framhaldsskóla-
kennara á Norðurlöndum, NORD-
LÆR. Einnig hafa Norðmenn
ákveðið að styrkja HÍK um 50
þúsund norskar krónur og Færey-
ingar hafa samþykkt að leggja 10
þúsund danskar krónur fram.
f stuttu spjalli sem blm. átti við
þá Lavst Riemann Hansen og
Anders Frivold kom fram, að þeir
eru hingað komnir til að sýna
samstöðu kennara á Norðurlönd-
um við kröfur HÍK. Að sögn And-
ers ákvað stjórn NORDLÆR i
febrúar að fjármagn skyldi verða
laust til ráðstöfunar hinn 1. mars,
ef kennarar í HÍK létu verða af
því að ganga úr störfum sinum.
HÍK hefur ekki enn óskað eftir að
fá lán frá samtökunum. Þeir Lavst
Riemann og Anders sögðu, að þeir
myndu ræða það við formenn fé-
laga framhaldsskólakennara i
Finnlandi og i Sviþjóð að hefja
fjársöfnun meðal kennara á Norð-
urlöndum á næstunni. Það kom
fram i máli þeirra, að þær 2,5
milljónir sænskra króna, er HÍK
getur fengið að láni, myndu end-
ast félaginu i einn mánuð, en með
samskotum er reiknað með að
nægt fé væri handbært i tvo mán-
uði. „Við erum þó alls ekki að
segja að við reiknum með að deil-
an standi svo lengi," sagði Lavst
Riemann.
Er þeir voru inntir eftir þvi
hvort laun kennara á Norðurlönd-
um væru betri en hér á landi svör-
uðu þeir því til, að samanburður á
launum sýndi það ljóslega að svo
væri. „Það var ekki tekið inn i
þann samanburð hvað það kostar i
hverju landi að framfæra sig og
fjölskyldu sína, en það er ljóst að
það er ekki ódýrara að lifa á ís-
landi en á öðrum Norðurlöndum,
nema síður sé,“ sagði Lavst Rie-
mann Hansen.
Kjaradómur
hunsaður?
í dreifiriti, sem fundarmenn
fengu í hendur, segir m.a. að kenn-
arar hafi gengið úr skólunum og
tekið sér samningsrétt. Kjara-
dómur hafi þvi ekki lengur með
mál þeirra að gera.
Kristján Thorlacius, formaður
HÍK, sagði að þessu hefði ekki
verið dreift á vegum stjórnar HÍK
og efni dreifibréfsins ekki borið
undir hana. „Það eru margir sem
vinna hér og sumir hafa kannski
þessa skoðun. í stóru félagi eru
margar skoðanir," sagði Kristján.
„Ég get ekki tekið undir þetta. Við
erum núna að ganga frá greinar-
gerð sem við leggjum fyrir Kjara-
dóm, en erum ennþá ákveðnir í að
reyna að ná samningum. Eg get
ekki sagt um það á þessari stundu
hvað verður þegar úrskurður
Kjaradóms liggur fyrir en það
hafa sumir haft á orði að við
skyldum hunsa hann,“ sagði for-
maður HÍK.
Ragnhildur Helgadóttir,
menntamálaráðherra, sagði, að ný
staða væri komin upp í deilunni
þegar dreifirit með þessu efni
væri lagt fram á fundi HÍK.
„Þetta bréf er enn ein yfirlýsingin
um að kennarar ætla ekki að hlíta
neinum lögum í landinu," sagði
Ragnhildur. „Þetta er auðvitað
sorglegt og hefur örlagaríkar af-
leiðingar fyrir svo marga einstakl-
inga, sem eru alsaklausir og eiga
enga aðild að deilunni."
Engin kennsla í
grunnskólum í dag
Á sameiginlegum fundi stjórna
og trúnaðarmanna kennarafélaga
á Stór-Reykjavíkursvæðinu á
laugardag var samþykkt áskorun
til allra kennara um að sýna
stuðning sinn við baráttu HÍK
með því að fella niður alla kennslu
í dag, þriðjudag. Kennarar ætla að
halda fundi um stöðuna í skóla-
málum í kennslu stað. Viöa á
landsbyggðinni munu kennarar
viðhafa sömu aðgerðir.
Fundur Fræðsluráðs Reykjavík-
ur í gær Iýsti áhyggjum sínum yf-
ir því, að niðurfelling kennslu sé
notuð sem vopn í kjarabaráttu og
beinir því til kennara að slikt sé
ekki gert. Þetta samþykktu sex
fulltrúar i Fræðsluráði, en sá
sjöundi, Lena Rist, Alþýðubanda-
lagi, skilaði sér bókun þar sem
segir að hún harmi að staðan í
skólamálum skuli komin á það
stig að kennarar í grunnskólum
Reykjavíkur skuli grípa til jafn
róttækra aðgerða og er að fella
niður kennslu i heilan dag.
í morgun afhentu fulltrúar
Hins íslenska kennarafélags
Steingrími Hermannssyni, for-
sætisráðherra, undirskriftalista
þar sem skorað er á stjórnvöld að
semja strax við kennara áður en
íslenskt menntakerfi bíður var-
anlegan skaða.
í dag kl. 15 verður haldinn úti-
fundur á Austurvelli á vegum
Kennarasambands íslands og
Launamálaráðs BHMR til stuðn-
ings kjarabaráttu HÍK. Fundar-
stjóri verður Stefán Ólafsson,
formaður BHMR, en meðal ræðu-
manna verða Valgeir Gestsson,
formaður KÍ, og fulltrúar BHMR
og nemenda.
Til gamalla nemenda Laugarnesskólans
Laugarnesskólinn verður 50 ira
á þessu ári og hyggjast forráða-
menn skólans minnast þess með
hátíðahöldum dagana 27. og 28.
april.
Þeir nemendur skipta þúsund-
um sem á hálfri öld hafa hlotið
menntun og uppeldi i þessum
skóla. Fjölmennur hópur merkra
forystumanna og kennara hafa á
þessu tímabili starfað við Laug-
arnesskólann og markað þar svo
djúp spor, að nemendur eiga sér-
staklega ljúfar minningar frá
veru sinni í skólanum. Auk al-
mennrar kennslu hefur leiklist-
arstarf jafnan skipað sérstakan
sess í Laugarnesskólanum og
margir þeir, sem þar hafa komið
við sögu, siðar haslað sér völl á
stærra sviði. Tónlistarkennsla
varð snemma með sérstökum
hætti í skólanum og fjölmargir
af hæfustu tónlistarmönnum
þjóðarinnar fengu þar sína
fyrstu kennslu. í stuttu máli má
segja, að Laugarnesskólinn, for-
ráðamenn hans og kennarar,
hafi í hálfa öld sinnt menntun-
ar- og uppeldisstarfi á þann veg,
að til fyrirmyndar er.
Við, gamlir nemendur Laugar-
nesskólans, viljum sýna þakk-
læti okkar fyrir ógleymanleg
æskuár með því að leita til gam-
alla bekkjarfélaga um þátttöku f
afmælisgjöf til skólans i vor.
Laugarnesskóli
Endanleg ákvörðun um gjöf hef-
ur ekki verið tekin en væntan-
lega mun hún tengjast tækni-
væðingu skólans á sviði sjón-
varps og myndbanda. Við viljum
með þessum orðum leita til gam-
alla nemenda Laugarnesskólans
um þátttöku i fjársöfnun í þessu
skyni. Hugmynd okkar er sú að
framlag hvers og eins verði
krónur 300. Við munum senda
bekkjarfélögum okkar frá Laug-
arnesskólaárum bréf með til-
mælum um þetta ásamt gfróseðli
og er númer gfróreikningsins
500801, Laugarnesskólinn 50 ára.
Við viljum hvetja aðra nemend-
ur frá fyrri tið, sem hafa áhuga
á þátttöku i þessari fjársöfnun
til þess að hafa samband við
eitthvert okkar:
Astrid Kofoed-Hansen, Birki-
lundi 10, Garðabæ, s. 43640;
Elisabet Erlingsdóttir, Skeiðar-
vogi 27, s. 35857; Gunnar Már
Hauksson, Laugarásvegi 14, s.
38259; Gylfi Már Guðbergsson,
Hávallagötu 29, s. 14124, 25088;
Ragnar Árnalds, Laugalæk 38, s.
83695; Markús örn Antonsson,
Krummahólum 6, s. 75353; Einar
Grétar Sveinbjörnsson, Vin-
bársg. 23, 23040 Bara, Svíþjóð, s.
(040) 447319; Selma Júlíusdóttir,
Vesturbergi 73, s. 77070; Bern-
harður Guðmundsson, Hlíðar-
vegi 6, s. 40187; Elfa Björk
Gunnarsdóttir, Granaskjóli 25,
s. 21091, 22260; Margrét Erla
Björnsdóttir, Akurholti 20, s.
666585; Sonja Backman, Fjölnis-
vegi 15, s. 20628; Brynja Bene-
diktsdóttir, Laufásvegi 22, s.
25198; Styrmir Gunnarsson,
Marbakka, Kópavogi, s. 42941;
Jón Baldvin Hannibalsson, Vest-
urgötu 38, s. 21513; Halldór
Blöndal, Melabraut 14, s. 16616.
3. Önnur aðildarfélög BHM
lögðu fram sínar kröfur 27. og
28. febrúar og er þar í flestum
tilfellum gert ráð fyrir
70—100% hækkunum.
4. Hinn 28. febrúar gerði samn-
inganefnd ríkisins grein fyrir
því, að hún væri reiðubúin að
vinna að samningi við HÍK á
þeim grundvelli, að þar kæmu
fram hliðstæðar kjarabætur
og í samningum við önnur að-
ildarfélög BHM og að auki
yrði tekið tillit til:
a) þess munar á heildarkjör-
um sem kann að hafa mynd-
ast á síðustu árum milli há-
skólamenntaðra kennara og
annarra háskólamenntaðra
ríkisstarfsmanna
og
b) álits þeirrar nefndar sem
starfar á vegum menntamála-
ráðuneytisins og fjallar um
endurmat á störfum kennara.
Sú skýrsla var lögð fram síðar
sama dag.
5. Samninganefnd ríkisins gerði
4. mars aðildarfélögum BHM
tilboð um 5% hækkun launa.
Það tilboð byggist á þeim
launahækkunum sem félagar
í BSRB hafa samið um, ýmist
frá 1. nóvember sl. eða 1. maí
nk. Lá þá ljóst fyrir að félagar
í HÍK fengu þessu til viðbótar
hækkun þá sem fælist í liðum
a) og b) frá 28. febrúar.
6. Frá þessum tíma hefur ítrek-
að verið reynt að ná bráða-
birgðasamningi við HÍK, sem
grundvallaðist á samkomu-
lagi um þá hækkun, sem
kennarar skyldu fá umfram
aðra BHM-félaga, sbr. liði a)
og b) frá 28. febrúar. Hefur
ríkið í því sambandi boðið
u.þ.b. 10% hækkun umfram
aðra, en HÍK krafist allt að
50% hækkunar umfram aðra í
formi launaflokkabreytinga
eða lækkunar á kennslu-
skyldu úr 26 stundum á viku í
rúmlega 18 stundir á viku.
7. Með því að bjóða HÍK 10%
hækkun umfram það sem að-
rir kunna að fá, hefur kennur-
um í HfK verið tryggð yfir
30% launahækkun frá síðasta
hausti á meðan aðrir launþeg-
ar hafa samið um rúmlega
20% hækkun. Allir hljóta að
sjá að lengra er ekki hægt að
ganga í þessu efni gagnvart
öðrum opinberum starfs-
mönnum og hinum almenna
vinnumarkaði.
8. Eins og er standa mál þannig
að af hálfu aðildarfélaga
launamálaráðs liggja fyrir
kröfur um 70—100% hækkun
launa háskólamenntaðra rík-
isstarfsmanna umfram það
sem aðrir hafa fengið. Ekkert
aðildarfélaganna hefur verið
til viðræðu um tilslökun frá
þessum kröfum. Krafa HÍK er
um 30—50% hækkun umfram
önnur félög.
9. Rétt er að taka fram að í rík-
isstjórninni hefur ekki verið
ágreiningur um meðferð
málsins.