Morgunblaðið - 15.05.1985, Síða 36
36
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 15. MAl 1985
Landbúnaöarvörur:
Umfangsmiklar breytingar
á hlutverki Framleiðsluráðs
i
LANDBÚNAÐARRÁÐHERRA hefur lagt fram frumvarp til laga um
framleiðslu, verðlagningu og sölu á búvörum, en það felur í sér
umfangsmiklar breytingar á lögum um Framleiðsluráð landbúnaöar-
ins. Hlutverk ráðsins er breytt á þann veg að það veröur samstarfs-
vettvangur búvöruframleiðenda, en afskipti þess af vinnslu- og sölu-
málum minnka. Þá er gert ráð fyrir Crænmetisverslun landbúnaðar-
ins verði lögð niður í núverandi mynd.
Framleiðsluráðið skipa sam-
kvæmt frumvarpinu, fyrst og
fremst búvöruframleiðendur í
samræmi við verkefni þess, sem
eru meðal annars: Að annast
stjórn búvöruframleiðslunnar.
Að annast verðskráningu búvara
og auglýsa verð þeirra. Að gera
áætlanir um framleiðslu og sölu
búvara. Þá skal Framleiðsluráðið
vera umsagnaraðili um skipulag
vinnslu landbúnaðarvara og hafa
eftirlit með því að starfsemi af-
urðastöðva sé sem hagkvæmust.
f frumvarpinu er lagt til að
verðlagningu landbúnaðarvara
sé skiot bannig að verð til fram-
leiðenda og heildsöluverð er
ákvarðað með aðskildum hætti.
Smásöluverð fer eftir almennri
verðlagslöggjöf. Einnig eru tekin
upp ákvæði um skil og greiðslu
afurðaverðs til búvöruframleið-
enda.
Verði frumvarpið að lögum
verður dregið úr útflutningsbót-
um og hluti þess fjár sem þannig
sparast er ætlaður til hag-
nýtingar í landbúnaði. Lögfest
verður heimild fyrir skiptingu
búvöruframleiðslu með svæða-
búmarki.
*
Ok á ljósastaur
LfKLEGT er talið, að okumaöur
fólksbifreióar hafi dottað undir stýri
meó þeim afleiðingum, að bifreið
hans lenti á Ijósastaur í Reykja-
nesbraut. Maðurinn var í leið frá
Keflavík og fór bifreió hans yfir á
öfugan vegarhelming og lenti síóan
á staurnum. Farþegi klemmdist í bif-
reióinni og þurfti sérstök tæki til aó
ná honum út. Farþeginn slasaðist
mikió, en ökumaðurinn slapp án telj-
andi meiðsla.
Slysió varð um klukkan 16 á
sunnudag. Bifreióin er talin ónýt.
Iðnþróunarsjóður getur
gerst hluthafi í fyrirtækjum
Stjórnarfrumvarp um
breytingar á lögum um Iðn-
þróunarsjóð hefur verið lagt
fram en þar er gert ráð fyrir
að ríkisstjórninni sé heimilt
að staðfesta fyrir íslands
hönd breytingar á samningi
um stofnun norræns iðn-
þróunarsjóðs fyrir ísland sem
Stofnun
sparisjóða
aðeins heim-
il gegn inn-
borguðu
stofnfé
Viðskiptaráðherra hefur lagt
fram frumvarp til laga um spar-
isjóði, en þar er lagt til að stofn-
un sparisjóðs sé aðeins heimil
með innborguðu stofnfé. Ekki er
þó sú skylda lögð á starfandi
sparisjóði að taka upp stofnfé í
stað ábyrgða við gildistöku lag-
anna. Gert er ráð fyrir svoköll-
uðum séreignarsjóði stofnfjár-
eigenda og verður hann mynd-
aður aðallega með hluta þeirra
vaxta, sem aðalfundur ákveður
að greiða stofnfjáreigendum af
árlegum tekjuafgangi.
Þau nýmæli eru einnig í
frumvarpinu að sparisjóðir fá
rétt til að versla með erlendan
gjaldeyri, án sérstaks leyfis
frá bankastjórn Seðlabankans.
Þá er einnig heimild fyrir
sparisjóði, innan þröngra
marka, að kaupa hluti í al-
menningshlutafélögum.
Lagt er til að stofnaður
verði nýr Tryggingarsjóður
sparisjóða til að tryggja þeim
og innistæðueigendum styrk-
ari bakhjarl en núverandi
sjóður hefur reynst. I frum-
varpinu er einnig heimiid til
að stofna Lánastofnun spari-
sjóða.
gerður var 12. desember
1968.
Samkvæmt gildandi samn-
ingi er tilganur sjóðsins að
stuðla að tækni- og iðnþróun
landsins við aðild að EFTA og
auðvelda aðlögun iðnaðarins í
því sambandi. Þar sem aðlög-
unartímabilinu er lokið „þykir
tímabært að skilgreina hlut-
verk sjóðsins víðtækar en nú er
gert“, eins og segir í athuga-
semdum við frumvarpið.
Samkvæmt nýgerðum samn-
ingi, er nú bíður staðfestingar,
er tilganur sjóðsins að stuðla
að uppbyggingu atvinnulífs á
íslandi og leggur hann höfuð-
áherslu á tækni og iðnþróun.
Sjóðurinn veitir lán, ábyrgist
lán sem veitt eru af öðrum, og
kaupir í sérstökum tilfellum
hlutabréf í nýjum og starfandi
fyrirtækjum. Auk þess getur
sjóðurinn veitt lán með hag-
stæðum kjörum eða framlög til
tækniaðstoðar, rannsókna,
vöruþróunar og markaðsathug-
ana.
Stuttar þingfréttir
Útvarpslög
Útvarpslagafrumvarpið kom
til fyrstu umræðu í efri deild f
gær og mælti Ragnhildur Helga-
dóttir, menntamálaráðherra,
fyrir því. Ragnar Arnalds Al-
þýðubandalagi og Eiður Guðna-
son Alþýðuflokki tóku til máls
og bentu á að aðeins 16 þing-
menn af 40 í neðri deild styddu
frumvarpið. Töldu þingmennirn-
ir vafasamt að samþykkja frum-
varpið með stuðningi minnihluta
Alþingis.
Viðræður við
Alusuisse
Formlegar viðræður milli
samninganefndar ríkisstjórnar-
innar annars vegar og samn-
inganefndar Alusuisse hins veg-
ar hefur ekki farið fram vegna
fyrirhugaðrar stækkunar álvers-
ins í Straumsvík, en væntanleg-
ar viðræður hafa verið undir-
búnar með margvíslegum hætti.
Þetta kom fram í svari Sverris
Hermannssonar, iðnaðarráð-
herra, við fyrirspurn frá Hjör-
leifi Guttormssyni.
Sérfræðingar beggja aðila
hafa haldið tvö fundi um skatta-
greiðslur ÍSAL, en annar fundur
verður haldinn innan skamms.
Námaleyfi
Kísiliðjunnar
Ragnhildur Helgadóttir sagði,
þegar hún svaraði fyrirspurn frá
Guðmundi Einarssyni (BJ) um
námaleyfi Kísiliðjunnar, að
fyrirtækinu beri að leita leyfis
frá Náttúruverndarráði til efn-
istöku.
Útboð hafa
ekki átt
sér stað
„Útboð hefur farið fram á
flutningum, eins og þessar tölur
sem ég las benda til, með þeim
árangri að flutningsgjaldið er
allt niður í það að vera aðeins
helmingur af taxta." Þetta sagði
landbúnaðarráðherra, Jón
Helgason, 12. mars sl. þegar
hann svaraði fyrirspurn frá Eiði
Guðnasyni, Alþýðuflokki, um
flutninga á útfluttum niður-
greiddum landbúnaðarvörum.
Þessi ummæli hafa hins vegar
ekki reynst rétt, eins og kom
fram þegar ráðherra svaraði
fyrirspurn frá sama þingmanni
um útflutning þessara afurða.
Sagði ráðherra að fyrri upplýs-
ingar hefðu ekki reynst réttar.
Morgunblaðið/Bjarni
F.v.: Margrét Jónsdóttir, Alice Rörberg fri Svíþjóð og Jónína Krístjánsdóttir.
„Mikilvægt að hafa eitt-
hvað við að vera í ellinni“
— sögðu þrír fulltrúar á ráðstefnu Menn-
ingarsambands aldraðra á Norðurlöndum
MENNINGARSAMBAND aldraðra i Norðurlöndum hélt ráðstefnu í
Reykjavík dagana 9.—13. maí sl. Þitttakendur, sem allir starfa með öldruð-
um, voru alls 70, þar af 12 frá íslandi.
Menningarsambandið var stofn-
að i Svíþjóð árið 1982 og er
markmið þess að vinna að bættum
kjörum aldraðra á Norðurlöndun-
um. Á ráðstefnunni, sem haldin
var á Hótel Esju, var fjallað um
ljóðlist, leiklist, teikningu og söng
og farnar voru skoðunarferðir á
hin ýmsu vistheimili aldraðra í
Reykjavík og nágrenni.
Jónína Kristjánsdóttir, leik-
stjóri I Keflavík, er meðal stofn-
enda Menningarsambandsins.
Hún hafði jafnframt veg og vanda
af ráðstefnunni hér í samvinnu við
önnu Sigurkarlsdóttur. Jónína
sagði í samtali við blm. að á ráð-
stefnunni hefðu fulltrúarnir borið
saman bækur sínar varðandi að-
stöðu fyrir aldraða í heimalöndum
sinum. Meginmarkmiðið væri að
hjálpa öldruðu fólki að hafa ofan
af fyrir sér sjálft. Þannig liði því
best og væri minna upp á aðra
komið.
Kvaðst Jónína aldrei hafa
kynnst jákvæðara fólki en full-
trúunum á ráðstefnunni, sem allir
væru komnir á efri ár. Sagði hún
að ráðstefnan hefði að sinu mati
tekist eins og best hefði verið á
kosið og væri hún svo sannarlega
reynslunni ríkari.
„Nauðsynlegt að gamla
fólkiö hafí eitthvað
við að vera“
Margrét Jónsdóttir var meðal
islensku fulltrúanna á ráðstefn-
unni en hún starfar á sumardval-
arheimili aldraðra að Löngumýri í
Skagafirði. Kvað hún ráðstefnuna
hafa verið mjög gagnlega og
ánægjulega i alla staði. „Eg sé nú
mun betur en áður nauðsyn þess
að gamla fólkið hafi eitthvað við
að vera í stað þess að aðrir séu
sifellt látnir hafa ofan af fyrir
því,“ sagði Margrét. „Ég er stað-
ráðin í þvi að leggja mig fram við
að fá fólkið á dvalarheimilinu að
Löngumýri til að gera meira
sjálft, s.s teikna, syngja, yrkja
o.s.frv. Þannig tekst þvi betur að
sigrast á einmanaleikanum," sagði
Margrét Jórisdóttir.
„Lögð á það rík áhersla
í Svíþjóð að aldraðir
búi sem lengst
í heimahúsum“
Alice Rörberg var meðal sænsku
fulltrúanna á ráðstefnunni en hún
starfar sem menningarfulltrúi
aldraðra i Gautaborg. Sagði hún
að í Svíþjóð væri lögð á það rík
áhersla að aldraðir dveldu sem
lengst í heimahúsum i stað þess að
vera sendir á elliheimili fyrir ald-
ur fram.
„f Gautarborg hefur verið kom-
ið á fót fjölda miðstöðva þar sem
aldraðir geta dvalið yfir daginn, á
meðan aðstandendur sem þeir búa
hjá sinna vinnu eða öðru,“ sagði
Alice. „Það er allt annað fyrir
gamla fólkið að geta búið hjá sin-
um nánustu á meðan það heldur
heilsu í stað þess að vera komið
fyrir á stofnunum fyrir aldraða.“
Alice lét vel af öllum aðbúnaði
hér fyrir aldraða. Sagði hún að sér
væri ákaflega eftirminnileg heim-
sóknin á elliheimilið Ás i Hvera-
gerði þar sem vistmenn störfuðu
við garðyrkju í í stað þess að sitja
aðgerðarlausir innandyra.
„Á aðeins örfáum dögum í fram-
andi landi er hægt að verða margs
visari um stöðu aldraðra í þjóðfé-
laginu, en mikið vildi ég að ég
hefði getað skoðað meira og
kynnst fleira fólki,“ sagði Alice
Rörberg að endingu.