Morgunblaðið - 19.03.1985, Blaðsíða 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 19. MARZ 1985
Fundur Reagans og
Mulroneys í Quebec
(iuebef, 18. nurz. AP.
RONALD Reagan Bandaríkjaforseti
og Brian Mulroney forsætisráðherra
Kanada áttu með sér fund í Quebec
á sunnudag. Helztu umræðuefni
þeirra voru afvopnunarmál, sam-
skipti austurs og vesturs og vanda-
mál þau, sem súrt regn er tekið að
valda bæði í Kanada og Banda-
ríkjunum.
Fundurinn hófst með því, að
þeir undirrituðu yfirlýsingu, sem
ætlað er að eyða fyrri ágreiningi
Veður
víða um heim
Lægtt Hæst
Akurayri 77 skýjað
Amstsrdam 0 4 heióakirt
Aþena 8 16 heiðskírt
Barcelona 12 heióskirt
Berlin 0 3 skýjaó
Brtlssel +4 6 heiðskirt
Chicago +1 4 heióskírt
Dublín 2 7 heiöskírt
Feneyjar 8 skýjaó
Frankfurt +1 3 rigning
Genf 42 2 snjók.
Helsinki +2 2 skýjaó
Hong Kong 15 18 skýjaó
Jerúsalem 12 22 skýjaó
Kaupm.höfn 44 1 heióskírt
Laa Palmas 19 skýjaó
Lissabon 8 15 heiöskirt
London +1 7 skýjaó
Loa Angeles 10 22 heióskírt
Luxemborg 0 lóttsk.
Malaga 17 heióskírt
Mallorca 12 skýjað
Miami 24 31 heióskírt
Montreal 414 43 heióskírt
Moskva 41 2 skýjaó
New York 5 16 skýjaó
Osló 45 3 heióskirt
Parfs 1 6 heióskírt
Peking 4« 12 heióskirt
Reykjavík 5 þofcum.
Rio de Janeiro 22 34 skýjaó
Rómaborg 0 11 snjók.
Stokkhólmur 42 0 skýjaó
Sydney 20 25 heióskirt
Tðkýó 6 17 skýjaó
Vínarborg 1 5 skýjaó
Þórshöfn 6 skýjaó
varðandi afleiðingarnar af súru
regni, sem Kanadamenn hafa haft
vaxandi áhyggjur út af. Þar kom
fram, að leiðtogarnir hafa skipað
sérstaka fulltrúa sína i nefnd, sem
á að vinna að þessu máli. Verður
Drew Lewis fyrrverandi flutn-
ingamálaráðherra Bandaríkjanna
aðalfulltrúi Bandaríkjanna í þess-
ari nefnd, en William G. Davis
fyrrverandi forsætisráðherra í
Ontario verður þar aðalfulltrúi
kanadísku stjórnarinnar.
Mulroney lýsti því samkomulagi
sem þarna hefði náðst sem „mik-
ilvægu skrefi fram á við“. „Forset-
inn og ég erum sammála um, að
þetta eigi eftir að hafa raunhæfan
árangur í för með sér.“
Þúsundir manna fóru í mót-
mælagöngu um götur Quebec á
sunnudag. Hrópuðu þeir: „Banda-
ríkjamenn, farið heim“. Báru
göngumenn margs konar skilti
með áletrunum á, þar sem Banda-
ríkjamenn voru einkum gagnrýnd-
ir fyrir afstöðu sína gagnvart
umhverfisvandamálum eins og
súru regni en einnig gagnvart Nic-
aragua og afvopnunarmálum.
Flugræning-
inn skotinn
Riyadh, Saudi Arabiu, 18. i
BOEING-737-farþegaþotu, sem var í
innanlandsflugi í Saudi Arabíu á
sunnudag, var rænt og flugmaöurinn
neyddur til að lenda á Dahran-flug-
velli. Þar skaut öryggisvörður flugræn-
ingjann, sem var einn síns liðs, að þvf
er sagði í tilkynningu stjórnvalda.
í tilkynningunni sagði, að farþeg-
ar og áhöfn, alls um 100 manns,
væru heilir á húfi.
Þotan var á leið frá Jidda til Riy-
adh, þegar ræninginn tók völdin um
borð og krafðist þess, að flugmaður-
inn breytti um stefnu.
Flugræninginn var landflótta
Norður-Jemeni.
Skurðaðgerð á
Brasilíuforseta
Brasilíu, Brasilíu, 18. marz. AP.
Tancredo Neves forseti gekkst undir
neyðaraðgerð á föstudag, aðeins ör-
fáum stundum áður en hann skyldi
settur formlega í embætti.
Neves hafði veikst og fengið
Treholt yfir-
heyrður fyrir
luktum dyrum
Ósló, 18. nure. AP.
í dag var Arne Treholt yfirheyrður
fyrir luktum dyrum, er fjórða vika
réttarhaldanna hófst I Ósló.
Yfirsaksóknarinn, Lars Qvigstad,
neitaði að greina frá því um hvað
málið hefði snúist í dag.
Á morgun, þriðjudag, verður
réttarhöldunum fram haldið og
enn fyrir luktum dyrum.
Búist er við, að enn taki u.þ.b.
mánuð að ljúka réttarhöldunum
yfir Arne Treholt, og mun mikið
af þeim fara fram fyrir luktum
dyrum vegna upplýsinganna, sem
þar verður fjallað um.
sýkingu i öndunarveginn. Jafn-
framt þjáðist hann af bólgum i
þarmagangi og var skurðaðgerð
því nauðsynleg.
Aðgerðin á Neves tókst mjög vel
og fór hann fram úr rúmi sinu i
dag. Neves er 75 ára. Jose Sarney
varaforseti var settur í embætti á
föstudag og tók samstundis við
starfi forseta. Þar með lauk 21 árs
valdatíma hersins i Brasilíu.
Tískusýning til styrktar
Barnahjálparsjóðnum
Þessar íðilfögru stúlkur voru meðal þess tískusýningarfólks, sem bar
fyrir augu Önnu Bretaprinsessu á geysimikilli tískusýningu, sem fata-
framleiðslufyrirtæki efndu til í Guildhall í London á fimmtudagskvöld í
síðustu viku. Allur ágóði af sýningunni rann til Barnahjálparsjóðs Sam-
einuðu þjóðanna. Til vinstri er klæðnaður í anda op-listarinnar, en til
hægri Boy George-línan.
Hægrisveifla stað-
fest í Frakklandi
P»rís, 18. marz. AP.
HÆGRISVEIFLAN í frönskum
stjórnmálum var staðfest frekar í
seinni umferð frönsku sveitarstjórn-
arkosninganna á sunnudag, og þótt
útkoma vinstri flokkanna væri örlít-
ið betri í gær en fyrra sunnudag, er
Ijóst að stjórn Francois Mitterrands
forseta er í verulegum vandræðum.
Blöð í Kína kvarta
yfír „andlegri mengun
Vaxandi ótti við of mikið frelsi
Peking, 18. marz. AP.
DAGBLÖÐIN í Kína, sem þar eru gefin út af hinu opinbera, fjölluðu á
sunnudag um það á forsíðu, að „ábyrgðarlaust frjálsræði og óleyfileg skrif
væru að spilla fyrir efnahagsáformum kommúnisUf1okksins“. Þannig kvart-
ar Dagblað verkamanna yfir „andlegri mengun" og er það í fyrsU sinn í
marga mánuði, sem það hugUk hefur verið notað yfir erlend áhrif og
hugmyndir í landinu.
Svo virðist sem athugasemdir
blaðanna endurspegli vaxandi
áhyggjur innan forystu kommún-
istaflokksins um að áformin um
umbætur í efnahags- og atvinnulífi
landsins kunni að hafa i för meö
sér hömlulaust frelsi og veröi til
þess að draga úr því valdi, sem
flokkurinn hefur haft yfir þjóðinni
í 36 ár.
Dagblað verkamanna kvartar
þannig yfir miklu magni af vinsæl-
um en óleyfilegum æsifréttablöð-
um, sem byrjað hafi göngu sína ný-
verið. Heldur blaðið því fram, að
markmið þessara blaða sé að lokka
peninga út úr verkamönnum, sem
þeir hafi unnið fyrir með súrum
svita. Sé þetta gert með því að
birta æsifengnar sögur um kynlíf
og glæpi.
Á árinu 1983 var hafin herferð
gegn „andlegri mengun“, en það
var það nafn, sem erlendum hug-
myndum var gefið þá og óspart gef-
ið í skyn, að með þvi að ota erlend-
um fyrirmyndum að kinversku
þjóðinni væri verið að spilla henni.
Þessi herferð fór fljótt út í öfgar,
því að ráðist var gegn erlendri
popptónlist, dönsum, varalitum,
trúarbrögðum og heimspeki, sem
ekki gæti samrýmzt kommúnisma.
Herferð þessari var þó hætt
Vestrænar vörur í búðarglugga í Kína. Nú virðist sem tortryggni fari vaxandi
gagnvart neyzluþjóðfélaginu og allri þróun til meira frelsis.
fljótlega, þar sem hún minnti um
of á menningarbyltinguna og það
ofstæki, sem þá ríkti. En eftir að
herferðinni var hætt hafa rokktón-
list og vestrænn fatnaður orðið
stöðugt vinsælli hjá kínversku
æskufólki, sem semur sig nú æ
meira að siðum neyzluþjóðfélags-
ins, og reynir að líkja eftir ungu
fólki í Hong Kon og Taiwan.
Lokatölur úr seinni umferðinni
voru á þann veg að hægri flokk-
arnir hlutu 53,78% atkvæða og
vinstri flokkarnir 46,15%. í ann-
arri umferð var kosið milli fram-
bjóðenda, þar sem enginn fram-
bjóðandi hafði hlotið meirihluta
fyrra sunnudag. í fyrstu umferð
féllu og úr leik frambjóðendur,
sem hlutu innan við 105 atkvæði.
Kom þvi afstaða kjósenda til
landsmálanna betur í ljós um
fyrri helgi.
Kosið var í 95 sýslum Frakk-
lands og þrem i öðrum heimshlut-
um. Misstu vinstri flokkarnir
stjórnartaumana í 11 sýslum, en
hægri menn í engri. Þegar kosnir
hafa verið sýsluforingjar í hverri
sýslu, sem gert verður síðar í vik-
unni, er búist við að hægri menn
hafi 69 sýslanna á valdi sínu.
Birtar voru niðurstöður skoð-
anakönnunar um fylgri frönsku
stjórnmálaflokkanna eftir að
kjörstöðum var lokað í gær. Könn-
unin var gerð fyrra sunnudag og
spurt var hvernig viðkomandi
hefði kosið ef kosið hefði verið til
þings. Svöruðu 55,2% aðspurðra
því til að þeir styddu hægri flokk-
ana en 41,9% vinstri flokkana.
Leiðtogar hægri flokkanna voru
að vonum sigri hrósandi þegar úr-
slit lágu fyrir en leiðtogar vinstri
manna á hinn bóginn viðurkenndu
að úrslitin væru heim óhagstæð.
Gengið verður til þingkosninga i
Frakklandi næsta vor óg er búist
við að franskir jafnaðarmenn, sem
hafa hreinan meirihluta í þinginu,
biði mikinn ósigur og hverfi frá
völdum.