Morgunblaðið - 16.05.1985, Síða 66

Morgunblaðið - 16.05.1985, Síða 66
66 MORGUNBLADIÐ, PIMMTUDAGUR16. MAÍ 1985 munmn e 1985 Universal Press Syndicate_ 3-H „É9 glcymcAi drans Lykilorá>ioU beirra. cina. -Ferðina enn " Ast er... ... að finna „gamla fiöring- innu þegar hann hringir. TM Reg. U.S. Pat. Oft.—all rights reserved «1985 Los Angeles Times Syndicate Við maetumst á miðri leið þannig: Ég fer annað hvort á billjardinn eða í keiluspil þegar mér dettur í hug. Á móti má mamma þín koma hingað þegar þér dettur í hug! HÖGNI HREKKVÍSI Vil vera heima hjá börnunum þó ég hafi minni peningaráð ■■ Heiða skrifar: Ég dreif mig loksins í Þjóð- leikhsúið til að sjá „Gæjar og pí- ur“. Ég hef sjaldan skemmt mér eins vel í leikhúsi og það kvöld. Þetta er skemmtilegt leikrit, góðir leikarar, dansarar og söngurinn góður, sérstaklega hjá Stuðmann- inum Agli Ólafssyni, enda vanur að syngja og hann leikur líka vel. Það fylgdu söngtextar með leikskránni svo nú langar mig til að vita hvort standi til að gefa út plötu með lögunum. Gaman væri ef einhver gæti frætt mig um það. Ég má til með að svara S.S. sem hringdi til ykkar varðandi heima- vinnandi húsmæður, sem hefðu ekkert að gera nema að spóka sig í bænum, og hún nefndi að nú væru vélar á heimilum okkar í dag til að flýta fyrir verkunum. En við meg- um ekki gleyma þvi dýrmætasta sem við eigum, nefnilega börnun- um okkar. Auðvitað förum við stundum í bæinn, en við sem eig- um lítil börn erum oft þreyttar þegar heim er komið eftir ferð í miðbæinn með þau. Ég vil heldur vera heima hjá börnunum mínum, þó ég hafi minni peninga, en ef ég væri úti- vinnandi. Þessi tími kemur aldrei aftur og áður en við vitum af eru börnin okkar orðin stór. Fríkirkjuvegiir 11 verði embættisbústaður borgarstjóra 3987-8356 skrifar: Reykjavík hefir frá upphafi vega átt fjölmarga fyrirmyndar borgara, meðal þeirra frú Margrét Þorbjörg og Thor Jensen útgerð- armaður, er reistu húsið Prí- kirkjuveg 11. Hjá þeim hjónum fór saman dugnaður, snyrti- mennska, víðsýni. Heimilið á Frí- kirkjuvegi 11 var höfuðból með frábærum myndarbrag. Gestrisn- in brosti á hverjum fingri. Hús- freyjan þurfti ekki að sækja út sólskin í svuntunni sinni eins sagt er í þjóðsögum. Á Fríkirkjuvegi 11 var sólskin um allt hús; Garðurinn umhverfis húsið var meðal falleg- ustu garða í borginni. Húsið á Fríkirkjuvegi 11 á djúp- ar rætur í sögu Reykjavíkur. Ég vil því bera fram fyrirspurn til borgarráðs Reykjavíkur: er ekki tilvalið að Fríkirkjuvegur 11 verði embættisbústaður borgarstjórans í Reykjavík? Þar með fengi húsið virðulegt hlutverk, sem hæfir sögu þess og húsráðenda þar, er settu svip á borgina okkar fyrr á þessari öld. Ekki má skilja orð mín svo, að leggja eigi niður Héðinshöfða sem móttökumiðstöð borgarinnar, síð- ur en svo. Annað hús er það sem ég vildi minnast á, það er Aðalstræti 16. Það hús á merkilega sögu og við höfum ekki efni á því að allar sögulegar minjar séu rifnar niður, eða færðar í allt annað umhverfi. Jón Sigurðsson forseti bjó í þessu húsi er hann kom til setu á Alþingi og fleiri hefðarmenn og hefðarkonur. Húsið er í núverandi ástandi til stórskammar og í al- gjörri niðurniðslu. Því hæfir skemmtilegri umgengni og við- hald. Hugsum okkur mynd af hús- freyju á höfuðbóli sínu í borg eða í sveit. Húsfreyjan hefir setið þar ásamt eiginmanni i áratugi með fágætum myndarbrag, gert lífið fegurra og heiminn bjartari. Gesti hefir borið að garði, hátíðarveizlu- borð gert fyrir gestinn, yfir borð- um hafa gestir notið þeirrar unun- ar að eiga tal við húsfreyju og húsbónda. Mér er sjálfum minnisstæð kona sem oft sat ein með góða bók og hugsaði eingöngu fagrar hugs- anir. Yfir þeim hugsunum er ávallt fegurð og birta, svo sól er í huga þess og hlýindi i hjarta, er gestur- inn hverfur heim til sín. Hún auðgaði lif flestra sem kynntust henni. Því er á þessa mynd minnst, að mér finnst ekki vera nægilega mikið gert fyrir hina fullorðnu sem dvelja enn á sínu gamla heimili, vilja heldur ekki yfirgefa það. Myndin á einnig að athuga það hvort ekki sé mögu- leiki að greiða fyrir þeim einstakl- ingum í borg eða sveit, sem vilja hafa foreldra sína í gamla heimil- inu, en eru algjörlega bundnir yfir þeim fullorðnu, vegna sjóndepru eða heyrnarleysis, eða fötlunar á einhvern hátt, en hafa samt and- lega reisn. Ég þykist vita að ég er ekki eini maðurinn i landinu, sem þannig er farið, að vilja hafa sina hjá sér. Væri ekki möguleiki að stofnuð yrðu ein hagsmunasamtök enn fullorðnum í heimahúsum og aðstandendum þeirra til heilla. Forvitnilegt er að heyra undir- tektir lesendur góðir? I tilefni útsendingar sjónvarps- ins 12. maí á tónleikum lista- mannanna í hljómsveitinni „Em- pire Brass Quintet" má til fróð- leiks geta þess að Rolf Smedvig er í móðurætt íslendingur. Amma hans var Brynhildur f. 23. okt. 1893, d. 15. sept. 1961, Erlends- dóttir fræðimanns frá Mörk í Lax- árdal, A-Húnavatnssýslu. Afi Rolfs var Þorbjörn, f. 3. marz 1877, d. 27. apríl 1947, einn af stofnendum Völundar hf. í Reykjavík, síðar byggingameistari í Seattle, Jónsson bónda á Indriða- stöðum í Skorradal Jónssonar í Deildartungu í Borgarfirði. Föður- ætt Rolfs Smedvig er frá Stavang- er í Noregi. Velvakandi hvetur lesendur til að skrifa þættinum um hvaðeina, sem hugur þeirra stendur til — eða hringja milli kl. 14 og 15, mánudaga til föstudaga, ef þeir koma því ekki við að skrifa. Meðal efnis, sem vel er þegið, eru ábendingar og orða- skipti, fyrirspurnir og frásagnir, auk pistla og stuttra greina. Bréf þurfa ekki að vera vélrituð, en nöfn, nafnnúmer og heimilisföng verða að fylgja öllu efni til þáttarins, þó að höfundar óski nafnlcyndar. Sérstaklega þykir ástæða til að beina því til lesenda blaðsins utan höfuðborgarsvæðisins, að þeir láti sinn hlut ekki eftir liggja hér í dálkunum.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.