Morgunblaðið - 15.05.1985, Page 35
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 15. MAÍ 1985
35
Ferja II í
brotajárn
Upphaflega keypt sem bflferja en
var notuð til sementsflutninga
Akranesi, 10. maí.
Hafnarfjarðarbíó
Hafnarfjarðarbíó til sölu
FERJA II sem í mörg ár var notuð til
sementsflutninga milli Akraness og
Reykjavíkur og víðar hefur nú verið
seld i brotajárn en skrokkur hennar
hefur nú um skeið legið ónothæfur í
Akraneshöfn.
Ferjan var upphaflega ásamt
annarri eins keypt til landsins í
lok siðari heimsstyrjaldarinnar og
var ætlunin að nota þær sem bíl-
ferjur yfir Hvalfjörð. Aldrei varð
þó úr þeim ráðagerðum, þó ýmsar
framkvæmdir hafi verið unnar í
Katanesi, þar sem ferjan átti að
leggjast að og ferma og afferma
bíla. Má sjá þau mannvirki ennþá.
Hinumegin fjarðarins áttu ferj-
urnar að leggjast að í Hvaleyri, en
þar voru engar framkvæmdir
hafnar þegar hætt var við allt
saman.
Akraneskaupstaður keypti síð-
an ferjurnar tvær og voru þær
mikið notaðar við hafnarfram-
kvæmdir á Akranesi. Þær fluttu
mikið af möl, sem notuð var sem
undirbygging undir körin sem
mynda bryggjurnar, ásamt ann-
arri notkun sem til féll við hafnar-
gerðina.
Ferja I er löngu horfin af sjón-
arsviðinu. Hún lá lengi óhreyfð í
Blautósi skammt innan kaupstað-
arins, en þar voru ferjurnar jafn-
an geymdar yfir vetrartímann.
Þegar Sementsverksmiðjan tók til
starfa 1958 var Ferja II notuð til
Varða við Selvogsgötu
Vörður við
Selvogsgötu
endurreistar
Sjálfboðaliðaferð í
Reykjanesfólkvang
STJÓRN Reykjanesfólkvangs í sam-
vinnu við Ferðafélag íslands gekkst (
fyrrasumar fyrír því að byrjað var að
endurreisa gömlu vörðurnar meðfram
svokallaðri Selvogsgötu, leiðarinnar
milli Suðurlands og kaupstaðanna við
Faxaflóa. Þessa leið gengu eða riðu
vertíðarmenn og bændur allt fram á
þessa öld. Selvogsgatan liggur úr
Mygludölum ofan við Hafnarfjörð um
Grindarskörð og austur í Selvog. Á
morgun, uppstigningardag, mun
vörðuhleðslunni haldið áfram, undir
leiðsögn Jóhannesar Arasonar.
Farið verður frá Umferðarmið-
stöðinni, stæði Ferðafélagsins, kl.
10.30. Sjálfboðaliðar geta farið með
rútum sér að kostnaðarlausu eða
komið á eigin bílum og verður hist á
Bláfjallavegi neðan við Gönguskörð.
I frétt frá Ferðafélaginu segir að
áhugi á gönguferðum og gönguleið-
um I Reykjanesfólkvangi hafi aukist
mjög á undanförnum árum. Vonast
félagið til að göngufólk og áhuga-
fólk um útivist komi og leggi þessu
málefni lið.
að flytja sement eins og áður segir
og var hún í þeim flutningum allt
þar til núverandi sementsflutn-
ingaskip, Skeiðfaxi var tekið í
notkun.
Síðustu árin var ferjan notuð
sem viðlegukantur fyrir smábáta í
Akraneshöfn. í lok síðasta mánað-
ar fór ferjan í sína hinstu för þeg-
ar hún var dregin til Reykjavíkur
þar sem hún verður skorin niður í
brotajárn.
Þannig endar saga þessa gamla
innrásarpramma sem var á marg-
an hátt viðburðarík. Börn á Akra-
nesi á sjötta áratugnum eiga ekki
síður góðar minningar um ferj-
urnar því á vetrum voru þær eitt
aðalleiksvæði þeirra. Þar voru
háðar margar styrjaldir og farið í
marga bófaleiki svo nokkuð sé
nefnt. — jg
HAFNARFJARÐARBÍÓ hefur nú
verið auglýst til sölu, en allar götur
frá því að það var byggt, árið 1914,
hefur það verið í eigu einnar og
sömu fjölskyldunnar.
Árni Þorsteinsson byggði
kvikmyndahúsið, þá til húsa við
Reykjavíkurveg, en 1942 var það
svo flutt niður á Strandgötu þar
sem það er nú. Rak Árni Hafnar-
fjarðarbíó til ársins 1956 en þá
tóku synir hans, Níels og Krist-
ján, við rekstrinum og hafa ann-
ast hann allar götur síðan, að
sögn Níelsar.
Hefurþú undanfarið tekið eftir þessum glæsilega bll á götunum?
Það bættust 346 nýir Ford Escort bflar við bílaflota íslendinga
á síðastliðnu ári. Þetta er ekki óeðlileg þróun, því landsmenn hafa ávallt
verið fljótir að finna út hvar mest fæst fyrir peningana.
Nú bjóðum við 1985 árgerðina af Ford Escort og sem fyrr er
verð og búnaður í sérflokki.
Verð frá kr. 344.000.-
Ford Escort mest seldi bíll heims undanfarin 3 ár.
Söludeildin er opin: mánud. - föstud. 9-18 laugard. 13-17
SVEINN EGILSSON HF.
Skeifunni 17. Sími 685100.