Morgunblaðið - 19.03.1985, Side 21
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 19. MARZ 1985
21
Þrjú fiskvinnslufyrirtæki á Austfjörðum:
Bera reksturinn
saman mánaðarlega
StöAvarfirdi. 12. nire.
STJÓRNENDUR þriggja fisk-
vinnslufyrirtækja á Austurlandi,
þ.e.a.s. Búlandstinds hf. á Djúpa-
vogi, Hraðfrystihúss Breiðdælinga
hf. á Breiðdalsvík og Hraðfrysti-
húss Stöðvarfjarðar hf. á Stöðvar-
firði, hafa bundist samtökum um
mánaðarlegan samanburð á
rekstri fyrirtækjanna, en hug-
myndin er að opna samstarfið
fyrir önnur fyrirtæki í fiskiðnaði á
Austurlandi.
Fyrsti fundurinn var haldinn
á Stöðvarfirði 12. mars þar sem
stjórnendur hraðfrystihúsanna
báru saman niðurstöður rekstr-
ar; nýtingu síðasta mánaðar, af-
köst og framlegð. Gera menn sér
vonir um að þetta stuðli að
auknu aðhaldi í rekstri fyrr-
greindra fyrirtækja.
Rekstrartækni sf. mun að-
stoða frystihúsin við uppbygg-
ingu samstarfsins, útbúnað
tölvukerfa og eyðublaða.
— Steinar
Uorgunblaðið/RAX
Fjérar rúður, þar af þrjár stórar, voru brotnar í síðustu viku í Kiwanis-
húsinu í Garðabæ með því móti að skotið var á þær úr loftriffii.
Lögreglan í Hafnarfirði skoðar hér vegsummerki, en þess má geta að
Kiwanishúsið er staðsett í miðju íbúðarhverfi.
Vara við sinu-
brennu og fugla-
veiðum á vorin
Nú fer í hönd sá tími er farfugl-
ar koma til landsins. Skotveiðifé-
lag íslands vill hér með koma því
á framfæri við alla sem það varð-
ar, að gæsa- og andaveiðar eru
bannaðar með lögum á vorin. Allar
gæsir eru friðaðar frá 15. mars —
20. ágúst. Allar andategundir eru
friðaðar frá 1. apríl — 1. sept
Ennfremur viíl félagið benda
landeigendum, sem stuðla á ein-
hvern hátt að því að slíkar veiðar
fari fram, að þeir geti hugsanlega
orðið hlutdeildarmenn í lögbroti
samkvæmt 22. grein laga nr. 19,
1940. Einnig er hér vakin athygli
manna á að öll sinubrenna verði
framkvæmd samkvæmt gildandi
lögum. (FrétUtilkynning.)
Siglufjörður:
Hjól atvinnu-
lífsins eru
farin að snú-
ast á ný
Siglufírði, 16. marz.
HJÖL atvinnulífsins eru nú farin
að snúast af fullum krafti hér í
Siglufirði að loknu aðgerðarleys-
inu vegna verkfallsins. í morgun
sást varla nokkur maður á götum
úti, allir voru að vinna.
Vinna hófst í báðum frystihús-
unum í gær og hjá Siglósíld og var
unnið á öllum þessum stöðum í
dag. Sigluvíkin kom inn í gær með
105 lestir og rækjubátum, sem
leggja upp sjá Siglósíld, fer fjölg-
andi. Þá er grásleppuvertíðin að
hefjast, en að undanförnu hafa
karlarnir verið að fá mjög vel af
rauðmaga.
Þá heyrir það til tíðinda, að
nánast alveg snjólaust er hér um
þessar mundir. Vegna þess varð að
færa skíðamót hér um helgina af
hefðbundnum stað og gangstéttir í
bænum eru allar vel færar.
TERCEU
Toyota Tercel 4WD er framúrskarandi
stationvagn sem sannar að fjórhjóladrifnir
bílar geta verið þægilegir.
Hvort heldur á hann er litið eða í honum
eins og aðrir stationbílar — hann fer þar sem aðrir
sitja fastir. Tercel 4WD er sparneytinn og ör-
uggur svo sem við er að búastfrá Toyota.
Þægindi fólksbifreiðarinnar,
seigla og styrkur bíls með drifi á öllum hjólum
sameinast í Tercel station. Harðger
1,5 lítra bensínvél sinniraf samaöryggi 2 og4 hjóla drifunum.
Rit um náttúruvemd:
„Jörðin
er gjöful"
„Jörðin er gjöful“ heitir rit um
umhverfisvernd, sem Landvernd
hefur nýlega gefið út í samvinnu
við önnur norræn áhugasamtök
um náttúruvernd.
í formála ritsins segir, að það sé
þýðing á ritinu „Heimsáætlun um
umhverfisvernd", („World Cons-
ervation Strategy"), sem kom
fyrst út árið 1980 og tilgangur
þess sé sá, að lýsa þeim leiðum,
sem þarf að fara til þess að skapa
viðunandi og byggilegan heim, þar
sem gróður, dýralíf og mannlíf
fær að þróast í sátt og samlyndi
og gagnkvæmum skilningi.
Aftast í ritinu eru sérstakir
kaflar um ástand nátturu- og um-
hverfisverndar á Norðurlöndum.
Ritið er á aðgengilegu máli 48 bls.
að stærð og prýtt fjölda mynda.
4NNLENT
TOYOTA
Nýbýlavegi 8 200 Kópavogi S. 91—44144
essemm