Morgunblaðið - 19.03.1985, Page 24

Morgunblaðið - 19.03.1985, Page 24
24 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 19. MARZ 1985 Ný rök úr fjár- málaráðuneyti verður að segjast að slíkur mál- flutningur er hvergi réttmætur. Skrifstofustjórinn er að verja vondan málstað og aðferð hans gengur ekki upp. Samanburður Indriða H. Þor- lákssonar á heildarlaunum dæm- ist úr leik vegna óvissu um þann vinnutíma sem að baki er. Á þetta bendir hann reyndar sjálfur, en reynir þó að klóra í bakkann með tali sem er ekki svara vert. -eftir Stefán Olafsson Deila fjármálaráðuneytis og Launamálaráðs BHM hefur tekið á sig skýra mynd þó enn sé hún ekki að fullu til lykta leidd. í grein sem birt var í Morgunblaðinu 12. mars sl. reiðir Indriði H. Þorláks- son skrifstofustjóri fjármálaráðu- neytisins fram ný gögn til að styðja þá röksemd sína að ekki sé eðlilegt að bera saman dagvinnu- laun úr könnun Hagstofu íslands og dagvinnuiaun ríkisstarfsmanna í BHM. Þar mistekst skrifstofu- stjóra fjármálaráðuneytisins að Ijá málflutningi sínum nýjan grundvöll, enda brýtur talnameð- ferð hans eina af grundvallarregl- um tölfræðinnar. En lítum fyrst á gömlu röksemdina sem skrifstof- ustjórinn reynir að gæða nýju lífi með svo hæpinni tölfræði. Gamla röksemdin I fyrstu lýsir hann því yfir að Hagstofukönnunin hafi verið afar góð könnun og vel til hennar vand- að, eins og reyndar allir aðrir eru sammála um. Sérstaklega nefnir Indriði H. Þorláksson, að „af hálfu allra að- ila var fyllstu vandvirkni einnig gætt þegar mótaðar voru spurn- ingar þær sem lúta að dagvinnu- launum“. Síðan bætir hann eftir- farandi klausu við. „Reynsla er fyrir því að vandað- ar spurningar tryggja ekki að svör við þeim verði með þeim hætti sem ætlast var til. Kemur þar m.a. til að svarendur skilja spurningar á misjafnan veg og að stundum er spurt um hluti, t.d. aðgreiningu milli dagvinnulauna og heildar- launa, sem ekki eru fyrir hendi.“ Tvö fyrri svör mín við þessu — úr grein í Morgunblaðinu frá 9. mars sl. — má ítreka. Fyrst um það hvort svarendur hafi ekki skilið spurningarnar. Eins og ég sýndi í fyrri grein minni voru spurningarnar í Hag- stofukönnuninni afar skýrar. Auk þess fylgdu þeim ítarlegar leið- beiningar sem tóku af allan vafa um hvernig svara skyldi. Þess vegna er út í hött að reyna að halda því fram að þeir stjórnend- ur einkafyrirtækja sem svöruðu spurningunum hafi ekki skilið spurningarnar. f öðru lagi heldur skrifstofu- stjórinn því fram að spurt hafi verið um aðgreiningu dagvinnu- launa og heildarlauna sem stund- um er ekki fyrir hendi. Það er rétt að stundum er slík aðgreining ekki fyrir hendi. f Hagstofukönnuninni var einmitt gert ráð fyrir því með sérstakri spurningu fyrir þau til- vik. Þetta var spurning l.b. þar sem spurt var um mánaðarlaun fyrir dagvinnu að meðtalinni fastri greiðslu fyrir ómælda yfir- vinnu. Þannig voru þessi tilvik flokkuð frá þeim stóra hópi sem hafði dagvinnulaun fyrir 40 stunda vinnuviku aðgreind frá yf- irvinnu (spurning l.a.). Það er því enginn fótur fyrir því að þetta hafi ruglast saman. En hver eru þá nýju rökin? Nýju rökin f grein sinni birtir Indriði H. Þorláksson töflu með tölum sem hann telur að sýni að aðgreining dagvinnulauna frá yfirvinnulaun- um hafi ekki tekist. Þetta eru dæmi um að mánaðarlaun fyrir dagvinnu og fasta ómælda yfir- vinnu séu lægri en mánaðarlaun fyrir dagvinnu eina. Hér er um að ræða fimm tilvik, sem eru meðal- tekjur hópa með minnst 2 og mest 6 einstaklingum í. Skyldi mönnum detta í huga að slíkt sé marktækt? f öllum tifvikum sem eru töl- fræðilega marktæk er munurinn hins vegar afgerandi. Dagvinnu- laun með fastri ómældri yfirvinnu eru þar hærri eins og ætla mætti og er munurinn frá 11 og upp í 32%. Ekki þarf fleiri vitna við en eru í töflunni (Tafla 1 hér) sem skrifstofustjórinn dregur dæmi sín úr. f töflu 2 er framsetning Indriða H. Þorlákssonar sýnd, en auk þess hef ég bætt inn þeim fjölda einstaklinga sem eru á bak við meðaltöfin hans. Tafla 1 Mánaðarlaun fyrir dagvinnu og fyrir dagvinnu að viðbættri ómældri yfirvinnu l.a. l.b. Mánaðarlaun fyrir l.a. um- Mánaðarlaun dagvinnu og fasta fram l.b. fyrir dagvinnu ómælda yfirvinnu % fjöldi kr. fjöldi kr. Alm. skrifstofum., ritari 328 20.490 64 25.080 22 Fulltrúi, gjaldkeri 138 25.586 63 33.856 32 Verkstj., verksm .stj. 115 28.657 70 38.081 29 Sölum., ráðgjafi 96 23.784 36 26.369 11 Deildarstjóri 68 34.259 41 41.278 20 Verslunar- og deildarstj. í versl. 56 31.455 31. 40.097 27 Verkfræðingur 30 36.610 46 42.724 17 Bókari 64 23.791 6 23.483 +1 Eftirlitsm. og tryggingamaður 41 23.051 5 24.980 8 Tæknifræðingur 22 32.036 19 42.568 33 Skrifstofustjóri 22 39.573 17 42.476 7 Kerfisfræðingur 22 30.077 16. 55.469 84 Viðskiptafr., hagfr. 25. 50.826 6 34.517 +32 Forstöðumaður og aðst.framkv.stj. 10 44.130 13. 44.154 0 Rafeindavirki 12 32.808 9 42.089 28 Tölvari, forritari 19 27.637 1 19.000 +31 Yfirbókari 14 35.707 5 42.580 19 Yfi rverkf ræði ngur 2 52.750 5 44.000 +17 Lögfræðingur 2 37.900 2 28.150 +26 Aðrir 18 24.139 11 26.382 9 (Dæmi IHÞ undirstrikuð í töflunni, takið eftir hve fáir eru í þeim Starfsheiti: hópum.) Tafla 2 Útdráttur IHÞ úr töflu 1. Mánaðarlaun fyrir Mánaðarlaun fyrir „dagvinnu" eina dagvinnu og ómælda yfirvinnu kr. fjöldi kr. fjöldi Bókari 23.791 64 23.483 6 Viðskipta- og hagfr. 50.828 25 34.517 6 Y firverkfræðingur 52.750 2 44.000 5 Lögfræðingur 37.900 2 28.150 2 Menntun: Hagfræði 41.425 4 35.100 3 Launamálaráð hefur I öllum til- vikum byggt kröfur sínar á sam- anburði talna sem eru úr dálki l.a., þ.e. mánaðarlaun fyrir dag- vinnu eina. Dæmi Indriða H. Þorlákssonar (undirstrikuð í töflu 1.) eru þau fáu meðaltöl í töflunni sem ekki eru marktæk vegna þess hversu fáir eru á bak við þau. Ekki skal ég hafa stór orð um þetta, en það Að lokuin Hlutverk mitt og Indriða H. Þorlákssonar, sem formanna samninganefnda aðilanna, á að vera það að láta það samráðakerfi sem við í BHM búum við virka án þess að til vinnustöðvana eða upp- sagna komi. Samráðakerfi okkar krefst sam- anburðarannsóknar, eins og þeirr- ar sem þegar hefur verið gerð. Nú Fæðan og hegðunarvandamál - eftir Margréti Þorvaldsdóttur Á allra síðustu árum, eða frá 1980, hafa verið birtar fjölmargar greinar í blöðum og tímaritum um tengsl fæðu og hegðunarerfiðleika. Er þar átt við margvíslega erfið- leika allt frá eirðarleysi til glæpa- tilhneigingar. f sérútgáfu fréttatímaritsins „USA Today“ birtist athyglisverð grein um þetta efni í okt. 1983. Segir þar m.a., að fjöldi sérfræð- inga í næringar- og hegðunar- fræðum hafi komið saman á þingi í Texas-háskóla til að ræða rann- sóknir á því hvernig fæðan hefur áhrif á hegðun fólks og breytni. í upphafi greinarinnar segir að orðtakið „við erum það sem við borðum", hafi fengið nýja merkingu er vísindamenn fóru að ræða tengsl næringar og glæpa- tilhneigingar og annarra hegðun- arerfiðleika. Dr. Roger Williams, þekktur líf- efnafræðingur og frumherji í nær- ingarfræði, var heiðursforseti þingsins. Hann varpaði þeirri hugmynd fram fyrir mörgum ár- um, að mannveran væri í raun líf- efnafræðilega einstök. — Þó allir þörfnuðust sömu vítamina, stein- efna og aminósýra til að viðhalda „Við lifum ekki eftir ákveðnum formúlum, það sem hæfír einum á ef til vill alls ekki við um annan.“ heilbrigði, þá væri það magn sem sérhver einstaklingur þyrfti af þessum næringarefnum mjög mis- munandi. f ræðu við opnun þings- ins sagði dr. Williams: „Við lifum ekki eftir ákveðnum formúlum, það sem hæfir einum á e.t.v. alls ekki við annan.“ — En þetta var kjarninn í þeim rannsóknum sem ræddar voru á þinginu. Bernhard Rimland, forstöðu- maður Institute for Child Be- havior í San Diego, Kaiiforníu, benti á að næringarefni hafi feng- ið aukið mikilvægi sem mögulegur liður í afbrotatilhneigingu. — Hinar hefðbundnu aðferðir sem notaðar hafa verið við endurhæf- ingu afbrotamanna, hafa ekki sýnt verulegan árangur. Hann bætti við: „Við verðum að rétta við efnasamsetningu heilans áður en við reynum að lagfæra hegðunar- ferilinn." B. Rimland líkti heila mannsins við tölvu, þar sem skipanir eða boð fara um rafrásir, en heilinn sem er 80% vökvi, verður að treysta á efni sem leyst eru upp í vökvanum, til að annast starfsemina og flytja boð. Ýmis efni geta haft áhrif á rafrásir og boðbrautir heilans og komið í veg fyrir eðlilega starf- semi hans, — það eru efni eins og alkóhól, kvikasilfur og eiturlyf (hard drugs). Skortur á ákveðnum nær- ingarefnum og röskun á magni þeirra getur einnig haft örlagarík áhrif á starfsemi heilans. Dr. Alexander Schuss, forstöðu- maður rannsóknarstofu fyrir líf- félagsfræði (Biosocial Research) í Tacoma, Washington, sagði frá barni, Jóel, hjá honum hafði verið greind lesblinda (dixlexia). Það var síðar uppgötvað að lestruflan- ir hans voru tengdar duldu matar- ofnæmi. Það kom í ljós, að í hvert sinn sem honum var gefið þó ekki væri nema örlítið af eggjarauðu, þá skrifaði hann nafn sitt öfugt eða á hvolfi, — en þegar egg voru Stefán Ólafsson „Dætni Indriða H. Þor- lákssonar eru þau fáu meðal- töl í töflunni sem ekki eru marktæk vegna þess hversu fáir eru á bak við þau. Ekki skal ég hafa stór orð um þetta, en það verður að segj- ast að slíkur málflutningur er hvergi réttmætur. Skrif- stofustjórinn er að verja vondan málstað og aðferð hans gengur ekki upp.“ liggja fyrir niðurstöður, sem aðil- arnir og bestu sérfræðingar eru sammála um. Þess vegna á nú þeg- ar að gera kjarasamning á grundvelli þeirra og leiðrétta muninn á kjörum háskólamanna hjá ríkinu og á almennum mark- aði. Samráð hljóta að þurfa að byggja á trausti. Samkomulag verður að efna. Annars lifa engin samráð, heldur stefnir f upplausn og meiri átök. Er ekki nú þegar allt of mikið um átök á íslenska vinnumarkaðinum ? Steíín Ólafsson er lektor vid Hí- skóla íslands og formaður Launa- milaríðs BHM. fjarlægð úr mat hans, þá skrifaði hann nafn sitt eðlilega. Schuss benti á að ýmsar algengustu fæðu- tegundir væru ofnæmisvaldar hjá þeim einstaklingum sem við- kvæmir væru gagnvart mat. Það væru fæðutegundir eins og kúa- mjólk, hveiti, maís, súkkulaði, cola (kók), fæðutegundir af baunaætt, citrusávextir (appelsínur, sitrón- ur), tómatar og ólífrænn matarlit- ur. Mjög oft væru þær fæðuteg- undir, sem truflunum yllu, uppá- hald viðkomandi einstaklings. Hann benti einnig á að könnun hefði leitt í ljós, að mataræði si- brotaunglinga samanstandi aðal- lega af næringarsnauðum mat (junk food), — en einnig af mikilli mjólk. Það þýðir ekki endilega að mjólk sé óholl, en fyrir þá ein- staklinga sem eru viðkvæmir gagnvart henni, getur mjólkin umhverft efnaskiptum heilans. Schuss benti einnig á, að engin fæðutegund eða matarkúr muni geta komið i veg fyrir afbrot, né væri ein einstök meðhöndlun lækning allra hegðunarvanda- mála. Það þarf að nálgast vanda- málið frá mörgum hliðum. Kanna þarf erfðaþætti einstaklings, efna- skipti, hve mikla hreyfingu hann fær, hvaða sjúkdóma hann hefur fengið, næringarástand, útlit hans og umhverfi. Hegðunarvandamál eru eins og púsluspil, var haft eftir dr. Willi- am Crook, starfandi barnalækni frá Jackson, Tenn. Hann hefur

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.