Morgunblaðið - 15.05.1985, Síða 37
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 15. MAÍ 1985
37
Þessi mynd var tekin í stretisvagnastöð I Nýju Delhi á fostudag eftir að
hryðjuverkamenn höfðu sprengt eina af mörgum sprengjum, sem þeir hafa
sprengt á almannafæri að undanförnu. Ung kona faðmar að sér helsærðan
föður sinn. A.m.k. 85 manns hafa látið lífið í þessum sprengingum.
Tvö þúsund manns
handtekin vegna
sprenginganna
I G/GR, mánudag, hét Rajiv Gandhi því, að enn yrðu hert lög til að vinna
gegn hryðjuverkastarfsemi. Yfirvöld tilkynntu, að yfir 2.000 manns hefðu
verið handtekin vegna sprenginganna
manns létust af völdum þeirra.
Gandhi sakaöi „nokkra síkha“
um að hafa staðið fyrir sprenging-
unum í því skyni að vekja deilur
milli síkha og hindúa.
„Við munum ekki svara þessum
ofstækismönnum með byssukúl-
um, heldur munum við forðast
ofbeldi, enda þótt það reyni á þol-
rifin,“ sagði Gandhi i þingræðu.
„Við munum efla lögregluna og
leyniþjónustuna,” sagði hann.
Sprengja, sem falin var í
á Norður-Indlandi um helgina, en 85
myndavél, fannst nýlega í innan-
rikisráðuneytinu og var hún gerð
óvirk.
í ræðu sinni sakaði Gandhi „er-
lend öfl“ um að ýta undir hryðju-
verkastarfsemi síkha. Ekki nefndi
hann, hvaða öfl hann ætti við, en
stjórn hans hefur hvað eftir annað
ásakað Pakistan um að þjálfa
hryðjuverkamenn úr hópi sikha og
styðja starfsemi þeirra.
Sovétmaður á 51.
degi hungurverkfalls
Mookni, 14. nuú. AP.
SOVÉSKI VÉLSMIÐURINN Yuri Balovlenkov hefur frá og með deginum í
dag verið i hungurverkfalli í 51 dag og hefur hann heitið því að halda áfram
aðgerðum þar til annað hvort af tvennu gerist, hann fái fararleyfi til Banda-
ríkjanna tU fundur við eiginkonu sína og börn, eða að hann deyi. Tvívegis
befur sovéska innanríkisráðuneytið svikið loforð sín um að veita honum
fararleyfi.
Balovlenko nefur lést um 25 kg
á þessum tíma og er eigi lengur
fær um að standa á fótunum.
Liggur hann fyrir á dívan í íbúð
móður sinnar i Moskvu. „Ef beir
vilja að ég deyi, þá það,“ sagði
hinn 36 ára gamli Balovlenkov og
bætti við að hann gæti alls engu
trúað lengur sem sovéskir ráða-
menn segðu. Stundum slær út í
fyrir honum og pá hugsar hann
ekki skýrt.
Balovlenkov freistaði þess að
knýja fram fararleyfi með hung-
urverkfalli eftir að ráðuneytið
hafði svikið hann um slikt í fyrra
skiptið, vorið 1982. Hungurverk-
falliö náði þá 42 dögum og hann
hætti því er yfirvöld lofuðu honum
leyfinu á næstu dögum. Nú segir
hann að hann geti ekki lifað leng-
ur í heimi óvissu og óhamingju,
hann eigi fjölskyldu í öðru landi,
en sér sé meinað að umgangast
sína nánustu.
Balovlenkov hitti hina banda-
rísku konu sína i maí 1977, en hún
var þá ferðamaður í Moskvu. I
desember 1978 gengu þau í hjóna-
band og allar götur síðan hefur
Balovlenkov sótt um að mega
flytja til Bandarikjanna. Eigin-
konan hefur nokkrum sinnum
komið til Moskvu sem ferðamaður
síðan. Þau eiga saman tvær dætur.
50.000 kjósendur
sóttir til útlanda
\þenu, 14. mni. AP.
UM 50.000 Grikkir, sem búsettir
eru erlendis, verða fluttir flugleið-
is heim á vegum jafnaðarmanna,
sem eru í stjórn og andstæðinga
þeirra, ihaldsmanna. Eiga þeir
þannig að fá tækifæri til þess að
kjósa í þingkosningunum, sem
fram eiga að fara í næsta mánuði.
Þá er einnig gert ráð fyrir, að
kommúnistar og aðrir smærri
flokkar verji nokkru fé til þess að
flytja stuðningsmenn sina heim í
þessum tilgangi.
38. þing Alþjóða heilbrígðismálástofnunarinnar:
Starfsemin næstu 2 ár innan sama
kostnaðarramma og síðasta tímabil
Hluti af sendinefnd íslands á þinginu. Frá vinstri: Hrafn Pálsson, Davíð Á.
Gunnarsson og Þorsteinn Ingólfsson.
38. ÞING Alþjóðaheilbrigðismála-
stofnunarinnar hófst 6. maí sl. Full-
trúar 160 j>jóða taka þátt í þinginu.
Fulltrúar Islands á þinginu eru: Dav-
íð Á. Gunnarsson, aðstoðarmaður
ráöherra, Guðjón Vlagnússon land-
læknir, Þorsteinn Ingólfsson sendi-
fulltrúi, Hrafn Pálsson, deildarstjóri,
og Hannes Hafstein, sendiherra.
Einnig sækir þingið Almar
Grímsson, sem situr í fram-
kvæmdastjórn Alþjóðaheilbrigðis-
málastofnunarinnar fyrir hönd ís-
lands, sem hefur átt aðild að
stjórninni sl. tvö ár, segir í frétt
frá heilbrigðis- og tryggingaráðu-
neytinu.
Aðalmál þingsins er fram-
kvæmda- og fjárhagsáætlun
1986—1987. Aætlanir gera ráð
fyrir, að stofnunin og starfsemi
hennar verði á næstu tveimur ár-
um tekin innan sama kostnaðar-
ramma og sl. áætlunartímabil.
Hagvöxtur hefur verið lítill í flest-
um aðildarríkjunum og í mörgum
ríkjum þriðja heimsins er hung-
ursneyð. Eitt höfuðmál þingsins er
því að reyna með öllum tiltækum
ráðum að nýta fjármagn Alþjóða-
heilbrigðismálastofnunarinnar á
sem hagkvæmastan hátt og leið-
beina aðildarríkjunum um hag-
kvæmni í nýtingu fjármagns í heil-
brigðisþjónustu.
A fyrsta degi þingsins fluttu
formaður í framkvæmdastjórn, dr.
J. Roux frá Frakklandi og aðal-
framkvæmdastjóri, dr. Halfdan
Mahler, sem er danskur, skýrslur
sínar. Mahler vakti athygli þing-
heims á þeim mikla vanda sem
lönd heims standa frammi fyrir.
Samdráttur í efnahag Vestur-
landa, þurrkar og hungur í þriðja
heiminum. Oft hafi verið þörf en
nú sé nauðsyn að ríkari lönd heims
og alþjóðastofnanir taki höndum
saman i tilraun til að leysa til
frambúðar vanda fátækra ríkja í
stað lausna einstakra, bráðra
vandamála.
Á öðrum degi þingsins flutti
Davíð Á. Gunnarsson ávarp á
þinginu fyrir hönd Matthíasar
Bjarnasonar heilbrigðisráðherra.
Hann þakkaði dr. Mahler fyrir
skýrslu og frábæra ræðu við setn-
ingarathöfnina. í ávarpi sinu lagði
Davíð út af höfuðmáli þingsins,
hagkvæmri nýtingu fjármagns
stofnunarinnar og aðildarland-
anna. Hann benti á, að hvað varðar
heilbrigðisþjónustu væri afar erf-
itt að mæla og meta hagkvæmni.
Nauðsynlegt væri að hafa í huga,
að hversu góðar sem lausnir væru í
dag, gæti svo farið að þær yrðu
úreltar á morgun, og ákvarðanir
sem nú virtust óskynsamlegar,
skiluðu okkur mestum árangri í
framtíðinni. Hann vakti sérstaka
athygli á þátttöku áhuga-
mannafélaga og þýðingu þeirra í
heilbrigðisþjónustu, t.d. þátt
Krabbameinsfélagsins hvað varðar
fyrirbyggjandi aðgerðir. Einnig
nauðsyn samstarfs hátækni og
fyrirbyggjandi aðgerða. Davíð
sagði einnig frá að Island hefði oft
á undanförnum árum notið aðstoð-
ar utanlands frá hvað varöar heil-
brigðisþjónustu, þ.á m. hjarta-
skurðlækningar. Að lokum sagði
hann að í framtíðinni gæti ísland
snúið dæminu við og orðið virkari
þátttakandi en hingað til i aöstoð
við aðra.
Samhliða þinginu fara fram
störf í mörgum nefndum. Tvær að-
alnefndir þingsins eru pólitísk
nefnd, sem annast fjármál og
stjórnun, og framkvæmda- og fjár-
hagsnefnd. Almar Grímsson, sem
er einn fjögurra fulltrúa fram-
kvæmdastjórnar á þinginu, tekur
mikinn þátt i störfum beggja
nefnda og hefur lagt þar fram og
gert grein fyrir mörgum tillögum
framkvæmdastjórnarinnar. Guð-
jón Magnússon tekur virkan þátt i
störfum nefndar sem fjallar sér-
staklega um fagleg og vísindaleg
verkefni stofnunarinnar.
Svokölluð tæknileg umræða á
þinginu fjallaði að þessu sinni um
samstarf Alþjóðaheilbrigðismála-
stofnunarinnar og áhugamanna-
félaga. Menn urðu sammála um
nauðsyn þess að efla þetta sam-
starf.
íslenska sendinefndin hefur
stjórnað fundum Norðurlanda, en
þar eru samræmd sjónarmið land-
anna áður en þau koma til umræðu
á þinginu eða í nefndum.
Samaranch, formaður Alþjóða-
ólympíunefndarinnar, ávarpaði
þingið og talaði um þátt íþrótta og
heilsu og nauðsyn samstarfs milli
ólympíunefndarinnar og Alþjóða-
heilbrigðismálastofnunarinnar.
Þingstörf hafa almennt gengið
vel þótt ýmis pólitísk mál hafi
komið upp, svo sem málefni ísra-
els, Nicaragua, fjölgun fulltrúa í
stjórn frá Vestur-Kyrrahafs-
svæðinu og notkun efnavopna í
stríði írans og íraks. Forseta
þingsins og formönnum nefnda
hefur tekist að koma í veg fyrir
stjórnmáladeilur af mikilli lipurð.
Stefnt er að því að þinginu ljúki
um næsti helgi.
Við tökum þátt
íslensku dögunum
í Hagkaup