Morgunblaðið - 15.05.1985, Qupperneq 51
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR15. MAÍ 1985
51
KCLLatex
TAKTU HLUTINA FÖSTUMTÖKUM
KCL Latex gúmmíhanskarnir eru
afar hentugir þar sem hreinlætið
er í fyrirrúmi.
Þeir eru þunnir en sterkir og verja
hendurnar gegn skrámum,
óhreinindum, sterkum efnum og
annarri óáran sem þær geta
komist í tæri við í daglegu
eldhúsamstri, við
hreingerningar o.þ.u.l.
KCL Latex hanskarnir eru búnir
sérstökum gripfleti í lófanum
sem gerir þér kleift að taka
hlutina föstum tökum.
Farðu vel með hendurnar þínar
- notaðu KCL Latex gúmmí-
>\ hanska.
K.RICHTERhf
Ný brú á Kljáfoss
BorgarfírAi, 13. maí.
í 1ÚLÍ næstkomandi er gert rið fyrir að lokið verði við smíði nýrrar
brúar yfir Kljáfoss í Hvítá í Borgarfirði. Verður nýja brúin 40 metra
löng stálbitabrú með steyptu gólfi í þrcmur höfum. Er veginum lokað
meðan á smíðinni stendur og gamla brúin notuð sem göngubrú og
vinnupallur. A myndinni sést gamla brúin sem brátt verður öll og
vinnupallarnir við gamla sláturhúsið á Hurðarbaki.
- PÞ
Sovézkir yfirburðir
millisvæðamótinu í
á
Túnis
sem tilheyra heimsmeistara-
keppninni sjálfri.
Þátttakendur í
Mende Taxco og Biel
Keppendur á millisvæðamót-
inu í Túnis eru taldir upp hér að
framan, en keppendur á hinum
mótunum tveimur eru:
Mende Taxco (Mexíkó) hefst 9.
júní: Timman (Hollandi), SM
2650, Nunn (Englandi) SM 2615,
Húbner (V-Þýzkalandi) SM 2605,
Romanishin (Sovétr.) SM 2570,
Tal (Sovétr.) SM 2565, Spraggett
(Kanada), AM 2560, Nogueira
(Kúbu) SM 2545, Pinter (Ung-
verjalandi) SM 2540, Alburt
(Bandaríkjunum) 2535, Speelman
(Englandi) SM 2530, Agdestein
(Noregi) AM 2500, Balashov
(Sovétr.) SM 2495, Cebalo (Júgó-
slavíu) AM 2485, Sisniega (Mex-
íkó) AM 2470, Gutman (ísrael)
AM 2455, Qi (Kína) AM 2440,
Gurevich (Bandaríkjunum) SM
2435 og Prandstetter (Tékkóslóv-
akíu) AM 2430.
Biel (Sviss) hefst 30. júní: Vag-
anjan (Sovétr.) SM 2640, Polug-
ajevsky (Sovétr.) SM 2625, Lju-
bojevic (Júgóslavíu) SM 2595,
Andersson (Svíþjóð) SM 2575,
Sax (Ungverjalandi) SM 2565,
Seirawan (Bandaríkjunum) SM
2560, Sokolov (Sovétr.) SM 2550,
Torre (Filippseyjum) SM 2540,
Margeir Pétursson AM 2535,
Short (Englandi) SM 2535,
Quinteros (Argentínu) SM 2530,
Rodriguez (Kúbu) SM 2505, Van
der Wiel (Hollandi) SM 2500,
Jansa (Tékkóslóvakíu) SM 2465,
Li (Kína) AM 2455, Partos
(Sviss) AM 2425, Saeed (Samein-
uðu arabísku furstadæmunum)
AM 2400 og Martin (Spáni) AM
2370.
Aðstæður á millisvæðamótinu
í Túnis þykja lélegar og mörgum
meisturunum hrýs hugur við að
fara til Mende Taxco sem stend-
ur í meira en 2500 metra hæð
yfir sjávarmáli. Þunna loftið
þykir að vísu vænlegt til afreka í
hoppgreinum, en vafamál hvort
það fjörgar heilastarfsemina.
Enski stórmeistarinn Nunn mun
a.m.k. hættur við að tefla og tek-
ur Walter Browne væntanlega
sæti hans. Þá hefur Húbner
einnig mikinn hug á að komast í
Biel-mótið og fór þess t.d. á leit
við undirritaðan að við skiptum á
mótum. Ekki þurfti ég þó að taka
afstöðu til þess góða boðs, því
Campomanes greip í taumana og
benti á að Biel-mótið væri nú
þegar stigahæsta mótið, þó ekki
bættust við skipti á kú og kálfi.
Skák
Margeir Pétursson
Skákþætti Morgunbladsins
auðnaðist loksins í gær að komast í
samband við Túnis og fá glænýjar
fréttir af gangi millisvæðamótsins
þar. Tefldar hafa verið tólf umferð-
ir af sautján og hafa þrír keppend-
ur náð að skilja sig frá meginhópn-
um og geta aðeins stórslys hindrað
þá í að komast áfram. Sovézku
nafnarnir Alexander Beljavsky og
Alexander Chernin hafa báðir hlot-
ið átta og hálfan vinning, en hinn
fyrrnfendi hefur aðeins tefit 11
skákir en Chernin 12. Þriðji er
landi þeirra Arthur Jusupov með
átta vinninga og biðskák af tólf
mögulegum.
Röð annarra þátttakenda var
sem hér segir:
4.-7. Portisch (Ungverjalandi),
Hort (Tékkóslóvakíu),
Gavrikov (Sovétríkjum)
og Suba (Rúmeníu) 6‘/2 v.
8. Sosonko (Hollandi) 6 v.
9.-10. Zapata (Kólombíu) og
Morovic (Chile) 5'/2 v. og
biðskák.
11.-12. Dlugy (Bandaríkjunum)
og Miles (Englandi) 5 V2 v.
13.-14. Nikolic (Júgóslavíu) og
deFirmian (Bandaríkjun-
um) 5 v. og biðskák.
15. Ermenkov (Búlgaríu) 3 v.
16. Afifi (Egyptalandi) 2'/2 v.
17. Hmadi (Túnis) 1 'Æ v.
Heimamaðurinn Bouaziz hætti
keppni eftir átta umferðir, en þá
hafði hann aðeins fengið hálfan
vinning og m.a. tapað fyrir
Hmadi. Skákir Bouaziz gilda því
ekki og það ruglar stöðuna hér að
ofan að fimm skákmenn, þeir
Chernin, Jusupov, Miles, Nikolic
og Afifi eiga eftir að sitja yfir og
eiga því aðeins fjórar skákir eft-
ir, en allir hinir fimm.
Þeir Beljavsky og Jusupov eru
vel þekktir stórmeistarar en
Chernin er aðeins alþjóðlegur
meistari og það kom mjög á
óvart að hann skyldi ná einu af
fimm efstu sætunum á síðasta
Sovétmeistaramóti. Fjórir efstu
menn í Túnis komast áfram og
verður vafalaust hart barist um
fjórða sætið, því enn geta 8—10
skákmenn enn komið við sögu í
þeirri baráttu og ekki ólíklegt að
aukakeppni þurfi til.
Breytingar á
heimsmeistarakeppn-
inni í skák
Á FIDE-þinginu í Manila 1983
voru samþykktar mestu breyt-
ingar á fyrirkomulagi heims-
meistarakeppninnar i skák frá
stríðslokum. Löngum hefur verið
deilt um það hvort tefla skuli
sérstakt mót um áskorunarrétt-
inn á heimsmeistarann, eða
hvort nota eigi útsláttarform og
tefla einvígi. Átta manna áskor-
endamót voru háð fram til ársins
1962, en síðan þá hafa verið tefld
útsláttareinvígi með sama þátt-
takendafjölda.
Nýja kerfið sameinar að
mörgu leyti þessi tvö keppnis-
form, jafnframt sem það gefur
fleiri keppendum en áður færi á
að spreyta sig í áskorendamót-
inu.
Næsta haust verður háð 16
manna áskorendamót í Frakk-
landi og verður þar tefld einföld
umferð. í mótið komast fjórir
skákmenn úr hverju af milli-
svæðamótunum þremur auk
þeirra Smyslovs, Riblis og
Korchnois, sem komust í undan-
úrslit í síðustu áskorendakeppni.
Sextánda sætið í Frakklandi
hreppti Spassky eftir miklar
deilur og byggist val hans á því
að hann er síðasti fyrrum heims-
meistari sem enn er virkur skák-
maður. Þetta sæti átti sá er biði
lægri hlut í heimsmeistaraein-
víginu að fá í sinn hlut, en á síð-
ustu stundu uppgötvaði Camp-
omanes af snilld sinni að næsta
heimsmeistaraeinvígi og áskor-
endamótið fara fram á sama
tfma.
Fjórir efstu menn í áskorenda-
mótinu fara áfram í áskorenda-
einvígin, þannig að þau verða að-
eins þrjú talsins í stað sjö áður.
Áskorendamótið kemur því í
raun og veru í stað fyrstu um-
ferðar áskorendaeinvígjanna,
eftir gamla fyrirkomulaginu.
Þá var einnig tekin sú mikil-
væga ákvörðun að öllum hringn-
um, svæðamótum, millisvæða-
mótum, áskorendamóti, áskor-
endaeinvígjum og heimsmeist-
araeinvígi skuli vera lokið á
tveimur árum, í stað þriggja ára
áður.
Öll þessi nýbreytni hefur
mælst misjafnlegal fyrir hjá
skákmeisturum. Mótum er fjölg-
að og tíminn á milli þeirra stytt-
ur, en á móti kemur að nú fá
menn tækifæri í heimsmeistara-
keppninni á tveggja ára fresti í
stað þriggja áður. Tímaskortur
er augljósasti gallinn við nýja
kerfið, t.d. má benda á að með
núverandi hefndarrétti heims-
meistara sem hefur glatað titlin-
um er eins víst að heimsmeist-
araeinvígi verði tefld á hverju ári
framvegis. Þeir sem hug hafa á
titlinum væna í framtíðinni
koma því vart til með að geta
teflt í öllu fleiri mótum en þeim