Morgunblaðið - 04.04.1985, Qupperneq 8
3 00
•ippr k í^l^ArrrrvMTM myiPflnv
B MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 4. APRÍL 1985
Skammdegi
Frumsýning á laugardag
„Við Ari Kristinsson kvik-
myndatökumaður syndum mynd-
ina fyrir lítinn hóp Islendinga úti í
Kaupmannahöfn, undirtektir
þeirra gáfu m.a. vísbendingu um
að það v«ri óhætt fyrir okkur að
koma aftur til landsins!"
Þráinn Bertelsson leikstjóri
og annar aðaleigandinn í sam-
eignarfélaginu Nýtt líf er ný-
kominn frá Kaupmannahöfn
með kvikmyndina Skammdegi í
farteskinu, en hún verður frum-
sýnd nú á laugardaginn.
„Myndin fjallar um þrjú
systkin sem búa á afskekktri
jörð sem voldugir aðilar vilja
kaupa til að setja þar upp fisk-
eldisstöð. Systkinin eiga þó ekki
nema hálfa jörðina, hinn helm-
inginn á stúlka sem heitir Elsa
en hún býr erlendis. Elsa vill
selja sinn helming jarðarinnar
og kemur til þeirra í þeim er-
indagjörðum í svartasta skamm-
deginu. Þá fara dularfullir at-
burðir að gerast og hún sér að
hún hefur jafnvel ástæðu til að
óttast um líf sitt.“
Kvikmyndafélagið Nýtt líf
hefur áður sýnt myndirnar Nýtt
líf og Dalalíf. „Þessar myndir
eru allar gerðar til að skemmta
fólki, Skammdegi er þó ólík hin-
um fyrri því hún er spennu-
mynd. Ég held okkur hafi lukk-
ast að láta fólk hlæja og nú er að
sjá hvort þessi mynd nái tilætl-
uðum árangri."
— Hvað þurfið þið marga
áhorfendur til að endar nái saman
fjárhagslega?
„Við erum nokkuð sáttir við
lífið og tilveruna ef við fáum
„Dularfull spennumynd." Þráinn
Bertelsson leikstjóri.
40—50 þúsund áhorfendur, en
við treystum okkur þó alveg til
að taka við fleirum!"
— Hvað kostaði myndin í fram-
leiðslu?
„Milli átta og níu milljónir.
Okkur var nefnilega ungum
kennt að það væri meiri vandi að
spara peninga en eyða þeim.“
— Ertu ánægður með útkom-
una?
Eftir „slysið". Hallmar Sigurðsson í einu aðalhlutverkanna.
Dularfullir atburðir gerast í gufumekki við laugina.
Aðkomustúlkan Elsa tekur hér nokkur sundtök í ákveðnum tilgangi.
Ragnheiður Arnardóttir í hlutverki sínu.
Nokkrir fjármagnseigendur leggja á ráðin um flskræktina.
Eggert Þorleifsson leikur annan
bróðurinn á bænum; hér bregst
hann reiður við ágengni fjölmiðla.
„Við höfum unnið mikið og vel
og gert eins vel og við gátum og
finnst við ekkert þurfa að
skammast okkar.“
— Ætlið þið að reyna að koma
myndinni á framfæri erlendis?
„Við höfum áhuga á að fara á
flakk með Skammdegi, og þó við
fáum engin verðlaun á kvik-
myndahátíðum er aldrei að vita
nema boðið verði upp á kaffi ein-
hvers staðar. Okkar stefna er að
búa til íslenskar myndir um ís-
lendinga handa íslendingum.
Hitt er bara upp á grín, það er
nóg til af kvikmyndum í útlönd-
um.“
— Hvað tekur svo við?
„Það fer eftir því hvernig
þessi mynd gengur. Við eigum
tilbúið handrit að sálarlífi,
nokkurs konar framhaldi á Nýju
lífi og Dalalífi- Þá eigum við til
handrit sem heitir Illur fengur
og fjallar um litla glæpamenn og
stóra í gamansömum dúr. Ef
Skammdegi gengur ekki sem
skyldi byrjum við strax að vinna
aðra mynd, við leggjumst ekkert
í þunglyndi!”