Morgunblaðið - 15.05.1985, Síða 59
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 15. MAÍ 1985
59
í k í ! í í \
5 \ •« f í \
■ 11 11 ;i
iií ifat
1‘W^1- Ai
VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
10100 KL. 14—15
FRÁ MÁNUDEGI
^ TIL FÖSTUDAGS
Gamli tíminn kemur ekki aftur
en gamlir verða alltaf til
Ellilífeyrisþegi skrifar:
Heiðraði Velvakandi.
Það er leiðinlegt að heyra síend-
urteknar rangar upplýsingar um
ellilaun okkar gamla fólksins.
í öllum fjölmiðlum er fullyrt og
það af þeim sem best ættu að vita
um það mál að lágmarksellilaun
og tekjutrygging séu 12—13 þús-
und krónur á mánuði.
Hvorki ég né þeir sem ég þekki
hafa fengið svo „háa“ upphæð. Það
hæsta sem ég hef fengið var fyrir
apríl sl. 10.437 kr. Þessi lög eru
þannig, að þessar greiðslur eru
settar í marga liði, svo að það er
ekki nema einhver hluti fólks sem
fær þessi hámarkslaun.
Það þarf að fullnægja svo mörg-
um skilyrðum. Það er ekki nóg að
vera kominn yfir aldurstakmörkin
og hættur að geta unnið, heldur er
líka skilyrði að búa aleinn.
Maður má ekki hýsa sína nán-
ustu til að fá hjálp ef með þarf, því
þá lendir maður í lágmarkselli-
launaflokknum (enginn frádráttur
af sjónvarpi eða síma). Eins er
með það fólk sem flytur til barna
sinna, þá eiga þau að sjá fyrir
þörfum foreldranna. Þetta er að
sækja í sama horf og áður var.
Ekki myndu vandalausir hafa
þetta fólk, þó hærri laun væru í
boði.
Gamli tíminn kemur ekki aftur,
en gamlir verða alltaf til.
Eru fálkar aðeins
fyrir útlendinga?
Skúli Ólafsson, Klapparstíg 10,
skrifar:
Þrátt fyrir að ísland hefur verið
þekkt sem heimkynni hins eftir-
sótta veiðifálka er nú svo komið að
útlendingar einir hafa nokkurn
hagnað af þessum verðmætum.
Fyrir misskilning íslendinga
hefur svokölluð alfriðun nokkurra
fuglategunda ekki alltaf skilað
árangri og eins var með friðun
hreindýranna, sem fyrst fór að
fjölga eftir að stofninn var hæfi-
lega grisjaður.
Ekki virðast náttúrufræðingar
vera sérlega lagnir við að halda
Hfí í fálkum og örnum og hafa fáir
fuglar komist lifandi úr klónum á
þeim en trúlega gætu bændur létt
nokkrum kostnaði af ríkissjóði ef
þeir fengju sjálfir að selja fálka og
egg sbr. æðarvarpið, sem þrífst
vegna nytja mannsins.
Hverjir verja
vitleysuna?
H.K. skrifar:
Hvaða snillingar fengu út-
varpslagafrumvarpinu breytt
þannig að ekki yrði tekin upp
nefskattur og innheimtubákn
ríkisins lagt niður.
Hvað segja þingmenn? Hafa
þeir kynnt sér núverandi inn-
heimtukerfi, fjölda starfsmanna,
fjölda umboðsmanna á prósentum
og annan kostnað? Það verður tek-
ið eftir því hverjir verja vitleys-
una.
Róm byggðist
ekki á
einum degi
Jóhann Þórólfsson skrifar:
Ég hef stundum lesið það í blöð-
um að sumt gamalt fólk hefur ver-
ið að skrifa um hvað lítið sé gert
fyrir það. Ég er nú sjálfur orðinn
gamalmenni og vil mótmæla því
að lítið sé gert fyrir gamalt fólk
því að borgarstjórn og það opin-
bera hefur byggt mikið hin síðari
ár, einmitt fyrir gamla fólkið
mörg vistheimili, til dæmis á
Snorrabraut, Dalbraut, Norður-
brún og víðar.
Róm var ekki byggð á einum
degi, það getur borgarstjórinn í
Reykjavík ekki heldur. Þetta er
það stór hópur, sem þarf að
byggja yfir að það er ekki hægt að
byggja það á einu ári. Þetta þarf
að koma smátt og smátt og að því
er borgarstjórnin að vinna á
hverju ári. Gamla fólkið má ekki
vera of heimtufrekt og ósann-
gjarnt,bað verður að vera þolin-
mótt. Eg færi borgarstjóra og
borgarstjórn þakkir fyrir það sem
þeir hafa unnið fyrir gamla fólkið
og ég veit að þeir halda áfram að
byggja yfir það.
Símanúmerið er ekki á nótunni
Guðrún Þorsteinsdóttir skrifar:
í Velvakanda 30. 4. birtist at-
hugasemd frá eiganda verslunar-
innar Dúllu þar sem hún fullyrðir
að á hverri einustu nótu sem
verslunin hefur gefið út vegna
fataumboðssölu hafi verið skrifað
heimasímanúmer hennar. Sími
hennar hafi ekki verið bilaður og
þess vegna hefði átt að vera auð-
velt að ná til hennar.
Þetta er ekki rétt, því að á
minnsta kosti þeirri nótu sem ég
hef undir höndum hefur verslun-
areiganda láðst að skrifa síma-
númer sitt heima hvað þá nafn
eða heimilisfang.
Finnst mér satt að segja að
henni hefði verið nær að afsaka
sig og gefa skýringu á því hvers
vegna hún auglýsti ekki fyrirhug-
aða lokun verslunarinnar og hvar
mætti nálgast óseldan fatnað eða
greiðslu fyrir seldan, frekar en að
koma með ofannefnda athuga-
semd 9em gætir nokkurs hroka í.
Til sölu
Chevrolet Blaser árgerð 1983 4x4. (Skrásett
október ’83), ekinn aðeins 11 þús. km. Eins og nýr.
Vökvastýri, sjálfskiptur, útvarp, vönduð klæðning
(orginal). Verð kr. 1.085 þús. kr.
Upplýsingar í síma 25177 (á skrifstofutíma) og
41550 (á kvöldin).
LÉTTÁTÁ
21212