Morgunblaðið - 06.07.1985, Page 3

Morgunblaðið - 06.07.1985, Page 3
Hafnarbúðir: MORGUNBLADIÐ, LAUGARDAGUR 6. JÚLt 1885... ............ 3 Undrast hvað vakir fyrir andstæðingum sölunnar — sagði borgarstjóri TILLÖGU frá minnihluta borgar- stjórnar um að borgarstjórn lýsi yfir andstöðu við að selja ríkinu Hafnar- búðir var vísað til borgarráðs með 12 atkvæðum gegn 9 á fundi síðastliðinn fimmtudag. Eftir þessa afgreiðslu lögðu flutningsmenn fram bókun þess efnis að ef sala Hafnarbúða yrði ákveðin í borgarráði á meðan borg- arstjórn er í sumarfrii verði boðað til aukafundar í borgarstjórn um málið. Páll Gíslason, fulltrúi Davíð Oddsson Sjálfstæðisflokksins, sagðist fylgja bókuninni, en hann og Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, fulltrúi Sjálfstæð- isflokksins, væru andvigir því að selja Hafnarbúðir ríkinu. Fulltrúar minnihlutans gagn- rýndu borgarstjóra og töldu að leysa ætti vanda Landakotsspítala með öðrum hætti. Borgarspítali annast nú rekstur Hafnarbúða, en fjármálaráðherra hefur boðið í þær fyrir hönd Landakotsspítala. Davíð Oddsson, borgarstjóri, benti á að ef sambærileg stofnun yrði reist nú legði ríkissjóður til 85% af stofnkostnaði, en borgar- sjóður 15%. Reykjavíkurborg stóð hins vegar ein straum af kostnaði vegna Hafnarbúða á sínum tíma. Það eina sem breyttist við söluna er að borgarsjóður fær 55 milljónir í sinn hlut. Það fólk sem þarna dvelst fær auðvitaö að vera þar áfram. Vistmenn og aðstandendur þeirra þurfa því ekki að bera kvíðboga fyrir framtíðinni. Þá sagði borgar- stjóri að menn hlytu að undrast hvað vakir fyrir þeim borgarfull- trúum sem eru á móti sölunni. Þrjár brýr yfir sömu á Borgarfirði, 5. júlí. HÉR má sjá þrjár brýr hlið við hlið yfír sömu ána, Búrfellsá neðri á sunnanverðri Holtavörðuheiði. Var sú neðsta byggð í fyrra, í miðið 1929 og sú efsta um eða fyrir aldamótin að sögn Baldvins Einarssonar hjá brúadeild vegagerðarinnar. Hvenær byrjað verður á þeirri fjórðu verður sennilega ekki alveg á næstunni, enda nóg að gert í bili og vel greiðfært yfír þá nýjustu. —pþ Borgarstjóri um Laugamestangann: * Itarlega kannaö áður en ákvörö- un verður tekin „MÉK HAFA borist undirskriftir all- margra einstaklinga og verða þær lagð- ar fyrir borgarráð, þar sem óskað er eftir því að málið verði ítarlega kannað áður en nokkur ákvörðun er tekin og aðrar leiðir athugaðar jafnframt og mér fínnst sjálfsagt að verða við slík- um óskum,“ sagði Davíð Oddsson, borgarstjóri, aðspurður um hvað liði ákvörðun um veg um Laugarnestang- ann. „Mér finnst sjálfsagt að verða við slíkum óskum. Þarna er um við- kvæmt svæði að ræða og við verðum að vera sannfærð um að um engar aðrar leiðir sé að ræða, áður en við grípum til þessa ráðs. Ég tel þvf að borgarráð hljóti að verða við þessari áskorun að gaumgæfa málið mjög ít- arlega áður en nokkur ákvörðun er tekin. Prestskosningar í Ásaprestakalli SÉRA Sighvatur Birgir Emilsson var kjörinn prestur í Ásaprestakalli I Skaftafellsprófastdæmi, en prestskosn- ingar fóru fram 30. júní. Umsækjendur um prestakallió voru tveir, Sighvatur Birgir og Hörður Þ. Ásbjörnsson. A kjörskrá voru 160, atkvæði greiddu 99, sem er 62% þátttaka. Féllu atkvæði þannig að Sighvatur fékk 79 atkvæði og Hörður 7, en auð- ir seðlar voru 13. Verzlunar- skólabréfin eru uppseld SKULDABRÉF Verzlunarskól- ans hafa nú öll selzt að því er segir í frétt frá Verzlunarskólan- um og Verzlunarbankanum. Verzlunarskóli Islands gaf út skuldabréf þann 25. júní sl. að fjárhæð 10,5 milljónir króna til sölu á almennum markaði og hafði Verzlunarbankinn milligöngu um útboð bréfanna og ábyrgist greiðslu þeirra. Skuldabréfin voru verðtryggð, lánstími 1 'h til 2 ár og ávöxtun 10%. Sala skuldabréfanna fór að stærstum hluta fram hjá Kaup- þingi. _______ Happdrætti Sjálf- stæðisflokksins: Dregið í dag í DAG verður dregið í Vorhapp- drætti Sjálfstæðisflokksins. Skrif- stofan í Valhöll, Háaleitisbraut 1, er opin í allan dag, sími 82900. Mazda 626 BILftR MINNST KYÐGAR MINNST! Samkvæmt könnun, sem hið virta þýska tímarit STERN gekkst fyrir nýlega kom í Ijós að MAZDA 626 ryðgar minnst allra bíla, sem seldir eru í Þýskalandi. Ennfremur sýndi könnun, sem gerð var af vegaþjónustu Félags bifreiðaeigenda í Vestur-Þýskalandi að MAZDA 626 bilar minnst allra bíla í millistærðarflokki þar í landi. Eins og allir vita gera Þjóðverjar afar strangar kröfur til bíla um gæði og góða aksturseigin- leika. Það er því engin furða að MAZDA 626 ER LANG MEST SELDI JAPANSKI BÍLLINN í ÞÝSKALANDII. Við eigum nú nokkra af þessum úrvalsbílum til afgreiðslu strax úr síðustu sendingu, á sér- lega hagstæðu verði, eða frá kr. 448.500. Sterkari en gerist og gengur Ný 8000 fm. MAZDA sölu- og þjónustumiðstöð BÍLABORG HF. Smiðshöfða 23 sími 812 99

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.