Morgunblaðið - 04.04.1985, Side 26
26 B
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 4. APRÍL1985
Danskt ára-
mótaskaup
Kvikmyndir
Árni Þórarinsson
Regnboginn: Kafteinn Klyde og fé-
lagar.
Dönsk. Handrit og leikstjórn: Jesper
Klein. Aðalhlutverk: Jesper Kleín,
Tom McEwan, Lykke Nielsen.
Danski grínistinn Jesper Klein
er frekar skemmtilegur strákur og
það eru margar skemmtilegar
hugmyndir í þessari viðleitni hans
til að herma eftir revíuformi
breskra kollega hans í Monty
Python. Kafteinn Klyde og félagar
er danskt áramótaskaup sem gerir
jöfnum höndum grín að ýmsum
þjóðareinkennum og siðum Dana
og paróderar með frekar venju-
legum hætti form eins og sjón-
varpsdagskrá, danska gaman-
myndahefð og fleira þess háttar
auk frekar ómarkvissra teikni-
myndaæfinga af ætt Pythons.
Eins og áramótaskaupum er eig-
inlegt falla sumar skissur kylli-
flatar, aðrar góðar eru teygðar of
lengi og svo eru sumar sem ganga
alveg upp. Klein leikur flest hlut-
verkanna sjálfur, auk þriggja fé-
laga sinna og hefði gjarnan mátt
vera meiri breidd í leikhópnum.
En engu að síður, — það er bara
gaman að kynnast sumu í húmor
þessa danska æringja. Dæmi um
það sem best heppnast er innslag-
ið um kappleik danskra prjóna-
kvenna.
Það er óvenjulegt að sjá tvær
danskar myndir samtímis á sýn-
ingarskrá Regnbogans. Vonandi
koma fleiri í kjölfarið með aðra
frændur í eftirdragi, t.d. sænska
eða finnska.
esió
reglulega
ölmm
fjöldanum!
Komið við
hjartað
Kvíkmyndir
Þeir Waterston og Ngor í einu sterkasta atriói Vígvalla er þeir eru handsamaðir af Rauðu khmerunum.
Bróðurþel á blóðvelli
Kvikmyndir
Sæbjörn Valdimarsson
Háskólabíó: Vígvellir (The Killing
Fields). ***
Leikstjóri: Rolan Joffé. Framleið-
andi: David Puttnam. Handrit:
Bruce Kobinson. TónlisL Mike
Oldfield. Kvikmyndataka: Chris
Menges. Klipping: Jim Clark. Aðal-
hlutverk: Sam Waterston, Haing S.
Ngor, John Malkovich, Julian
Sands, Craig T. Nelson. Bresk-
bandarísk. Framleidd af Goldcrest
og International Filminvestors.
Frumsýnd í september 1984. Sýn-
ingartími 142 mín.
Bakgrunnur Vígvalla er magn-
þrunginn; blóðvellir Rauðu kmer-
anna í Kambódíu, sem stjórnað
var af manni þeim sem hlotnast
hefur sá vafasami heiður að kall-
ast „Hitler austursins", Pol Pot.
Undir hryllingsstjórn hans og
kmeranna létu þrjá milljónir
Kambódíumanna lífið á örfáum
árum og voru þá fjórar eftir. Sér-
staklega gengu þessir ofstækis-
menn milli bols og höfuðs á
mennta- og borgarfólki. Flestir
létu lífið í fjöldamorðum í útrým-
ingarbúðum eða þá af hungri.
I upphafi Vígvalla eru kmerarnir
að ná undirtökunum og við fylgj-
umst með blaðamanni frá New
York Times, Schanberg, (Sam
Waterston) og kambódískum vini
hans og aðstoðarmanni, Dith
Pran, (Haing S. Ngor), nasa uppi
fréttir af styrjöldinni. Oft fellur
hurð nærri hælum og að því kem-
ur að kmerarnir setjast um
Phnom Penh, taka Schanberg til
fanga, en Pran tekst með klókind-
um að frelsa hann. Síðar, þegar
allir útlendingar í borginni eru
flúnir í franska sendiráðið og
kmerarnir allsráðandi útifyrir,
mistekst Schanberg að bjarga
Pran úr landi. Hann yfirgefur
Kambódíu en má sjá á eftir þess-
um vini sínum og lífgjafa í hendur
blóðþyrstra hermannanna.
Schanberg gerði það sem í hans
valdi stóð að koma Pran til að-
stoðar næstu fjögur árin, án
árangurs. Kambódíumaðurinn
mátti þola hinar ægilegustu raun-
ir uns hann komst úr landi 1979.
Vígvellir er mynd um vináttu,
aðskilnað og endurfundi manna og
einnig um djöfulskap þeirra. Það
kemur glögglega fram að Schan-
berg fór klaufalega að ráði sínu,
hugsaði meira um fréttaefnið en
heill vinar síns. Reynir svo allt
hvað hann getur til að koma Pran
til hjálpar þegar allt er um seinan.
Handritið lýkur heldur ekki mikið
upp manninum Schanberg, sam-
viskubit hans og tilfinningar
óskýrar. Hins vegar eru Pran gerð
betri skil og má segja að hann sé
þungamiðja myndarinnar.
Alla vega að hálfu. Hinsvegar
skipa þau óhugnanlegu átök sem
áttu sér stað í landinu helftina.
Þrátt fyrir á stundum of-sviðsett
atriði, finnur maður oft blóðlykt-
ina og púðursvæluna í loftinu. Á
meðan kvikmyndavélarnar hrærr
ast um blóðvelli kmeranna er hún
án vafa með skarpari stríös- eða
réttara sagt stríðsádeilumyndum
sem gerðar hafa verið á seinni ár-
um.
Hinsvegar, eins og áður er sagt,
vantar meiri fyllingu og einlægni í
vináttusögu þeirra Schanbergs og
Prans, einkum frá hálfu Schan-
bergs og lokakaflinn verður með
nokkrum glansmyndablæ. Hér
hefði Robinson getað gert betur.
Svo kemur Imagine dns og fjand-
inn úr sauðarleggnum.
Ngor, sem vann til Óskarsverð-
launanna á dögunum fyrir bestan
leik í aukahlutverki, lifir sig full-
komlega inní hlutverkið. Átti
reyndar létt með það því maður-
inn þurfti að ganga í gegnum
sama helvítið sjálfur sem
kambódískur flóttamaður og Dith
Pran. Þeir komust meira að segja
úr landi með mánaðar millibili.
Waterston er skeleggur en full
kaldranalegur, glæðir hlutverkið
ekki nægri hlýju. Betri eru auka-
leikararnir Craig T. Nelson og
ekki síst John Malkovich, sem
annarsstaðar er getið hér í blað-
inu fyrir afburðaleik í Places In
The Heart.
Kvikmyndatökumaðurinn Chris
Menges, sem hingað til hefur ein-
göngu unnið að gerð ódýrra,
breskra mynda undir stjórn góðra
manna eins og Ken Loach, vann
hér til sinna fyrstu óskarsverð-
launa í sinni fyrstu stórmynd.
Ekki ónýt byrjun það. Sama máli
gegnir með leikstjórann, Roland
Joffé. Hann skilar sínu fyrsta
verkefni á stóra tjaldið raunsæis-
lega og eftirminnilega, þegar á
heildina er litið. Vígvellir á eftir að
lifa lengi sem dæmi um óhugnan-
lega villimennsku, fyrst og fremst.
Sæbjörn Valdimarsson
SnTJÖRNlIBÍÓ: í fyígsnum hjartans
(Places in the Heart) ★ ★ ★ Vt
Leikstjóri: Robert Benton.
Handrit: Benton.
Kvikmyndataka: Ncstor Almendros.
Framleiðandi: Arlene Donovan.
Frumsýnd að hausti 1984.
Bandarísk, gerð af Tri-Star.
Dreifing: Columbia Pictures.
Aðalhlutverk: Sally Field, Lindsay
Crouse, Ed Iiarris, Amy Madigan,
Terry O’Quinn, Danny Glover, John
Malkovich.
sveitaþorp í Texas á kreppuárun-
um miklu. Ung kona (Sally Field)
stendur skyndilega ein uppi með
börn sín er maður hennar er skot-
inn til bana við skyldustörf sín.
Hún kann fátt til ráða, bóndinn
hefur séð um fjármál og alla að-
drætti heimilisins. Til að losna
undan þeirri ógæfu að leysa það
upp, ákveður Field að brjóta
óræktað land sitt undir bómull-
arrækt. Þá kemur henni til ómet-
anlegrar aðstoðar þeldökkur
verkamaður. Þá kemur og til sög-
unnar blindur leigjandi Field, Mr.
Wills, (John Malkovich). Með tím-
anum léttir hann störfin innan-
dyra.
Eftir ýmis skakkaföll og ósegj-
anlegt erfiði er komið að bómull-
aruppskerunni, og Field hefur tek-
ist vel. Henni og fjölskyldu hennar
er borgið um sinn.
í þessari áferðarfallegu (kvik-
mynduð af meistara Almendros)
og hjartnæmu mynd, er dregin
upp fyrir okkur hörð og fjandsam-
leg lífsbarátta óbrotins sveitafólks
í suðrinu bandaríska á erfiðustu
tímum þess á öldinni. Hvernig
söguhetjan bregst við er hún
stendur frammi fyrir þeirri stað-
reynd, sem fátæk ekkja, að upp-
lausn fjölskyldunnar blasir við.
Hún brotnar ekki, heldur herðist
við hverja raun uns hún stendur
uppi sem sigurvegari — um sinn
— í myndarlok. Og maður fær það
á tilfinninguna að hennar líkar
komist alltaf af, hvort sem sög-
usviðið er Kansas eða Kelduhverf-
ið.
Inní myndina blandast nokkrar
vel mótaðar persónur. Svertinginn
Moses, atvinnulaus farandverka-
maður, sem reynist Field sann-
kölluð hjálparhella, en verður að
lokum að halda áfram endalaus-
um flækingi sínum um suðrið,
undan kynþáttafordómum og Ku
Klux Klan. Moses er vel leikinn af
lítt þekktum leikara, Danny Glov-
er.
Önnur aukapersóna er Mr.
Wills, sem troðið er uppá Field
UAPITATTD Skeifunni 15
II ilVJllL ilU 1 Reykjavík