Morgunblaðið - 16.05.1985, Side 60
60
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 16. MAÍ 1985
félk í
fréttum
Ungfrú Hollywood?????
Búið að kynna sex stúlkur af átta
FYRIR nokkru birtum við hér á síðunni myndir af tveimur fyrstu stúlkunum sem verið var
að kynna í stjörnukeppni Hollywood, Úrvals og Vikunnar.
Að þessu sinni birtum við myndir af fjónim stúlkum til viðbótar en þá er búið að kynna
sex stúlkur af átta og verða síðustu tvær kynntar í Hollywood á fimmtudags- og sunnu-
dagskvöldið.
Keppnin sjálf fer svo fram í haust en sumarið ætla stúlkurnar m.a. að nota í að sóla sig á
Ibiza.
Margrét Guðmundsdóttir og Kristin
B. Gunnarsdóttir.
Lína Rut Karlsdóttir og Sigurdís
Reynisdóttir.
Samtök nokkur sem kallast „Peoples Choice" hafa gert
skoðanakönnun í Bandaríkjunum á vinsældum sjón-
varpsefnis og fengið sér til fulltingis Gallup-stofnunina
sem sérhæfir sig í nákvæmum og góðum skoðana-
könnunum. Að aflokinni könnun var efnt til verðlauna-
samsætis og þar var margt um Dynastyfólk, því þátta-
röðin var kjörin hin besta og vinsælasta í Bandaríkjun-
um og þær Joan Collins og Linda Evans bestu og vin-
sælustu leikkonurnar. Aðrir leikarar Dynasty fengu
ýmiss konar viðurkenningar og þakklætisvotta fyrir vel
unnin störf. Útkoma Dynasty var athyglisverð með
hliðsjón af samkeppnisaðilanum Dallas. Dallas kom
ágætlega út úr könnuninni, en áreiðanlega ekki nógu
vel að mati framleiðenda þáttanna, því þáttaröðin varð
í 2. sæti á eftir Dynasty og enginn af leikurum Dallas
nældi sér í viðurkenningu ...
Dynasty
vinsælast
HÁR- OG
SNYRTISTOFA HUNDA
Ljónaklippingu eða buxna-
klippingu, takk fyrir
Morgunblaðjö/Bjarni
„Meður lokka mjúk og snyrt,
mærin ung í ranni.“
Þannig var kveðið í eina tíð um
unga snót sem líklega hefur kunn-
að að setja upp hárið faglega utan
„stofu" sem innan. Það má
kannski brátt fara að ljóða um
annarskonar útlitssnyrtingu á ts-
landi en meyjanna einna, því fyrir
skemmstu var opnuð hár- og
snyrtistofa fyrir hunda í Garða-
bænum eins og í dag tíðkast víða
erlendis.
Til gamans litum við inn hjá
þeim stöllum sem reka stofuna,
Kristjönu Einarsdóttur og Sonju
Felton.
— Hafió þið unnið við þetta
lengi?
Við byrjuðum að hafa hunda
báðar tvær upp úr 1978 og þá fór-
um við að fikta við að snyrta þá og
brátt leið að því að fólk var farið
að spyrja hvort við vildum taka
hunda í snyrtingu. Við höfum síð-
an verið að taka til okkar hunda
heim en það var orðið dálítið
þreytandi að hafa hundahár út um
allt, þannig að þetta var alltaf
draumurinn að geta stofnað sér
stofu fyrir þetta.
— flafið þið lært eitthvað í þessu
sambandi?
Ég lærði úti í Danmörku segir
Sonja, hjá konu sem var með slíka
stofu þar og hefur komið til lands-
ins nokkrum sinnum.
Ég hef hinsvegar ekki lært
nema af sjálfri mér og hef jú notið
tilsagnar þessarar dönsku konu
þegar hún hefur verið hérlendis
segir Kristjana.
—Hvernig snyrtingu fær hundur
sem kemur til ykkar?
Minni hunda, þ.e. poodle-teg-
undina og suma blendinga, snyrt-
um við þannig að við rökum andlit
og lappir og einnig í kringum rass-
inn. Þá hálfklippum við skrokkinn
og böðum hundinn og þurrkum.
Að lokum fer hann á borð þar sem
hann er fínpússaður, klærnar
klipptar og eyrun hreinsuð.
Ef hundarnir eru af annarri
tegund og oft stærri þá burstum
við þá og klippum neglur.
Það er gott fyrir hundana að
vera vel snyrtir og með klipptar
Kristjana að snyrta hundinn sinn.
Sonja segir að það hafí verið draumurinn í langan tíma að stofna slíka stofu.