Morgunblaðið - 19.03.1985, Page 5
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIDJUDAGUR 19. MARZ 1985
5
ENN
EINUSINNI
KEMUR
SIRCUVE
SINCLAIR
HRESSILEGA
ÁÓVART
Það er engin tilviljun að Bretadrottn-
ing sá ástæðu til þess að aðla Clive
Sinclair. Sir Clive er nefnilega
brautryðjandi í tölvufram-
leiðslu fyrir fjöldann. Það er
m.a. honum að þakka að almenning-
ur gat eignast vasatölvur á sínum
tíma og hann var einnig fyrstur að
framleiða heimilistölvur á viðráðan-
legu verði. Með þessu hefur Sir Clive
skapað ákveðna hefð, sem hann
ætlar ekki að rjúfa. Nýjasta út-
spilið er Sindair Spectrum +
Sinclair Spectrum + er endurbætt
útgáfa af Spectrum ZXtölvunni, sem
Islendingar hafa svo sannarlega
tekið tveim höndum, þó ekki
endurbættari en svo að allir gömlu
plúsarnir fengu að halda sér.
Nýju plúsarnir eru:
- Stærra lyklaborð í ritvélarstíl með
rofalyklum sem slitna minna.
- Skipanir sem þurfti tvo lykla til,
þurfa nú aðeins einn.
- Bendilyklar þægilega staðsettir.
- Mjög aðgengileg fyrir byrjendur.
- Hægt er að halla tölvunni sem
gerir allan áslátt auðveldari -
sérstaklega í ritvinnslu.
- Allir Sinclair fylgihlutir passa við
Spectrum +.
Stærsti plúsinn er þó sennilega
verðið:
Sinclair Spectrum + kr. 6.990.-
staðgreitt.
Um leið og við kynnum Sinclair
Spectrum +, stórlækkum við
verðið á gömlu góðu Spectrum ZX:
Sinclair Spectrum ZX með 6
forritum kr. 5.450.- staðgreitt.
Heimilistæki hf
HAFNARSTRÆTI 3 - 20455- SÆTÚNI 8- S: 27500