Morgunblaðið - 15.05.1985, Síða 47
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 15. MAÍ1985
47
Afríka — Kína —
almennings. Nú er popptónlist-
arsjóræningjastöðin Laser 558,
sem er fjármögnuð frá Bandaríkj-
unum, að taka við af Caroline og
útvarpar utan landhelgi Bretlands
og verður því ekki sótt til saka.
Bornir sökum
Um allt Bretland eru nýjar sjó-
ræningjastöðvar í landi að laða að
sér mikinn fjölda hlustenda með
lágum tilkostnaði meðan löglegu
stöðvarnar, sem hafa takmarkað
fjármagn, geta ekki stöðvað
áheyrendaflóttann og minnkandi
tekjur af auglýsingum. Með til-
vitnunum í fjarskiptalögin frá
1984 hafa innanríkisráðuneytið,
IBA og ILR stöðvarnar tekið upp
harða andstöðu gegn sjóræningja-
stöðvunum og finna þeim allt til
foráttu, eins og það að þær ræni
hljómlistarmenn flutningstekjum
þeirra og að þær trufli neyðar-
þjónustu.
Peter Rivers, 24 ára stöðvar-
stjóri Radio Jackie, ólögskráðrar
(sjóræningjastöð er misnotað orð)
útvarpsstöðvar sem þjónar Sutton
hverfinu í suð-vesturhluta Lund-
úna, neitar þessum ásökunum. „I
stórum dráttum er þetta aðeins
áróður frá innanríkisráðuneytinu.
Það má ekki lá þeim, þeir verða að
sjá um sína. Það sem okkur vantar
er innanríkisráðuneyti sem að-
stoðar landsmenn við að fá út-
varpsleyfi, en hindrar þá ekki.“
Radio Jackie sendir út allan sól-
arhringinn, áætlaður hlustenda-
fjöldi er 250.000, og stöðin er mjög
sniðin eftir löglegu keppinautun-
um — meira að segja i lagavali
(um 50% laganna eru gömlu lögin)
og stjórnun. Jackie er táknræn
fyrir þær mörgu nýju sjóræn-
ingjastöðvar sem vilja ekki aðeins
útvarpsleyfi heldur einnig að fá að
flytja auglýsingar. Eigandi Jackie
er kaupsýslumaðurinn Tony Coll-
is, og hjá honum vinna fjórir fast-
ir starfsmenn og fjöldi lausráð-
inna. Allur reksturinn er fjár-
magnaður með auglýsingatekjum,
sem nema £1.500 (69.000 kr.) á
viku og koma frá kaupmönnum á
svæðinu.
Látin í friði
Eins og margir aðrir sjóræn-
ingjar sótti Jackie um útvarps-
leyfi til innanríkisráðuneytisins.
Þótt umsókninni hafi fylgt áskor-
unarlisti með 52.000 undirskrift-
um stuðningsmanna og meðmæli
margra þingmanna, var henni,
eins og öllum öðrum umsóknum,
synjað. Ekkert er gert til að leyna
útsendingarstað Jackie. Stöðin
hefur fast aðsetur á hæðinni fyrir
ofan verzlun við mikla umferðar-
götu, fjölda skráðra simanúmera
og marga upptökusali með tækja-
búnaði sem keyptur er frá BBC
World Service. Hvers vegna hafa
útsendingarnar ekki verið stöðv-
aðar?
„Við teljum að innanrfkisráðu-
neytið líti á okkur sem skynsam-
legt og ábyrgt dæmi um útvarp í
verzlunarhverfi. Ef til vill er þetta
umburðarlyndi í okkar garð spor
til úrbóta á núverandi útvarps-
fyrirkomulagi."
En þótt innanríkisráðuneytið
láti þetta afskiptalaust, gerir
keppinauturinn á staðnum, ILR
stöðin Mercury, allt hvað getur til
að láta loka Jackie. Eigandi Jackie
hefur verið stefnt fyrir rétt, og
verði hann dæmdur fá ILR stöðv-
arnar þar dýrmætt fordæmi að
styðjast við. „Þeir eru orðnir
hræddir," segir Rivers stöðvar-
stjóri. „Við höfum sannað að unnt
er að reka útvarp með auglýsing-
um með litlum tilkostnaði. Hvers
vegna ættum við að taka sendi á
leigu hjá IBA þegar við getum
smíðan hann sjálfir fyrir svo til
ekki neitt? Og bvers vegna er þess
krafizt þegar sótt er um leyfi til
reksturs ILR stöðvar að umsækj-
andinn hafi á bak við sig trygg-
ingu að upphæð £500.000 (23 millj.
kr.)?
Grimm samkeppni
Samstaða hjá sjóræningjunum
er lítil og samkeppnin grimm,
mikið af hviksögum er á kreiki um
innbyrðis ágreining og stöðvar
sem komzt hafa í kast við lögin, en
minna er um umræður um að
sameiginlegar aðgerðir til úrbóta.
Þetta hefur, ásamt skiptum skoð-
unum um það hvernig á að
hnekkja veldi útvarpsrisanna
tveggja og þrátt fyrir einstaka
viðræðufundi um samstöðu, leitt
til þess að allar tilraunir til að
neyða rikisstjórnina til undan-
halds hafa runnið út í sandinn.
Hvað felur þá framtiðin í sér?
Innanríkisráðuneytið gaf nýverið i
skyn að til greina gæti komið að
ríkisstjórnin veitti einstaka hverf-
isbundinni stöð rekstrarleyfi, en
héldi áfram baráttu gegn öðrum
sjóræningjastöðvum. Líklegt er að
stjórnin muni áður en langt um
líður láta undan þrýstingi og auka
frjálsræðið með lagasetningu, en
þó með eftirliti og fjármálaskil-
málum sem hlýtur að vera hag-
stæðir þeim sjóræningjastöðvum
sem hafa úr meiru að spila. Mart-
in C hjá SCR segir að lokum:
„Hverskyns lagaboð fela í sér að
við verðum hluti af vandamálinu.
öllum reglum fylgir samræming
sem leiðir til þess að útvarpið
verður tilþrifalaust og hugmynda-
snautt. Þess vegna, hvort sem
mönnum líkar það betur eða verr,
verða alltaf sjóræningjastöðvar.
Það er einmitt af þessum ástæðum
að við erum hér.“
erum hér.“
Erlendar bækur
Siglaugur Brynleifsson
Chistopher Hibbert: Africa Ex-
plored. Europeans in the Dark
Continent 1769—1889. Penguin
Books 1984.
Chistopher Hibbert: The Dragon
Wakes. China and the West
1793—1911. Penguin Books 1984.
Nigel Davies: The Ancient King-
doms of Mexico. Penguin Books
1983.
Áður en Evrópumenn tóku að
kanna Afríku, höfðu Arabar, allt
frá því á sjöundu öld, ferðast um
norðurhluta álfunnar frá stöðvum
sínum í Norður-Afríku. Þetta voru
í senn verslunarferðir og könnun-
arferðir. Arabískir höfundar urðu
fyrstir til þess að lýsa lifnaðar-
háttum og venjum innfæddra allt
suður til Niger. Ibn Battuta sem
var einhver víðförlasti ferðalang-
ur á miðöldum, var í ferðalögum I
27 ár, fór um Asíu allt til Kina og
Indlands og síðar til Afríku. Hann
barst til Timbuktu, þar sem hann
varð vitni að því, þegar mannætur
komu þar í heimsókn og var tekið
með kostum og kynjum. Soldáninn
gaf þeim m.a. svertingjastúlku,
sem mannæturnar drápu og átu,
gengu síðan fyrir soldán smurðir
blóði hennar til þess að þakka
fyrir sig.
Hibbert segir í fyrstu frá James
Bruce, Skota, sem rakti ættir sín-
ar til skoskra konunga. Hann var
mjög hrokafullur að sögn og við-
kvæmur og í meira lagi orðsjúkur.
Bruce hélt því fram, að hann væri
fyrsti Evrópumaðurinn sem hefði
kannað upptök Nílar. Vissulega
var hann mikill ferðalangur og
Ferðabók hans kom út í 5 bindum
1790 og þar segir frá furðulegri
reynslu hans m.a. við hirðina í
Abbesíníu. Þar tíðkaðist að reiða
fram morgunverð með því að leiða
lifandi nautgripi inn í borðsalinn.
Slátrari hófst síðan handa, skar
stykki úr hrygg dýrsins og síðan
var sárið hulið umbúðum og
skepnan leidd öskrandi út. Hirð-
fólkið hóf síðan að snæða bitana
sem kokkar skáru úr bitanum og
stráðu sterku kryddi á hrátt ketið.
Þessar lýsingar og margar þess
háttar vöktu eðlilega nokkra furðu
og jafnvel vantrú.
Hibbert rekur síðan frásagnir
annarra ferðalanga, Mungo Parks,
Livingstones, Stanleys, Cameron,
Schweinfurths og Junkers. Þetta
er bæði læsileg og spennandi frá-
sögn.
„Lofum kínverska drekanum að
sofa, þegar hann vaknar mun
hann vekja undrun heimsins“ er
haft eftir Napóleóni mikla. Hibb-
ert segir hér sögu viðskipta Kín-
verja við vestrænar þjóðir á ára-
bilinu 1793—1911. Vestrænar
þjóðir gerðu út sendinefndir til
Kína allt frá 1793 og tilgangurinn
var að koma á viðskiptasambönd-
um, opna nýja markaði og kaupa
kínverskar afurðir. Þetta þóf stóð
fram að ópíum-stríðinu, þegar
Bretar neyddu Kínverja til þess að
kaupa eiturlyf. Þessi saga öll ber
vestrænum þjóðum ekki sem feg-
urst vitni.
Frásögn Hibberts er líflega
skrifuð.
EskinrM. 13. maí.
SAMSKIPTI grunnskólanna hér á
Eskifirði og í Neskaupstað hafa auk-
ist mikið undanfarin ír. Nemendur
hafa skipst á að msta á skemmtun-
um hverjir hjá öðrum. Tekin var upp
sú nýbreytni, að öll níu ára börn fóru
í heimsókn og margt gert sér til
skemmtunar.
Einn góðviðrisdaginn fyrir
skömmu komu öll níu ára börn frá
Neskaupstað { heimsókn á Eski-
fjörð. Mikið fjör var þegar hóp-
arnir komu saman, meðal annars
skoðuðu börnin sjóminjasafn
Austurlands og nýja skólahúsið á
Mexíkó
Nigel Davies er sagnfræðingur
og hefur sérhæft sig í sögu og
menningarsögu Azteka og forsögu
menningarríkja Ameríku. Bók
hans um Azteka og aðrar sem
snerta þetta efni eru kunnar.
Hann segir í formála að hann leit-
ist við að skrifa heildarmenning-
arsögu Mexíkó með þessari bók
allt frá uppkomu æðri menningar
í Mexíkó og til eyðileggingar
þeirrar menningar við komu
Spánverja skömmu eftir 1500.
Þetta er því inngangsrit að menn-
ingarsögu, sem er löngu liðin und-
ir lok. Höfundurinn býr í Mexíkó-
City og vinnur þar að rannsóknum
á viðfangsefni sínu.
Eskifirði. Einnig var háð mót eins
og jafnan þegar æska þessara
byggðarlaga hittist.
Keppt var í ýmsum hlaupum,
knattspyrnu og vítaspyrnukeppni.
Knattspyrnan hefur verið aðal-
íþróttagrein þessara byggðarlaga
í gegnum árin. Alltaf hefur verið
hart barist. Þennan dag var sól og
blíða, eins og marga aðra daga í
vor, og gerði það daginn enn
ánægjulegri fyrir börnin. Að lok-
um voru bornar fram veitingar í
nýja skólahúsinu.
Ævar.
Börnin frá EskifírAi og Neskaupsstad ásamt kennurum. M»^unbl»4i8/Ævar
Eskifjörður:
Börn frá Neskaup-
stað í heimsókn
baksturinn. Þetta eru að mörgu
leyti öðruvísi vörur. Við höfum nú
verið að baka frá þvi um miðnætti
í gærkvöldi. Ég átti alls ekki von á
allri þessari traffík en að vísu fékk
ég nú alltaf mjög góðar viðtökur í
búðinni sem ég rak á árunum 1964
til 1981.
— Nú er Ragnarsbakarí líklega
meðal stærstu bakaría landsins.
Fer stór hluti framleiðslunnar á
markað í Reykjavík?
„Já, það má segja að um helm-
ingur framleiðslunnar fari á
Reykjavikursvæðið, eða réttara
sagt „Stór-Keflavíkursvæðið,“
segir Ragnar og hlær.
„í sambandi við stærðina á bak-
aríinu þá veit ég nú ekki hvar ég
er í röðinni hvað stærðina snertir,
en trúlega er ég meðal fimm
stærstu.“
— Bryddarðu upp á einhverjum
nýjungum í vöruframboði nú við
opnun þessarar verslunar?
„Vörurnar sem verða hérna í
búðinni eru allt önnur lína en það
sem ég er með í heildsölunni.
Heildsöluvörurnar munu enn fást
hér í versluninni. Þetta í búðinni
hjá mér er einungis bein viðbót við
vöruvalið. Svo er ég með alveg
nýtt fyrirbæri hér á landi sem er
það að ég steiki kleinur á staðnum.
Þú pantar til dæmis tíu kleinur og
við steikjum þær svo fyrir þig.
Þetta er liður í góðri og skemmti-
legri þjónustu við viðskiptavin-
ina.“
— Hefurðu í hyggju að stækka
enn frekar við þig og setja t.d. upp
verslun í Reykjavík?
„Hver veit nema ég setji upp
verslun i bænum. Satt best að
segja, þá hef ég verið að svipast
um eftir húsnæði i bænum, á góð-
um stað þar sem ég gæti komið Jó
Jólinunni á framfæri. En það
þyrfti að vera góður staður þar
sem ég gæti náð í traffík.
Ég vil svo segja það að lokum að
ég er ánægður að eiga enn þessi
ítök í Suðurnesjamönnum. Ég finn
það strax á viðtökunum að fólk á
eftir að taka þessari verslun vel.
Það er alltaf gaman að finna að
fólki líkar það vel sem maður er að
gera,“ sagði Ragnar Eðvaldsson
bakarameistari og var rokinn i að
afhenda fólki vöfflur með rjóma.
EFI
r
VEL KLÆDD,
... SIMASKRA alltaf sem ný í kápunní
SÍMASKRÁ frá Múlalundí
Engri bók cr flett jafnmikið og símaskránni. Hún þarf því að ciga góða yfirhöfn svo hún losni ckki úr böndunum og verði illa til reika. í hlífðarkápunni frá Múlalundi, vinnustofu
SÍBS, cr símaskráin vcl varin! Fæst í öllum helstu bóka- og ritfangaverslunum landsins Hátúni 10 C, Símar: 38450 38401 |
i Múlalundur