Morgunblaðið - 15.05.1985, Qupperneq 44

Morgunblaðið - 15.05.1985, Qupperneq 44
44 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 15. MAÍ 1985 Adolf J.E. Petersen — Minning F«ddur 10. maí 1906 Dáinn 5. maí 1985 Ég átti því láni að fagna að vera mikill afastrákur, ekki síst vegna þess að ég ber nöfn þeirra beggja; afa og ðmmu. Það er því erfitt að þurfa að sætta sig við að heyra ekki kallað „nafni“ oftar, en það var hann afi minn ávallt vanur að kalla mig, allt frá þvi ég var lítill. Ég man fyrst eftir afa er ég var á þriðja ári og þá sérstaklega vegna þess að við vorum samnafn- ar og held ég að það hafi gert mik- ið í því hve vináttubönd okkar voru sterk. Alltaf var afi til í að sprella og hlaupa með okkur krökkunum þá oft við vorum sam- ankomin barnabörnin og sýnir það vel að hann var ungur í anda. Ef- laust hefði hann getað haldið t Eiginmaöur minn, GUOMUNDUR MAGNÚSSON, Dalbraut 23, áöur Kirkjutaigi 33, lést í Borgarspítalanum 13. maí. Helga Jónadóttir. t Útför SÓLVEIGAR SIGURBJARGAR SÆMUNDSDÓTTUR frá Hrútatungu, Kvöldúlfagötu 11, Borgarnaai, fer fram frá Borgarneskirkju föstudaginn 17. maí kl. 14.00. Blóm og kransar afþakkaöir. Jón B. Ólafsaon, Kristrún Jóna Jónsdóttir, Sæmundur Jónsson. t Eiginmaöur minn og faöir okkar, EGGERT P. BRIEM fyrrverandi fulltrúi, Sunnuflöt 18, Garöabas, veröur jarösunginn frá Dómkirkjunni föstudaginn 17. maíkl. 10.30. Sigrlður Skúladóttir Briam, Ragnheiöur Briem, Gunnlaugur S. E. Briem. t Þökkum innllega vinarhug og samúö við andlát og jaröarför, ÁSMUNDAR GUÐMUNDSSONAR, Grund, Kolbeinsstaöahreppi. Jóna Þ. Snæbjörnsdóttir, Þóróur Ásmundsson, Kristín Eiríksdóttir, Ólöf Ásmundsdóttir, Ásdís Þóröardóttir, Jónína Þ. Sigurjónsdóttir, Ingibjörg Sigurjónsdóttir, Katrín Sigurjónsdóttir. t Þökkum innilega auösýnda samúö og vináttu viö andlát og útför móöur minnar, fósturmóöur, tengdamóöur og ömmu, HALLDÓRULÁRUSDÓTTUR, Barónsstig 20A. Emilía E. Thorarensen, Hinrik Thorarensan, Hulda G. Schmith, Othar Schmith og barnabörn. t Innilegar pakkir til allra sem auösýndu okkur samúö og vinarhug viö andlát og útför elginmanns míns, fööur okkar, tengdafööur og afa, ÞÓRDARJÓNSSONAR frá Krossnesi. Kolfínna Jóhannesdóttir, börn, tengdabörn og barnabörn. t Þökkum innilega auösýnda samúö og hlýhug viö andlát og útför móöur okkar, tengdamóöur, ömmu og langömmu, AUDBJARGAR SIGURÐARDÓTTUR, Núpi. Börn, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn. leikjunum áfram ef liðagigt í fæti hefði ekki strítt honum á sínum tíma. Þeir sem kynntust afa að ein- hverju ráði hafa varla gert sér grein fyrir því að skólaganga hans gegnum menntastofnanir var að- eins sex vikur, en þó held ég að fáir á íslandi séu jafn sjálfmennt- aðir og afi og ber m.a. bókasafn hans vott um það, en það er eitt hið veglegasta í persónulegri eigu. Aflaði hann sér mikillar þekk- ingar í gegnum bækurnar bæði á sviði mannlífsins og náttúrunnar. Alltaf hafði hann svör á reiðum höndum þegar ég leitaði til hans í fróðleiksskyni og vegur þar margt miklu þyngra en það sem skóla- stofnanir hafa kennt mér. Hann hafði einnig yndi af ljóðrænum bókmenntum og orti mikið sjálfur í frístundum sínum á meðan kraftar entust. Afi var mikill dugnaðarmaður í ævistarfi sínu sem verkstjóri hjá Vegagerð ríkisins. Sagði hann mér oft frá slæmum kjörum vega- vinnumanna fyrr á árum er þeir urðu að þræla baki brotnu fyrir þeim nokkru krónum sem í boði voru. Af þessum ástæðum gerðist afi virkur í baráttu verkafólks og eru mér minnisstæðar frásagnir hans um kreppuárin er hann stóð í fremstu víglínu í baráttu við lög- reglu og atvinnurekendur. Hann vann einnig ötullega að ýmsum öðrum félagsmálum og má nefna að hann var forseti Verk- stjórasambands íslands, var virk- ur félagi í Lionsklúbbi Kópavogs og sat um tíma í bæjarstjórn Kópavogs sem fulltrúi Alþýðu- bandalagsins. Afi var alla tíð hamingjumaður í einkalífi sínu og hefði hann ekki getað eignast betri konu en hana ömmu. Voru þau afi og amma alla tíð samhent í öllu því sem þau tóku sér fyrir hendur og ekki síst á því myndarlega heimili sem þau áttu saman, nú síðast í Hraun- tungu í Kópavogi. Það er ekki fyrir hvern sem er sem unnið hefur erfiðisvinnu alla sína tíð að sinna samtímis öllu því sem hér hefur verið talið upp. En það sem gerði afa kleift að sinna þessu var hans Iíkamlega þrek á meðan það entist, sterkur vilji til mannsæmandi kjara, bæði fyrir sig og aðra, og ekki síst það mikla sjálfstraust sem hann ætíð bar innra með sér. Hann var auk þess glettinn og skapmikill húmoristi og sýndi þannig á sér persónutöfra sem hafa komið sér vel er honum var treyst fyrir honum ýmsu trún- aðarstörfum. Nú hin síðustu ár gafst okkur ekki mikill tími til að hittast sök- um dvalar minnar erlendis. Hann sagði mér fyrir einu og hálfu ári frá slæmum veikindum sínum í hjarta; að ellin væri farin að segja til sín, eins og hann orðaði það. Átti ég bágt með trúa þýi þar sem hann var stór og stæðilegur á að líta og býst ég við að fáir hafi gert sér í hugarlund hve hár aldur hans var. Það var þó nú síðast um jóla- leytið er við hittumst að ég skildi hvað afi meinti er hann hafði lýst veikindum sínum. Hinn glettni húmoristi var farinn úr honum að miklu leyti, en brosið og góða skapið voru þó enn eftir. Já, aldrei mun ég gleyma hinu glettnislega brosi og ekki síst er við kvöddumst í síðasta sinnið í janúar. Bros hans var það síðasta sem ég sá af hon- um og sé enn I huga mér. Með þessum fátæklegu orðum vil ég ásamt fjölskyldu minni þakka honum allt það sem við fengum að njóta saman og allan þann stuðning, uppörvun og fróð- leik sem hann hefur gefið mér. Um leið viljum við votta Hólm- fríði ömmu okkar innilegustu samúð á þessari erfiðu stundu. Veri afi okkar og langafi sæll. Adolf H. Emilsson og fjölskylda. Það er erfitt að átta sig á því að Adolf J.E. Petersen skuli ekki lengur vera í okkar hópi í náttúru- verndarnefndinni. Hann sem var svo lifandi, hress, áhugasamur og ávallt reiðubúinn þegar óskað var eftir liðsinni hans. Enginn var eins fljótur að bregðast við. Þau voru ófá sporin hans um bæjarlandið þar sem hann gjörþekkti hverja þúfu betur en nokur annar Kópavogsbúi. Það var lærdómsríkt fyrir okkur að eiga Adolf að. Hann unni bæjarlandinu og fórnaði kröftum sínum til hins ýtrasta í þágu bæj- arfélagsins. Það fór ekki framhjá neinum tilfinning hans fyrir hinu náttúru- lega umhverfi. Hann átti þá ósk heitasta að við bærum gæfu til að skila afkomendum okkar landinu þannig að þeir mættu vel við una. Þess vegna lagði hann svo mikla rækt við að hlúa að þeim náttúru- og þjóðminjum sem hafa fallið í okkar hlut. Þegar við lítum yfir farinn veg munum við minnast með hlýjum huga vettvangsferðanna um Kópavogslandið með Adolf í far- arbroddi. Hann var ávallt farar- stjórinn. Það var núna i vor rétt fyrir páskana að við fórum i eina slíka ferð um Suðurhlíðina. í ferðinni voru ásamt okkur bæjarstjórinn og arkitektarnir sem eru að vinna að skipulagningu svæðisins. Það var eitt af baráttumálum Adolfs og okkar líka að fá gras- garð í Suðurhlíðinni og sú von okkar mun vonandi rætast. Adolf kleif hlíðina og klifraði yfir gaddavírsgirðingar eins og strák- ur væri á ferð. Nei, hann lét sig ekki vanta í slíka ferð. Áhugi hans og ódrepandi vilji voru okkur ávallt hvatning til að standa vörð um landið okkar. Síðasta ferðin okkar með Adolf var ferðin í Elliðaárdalinn. Sú ferð verður okkur öllum eftir- minnileg. Við munum minnast hans eins og hann ávallt var, viljafastur og með bros á vör. Við kveðjum Adolf og megi ætíð vera okkur að leiðarljósi árvekni hans gagnvart viðkvæmri náttúru þessa lands sem við búum í. Við vottum eiginkonu og öðrum aðstandendum hans okkar dýpstu samúð. Fyrir hönd Náttúruverndar- nefndar Kópavogs, Sigríður Einarsdóttir. í dag er til moldar borinn Adolf J.E. Petersen, verkstjóri. Adolf gekk í Verkstjórafélag Reykjavík- ur 6. febrúar 1945 og allt frá þeim tíma helgaði hann málefnum verkstjórastéttarinnar krafta sína, svo fremi að erilsamt verk- stjórastarf leyfði. Adolf sat í stjórn Verkamannasambands ís- lands í rúm 20 ár, í stjórn Verk- stjórafélags Reykjavíkur i 5 ár. Átti frumkvæði að stofnun Heim- ilissjóðs Verkstjórafélags Reykja- víkur og sat í stjórn hans til dauðadags. Adolf hafði forgöngu um útgáfu á bókinni Verkstjórn og verkmenning enda var það hans skoðun að menntun verk- stjóra skyldi vera um mest og best, þá var hann í ritnefnd fyrir blaðið Verkstjórann og ritstjóri þess um langt árabil. I stjórn og stjórnarformaður Verkstjóra- fræðslunnar um langt árabil og í stjórn lífeyrissjóðs Verkstjóra og Sjúkrasjóðs verkstjóra. Heiðurs- félagi Verkstjórafélags Reykja- víkur varð Adolf 1969 og heiðurs- félagi Verkstjórasambands ís- lands 1977 og þann 15. apríl 1981 var hann sæmdur riddarakrossi hinnar íslensku fálkaorðu fyrir fé- lagsmálastörf. Við viljum þakka Adolf fyrir hans mikla starf í þágu verkstjóra og um leið vottum við eftirlifandi eiginkonu hans, börnum, tengdabörnum og barna- börnum dýpstu samúð. Stjórn Verkstjóra- félags Reykjavíkur. Vilberg Sigurjón Hermannsson - Minning Feddur 6. aprfl 1904 Dáinn 2. maí 1985 „Ekki er langt milli lífs og dauða", segir gamalt íslenskt máltæki. Þetta var það fyrsta, sem kom upp í huga minn, þegar mér var tilkynnt andlát míns kæra vinar, Vilbergs, fimmtudag- inn 2. maí sl. Þá voru aðeins fáein- ir dagar sfðan hann kom í heim- sókn til mín, hress og kátur að vanda, enda var hann gegnum ár- in heilsuhraustur maður, og má segja að það sé ekki lítil guðs gjöf að eiga góða heilsu á sínu lífs- hlaupi, en enginn ræður sínum næturstað, og enginn ræður hve- nær kallið kemur. Vilberg veiktist snögglega, og varð sjúkdómslega hans aðeins 2 sólarhringar. Vilberg Sigurjón Hermannsson fæddist 6. apríl 1904 í Reykjavík, sonur hjónanna Ara Hermanns ólafssonar, sem ættaður var úr Húnavatnssýslu, og Júlíönu Sveinsdóttur, sem ættuð var frá Snæfellsnesi. Vilberg var elstur 10 systkina, en nú eru aðeins 4 þeirra á lífi. Hann fluttist til Hafnarfjarðar 15 ára að aldri með foreldrum sín- um og vann þar við ýmis störf. Hann lærði bakaraiðn, en starfaði lítið við þá iðngrein. Síðan lærði hann múraraiðn og lauk sveins- prófi í þeirri grein 1931, hjá meist- ara sínum, Jóni Bergsteinssyni. Múrarameistari varð hann um 1950. Síðan starfaði hann sem múrari, ýmist sjálfstætt eða með öðrum, og varð þetta hans aðal- ævistarf. Siðustu árin starfaði hann sem umsjónarmaður við Iðn- skólann í Reykjavík. Vilberg eignaðist eina dóttur, Unni, sem gift er Gunnari Hansen múrara og eiga þau eina dóttur, Vilborgu, og var hún mikið uppá- hald afa síns. Vinátta okkar Vil- bergs stóð meira en 55 ár, en við kynntumst fyrst árið 1929. Eftir að ég giftist konu minni, Guðrúnu Sörensen, árið 1933, varð Vilberg sannur heimilisvinur okkar hjónanna, og hvenær sem fjölskyldan kom saman, hvort sem það var á stórhátíðum eða öðrum tyllidögum ársins, var hann ávallt með okkur, eins og einn af fjöl- skyldunni. Einnig var hann mikill heimagangur og fjölskylduvinur vina okkar, hjónanna Kristjáns og Sigríðar Skagfjörð, og áttum við öll margar góðar stundir saman. Vilberg var einstaklega dag- farsprúður maður, hjálpsamur og ljúfur í allri umgengni og sjaldan sá ég hann skipta skapi gegnum öll árin. Við Vilberg störfuðum saman í Oddfellow-reglunni yfir 25 ár, og eigum þaðan margar góðar endur- minningar. Okkur félögunum er mikil eftirsjá að þessum góða vini. Vegna lasleika gat ég ekki verið við útförina, en hugur minn var hjá þessum kæra vini, og margar ljúfar minningar komu upp I huga minn frá liðnum dögum. Mínar innilegustu samúðarkveðjur sendi ég dóttur hans og fjölskyldu henn- ar og einnig systkinum hans. Ólafur Þ. Pálsson
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.