Morgunblaðið - 07.06.1985, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 07.06.1985, Blaðsíða 28
28 MORGUNBLAÐID, FÖSTUDAGUR 7. JÚNÍ 1985 29 Otgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Aöstoöarritstjóri Fulltrúar ritstjóra Fréttastjórar Auglýsingastjóri hf. Árvakur, Reykjavík. Haraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Björn Bjarnason. Þorbjörn Guömundsson, Björn Jóhannsson, Árni Jörgensen. Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson, Ágúst Ingi Jónsson. Baldvin Jónsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aöalstræti 6, sími 10100. Auglýsingar: Aö- alstræti 6, sími 22480. Afgreiösla: Kringlan 1, sími 83033. Askrift- argjald 360 kr. á mánuöi innanlands. I lausasölu 30 kr. eintakiö. Heseltine skammar Dani Danir og þó sérstaklega danskir stjórnmála- menn voru húðskammaðir á þriðjudaginn, þegar Michael Heseltine, varnarmálaráð- herra Breta, tók þá til bæna fyrir máttlausa stefnumörk- un í varnar- og öryggismál- um. Það voru einkum tvö at- riði sem breski varnarmála- ráðherrann staldraði við: í fyrsta lagi að Danir væru ekki reiðubúnir að leggja fram nægilegt fjármagn til að styrkja og efla eigin her- afla. í öðru lagi að Danir stæðu ekki nægilega fast að baki varnarstefnu Atlants- hafsbandalagsins sem bygg- ir á því, að varist verði með kjarnorkuvopnum ef ekki er unnt að halda hugsanlegum árásaraðila í skefjum með fælingarmætti þeirra. Ástæðan fyrir því, hve danskir stjórnmálamenn eiga oft undir högg að sækja meðal samherja sinna í Atl- antshafsbandalaginu, þegar rætt er um kjarnann í ör- yggis- og kjarnorkuvopna- stefnu bandalagsins, er sú, að í danska þinginu hafa þeir náð meirihluta, sem láta óskhyggju og stundar- hagsmuni í stjórnmálabar- áttunni heima fyrir ráða en ekki raunsætt mat á öllum aðstæðum og þeim hættum sem að Dönum steðja. Við íslendingar erum farnir að kynnast því hvernig umtal það vekur, þegar menn halda að hróflað sé við und- irstöðum varnarstefnu Vesturlanda. Nægir í því sambandi að vísa til leiðara úr Chicago Tribune, sem birtist hér í blaðinu á þriðjudag. í sambandi við umræður um þessi við- kvæmu mál hér á landi ætti það að vera sérstakt um- hugsunarefni fyrir stjórn- völd hvernig frá þeim er skýrt erlendis, til dæmis fyrir milligöngu fréttastofn- ana. Enginn vafi er á því, að myndin sem dregin hefur verið af Dönum vegna ístöðuleysisins í þjóðþingi þeirra, er að sumu leyti ýkt. Meginstefna Dana í utan- ríkis- og öryggismálum er skýr. Þeir vilja standa með bandamönnum sínum í Atl- antshafsbandalaginu og leggja sitt af mörkum til hinna sameiginlegu varna. Breska varnarmálaráðherr- anum finnst Danir hins veg- ar ekki leggja nógu hart að sér fjárhagslega miðað við þær fjárhagsbyrðar sem til dæmis Bretar axla til að geta sent Dönum liðsauka á ófriðartímum. Hvað skyldi Heseltine segja, ef hann kynntist „röksemdum" þeirra hér á landi, sem vilja beinlínis hafa þá sem verja landið að féþúfu? Á póli- tíska sviðinu hafa Danir svo ekki viljað standa að álykt- unum utanríkisráðherra Atlantshafsbandalags- landanna um bandarísku meðaldrægu kjarnorkueld- flaugarnar í Evrópu. Þetta hefur verið nefnt „fyrir- vara-stefna“ innan banda- lagsins og ástunda Grikkir og Danir hana. Þeir sem hafa beitt sér fyrir því, að Danir hafa tek- ið aðra stefnu en banda- menn þeirra, telja sig vera á friðarSraut. Andmælendur stefnubreytingarinnar inn- an Danmerkur og utan segja aftur á móti, að það sé síst af öllu til þess fallið að efla frið, draga úr spennu og skapa traust að skorast und- an merkjum vina sinna og fara eigin leiðir án tillits til sjónarmiða þeirra. Ræða Michaels Heseltine yfir Dönum sýnir til hvers van- hugsuð einstefna hefur leitt þá að mati bresku stjórnar- innar. Gagnrýni af þessu tagi kemur dönskum stjórn- málamönnum ekki á óvart. Síst af öllum dönskum jafn- aðarmönnum sem hafa snú- ist í kjarnorkumálum undir forystu Ankers Jergensen eftir því hvort hann er forsætisráðherra eða ekki. Vonandi hefur ræða Hesel- tines tilætluð áhrif og leiðir dönskum þingmönnum fyrir sjónir, að það dugar ekki að telja sjálfum sér og öðrum trú um að með lítt ígrunduð- um ályktunum sé unnt að breyta heimsmyndinni. Við hinu er þó frekar að búast, að þeir sem standa að baki einstefnu Dana í austurátt láti sér síður en svo segjast. Tilfinningar en ekki rök ráða ferðinni hjá þeim og af tilfinningahita verða þeir sannleika Heseltines sár- reiðastir. MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 7. JÚNÍ 1985 Samkeppnisstaða íslend- inga í saltfískheiminum - eftir Friðrik Pálsson Við saltfiskmenn getum sjálf- sagt kallað árið 1984 tandurfiskár. Það, sem að öðru leyti einkenndi helst starfsemi Sölusambands ís- lenskra fiskframleiðenda á árinu 1984 var aðallega þrennt. í fyrsta lagi varð framleiðslan óveniulega mikil síðari hluta ársins. I öðru lagi gengu afskipanir betur en mörg undanfarin ár. í þriðja lagi voru gæðavandamái í algjöru lág- marki. Framleiðsla óverkaðs þorsks varð um 34.000 tonn árið 1984, sem var samdráttur um 8.000 tonn frá árinu áður, en varð samt um 3.000 tonnum meiri en áætlað hafði ver- ið. Framleiðslan á vetrarvertíð- inni varð um 9.000 tonnum minni en árið á undan, en á hinn bóginn varð mikil framleiðsla á haust- mánuðum; sú mesta í mörg ár. Réð þar mestu örar afskipanir af tand- urfiski til Spánar og frekar stutt- ur greiðslufrestur. Afskipanir gengu sömuleiðis betur en oftast áður og var fisk- inum skipað út nokkurn veginn eftir því sem hann varð tilbúinn til útflutnings. Greiðslur bárust nokkuð reglulega, ef undan er skil- inn slæmur tími um mitt sumar, þegar greiðslur bárust afar hægt frá Portúgal. Þær greiðslutafir urðu til þess, að tekin voru erlend lán í stærri stíl, en gert hefur ver- ið áður, til að flýta greiðslum. Á árinu 1984 bárust nánast eng- ar gæðakvartanir vegna íslenska saltfisksins og er langt síðan að svo vel hefur til tekist. Er það sér- staklega ánægjulegt, þegar tekið er tillit til þess, að á árinu reyndi mjög á hina nýju eftirlitsdeild SÍF og verið var að þróa nýja afurð, sem er viðkvæmari í geymslu og meðförum en hefðbundni saltfisk- Framleiðsla og sölur á árinu 1985 Það var því nokkur eftirvænting í lofti í byrjun þessa árs, eins og svo oft áður, ekki síst vegna þess, að hækkandi gengi Bandaríkja- dollars hafði gert okkur erfitt fyrir á öllum mörkuðum. Víðast heyrðust þær raddir, að söluverð yrði að lækka til að koma til móts við kaupendur vegna hækkandi gengi dollarans. Við lögðum aftur á móti áherslu á, að verðlækkun kæmi ekki til greina meðal annars vegna þess að engin von væri til þess, að salt- fiskframleiðendum tækist að metta markaðina á þessu ári, þar sem engar birgðir væru til, hvorki í framleiðslu- né neyslulöndunum. Dollarinn væri að vísu sterkur, en tengingin við SDR hefði þó linað verstu þjáningar kaupendanna. Það er ekki hægt að segja annað en að hljóðið hafi verið frekar þungt í flestum kaupendanna í upphafi ársins, enda hafði árið 1984 verið þeim heldur erfitt. Óánægjan virtist þó ekki rista mjög djúpt, þegar á reyndi. í mars fórum við Dagbjartur Einarsson, stjórnarformaður, í ferð um markaðslöndin og gerðum samninga á Ítalíu, Spáni og í Portúgal. Vegna óvissunnar um gengi dollarans og mismunandi skoðana manna á verðþróun á vormánuðum, varð að ráði að semja eingöngu um það magn, sem talið var að framleitt yrði á vertíðinni. Ákveðið var að stefna að því að semja um sölu sumar- og haustframleiðslunnar í maí. í mars sömdum við alls um sölu á um 24.000 tonnum, sem var spá okkar um framleiðslu til aprílloka, enda hefði það verið um 6.000 tonna aukning frá árinu áður, eða liðlega 30 prósenta aukning. Þrátt fyrir hækkandi gengi dollarans, tókst að halda sama verði í dollur- um, tengdum SDR, eins og í gildi hafði verið á haustmánuðum í fyrra. Við lögðum mikla áherslu á að halda örum afskipunum og hröðum greiðslum, enda hefur það sýnt sig, að í því liggja meiri verð- mæti en í fyrstu gæti sýnst, því vextir, rýrnum og geymslukostn- aður vega vægt reiknað a.m.k. 2 prósentum á mánuði. Viöbótarsölur Framleiðslan til aprílloka varð 3.000 tonnum meiri en spá okkar gerði ráð fyrir, eða um 9.000 tonn- um meiri en á sama tíma í fyrra. Þegar að því kom að gera viðbót- arsamninga við kaupendur, höfð- um við því hækkað verulega spár okkar um heildarframleiðslu árs- ins. Sölurnar standa þannig núna, að við höfum nýlega gengið frá viðbótarsamningi við Portúgali, sem gerir ráð fyrir afhendingu á að minnsta kosti 8.500 tonnum til loka ársins, en þó getum við af- hent allt að 15.000 tonnum, ef við svo kjósum. Verð er óbreytt frá vorsamningi. Alls gera því samn- ingar við Portúgali ráð fyrir af- hendingu á 23.000 til 30.000 tonn- um á þessu ári, enda þótt líklegast sé, að það verði um 25.000 tonn. Til Spánar höfum við selt sam- tals 6.000 tonn og erum við að ljúka afhendingu á því magni á næstu dögum. Spánverjar leggja mikla áherslu á að reyna að halda stöðugu framboði af tandurfiski á markaönum og eru þess vegna til- búnir að stunda annars konar inn- kaup en þeir voru vanir. Þeir vilja tryggja sér það magn af stór- og millifiski af vertíðinni, sem þeir telja sig þurfa fram á haustmánuöi, en vilja svo kaupa smáfiskinn á sumri og hausti. Við höfum ekki gert neina viðbótar- samninga við þá að þessu sinni, en í viðræðum við þá fyrir stuttu kom fram, að þeir vonast til að verða kaupendur að 4.000 til 5.000 tonn- um af tandurfiski til viðbótar til áramóta, en vilja ekki ganga til samninga fyrr en nær dregur því, að þeir þurfi fiskinn í sölu. Þeir telja enn svo mikla óvissu um framboð og verð, að þeim sé óhætt að bíða um sinn og við sjáum enga ástæðu til að leggja að þeim. Til Ítalíu seldum við liðlega 2.000 tonn og hefur það allt verið sent til þeirra, en ekki gengið til frekari samninga. ítalir verða þó kaupendur að fiski í haust, ef að líkum lætur. Grikkir hafa þegar keypt 1.500 tonn og tekið á móti því öllu. Þeir eru vanir að þurfa um 2.500 tonn á haustmánuðum og ekkert bendir til stórbreytinga á því. Frakkland hefur stöðugt verið að auka kaup á alls kyns fiski og hefur sá markaður reynst okkur Friðrik Pálsson hagkvæmur á margan hátt. I heild má því segja, að sölurnar hafi gengið nokkuð vel, það sem af er árinu, og framhaldið lofi sæmi- lega góðu. Umheimurinn Ýmislegt hefur verið að gerast í saltfiskheiminum annars staðar á undanförnum misserum, sem haft hefur áhrif á stöðu okkar. Mikil hækkun á gengi dollarans eitt árið enn, setti svip sinn á saltfisk- markaðina á árinu 1984, en sem betur fer virðist draga eitthvað úr hágengi hans nú um sinn. Verðlag á íslenskum fiski þótti hátt allt árið í fyrra og þykir enn og óhætt mun að fullyrða, að ein- ungis skorturinn, sem verið hefur að undanförnu, hefur gert okkur kleift að halda þessu verði. Skort- urinn hefur stafað af samdrætti í veiðum og vinnslu í Kanada í fyrra og einnig minnkandi veiði og minni framleiðslu, bæði í Noregi og í Færeyjum. Það sem af er þessu ári virðist sagan vera að endurtaka sig, að minnsta kosti í Noregi, þar sem veiðin í vetur varð minni en nokk- urn hafði órað fyrir og voru spár þó ekki bjartsýnar. fs hefur haml- að veiðum við strendur Kanada og enda þótt veiði hafi komist af stað síðustu vikur, er framleiðslan minni en búist var við. Tollar En það er fleira en framleiðsla annarra og markaðsverð, sem hef- ur áhrif á markaðstöðu okkar. Skyndilega urðu samningar Spán- verja og Portúgala um inngöngu í Evrópubandalagið (EB), tilefni nýrra vandamál með nokkuð öðr- um hætti en búist var við. Menn höfðu frekar reiknað með því, að innganga þeirra í EB yrði til þess að lækka tolla á Spáni, en að þeir yrðu teknir upp við innflutning til allra Evrópubandalagsríkjanna. Tollur í EB sem hefur verið til á pappírnum lengi, var nú dreginn fram í dagsljósið og tekur gildi um næstu mánaðamót. Hann nemur 13 prósentum á venjulegan flattan saltfisk og 20 prósentum á salt- fiskflök. Að vísu kemur hann væntanlega ekki til með að hafa bein áhrif á þessu ári, þar eð 25.000 tonna tollfrír kvóti mun nægja til loka þessa árs. Síðustu fréttir benda til að þessi kvóti nái einungis yfir flattan saltfisk og að unnið sé að því að fá annan kvóta fyrir saltfiskflök. 20 prósenta toll- ur á saltfiskflök yrði slíkur baggi, að líklegt má telja, að verulega drægi úr eftirspurn, svo ekki sé meira sagt. Hvað við tekur í upphafi næsta árs, þegar Spánn og Portúgal eru gengin í Evrópubandalagið, er erf- itt um að segja, en það vekur mesta athygli, að það virðist að frumkvæði Portúgala, sem þessi tollur er nú settur á. Ekki er að fullu ljóst, hvað þar býr að baki, en þó er upplýst, að þar munu mestu ráða, hagsmunir útgerð- armanna í Portúgal og ef til vill einnig á Spáni, en floti Spánverja er langstærsti fiskveiðifloti ríkj- anna, sem verða í EB í byrjun næsta árs. Svo virðist, sem mikil óeining sé innan portúgölsku ríkisstjórnar- innar um þetta mál, en hugmynd- in að baki tollanna mun sú, að Evrópubandalagið veiti síðan toll- fríðindi gegn einhverjum fisk- veiðiréttindum. Rétt er að skýra þetta ögn nán- ar. Innflutningsleyfum til Portú- gal hefur verið skipt í þrjá mis- munandi flokka. í fyrsta lagi er innflutningur eigin veiði, þ.e.a.s. löndun úr portúgölskum fiskiskipum, sem til dæmis hafa verið við veiðar við strendur Kanada og lítilsháttar við Noreg. í öðru lagi er um að ræða inn- flutning á því, sem kallað hefur verið „topping up“ eða viðbótar- kaup, en það er sá fiskur, sem fiskiskipin kaupa í þeim löndum, sem veita þeim fiskveiðiréttindi. Portúgalir eru þar við veiðiskap og kaupa fisk til viðbótar og flytja inn í eigin fiskiskipum. I þriðja lagi eru svo aðilar eins og við og okkar viðsemjendur, sem stunda kaup og sölu á saltfiski, en hafa sem minnst viljað skipta sér af fiskveiðiréttindum. Við höfum að vísu stuðlað mjög að auknum innflutningi til Islands með góð- um árangri og það hefur góð áhrif í Portúgal, en fiskveiðiréttindi, hversu lítil sem þau eru, mælast miklu betur fyrir og eru talin vott- ur um mikinn vinskap. Margsinnis hefur komið í ljós, að á þessum þremur mismunandi aðferðum við innflutning er mikill munur í augum portúgalskra stjórnvalda og kemur hann fram nú einu sinni enn, en að þessu sinni virðist einnig vera búið að koma þessum hugsunarhætti inn í áhrifamenn EB og þurfti ef til vill ekki mikið til, enda hafa Kanada- menn óspart unnið að því að fá viðskiptafríðindi hjá EB í skiptum fyrir fiskveiðiréttindi. Þessi þrískipting gengur eins og rauður þráður í gegnum allar um- ræður um saltfiskviðskipti og eng- in leið er að spá um það, hvert framhaldið verður. Matthías Á. Mathiesen, viðskiptaráðherra og Þórhallur Ásgcirsson, ráðuneytis- stjóri, hafa ásamt starfsmönnum sínum unnið ötullega að því að fá einhverja úriausn þessara mála, en það er erfitt verkefni. Evrópu- bandalagið er ekki auðveldasti að- ili við að eiga, ef einhverju þarf að breyta. Of snemmt mun vera að spá um framhald málsins, en væntanlega mun að okkur þrengja um sinn að minnsta kosti. Menn spyrja eðli- lega, hvaða áhrif 13 prósent tollur sem þessi muni hafa á sölur á ís- lenskum fiski. Tollar verka ávallt letjandi á viðskipti, en í lokin koma þeir verst niður á neytend- um í viðkomandi landi. Á hinn bóginn virðist allt benda til þess, að fiskur af eigin fiski- skipum verði að mestu eða öllu leyti undanskilinn viðbótarkaup- um, sem flutt eru til Portúgal eða annarra Evrópubandalagsríkja i eigin fiskiskipum sömuleiðis, á sama tíma og okkar kaupendur yrðu að kaupa fiskinn með gild- andi tollum. Mismunun af þessu tagi kann að verða okkur skeinuhætt, ef af verður, en hún er svo ógeðfelld, að tæpast er hægt að trúa því, að ekki takist að fá 'henni aflétt. Okkar krafa er fyrst og fremst sú, að tollarnir verði ekki settir á, en til vara að tollkvótinn verði sem rýmstur og tollprósentan sem lægst, en fyrst og síðast hljótum við að ætlast til þeirrar sanngirni að fá að sitja við sama borð og aðrir. Þar sem Danir eru eins og kunn- ugt er í Evrópubandalaginu er þeirra framleiðsla tollfrjáls. Færeyingar og Grænlendingar komast sömuleiðis frítt inn með allan sinn fisk vegna sérsamninga sinna við EB. Kanadamenn hafa samið við EB um sérstaka tollfría kvóta, að því er virðist gegn fiskveiðiréttindum. Magnið er að vísu ekki mjög mik- ið. Það byrjar með um 4.000 tonn- um af saltfiski og 2.500 tonnum af saltflökum í ár og eykst svo eitthvað ár frá ári. Svo virðist sem þessi kvóti, sem Kanadamenn hafa samið um, eigi að bætast við 25.000 tonna heildarkvótann og geti því komið okkur líka til góða. Norðmenn eru í sama flokki og við fslendingar og hérlend stjórn- völd hafa haft samráð við Norð- menn í þessu efni. Hins vegar láta einstakir norskir útflytjendur mjög líklega við kaupendur sína og fullyrða að innflytjendur að norskum fiski muni ekki þurfa að greiða slíkan toll. Fyrr muni verða samið um fiskveiðiréttindi eða annað, sem EB meti jafngilt, en eftir er að sjá efndir slíkra orða. Ljóst er þó, að Norðmenn óttast, að spár um aukna veiðimöguleika hjá þeim á næstu árum leiði til enn aukinnar ásóknar í fiskveiði- réttindi í norskri landhelgi. Þrátt fyrir ítarlega eftir- grennslan okkar manna, er mörg- um spurningum ennþá ósvarað um tollana og hvernig skiptingu tollfríu kvótanna verður háttað. Viðskiptaráðuneytið mun áfram leggja mikla áherslu á að fá sanngjarnari útfærslu á þessum reglum og við hljótum að vera bjartsýnir á að það takist. Við kunnum samt að þurfa að ganga í gegnum erfitt tímabil, ef dráttur verður á slíkri lausn. Þessar harkalegu aðgerðir EB, sem þvi miður hafa á sér þvingun- arblæ, hljóta að valda okkur mikl- um áhyggjum. Við verðum að leggja íslenskum stjórnvöldum allt það lið sem við getum við að fá sanngjarna lausn á málinu. Samkcppnisstaða Ríkisstyrkir til sjávarútvegs í Kanada og í Noregi eru orðnir gíf- urlega háir og því miður fátt, sem bendir til þess að þeir muni fara lækkandi. í framhaldi af því er hollt að velta því fyrir sér, hvaða áhrif þeir í rauninni hafa hér á landi, ef þeir hafa þá einhver áhrif. Ég er þeirrar skoðunar að þeir hafi áhrif. Talsverð bein áhrif til lækkunar söluverðs og mjög mikil óbein áhrif í sömu átt. Auðvelt er að finna rök að því gagnstæða, að þeir hafi engin áhrif, enda gefa menn sér þá, að verð á fiski sé svo hátt samanborið við aðrar mat- vörur, að það gæti ekki hærra ver- ið. Um þetta má hafa mörg orð, en ég mun ekki fjalla um ríkisstyrk- ina í sjávarútvegi sérstaklega. Það er flestum þokkalega vel kunnugí um hvort eð er. Hins vegar vil ég nefna fleiri atriði, sem snerta þetta mál á einn eða annan hátt og stundum á svip- aðan veg, án þess að við gerum okkur alltaf grein fyrir því. Ilarðnandi samkeppni Mér sýnist, að við íslendingar séum að dragast aftur úr öðrum þjóðum á sviði matvælafram- leiðslu. Þá á ég fyrst og fremst við peningahlið framleiðslunnar. í gæðamálum stöndum við nokkuð vel, en verðum að reikna með því, að aðrir nái okkur fyrr eða síðar eða nálgist okkur það mikið, að við verðum að geta verið samkeppn- isfærir á annan hátt en þann, að skáka sífellt í því skjólinu, að hægt sé að borga hærra verð fyrir okkar vöru vegna gæða. Við skul- um þó að sjálfsögðu halda áfram eins lengi og hægt er. Við stöndum sjálfsagt flestum þjóðum framar í útgerð og fisk- vinnsiu, hvað snertir vélar og tæki og við höfum mjög gott orð á okkur og sterka stöðu á öllum fiskmörkuðum. En framfarir hafa orðið svo gífurlegar á mörgum sviðum matvælaframleiðslu, að erfitt er orðið að keppa við þær. Ber þar að sjálfsögðu hæst kjúklingarækt og aðra tækni- vædda stórframleiðslu af því tagi og sjálfsagt styttist í það, að eldis- fiskur fari að keppa beinlínis við sjávarafla, enda þótt ég sé ekki trúaður á það, að bjartsýnustu spár manna í þeim efnum rætist. Ríkisstyrkir snerta þetta mál líka meira en í fljótu bragði virð- ist. Landbúnaður er stórlega ríkis- styrktur víðast hvar í vesturálfu og það kemur fram á einn eða annan hátt í verði korns og annars fóðurs, sem þannig lækkar verð á kjúklingum og jafnvel á etdisfiski. Ilöfundut er frnmkvæmdastjóri Sölusambands íslenskra fiskfram- leiðenda (SÍF). Hér birtast kaflar úr þeim hluta skýrslu hans i að»J- fundi SÍF, sem snertir markaðsmál. Tökum á. Tækin vantar eftir Árna Kristinsson Þessa dagana safna Landssam- tök hjartasjúklinga fé um allt land til að styrkja tækjakaup vegna væntanlegra skurðaðgerða á hjartasjúklingum í Landspítal- anum. Fram til þessa hafa allar hjartaskurðaðgerðir verið fram- kvæmdar erlendis. Hér á landi hefur aðeins verið unnt að lagfæra meðfædda galla á æðum við hjart- að. Hvers vegna á að flytja þessar aðgerðir heim? 1. Vegna þess, að það er mikið álag fyrir veikt fólk að fara í erfitt og kvíðvænlegt ferðalag til framandi lands fjarri fjöl- skyldu og vinum. Vakna síðan upp eftir mikla aðgerð og eiga e.t.v. erfitt með að skilja málið eða getað tjáð sig. Þurfa síðan skömmu eftir slíka stóraðgerð að hnoðast út á flugvöll, stund- um er þar bið, síðan flug og loks ferð í mismunandi færð frá Keflavík í íslenskt sjúkrahús. Margur hefur beðið tjón af þessum flutningi. Þá er ótalinn kostnaður sjúklinganna vegna ferða- og dvalarkostnaðar ætt- ingja eða annarra fylgdar- manna. 2. Vegna þess að það er þjóðhags- lega mikilvægt, að við íslend- ingar séum sjálfum okkur nóg- ir. Við eigum skurðlækna, sem nú í dag voru að skera upp Svía meðan við sendum sams konar sjúklinga til Bretlands. Við eig- um svæfingarlækna, hjartasér- fræðinga, hjúkrunarfræðinga, tæknifólk og annað starfsfólk, sem til þarf. Hví skyldum við kaupa útlenda vinnu í stað þess að nota innlendan vinnukraft? 3. Vegna þess, að ekki er hægt að beita nýrri tækni í meðferð kransæðasjúkdóma, meðan ekki er hægt að grípa til skurð- aðgerða í skyndi. Hér er átt við útvíkkun kransæðaþrengsla með hjartaþræðingu, inndæl- ingu segaleysandi lyfja hjá þeim, sem eru að fá hjartadrep, og notkun leysigeisla til að brenna burtu æðaþrengsli, en sú tækni er enn á tilraunastigi. 4. Vegna þess, að síðustu 2 ár hafa verið skornir upp á annað hundrað kransæða- og hjarta- lokusjúklingar. Þetta er þannig að verða ein af algengustu stóru skurðaðgerðunum. Tveir breskir hjartaskurðlæknar, sem hafa stundað íslenska hjartasjúklinga, hafa undrast, að við skulum ekki framkvæma þessar aðgerðir sjálfir og hér heima. 5. Vegna þess, að mikill undirbún- ingur liggur að baki. Nú er lag að hefjast handa og yfirmenn heilbrigðismála skilja, að þetta tækifæri verður að nota. Landssamtök hjartasjúklinga eru aðeins tæplega 2ja ára gömul, en hafa sýnt mikinn dugnað. Þau hafa styrkt Landspítala og Borg- arspítala með dýrum tækjakaup- um. Það er mikill stofnkostnaður samfara því að koma hjartaskurð- lækningum af stað hér á landi, en rekstrarkostnaður verður síðan | mun minni við framkvæmd að- gerðanna hér á landi en erlendis og stofnkostnaður mun skila sér á 2—3 árum. Þótt þetta sé þannig fjárhagslegt þjóðþrifamál má ekki Dr. Árni Kristinsson gleyma erfiðleikum verðandi sjúklinga. Þetta skilja félagsmenn Landssamtaka hjartasjúklinga, sem flestir hafa farið utan í skurðaðgerð. Tökum því vel á móti þeim. Höfundur er sérfræðingur í hjarta- skurðlækningum rið Landspítal- ann. Framtíðarskipulag svæðis Hrafnistu. Lóð Hrafnistu skipulögð Gengið hefur verið frá framtíðarskipulagi fyrir lóð Hrafnistu, Dvalarheimilis aldraðra sjómanna, í Laugarásnum í Reykjavík. A meðfylgjandi mynd má sjá teikningu af svæðinu, eins og það mun verða fullbyggt. Dökki reiturinn til hægri á myndinni sýnir hjúkrunarheim- ili, sem nýstofnuð sjálfseignarstofnun, sem hlotið hefur nafnið Skjól, mun byggja. Að stofnun þessari standa Reykjavíkur- borg, Þjóðkirkjan, Sjómannadagssamtökin í Reykjavík og Hafnarfirði, Alþýðusamband tslands, Lífeyrisdeild BSRB og Stéttarsamband bænda. Markmið stofnunarinnar er að bæta úr brýnni þörf fyrir hjúkrunarheimili aldraðra. Til vinstri á myndinni sjást lítil einbýlishús og fjölbýlishús. í þessum húsum verða íbúðir fyrir aldrað fólk, sem er sjálf- bjarga, en það mun þó njóta ýmissar þjónustu frá Hrafnistu. Þessar íbúðir verða í eigu ibúanna sjálfra. Pétur Sigurðsson, formaður Sjómannadagsráðs, sagði að vonir stæðu til að bygging þessara íbúða gæti hafist á næsta ári. Sagði hann hugmyndina að þessum húsum vera 30 ára gamla og því væri gamall draumur nú að rætast. Þegar hafa margir skráð sig á biðlista eftir íbúðunum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.