Morgunblaðið - 16.05.1985, Blaðsíða 6
6
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 16. MAÍ 1985
Gætum
fjöreggsins
w
Eg hef haft ánægju af barna-
efni sjónvarpsins undanfarna
daga, þannig skemmti ég mér
prýðilega í barnahópnum á milli
18.40 og 19.10 á sunnudaginn er
íkorninn Sammy skoppaði á skjá-
inn. Þessi engilsaxneska „dýra-
lífsmynd" var um margt frá-
brugðin þeim ágætu „náttúrulífs-
myndum" er prýða gjarnan sjón-
varpsdagskrána og lýsa venjulega
fæðingu, eðlun og matarvenjum
ýmissa dýrategunda oftastnær í
slíkri nærmynd að sumir kúgast, i
það minnsta missti sá er hér stýr-
ir penna alveg matarlystina á dög-
unum er myndavélin færði heim í
stofu pöddutegund eina, er hafði
það helst sér til ágætis, að éta
aðra enn ógeðslegri pöddu. fkorn-
inn Sammy ólst hins vegar upp á
siðmenntuðu heimili náttúru-
fræðings eins og lenti þar í fóstri
hjá heimiliskettinum. Var hreint
út sagt stórfenglegt að sjá litla
skinnið totta kisu og síðar er hann
óx úr grasi bíta í fingur „fóstur-
pabba“. Krakkar hafa gaman af
slíkum myndum, á hinn bóginn
virðist mér þau fljótt missa áhug-
ann á fæðingu, eðlun, matarvenj-
um og heimilishaldi villtra dýra út
í náttúrunni. Máski stafar það
áhugaleysi af því, að í slíkum
myndum öðlast dýrin ekki svipað-
an sess og í ævintýrabókunum er
sýna dýrin gjarnan í návígi við
manninn.
Ljúf teiknimynd
En það var ekki bara fyrrgreind
íkornamynd er vakti fögnuð hjá
ónefndri familíu í Norðurmýrinni.
Á laugardaginn var var teikni-
myndasyrpa á dagskrá frá klukk-
an 19.25 til klukkan 19.50. f þeirri
syrpu kenndi ýmissa grasa. f
fyrsta lagi voru þar tvær prýðis-
góðar finnskar teiknimyndir gerð-
ar eftir sögum frá Kirjálalandi. Er
önnur þessara mynda einkar hug-
stæð þeim er hér stýrir penna, en
sú mynd sýndi vetrarríkið á
táknrænan hátt. Greindi hún í af-
ar fögru myndmáli frá vetri kon-
ungi og baráttu gróðursins fyrir
lífinu í dróma klakabanda og nist-
andi norðangarra. Kristín Mánt-
ylá þýddi sögurnar og flutti Sig-
rún Edda Björnsdóttir þann
ágæta texta. Var flutningur Sig-
rúnar Eddu í senn hófstilltur og
seiðandi og rímaði einkar vel við
hið fagra myndmál. Er ég viss um
að mynd sem þessi getur vakið
áhuga barnsins á fegurð náttúr-
unnar, og þar með lægt öldur
árásargirninnar. Við berum eigi
skemmdan mat fyrir börn okkar
og því skyldum við ekki vanda það
andlega fóður er fellur á þeirra
disk? Þegar á tíma Platós var far-
ið að gefa gaum að þessum hlutum
(t.d. Ríkið, bók II) og er síður
ástæða til að varast hratið nú á
tímum fjölmiðlabyltingarinnar?
Lúmsk teiknimynd
í samfloti með fyrrgreindum
sögum frá Kirjálalandi var smell-
in, sovésk teiknimynd er nefndist:
„Betra er seint en aldrei." Sýndi
hún sprellfjörugan trimmara á
leið í vinnuna. Maður þessi sveifst
einskis, strekkti jafnvel skyrtuna
sína framan á sporvagninn eins og
segl til að auka ferðina, í því
augnamiði að mæta á réttum tíma
í vinnuna. Á slaginu níu þaut
hann loksins kófsveittur innúr
dyrunum að skrifborðinu og hóf
að leysa krossgátuna í „blaðinu"
sínu. Sum sé lúmsk ádeilumynd
enda hefir sérfræðingur einn um
sovésk málefni sagt mér frá því,
að listamönnum í Sovétríkjunum
líðist einvörðungu að deila á
stjórnvöld, þá þeir semja ævintýri
fyrir börn.
Ólafur M.
Jóhannesson.
ÚTVARP / S JÓN VARP
„Verk að vinna“
útvarpsleikritið
í kvöld
„Djassað í Djúpinu“
bein útsending í kvöld
■■ „Djass í Djúp-
00 inu“ verður á
~“ dagskrá beggja
rása útvarpsins á mið-
nætti í kvöld og er djassað
í beinni útsendingu.
Kvintett Friðriks Theo-
dórssonar leikur, en hann
skipa Alfreð Alfreðsson á
trommur, Tómas Einars-
son á bassa, Davíð Guð-
mundsson á gítar, Þór
Benediktsson á básúnu og
hljómsveitarstjórinn
Friðrik Theodórsson á
takkabásúnu. Kynnir
verður Vernharður Linnet
og umsjónarmaður er
Ólafur Þórðarson.
Djúpið er við Hafnar-
stræti og er það opið öll-
um á meðan húsrúm leyf-
ir. Þetta er í fimmta
skipti sem útvarpað er frá
Djúpinu og næst verður
útsending þaðan 6. júní
nk.
■■■■ Útvarpsleikrit-
30 í kvöld nefn-
—- ist „Verk að
vinna“ og er eftir Anton
Helga Jónsson. Leikstjóri
er Kristín Jóhannesdóttir.
Leikritið var tekið upp
hjá Ríkisútvarpinu á Ak-
ureyri og er flutt af leik-
urum í Leikfélagi Akur-
eyrar. Það hefst klukkan
21.30.
Efni leikritsins er á þá
leið að roskinn karl og
unglingsstrákur eru að
vinna við skurðgröft.
Karlinn er heimspekilega
sinnaður og veit sínu viti
þó að hann sé ekki að flíka
því við yfirmenn sína.
Strákurinn er í fyrstu
ósammála ýmsum skoð-
unum karlsins, en verður
að lokum að viðurkenna
að hann hafi nokkuð til
síns máls. Leikendur eru
Þráinn Karlsson, Pétur
Eggerz, Gestur Einar Jón-
asson, ólöf Valsdóttir og
Guðlaug Bjarnadóttir.
Tæknimenn eru Björn
Sigmundsson og Berg-
steinn Gíslason.
Höfundurinn, Anton
Helgi, hefur gefið út tvær
ljóðabækur, „Dropa úr
síðustu skúr“ og „Undir
regnboga", auk skáldsög-
unnar „Vinur vors og
blórna". „Verk að vinna“
er fyrsta leikrit hans.
ÚTVARP
FIMMTUDAGUR
16. maí
Uppstigningardagur
7.00 Veöurfregnir. Fréttir.
Bæn.
7M Morguntónleikar.
7.55 Málræktarþáttur. Endurt.
þáttur Baldurs Jónssonar frá
kvöldinu áöur.
8.00 Fréttir. 8.15 Veðurfregn-
ir.
8.35 Létt morgunlög.
Hljómsveit Hans Carste leik-
ur.
9.00 Fréttir.
9.05 Morgunstund barnanna:
„Bláa barnið" eftir Bente
Lohne. Sigrún Björnsdóttir
les þýðingu sína (9).
9J0 Morguntónleikar.
a. „Lofiö Drottin himinsala"
kantata á uppstigningardag
eftir Johann Sebastian
Bach. Paul Esswood, Kurt
Equiluz og Max van Egmond
syngja meö Vlnardrengja-
kórnum og Concentus mus-
icus-kammersveitinni I Vln-
arborg; Nikolaus Harnon-
court stjórnar.
b. Konsert nr. 3 I D-dúr eftir
Georg Friedrich Hándel. Sin-
fóniuhljómsveit Lundúna
leikur: Carles McKerras
stjórnar.
10.00 Fréttir. 10.10 Veður-
fregnir. Forustugr. dagbl.
(útdr.). Tónleikar.
10.25 Ur byggðum Vestfjarða.
Þáttur frá Folafæti og Bol-
ungarvlk I umsjá Finnboga
Hermannssonar.
11.00 Messa I Langholtskirkju.
Prestur: Séra Sigurður Hauk-
ur Guöjónsson. Organleikari:
Jón Stefánsson.
Hádegistónleikar.
12.00 Dagskrá. Tónleikar.
A2J20 Fréttir. 12.45 Veður-
fregnir. Tilkynningar. Tón-
leikar
14.00 Zacharias Topelius.
Séra Sigurjón Guöjónsson
flytur fyrra erindi sitt.
14.30 A frlvaktinni.
Sigrún Sigurðardóttir kynnir
óskalög sjómanna.
15.30 „Maöur við fætur þér“.
Smásaga eftir Vilhjálm S.
Vilhjálmsson. Þorbjörn Sig-
urðsson les.
16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15
Veðurfregnir.
16.20 Feigðarflan. Afleiðingar
umferðarslysa.
Umsjón: Ragnheiður Dav-
iðsdóttir og Sigurður Kr. Sig-
urösson.
17.00 Fréttir á ensku.
17.10 Slðdegistónleikar.
Trló I a-moll fyrir planó, fiðlu
og selló op. 50 eftir Pjotr
Tsjaikovsky. Leonid Kogan,
Emil Gilels og Mstislaw
Rostropovitsj leika.
18.00 I garðinum með Hafsteini
Hafliðasyni.
18.45 Veöurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Kvöldfréttir. Tilkynningar.
19.35 Daglegt mál. Sigurður
G. Tómasson flytur þáttinn.
19.40 Einsöngur I útvarpssal.
Magnús Jónsson syngur lög
eftir Sigfús Halldórsson, Ey-
þór Stefánsson, Jón Þórar-
insson og Sigvalda Kalda-
lóns. Ólafur Vignir Alberts-
son leikur með á pianó.
19.50 Daglegt mál. Siguröur G.
Tómasson flytur þáttinn.
20.00 Hvlskur.
Umsjón: Hörður Sigurðar-
son.
20.30 Leikrit: „Verk aö vinna"
eftir Anton Helga Jónsson.
Leikstjóri: Kristln Jóhann-
esdóttir. Leikendur: Pétur
Eggerz, Þráinn Karlsson,
Gestur Einar Jónasson, Ólöf
S. Valsdóttir og Guðlaug M.
Bjarnadóttir. (RUVAK).
21.20 Frá tónleikum Tónlistar-
félagsins I Austurbæjarblói I
september sl. Edidh Picht-
Axenfeld leikur á píanó Fant-
aslu op. 77 og sónötu I
e-moll op. 90 eftir Ludwig
van Beethoven.
21.45 „Draugar fortlðar".
Söguþáttur eftir Einar Kára-
son. Höfundur les.
22.15 Veðurfregnir. Fréttir.
Dagskrá morgundagsins.
Orð kvöldsins.
22.35 Milli stafs og huröar.
Umsjón: Hilda Torfadóttir og
Ólafur Torfason.
23.45 Fréttir.
24.00 „Djass I Djúpinu" —
Bein útsending. Friðrik Theó-
dórsson og félagar leika.
Kynnir: Vernharður Linnet.
Umsjón: Ólafur Þórðarson.
00.45 Dagskrárlok.
19.15 A döfinni
Umsjónarmaður Karl Sig-
tryggsson.
Kynnir Birna Hrólfsdóttir.
19.25 Krakkarnir f hverfinu
Fimmtándi þáttur
Kanadískur myndaflokkur
um hversdagsleg atvik I llfi
nokkurra borgarbarna. Þýð-
andi Kristrún Þórðardóttir.
19.50 Fréttaágrip á táknmáli
20.00 Fréttir og veður
20.30 Auglýsingar og dagskrá
20.40 Hættum aö reykja
Fjórði þáttur
Námskeið til uppörvunar og
leiöbeiningar þeim sem vilja
hætta aö reykja. Umsjónar-
maður Sigrún Stefánsdóttir.
20.55 Skólallf
3. Hvert er feröinni heitið?
I þessum þriðja og slðasta
þætti Sjónvarpsins um fé-
lagslff og skólabrag I Islensk-
um framhaldsskólum er Fjöl-
FÖSTUDAGUR
17. maí
7.00 Veðurfregnir. Fréttir.
Bæn.
A Virkum degi. 7.20 Leik-
fimi. Tilkynningar. 7.55 Dag-
legt mál. Endurt. þáttur Sig-
urðar G. Tómassonar frá
kvöldinu áður.
8.00 Fréttir. 8.15 Veðurfregn-
ir.
Morgunorð: — Sigrún
Schneider talar.
9.00 Fréttir.
9.05 Morgunstund barnanna:
„Bláa barnið" eftir Bente
Lohne. Sigrún Björnsdóttir
les þýðingu slna (10).
9.20 Leikfimi. 9.30 Tilkynn-
ingar. Tónleikar. 9.45 Þing-
fréttir.
10.00 Fréttir. 10.10 Veöur-
fregnir.
10.45 „Mér eru fornu minnin
kær".
Einar Kristjánsson frá Her-
mundarfelli sér um þáttinn.
(RUVAK).
11.15 Morguntónleikar.
12.00 Dagskrá. Tónleikar. Til-
kynningar.
12^0 Fréttir. 12.45 Veöur-
fregnir. Tilkynningar. Tón-
leikar
14.00 „Sælir eru syndugir" eftir
W.D. Valgardson. Guðrún
Jörundsdóttir les þýðingu
slna (10).
14.30 A léttu nótunum. Tónlist
úr ýmsum áttum.
15.30 Tilkynningar. Tónleikar.
16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15
Veðurfregnir.
16J0 Sfðdegistónleikar.
a.„Norsk kunstnerkarneval"
opn. 14 eftir Johan Svend-
sen. Hljómsveitin „Harmoni-
en“ I Björgvin leikur; Karsten
brautaskólinn á Akranesi
heimsóttur. Rætt er við
skólameistara og fjölmarga
nemendur. Fylgst er með fé-
lagsstarfi og skemmtanallfi
nemenda og að lokum
„dimmission" stúdentsefna.
Umsjón: Sigurður G. Val-
geirsson. Stjórn upptöku:
Valdimar Leifsson.
21J5 Kvikmyndahátlðin 1985
Kvikmyndahátlð Listahátlðar
verður haldin I Reykjavlk
dagana 18. til 28. mal. i
þessum sjónvarpsþætti
veröur fjallað um hátlöina og
kynntar margar þeirra
kvikmynda sem sýndar
veröa. I kjölfar hans koma
stuttir kynningarþættir flest
kvöld meðan á kvikmynda-
hátlöinni stendur. Umsjón og
stjórn: Sigurður Sverrir
Pálsson og Arni Þórarinsson.
22.40 Reikningsskil
Andersen stjórnar.
b. Planókonsert I a-moll op.
14 eftir Edvard Grieg. Eva
Knardahl leikur með Kgl.
Fllharmónlusveitinni I Lund-
únum. Kjell I Ingebretsen
stjórnar.
17.00 Fréttir á ensku.
17.10 Slðdegisútvarp
Tilkynningar
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Kvöldfréttir. Tilkynningar.
Daglegt mál. Valdimar
Gunnarsson flytur þáttinn.
19.55 Daglegt mál. Valdimar
Gunnarsson flytur þáttínn.
20.00 Lög unga fólksins. Þor-
steinn J. Vilhjálmsson kynnir.
20.40 Kvöldvaka.
a. Gamankvæði Stefáns
Ólafssonar og Bjarna Gissur-
arsonar. Margrét Eggerts-
dóttir fjallar um skáldin og
ber saman kvæði þeirra.
b. Leikir barna. Þórunn Ei-
rlksdóttir les frásögn skráða
eftir Jóni Snorrasyni frá
Laxafossi.
c. „Mörgum á förinni fótur-
inn sveið.“ Helga Einarsdótt-
ir les brot úr æviminningum
Margrétar Halldórsdóttur úr
bókinni „Fimm konur", eftir
Vilhjálm S. Vilhjálmsson.
Umsjón: Helga Agústsdóttir.
21.30 Frá tónskáldum.
Atli Heimir Sveinsson kynnir
„Choralis" fyrir hljómsveit
eftir Jón Nordal.
22.00 „Músin", smásaga eftir •
Anais Nin. Kolbrún Berg-
þórsdóttir les þýðingu slna.
22.15 Veðurfregnir. Fréttir.
Dagskrá morgundagsins.
Orö kvöldsins.
22.35 Ur blöndukútnum. —
Sverrir Páll Erlendsson.
(RÚVAK.)
(Afskedet)
Sænsk-finnsk blómynd frá
1982. Leikstjóri Tuija-Maija
Niskanen. Aðalhlutverk:
Pirkko Nurmi, Carl-Axel
Heiknert, Kerstin Tidelius,
Sanna Hultman, Lotta
Larsson, Gunnar Björn-
strand, Stina Ekblad og Elina
Salo.
Sðguhetjan, Valerie, elst upp
á árunum fyrir heimsstyrjöld-
ina slðari á auöugu heimili,
þar sem ekki er allt með
felldu I sambúðinni þrátt fyrir
fágað yfirborð. ( myndinni er
fylgst með Valerie I bernsku
og á þroskaárum hennar
þegar hún hafnar hefð-
bundnu hlutverki konunnar
og ákveður að gerast leik-
kona gegn vilja foreldra
sinna.
Þýðandi Óskar Ingimarsson.
00.10 Fréttir I dagskrárlok
23.15 A sveitallnunni.
Umsjón: Hilda Torfadóttir.
(RÚVAK.)
24.00 Fréttir. Dagskrárlok.
Næturútvarp frá rás 2 til kl.
03.00.
FIMMTUDAGUR
16. ma(
10.00—12.00 Morgunþáttur
Stjórnendur: Kristján Sigur-
jónsson og Sigurður Sverr-
isson.
14.00—15.00 Dægurflugur
Nýjustu dægurlögin.
Stjórnandi: Leópold Sveins-
son.
15.00—16.00 ( gegnum tlöina
Stjórnandi: Ragnheiður Dav-
íösdóttir.
16.00—17.00 Bylgjur
Framsækin rokktónlist.
Stjórnendur: Asmundur
Jónsson og Arni Danlel Júll-
usson.
17.00—18.00 Einu sinni áður
var
Vinsæl lög frá 1955 til 1962
— Rokktlmabilið.
Stjórnandi: Bertram Möller.
Þriggja mlnútna fréttir klukk-
an: 11:00, 15:00, 16:00 og
17:00 Hlé.
20.00—21.00 Vinsældalisti
hlustenda rásar 2
10 vinsælustu lögin leikin.
Stjórnandi: Páll Þorsteins-
son.
Stjórnendur: Arni Þórarins-
son og Halldór Halldórsson.
22.00—23.00 Rökkurtónar
Stjórnandi: Svavar Gests.
23.00—24.00 Gullhálsinn.
Fjóröi þáttur af sex þar sem
er rakinn ferill Michael
Jackson.
Stjórnandi: Pétur Steinn
Guðmundsson.
FÖSTUDAGUR
17. ma(
10.00—12.00 Morgunþáttur
Stjórnendur: Páll Þorsteins-
son og Sigurður Sverrisson.
14.00—16.00 Pósthólfið
Stjórnandi: Valdls Gunnars-
dóttir.
16.00—18.00 Léttir sprettir
Stjórnandi: Jón Ólafsson.
Þriggja mlnútna fréttir klukk-
an: 11.00, 15.00, 16.00 og
17.00.
23.15—03.00 Næturvaktin
Stjórnendur: Vignir Sveins-
son og Þorgeir Astvaldsson.
(Rásirnar samtengdar aö
lokinni dagskrá rásar 1.)
SJÓNVARP
FÖSTUDAGUR
17. ma(