Morgunblaðið - 19.03.1985, Side 36
36
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 19. MARZ 1985
atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna
Tveir hjúkrunar-
fræðingar
úr H.S.Í. meö góöa starfsreynslu óska eftir vel
launuöu starfi í sumar hvar sem er á landinu.
Tilboö sendist augld. Mbl. merkt: „H —
2762“ fyrir 23. mars nk.
Vélaiðnfræðingur
óskar eftir vinnu. Margt kemur til greina.
Góö málakunnátta.
Upplýsingar i síma 625656 eftir kl. 18.00.
Skrifstofu- og
ritarastarf
Skipasmíöastöðin Dröfn hf. óskar eftir aö
ráöa nú þegar starfsmann til skrifstofu- og
ritarastarfa. Nauösynlegt er aö umsækjandi
hafi verslunarpróf eöa sambærilega menntun.
/Eskilegt er aö umsækjandi hafi þekkingu eða
kynni af tölvuvinnslu.
Nánari uppl. veittar á skrifstofu vorri eöa í
síma 50393. Skriflegum umsóknum skal skila
til skrifstofu vorrar eöa í pósthólf 208,
Hafnarfirði merktum: „Skrifstofustörf" fyrir
22. þessa mánaðar.
Skipasmiðastöðin Dröfn.
Strandgötu 75.
Hafnarfiröi.
St. Jósefsspítali Landakoti
Lausar stöður
Félagsráðgjafi óskast Vz daginn frá 1. júní
eöa fyrr.
Uppl. gefur félagsráögjafi spítalans í síma
19600 - 258 frá kl. 8-12 alla virka daga.
Starf á leikaðstöðu barnadeildar er laust til
umsóknar.
Hjúkrunarfræöinga vantar á lyflækninga-
deild, barnadeild, handlækningadeild, augn-
deild og gjörgæsludeild.
Umsóknir ásamt uppl. um nám og fyrri störf
sendist hjúkrunarframkvæmdastjóra sem
veitir nánari uppl. i síma 19600 frá kl. 11-12
og 13-14 alla virka daga.
Skrifstofa hjúkrunarstjórnar.
Verksmiðjustörf
Starfsfóik óskast til verksmiöjustarfa.
Um er aö ræöa hálfs- eöa heilsdagsstörf.
Upplýsingar hjá verksmiöjustjóra í síma
81266.
Kexverksmiöjan Holt.
Prentsmiðjan Hólar
óskar eftir aö ráöa í eftirtalin störf sem fyrst:
1. Offsetprentara.
2. Setjara í pappírsumbrot.
Frekari uppl. gefnar í síma 628266.
Ljósritunarvéla-
viðgerðir
Óskum eftir manni í viögerðir á Canon Ijósrit-
unarvélum, viökomandi þarf aö hafa þekk-
ingu í rafmagnsfræði og ensku.
Upplýsingar gefur verkstjóri, Þórir Gunn-
laugsson, ekki í síma.
Shrifuélin hf
Box 8715 Suðurlandsbraut 12
Konur athugið!
25-35 ára kona sem er reglusöm, ákveöin,
kjarkmikil og vinnur skipulega óskast til starfa
i bifreiöavarahlutaverslun. í boöi eru góö laun
og miklir framtíðarmöguleikar fyrir rétta
manneskju.
Umsóknir sendist augl.deild Mbl. ásamt
meömælum fyrir 25. mars merktar:
„H - 10 65 30 00“.
Atvinnurekendur
Atvinnumiðlun HÍK
hefur tekiö til starfa. Fjölda velmenntaöra
framhaldsskólakennara vantar atvinnu nú
þegar.
Hér er um að ræða starfskrafta meö víötæka
reynslu og þekkingu. Hafiö samband við at-
vinnumiðlun framhaldsskólakennara í síma
(91)29596, kl. 9—16.
Prentsmiðjustarf
Offsetprentari óskast sem fyrst. Laghentur
maöur óskast einnig til aö annast
pappírsskurö.
Félagsprentsmiðjan hf. Spítalastíg 10, simi
11640.
Stjórn kirkju-
garðsins í Hafnar-
firði
óskar aö ráöa aöstoðarmann kirkjugarös-
varöar. Þarf aö hafa bilpróf. Umsóknum sé
skilað til kirkjugarösvaröar eigi siöar en 29.
mars. nk. og veitir hann uppl. um starfiö og
launakjör á vinnustaö i sima 51262 eöa heima
í síma 50768.
Kjötiðnaðarmaður
Kaupfélag V-Húnvetninga óskar eftir aö ráða
kjötiðnaðarmann, eöa mann vanan kjöt-
vinnslu, til aö veita forstööu kjötvinnslu kaup-
félagsins. Húsnæði fyrir hendi.
Umsóknir með upplýsingum um menntun og
fyrri störf sendist kaupfélagsstjóra, er veitir
nánari upplýsingar um starfiö.
Umsóknarfrestur til 30. þessa mánaöar.
^ Kaupfélag Vestur-Húnvetnlnga
Hvammstanga
Læknir
Óskum aö ráöa lækni til starfa m.a. á
sjúkrastöðina Vog.
Starfiö er fólgiö í afvötnun, aöhlynningu og
eftirliti meö sjúklingum. Viö leitum aö lækni
sem hefur haldgóða þekkingu og reynslu á
sviöi alkóhólisma, eöa mikinn áhuga á meö-
ferö fyrir alkóhólista. Launakjör eru
samkvæmt opinberum kjarasamningum
Læknafélags íslands.
Umsækjendur skili umsóknum sinum á skrif-
stofu SÁÁ, Síöumúla 3-5, Reykjavik, fyrir 30.
mars nk. ásamt uppl. um menntun og fyrri
störf. Nánari uppl. veitir framkvæmdastjóri í
sima 82399.
SÁÁ.
Flateyri:
Nýr bátur
frá Flugfiski
Skipasmíðafyrirtækið
Flugfiskur á Flateyri sjósetti
sinn sautjánda bát nýlega.
Eru þessir bátar af gerðinni
• Flugfiskur 2200, 22 feta. Að
sögn Hrafns Björnssonar, eins
eigenda Flugfisks á Flateyri,
er báturinn með BMW-vél og
ætlar eigandinn sér að nota
hann til handfæraveiða. Bát-
urinn hlaut nafnið Tóti ÍS 707.
Flugfiskbáturinn
- J&í
Neytendasamtökin hvetja
til verölækkana á kartöflum
NÚ NÝVERIÐ var ákveðið aö greida
niður verð á kartöflum til fram-
leiðslu á svokölluðum frönskum
kartöflum og skyldri vöru. Þetta ger-
ist á sama tíma og dregið hefur verið
úr niðurgreiðslum á kartöflum á al-
mennum markaði. Það er óumdeil-
anleg staðreynd, að djúpsteiktar
kartöflur eru mun óhollari matur en
ferskar. Það væri því nær, ef neyt-
endur eiga á annað borð að greiða
niður verð vöru með skattgjöldum
sínum, að ýta fremur undir neyslu
hollra vara en óhollra.
Vegna mikillar uppskeru á síð-
astliðnu ári hvetja Neytendasam-
tökin til þess að verð á kartöflum
verði lækkað verulega til þess að
auka neyslu á þeim meðan gæðin
eru hvað mest. Hertar verði kröf-
ur til bænda, um að senda nú á
markað bestu kartöflur sínar
hverju sinni, þegar fyrirsjáanlegt
er að fleygja verður gífurlegu um-
frammagni á sumri komanda. Það
er augljós skynsemi að fleygja þá
heldur lélegasta hluta uppsker-
unnar. Þeir bændur sem bjóða
bestu kartöflurnar gangi alla
jafna fyrir á markaði þannig að
neytendur fái úrvalið en haugarn-
ir og sandarnir ruslið.
(FréfUtilkynning)