Morgunblaðið - 04.04.1985, Side 35
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 4. APRÍL 1985
B 35
Vinahjálp gefur 274 þús-
und kr. til líknarmála
Félagasamtökin Vinahjálp gáfu
nýlega þrjár gjafir til líknarmála,
aö verðmæti 274 þúsund krónur.
Félagið var stofnað árið 1963 af
sendiráðskonum og ei nú opíð
þeim og einnig íslenskum konum.
INNLENT
Félagið heldur árlegan jólabasar
og einnig er happdrætti í gangi á
hverju ári.
Að þessu sinni voru gefnar
gjafir til Heilsuverndarstöðvar
Reykjavíkur, Fæðingarheimilis-
ins við Eiríksgötu og orgelsjóðs
Dómkirkjunnar. Heilsuverndar-
stöðinni var gefið myndbands-
tæki og borð. Fæðingarheim-
ilinu voru gefnar 120 þúsund kr.
í peningum til kaupa á rann-
sóknartæki og tveimur sjúkra-
rúmum. Þá var gefin peninga-
gjöf að fjárhæð Í00 þúsund
krónur í sjóð til kaupa á dóm-
kirkjuorgeli.
Frá athötnínnF á Hótei Sögu tegar gjafir Vtnahjálpar voni ifhentar. á o>ndínn> eru frá vinstri íalið: i ngimundur
Sigfússon, sem Cók við gjöfinni fyrir hönd orgelsjóðs Dómkirkjunnar; Magnea W tage og Vala Thoroddsen, Uáðar í
stjórn Vinahjálpai; Guðmundur Elíasson, læknir á Heilsuverndarstöð Reykjavíkur; Doris Briem, Majabriít Bri :m,
Lilly Ásgeirsson, Asiaug Boucher, Svava Storr og Ágústa Ward sem ailar eru í stjórn Vinahjálpar; og L’áll Gísiason,
yfirlæknir á Borgarspítaíanum.
ALLTAÐVMA
j STÓRHAPPDRÆTTI HJÁLPARSVEHA SKATA
95
STÓRVINNINGAR
Þú hefur allt að vinna í Stórhappdrætti hjálparsveita skáta - ekki
aðeins 95 STÓRVINNINGA heldur líka þann lang stærsta:Öryggi þitt
og þinna - vel búnar hjálparsveitir í viðbragðsstöðu, tilbúnar til
hjálpar, hvar sem er á Iandinu og hvenær sem þú þarft á þeim að
halda.
Starf hjálparsveita skáta er sjálfboðastarf og hjálparstarf kostar stórfé
á íslandi nútímans. Þess vegna efnum við til þessa leiks.Stórhapp-
drættis, þar sem þú hefur alla þessa stórvinninga í sjónmáli og ávinn-
ing í hendi þinni.
m
SHARP R 6200
ÖRBYLGJUOFNAR ÁKR. 17.600
FIATUN045S
ÁKR. 280.000
VEL BUNAR HJALPARSVEITIRIVIÐBRAGÐSSTOÐU
f+\ LANDSSAMBAND
* IJU hjálparsveita skáta
SHARP VC 481
MYNDBAHDSTÆKIÁ KE. 44.900