Morgunblaðið - 04.04.1985, Blaðsíða 23
MORGUNBLADID, FIMMTUDAGUR 4. APRÍL 1985
B • 23
Óréttlæti gagn-
vart trillukörlum
- eftir Árna Johnsen
Hver er ástæðan fyrir því að
trillukarlar sem hafa unnið sína
vinnu áratugum saman án ónota
út i menn og málefni, sjá sig
skyndilega knúna til þess að gera
uppsteit á vettvangi lagabálka
landsins? óréttlæti, fyrst og
fremst, óréttlæti í skipan mála
vegna takmörkunar á leyfilegum
afla. Þótt kvótinn sé ill nauðsyn
um sinn er það ekki réttmæt skip-
an að þeir sem hafa fasta og fulla
atvinnu af því að sækja sjóinn á
trillum skuli sitja við sama borð í
þessum efnum og áhugamennirnir
sem eru mikill meirihluti trillu-
karla, menn, sem grípa góðar
stundir frá sinni föstu vinnu til
þess að afla fiskjar og komast til
sjós. Þessi mál voru mikið rædd í
sjávarútvegsnefndum alþingis sl.
haust og með því að heimila trillu-
mönnum kaup á kvóta ef svo bæri
undir á síðasta veiðitímabili árs-
ins af fjórum, ef sameiginlegi
kvótinn væri þá fullnýttur, þá var
talið að ekki þyrfti að koma til
nein stöðvun hjá trillum á fyrstu
þremur veiðitímabilunum.
Sameiginlegi kvótinn fyrir allar
trillur landsins stenzt ekki heldur
I þessum efnum, því gera verður
greinarmun á fullri vinnu, og
hlutavinnu eða tómstundavinnu.
Á sumum svæðum landsins er sí-
breytilegt hvaða trillur eru að
veiða, þ.e. aðkomutrillur koma og
fara, en á öðrum stöðum eru ávallt
sömu trillurnar. Þannig getur sú
staða komið upp og hefur komið
upp nú í vetur að bátar á einu
svæði fiska allan leyfðan afla, en
hinir sitja uppi með sárt ennið. {
þessu tilviki hefur fiskast mjög vel
á smábátana við Breiðafjörðinn,
en svo er skellt á veiðibanni og til
dæmis á Vestfjörðum, þar sem
trillur veiða nær eingöngu steinbít
um þessar mundir, eru sjómenn
sendir í land, en steinbíturinn er
ekki háður kvóta og þegar bannið
verður úti er steinbiturinn ekki
veiðanlegur lengur.
í Vestmannaeyjum eru líklega
um 50 trillur, en þar af eru um 15
menn sem hafa fulla atvinnu af
sjósókn og skapa með þeirri vinnu
lífsviðurværi fyrir sig og sína, í
Borgarfirði eystri eru líklega um
15 trillusjómenn, þar af um helm-
ingur sem hefur fulla atvinnu af
sjósókn, á Akureyri eru nær 100
trillur en innan við 10 hafa fulla
atvinnu af sjósókn, á Isafirði eru
um 30 trillur, en líklega hefur eng-
inn fulla atvinnu af sjósókn. Ef
takmarka á veiðar trillukarla
verður að taka betur en gert er
tillit til aðstæðna og það er hægt á
margan hátt, t.d. með því að geng-
ið sé úr skugga um hverjir róa sem
svokallaðir áhugamenn og hverjir
hafa fulla atvinnu af sjómennsku,
og þá er ekki ástæða til að stöðva
þá sfðarnefndu um leið og hina.
Nú er búið að veiða um 900 tonn
á þessari vertíð af kvóta trillu-
báta, sem er alls á árinu um 9.000
tonn af þorski. Að stöðvað skuli
við þetta mark nú kemur einnig
óréttlátlega niður á þá sem veiða
hvað mest á þessum árstíma að
öllu jöfnu.
Það er því ekki undarlegt að
þessi stöðvun trillubátanna nú
komi sér illa, ekki aðeins fyrir
Austfirðinga og Norðlendinga sem
byrja venjulega veiðar um þessar
mundir, heldur einnig fyrir þá
sem hafa af eðlilegum ástæðum
ekki getað stundað sjóinn að neinu
ráði vegna veðurs. Kergja trillu-
karla í Vestmannaeyjum er mjög
skiljanleg þegar að er gáð. Síðast-
liðið sumar var með eindæmum
slæm tíð til sjós við Eyjar, síðan
kom mánaðarstöðvun vegna
sumarleyfa í frystihúsunum, að
því loknu var hægt að veiða í
nokkrar vikur en á tíma sem mjög
lítillar veiði er von, þá skall á
stöðvun frystihúsanna í Eyjum og
að því loknu leið ekki á löngu þar
til sjávarútvegsráðuneytið setti
veiðibann á trillurnar. Hrygginn
úr þeim tíma sem liðinn er frá
áramótum hafa trillukarlar í Eyj-
um ekki getað stundað veiðar að
neinu ráði vegna ógæfta og þess
má geta að trillusjómenn í Eyjum,
eins og á örfáum öðrum plássum
landsins, verða að stunda sjó á út-
hafinu og eru því mun meira háðir
veðri en þeir sem stunda veiðar
innan fjarða, eða meira og minna í
landvari.
Fyrst og fremst verður að
tryggja betur rétt þeirra sem hafa
lífsviðurværi sitt allt af trilluút-
gerð og það þarf að tryggja að
ekki sé gengið harkalegar að
trillusjómönnum en öðrum í yfir-
standandi aðgerðum, og ekki má
gleyma því að trillurnar skila úr-
valshráefni til vinnslu.
LITGREINING MEÐ
CROSFIELD
540
LYKILUNN AD VANDADRI
LITPRENTUN
MYNDAMOTHF
Áður en þú velur þér efni í milliveggi í nýja húsið þitt
skaltu staldra við og íhuga hvaða kosti góður
milliveggur þarf að hafa
1. Hljóðeinangrandi
I Iljóðeinangrun er eitt mikilvægasta atriðið
þegar valið er á milli inismunandi milliveggja-
efna. Múrhúðaður veggur hlaðinn úr miUi-
veggjaplötumfraB.M. Valláhf tryggir einstak-
lega góða hljóðeinangrun.
2. Sterkur
Góður núlliveggur þarf að geta staðist margvis-
legt álag, sérstaklega þarf hann að geta borið
þunga hluti sem hengdir eru á hann án þess
að nagUnn losni með tímanum. Þú getur
hiklaust trcyst millivcggjaplötunum frá okkur
fyrir veggklukkunni þinni!
3. Traustur
í>ú verður að geta treyst veggjunum sem
umlykja fjölskylduna þína Með hlöðnum
múrhúðuðunt vegg öðlast þú öiyggi sem önnur
mUliveggjaefni veita ekki.
4. Fallegur
Múrhúðaður veggur er laus við öU samskeyti
og þú getur að sjálfsögðu málað hann, klætt,
veffifóðrað og ílísalagt - á slíkum vegg njóta
þessi efni sín líka best!
Múrhúðaður veggur er glæsileg og vönduð
lausn sem er þó ekki dýruri en veggur úr öðrum
óvaranlegri efnum.
l'ppáhaldsplata húsbyggjandans!
I lafir þú staðið í þcirri trú að allar mUlivcggja-
plötur séu eins, viljum við fúlhissa þig um að
svo cr ekki.
Við hjá B.M. Vallá hf. framlciðum eingöngu
vandaðar og sterkar plötur úr völdum hraefnum
og undir stöðugu gæðaeffirliti rannsóknarstofú
okkar.
Stærðir: Notkimarmógulcikar:
50x50x5cm Fyrir minni hlcöslur, td. í kringum baöker.
50x50x7 cm Fyrir alla venjulega milliveggi í ílnidarhúsum
50x50xl0cm 25x50xl0cm Fyrir vcrslunar-, skrifstofú- og iðnadar- húsnæði (þar scm lofthæð er mikil og/eða miklar kröftir gerðar til hljóð- cinangrunar).
25x50xl0cm (m/auknu hljóðeinangnmargildi)
Hefiibundinn, múrhúdadur milllveggur hlaöinn úr 7 cm
þykkum plötum.
Hægt er að velja um 2 tegundir fylliefna:
gjall eða vikur.
Gjallplötur: Þarsem mikillar hljóðeinangrunar
er óskað.
Vikurplötur: Þar sem léttar og meðfærilegar
plötur eru nauðsynlegar.
Þægileg kjör og örugg þjónusta
Auk jiess að bjóða þér hagstætt verð og þægi-
lega grciðsluskilmála, sendum við þér milli-
veggjaplötumar óke>pis á byggingarstað innan
höfúðlx)rgars\-æðisins (eða til flutningsaðila
búir þú utan þess).
Veldu vandaðan og iirriggan vcgg —
pantaðu inilHveggjapfötumar hjá okkur.
Steinaverksmiðja
Pantanir og afgreiðsla
Breiðhöfða 3, 110 Reykjavík
Sírni: (91)68 50 06
B.M.MALLA'
1T
Gæði og þjónusta
sem þú gctur trcvst!
FALCON CREST
Frábærir framhaldsmyndaþættir
2 nýir þættir koma á hverjum
fimmtudegi
Fást á öllum helstu myndbandaleigum landsins
Dreifing: MYNDBÖND HF.
Skeifunni 8. Símar 686545 — 687310.