Morgunblaðið - 19.03.1985, Síða 44

Morgunblaðið - 19.03.1985, Síða 44
44 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGJJR 19. MARZ 1985 Barometer á Bridgehátíð: Sigurður Sverrisson og tvímenningskóngurinn Jón Baldursson sigruðu Bridge Arnór Ragnarsson LOKSINS — loksins íslenzkur sig- ur í barometerkeppninni á bridge- hátíð. Jón BaldursMon og Sigurður Sverrisson urðu sigurvegarar I 48 para barometerkeppninni sem lauk sl. laugardag á Hótel Loftleið- um. Háðu þeir æsilegt einvígi í síð- ustu umferðunum við pólsku ólympfumeistarana Romansky og Tuszinszky og þegar upp var staðið hðfðu Jón og Sigurður 403 stig en pólverjarnir 401 stig. T.d. má geta þess að þegar tveimur umferðum var ólokið hðfðu bæði pörin hlotið 379 stig. Jón Baidursson og Sigurö Sverr- isson þarf vart að kynna. Þeir eru báðir margfaldir íslandsmeistarar. Einkum hefír Jón verið harður að ná sér í íslandsmeistaratitla í tvímenningi og er hann handhafí titilsins í dag ásamt Herði Blöndal. Sigur Jóns og Sigurðar er mjög athyglisverður. Þeir eiga í höggi við marga af þekktustu bridgespilurum heims en þó verður að geta þess að þeir spila á heimavelli og þekkja flesta af andstæðingum sínum mjög vel. Lítum á gang keppninnar: Staðan eftir 10 umferðir: Ásmundur — Karl 135 Rúnar — Stefán 101 Romansky — Tuszinszky 96 Guðmundur P. — Hjalti 95 Zia Mahmood — Hoffman 80 Blakset — Möller 78 Félagsmeistarar Bridgefélags Reykjavíkur, Stefán Pálsson og Rúnar Magnússon, byrjuðu mót- ið af miklum krafti og höfðu for- ystu í mótinu fram að 10. um- ferð. Ásmundur Pálsson og Karl Sigurhjartarson áttu líka góða byrjun í þessu móti og gáfu ekki til baka þau stig sem þeir náðu í. Þá var auðséð að útlendingarnir höfðu áhuga á dölunum sem í boði voru — og kannski ekki sízt Pólverjarnir. Persónuleiki Pakistanans Zia Mahmood leyndi sér ekki bæði við spilaborö- ið og utan þess. Hér fylgjast fjórar þekktar konur úr bridgeheiminum með Zia meta stöðuna. Staðan eftir 19 umferðir: Jón B.— Sigurður Sv. 215 Romansky — Tuszinszky 190 Ásmundur — Karl 174 Auken — Koch 172 Guðmundur P. — Hjalti — Guðmundur 145 Sævar — Jón Jónsson 133 Zia Mahmood — Hoffman 121 Jón Baldursson og Sigurður Sverrisson tóku hreint ótrúlegan sprett eftir 6. umferð en þá voru þeir með 28 stig í mínus. Þeir skoruðu á þessum tíma 20 stig yfir meðalskor í hverri umferð. Þá spiluðu Auken og Koch þenn- an hluta af miklum krafti. Guð- mundur Pétursson og Hjalti spiluðu einnig af öryggi en Hjalti varð fyrir því að fá aðsvif og varð að fara á spitala til skoð- unar. I hans stað kom Guðmund- ur Eiríksson. Staðan eftir 31 umferð: Jón B. — Sigurður 285 Romansky — Tuszinszky 212 Auken — Koch 196 Zia Mahmood — Hoffman 179 Guðm. P. — Guðm. E. 170 Engan bilbug er að finna á Jóni Baldurssyni og Sigurði Sverrissyni og þegar hér var komið var auðsætt að þeir gæfu ekkert eftir. Hafa verður það þó í huga að í svona stórum baro- meter eru stigin fljót að skipta um eigendur en spiluð eru 2 spil milli para og ef tvö efstu pörin spila saman getur annað farið upp um 30—40 stig á meðan hitt fer niður um sömu tölu. Staðan eftir 41 umferð: Jón b. — Sigurður 345 Romansky — Tuszinszky 285 Zia Mahmood — Hoffman 276 Auken — Koch 255 Coon — Stengel 182 Björn — Guðmundur 180 Þegar hér er komið eiga Jón og Sigurður enn 60 stig til góða á næsta par en 4 umferðum síðar voru bæði pðrin komin með 379 Sigurvegararnir í tvfmenningnum, Sigurður Sverrisson og Jón Baldursson. stig og allt gat gerst. Jón og Sig- urður áttu örlftið betri enda- sprett og sigurinn var þeirra — kærkominn sigur íslenzks pars en það hefir viljað brenna við að erlendu pörin hafi lætt sér í efstu sætin í síðustu umferðinni og stolið sigrinum frá íslenzku pörunum. Til nokkurs var að vinna því að verðlaunin í mótinu voru mjög góð, 1500 $ fyrir 1. sætið, 1000 $ fyrir 2. sætið, 700 $ fyrir 3. sætið, 400 $ fyrir 4. sæt- ið, 300 $ fyrir 5. sætið, 200 $ fyrir 6. sætið og 100 $ fyrir 7,—10. sætið. Þrjú efstu pörin fengu auk þess verðlaunagripi. Lokastaðan: Jón Baldursson — Sigurður Sverrisson 403 Romansky — Tuszinszky 401 Jens Auken — Dennis Koch 281 Zia Mahmood — M. Hoffman 249 Jón Ásbjörnsson — Símon Sfmonarson 230 Björn Eysteinsson — Guðmundur Hermannsson 200 Barry Myers — Robert Sheean 194 H. Stengel — Charles Coon 143 Rúnar Magnús — Stefán Páls 131 Ásmundur Pálsson — Karl Sigurhjartarson 130 Lars Blakset — Steen Möller 122 Guðmundur Páll Arnarson — Þórarinn Sigþórsson 109 Jens Auken og Dennis Koch spiluðu mjög jafnt allt mótið út og voru vel að 3. sætinu komnir. Þá voru Zia og Hoffman ætíð meðal efstu para en aftur á móti áttu Jón Ásbjömsson og Símon Sfmonarson mjög góðan enda- sprett sem gaf þeim 5. sætið nokkuð óvænt því þar voru margir kallaðir. Árangur Rún- ars og Stefáns verður að teljast þokkalegur en t.d. Guðmundur Páll og Þórarinn áttu erfitt upp- dráttar eftir þunga byrjun í mótinu. Ekki er hægt að skilja svo við einstök pör en að geta árangurs eins af bandarfsku pör- unum þar sem yfirgangur sumra þeirra virkar þannig á fólk að þeir séu einungis komnir til að ná í aurana. Alan Cokin og Jim Sternberg enduðu meðal neðstu para f mótinu með 294 undir meðalskori. Mjög mikill fjöldi áhorfenda fylgdist með mótinu sem fór fram með miklum ágætum. Keppnisstjóri var Agnar Jörg- ensson. Sveitakeppnin Alls mættu 36 sveitir í sveita- keppnina en þar af voru 6 sveitir með erlendum þátttakendum. Fjórar umferðir voru spilaðar á sunnudag og að þeim loknum var staða fslenzku sveitanna óneitanlega nokkuð sterk. Þórarinn Sigþórsson 88 Jón Baldursson 84 Suðurgarður 78 Martens (Pólland) 77 Steve Sion (Bandaríkin) 76 Jón Hjaltason 76 Sveit Zia Mahmood hafði að- eins hlotið 58 stig en hann og Barry Myers höfðu ýmsum hnöppum að hneppa auk spila- mennskunnar þannig að árangur brezku sveitarinnar var kannski ekki sem skyldi. Sveitakeppninni, sem spiluð var eftir Monrad-kerfi, lauk sl. nótt og verða úrslitin væntan- lega f miðvikudagsblaði. Morgunbladið/Arnór Fólverjarnir Tuszinszky og Romansky urdu að láta sér lynda annaö sætiö í keppninni. Þeir spila hér gegn eina íslenzka kvennaparinu, Ester Jakobs- dóttur og Valgerði Kristjónsdóttur. Borgarstjóri setti mótið og sagði fyrstu sögnina fyrir Pólverjann Przybora. Forseti BSÍ, Björn Theo- dórsson, fylgist með. Margir þekktir „bridgejárnkarlar" voru meðal þátttakenda. Hér eigast við Kristján Kristjánsson, Ragnar Halldórsson í ÍSAL, Aðalsteinn Jóns- son, þekktari sem Alli rfki, og Þráinn Finnbogason, lyfjafræðingur í Ingólfsapóteki. Skeifan 3h - Sími 82670 UTSÖLUSTAÐIR: ATLABÚÐIN - AKUREYRI VERSL. AXELS SVEINBJÖRNSS - AKRANESI BYKO - KÖPAVOGI OG HAFNARFIROI HÚSPRÝÐI - BORGARNESI JÓN BENEDIKTSSON - HÖFN SKÖBÚÐ SAUÐÁRKRÖKS PRÖSTUR MARSELlUSSON - ISAFIRÐI } jC

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.