Morgunblaðið - 06.07.1985, Qupperneq 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGÚR 6. JÚLÍ 1985
Söluaukning á mjólk
og kindakjöti í maí
í MAÍ jókst sala mjólkurvara um 322 þúsund lítra, eða tæp 8% miðaó við
sama mánuð í fyrra og varð aukningin í sölu nánast allra tegunda. Aukningin
dugar þó ekki til að vinna upp framleiðsluaukninguna í mánuðinum sem var
460 þúsund lítrar. í maí varð einnig aukning í sölu á kindakjöti, eftir
samfelldan samdrátt um margra missera skeið.
Söluaukning á nýmjólk varð inu, þ.e. frá 1. september sl. Með-
5,9%, léttmjólk 27%, súrmjólk
4%, undanrennu 17%, mysu 29%,
rjóma 22%, jógúrt 6% og skyri
3%, svo nokkrar tegundir séu
nefndar. í aprílmánuði varð einnig
nokkur aukning í sölu mjólkur-
vara en í marga mánuði þar á
undan var samdráttur í sölunni.
Agnar Guðnason blaðafulltrúi
bændasamtakanna telur að þessi
umskipti megi rekja til auglýs-
ingaherferðar mjólkurdagsnefnd-
ar, þar sem komið var á framfæri
við fólk upplýsingum um hollustu-
gildi mjólkurinnar.
Undanfarin misseri hefur verið
stöðugur samdráttur í sölu kinda-
kjöts og hefur salan dregist saman
um 7% það sem af er verðlagsár-
o
INNLENT
Leeds Castle
til sýnis
BREZKA strandgæzluskipið HMS
Leeds Castle, sem er í kurteisis-
heimsókn í Reykjavík, verður til
sýnis almenningi, í dag, laugar-
dag, frá klukkan 14 til 17. Skipið
liggur við Ægisgarð.
alsalan þessa 9 mánuði hefur verið
840 tonn á mánuði. í maí varð hins
vegar veruleg söluaukning, eða um
32%, og seldust 1.319 tonn af
kindakjöti (þar af 1.051 tonn af
dilkakjöti).
Það sem af er verðlagsárinu
hafa verið flutt út 2.052 tonn af
kindakjöti, sem er 40% minna en
á sama tíma í fyrra. Birgðir af
dilkakjöti voru 3.711 tonn þann 1.
júní, sem er 5% minna en 1. júní
1984.
Mjög litlar birgðir hafa verið í
sölu nautgripakjöts undanfarin
ár. Árleg sala hefur verið um 2.400
tonn. Meðalneysla á hvern íbúa
hefur þó lítillega lækkað á sl.
fimm árum, eða úr 10,8 kg. á hvert
mannsbarn í 9,4 kg. Birgðir af
nautgripakjöti 1. júní sl. voru
samtals 697 tonn, sem er 30%
meira en á sama tíma í fyrra.
Nokkur aukning hefur verið í
sölu á svínakjöti að undanförnu og
eru birgðir nú nokkru minni en
fyrir ári. Frá 1. september til 1.
júní var heildarsalan 1.141 tonn,
sem er rúmlega 4% meira en á
sama tíma í fyrra. Birgðir 1. júní
voru aðeins 22 tonn sem er 61%
minna en á sama tíma í fyrra.
Meðalneysla á hvern landsmann
var 3,6 kg. á árunum 1982/83, en á
sl. ári 4,6 kg. Svínakjötið hefur þar
með komist yfir hrossakjötið I
meðalneyslu, því í fyrra var neysl-
an á hrossakjöti 3,5 kg. og hefur
lítið breyst. Heildarneysla lands-
manna á öllu kjöti er talin vera
yfir 70 kg., og þar af er kindakjöt-
ið rúm 40 kg.
Ólafsvíkurkirkja:
Útför skipverja
af Bervík SH 43
ÓUfsvík. 5. júlí.
í DAG var gerð frá Ólafsvíkurkirkju
útför þeirra Steins Jóhanns Rand-
verssonar og Freys Hafþórs Guð-
mundssonar sem fórust með Bervík
SH 43 þann 27. mars sl.
Sóknarpresturinn, séra Guð-
mundur Karl Ágústsson, jarðsöng
og sagði m.a. í útfararræðunni:
Drengur á hjóli fyrir bfl
MorgunbladiA/Júlíus
Tólf ára drengur á reiðhjóli varð fyrir bfl á mótum Hringbrautar og Meistaravalla um klukkan 13.00 í gærdag.
Var drengurinn fluttur á slysadeild þar sem gert var að meiðslum hans, sem ekki voru talin alvarleg.
TiUögur „kartöflunefndarinnar“:
Innflutningsalmanak fyrir
kartöflur og grænmeti
„Langri bið er lokið. Drottinn hef-
ur bænheyrt okkur, þar sem við
fáum í dag að jarðsyngja þá félaga
saman.“
Kirkjukór Ólafsvíkurkirkju
söng og sjómenn stóðu heiðurs-
vörð fyrir kirkjudyrum. Mjög fjöl-
mennt var við útförina.
- Helgi
NEFND sem landbúnaðarráð-
herra skipaði í fyrra til að fjalla
um innflutning á kartöflum og
grænmeti hefur skilað áliti. Byggir
hún í grundvallaratriðum á á-
kvæðum í nýju lögunum um fram-
leiðslu, verðlagningu og sölu á
landbúnaðarafurðum en gerir til-
lögur um ýmis framkvæmdaatriði.
M.a. leggur nefndin til að gert
verði innflutningsalmanak fyrir
grænmeti þar sem komi fram
hvenær innflutningur hverrar
grænmetistegundar er bannaður,
frjáls eða háður leyfisveitingum.
Nefndin leggur til að inn-
flutningur fari því aðeins fram
að hann skaði ekki hagsmuni ís-
lenskra framleiöenda, en þess sé
jafnframt gætt að hverju sinni
sé það framboð innanlands af
kartöflum og grænmeti sem
markaðurinn krefur. Skipuð
verði fimm manna innflutnings-
nefnd sem fylgist með innflutn-
ingnum. Formaðurinn verði frá
landbúnaðarráðuneytinu, einn
fulltrúi sameiginlega frá Sam-
bandi garðyrkjubænda og
Landssambandi kartöflubænda,
einn frá Framleiðsluráði og
tveir frá viðskiptaráðuneytinu
(annar þeirra frá verslunar-
aðilum).
í tillögum nefndarinnar að
innflutningsalmanaki er gert
ráð fyrir að innflutningur ein-
stakra tegunda verði frjáls á-
kveðinn tíma árs. Verði hann
bannaður (nema með sérstökum
undantekningum) utan þess
tíma nema mánuð fyrir og eftir
Eyrópumótið í bridge:
Austurríkismenn urðu
Evrópumeistarar
— íslensku sveitirnar í 14. og 16. sæti
SalMomaggiore, 5. júlí. Prá Jakob R.
IMöller rrétUriUra MorjOinbUAoins.
Austurríkismenn urðu Evrópu-
meistarar í bridge í opnum flokki
en mótinu lauk í dag. Spiluóu
Austurrikismenn vió Frakka í síó-
ustu umferðinni og sigruóu 19—11
á meóan helztu andstæóingar
þeirra, Israelsmenn, sem reyndar
hafa leitt mótió mestalla keppnina,
töpuóu fyrir Svíum.
Svíar hafa spilað stórt hlut-
verk í lokaumferðunum. í 19.
umferð sem spiluð var í gær
gerðu þeir að engu vonir Dana
um að komast í heimsmeistara-
keppnina og í dag sviptu þeir
israelsmenn Evrópumeistara-
titlinum, sem ísraelsmenn virt-
ust að minnsta kosti komnir með
aðra höndina á. Svíar unnu leik
þjóðanna með 22—8, eftir að
hafa leitt í hálfleik með 48—37.
Þróunin í gærkvöldi hafði verið
Dönum hagstæð. Þeir unnu sinn
leik gegn Luxemburg með 25—3,
Frakkar töpuðu 5—25 fyrir Sviss
og Austurríki náði aðeins jafn-
tefli gegn Finnum. Staðan fyrir
síðustu umferð var: 1. ísrael 366,
2. Austurriki 357, 3. Danmörk
348, 4. Frakkland 347, 5. Holland
341, 6. Svíþjóð og 7. Bretland 332.
Eins og áður er fram komið
spilaði Austurríki við Frakkland
og vann 19—11, sem dugði til að
vinna mótið vegna 8—22 taps
ísraels fyrir Svíum. Norðmenn
gerðu fræðilegar vonir Dana að
engu. Þeir unnu leikinn 20—10,
eftir að hafa haft 72 IMP-stig
yfir í hálfleik, 88—16. í tveimur
síðustu umferðunum í opna
flokknum vann ísland Grikkland
22—8 og tapaði 12—18 fyrir ír-
landi. Jón og Sigurður fyrri hálf-
leik, en Jón og Símon þann
seinni. í gærkvöldi töpuðu kon-
urnar 11—19 fyrir Hollandi, en í
dag 13—17 fyrir ísrael.
Lokastaðan í opna flokknum:
1. Austurríki 376, 2. ísrael 374,
3.-4. Frakkland, Danmörk 358
en Frakkar vinna á innbyrðis-
leik, 5. Svíþjóð 357, 6. Bretland
355, 7. Holland 352. Ísland var í
16. sæti með 291 stig.
í kvennaflokki vann Frakk-
land og var raunar búið að því
fyrir síðustu umferð.
Lokastaða í kvennaflokki: 1.
Frakkland 281, 2. Bretland 263,
3. Ítalía 261, 4. Holland 259, 5.
Svíþjóð 254. Islensku konurnar
urðu f 14. sæti með 188 stig.
Volkmar Steinecke
Volkmar
Steinecke
látinn
LÁTINN er í Dortmund Volkmar
Steinecke, 57 ára að aldri. Stein-
ecke var aðalhvatamaður að stofn-
un íslandvinafélags í Dortmund á
síðasta ári cg stóð félagið m.a.
fyrir Islandsviku, 7 daga kynningu
á menningu og sögu tslands, í ág-
úst í fyrra.
Samkvæmt ósk hins látna er
þeim sem vilja minnast hans bent
á orgelsjóð Hallgrímskirkju í
Reykjavík, en Steinecke var mjög
mikill áhugamaður um sígilda
tónlist. í því tilefni hefur verið
opnaður sérstakur reikningur í
Dortmund undir nafninu „Hall-
grimsorgel".
Hallgrímskirkja í Reykjavík
vottar eftirlifandi eiginkonu og
dóttur hins látna samúð sína.
(Í r rrétutilkynnineu)
frjálsa tímann þegar innflutn-
ingur verði háður leyfum. Gert
er ráð fyrir að innflutningur
kartaflna, sveppa og rófna verði
háður leyfum allt árið en inn-
flutningur lauks, eggaldina og
rósakáls frjáls allt árið. Gert er
ráð fyrir að agúrkur og fleiri
grænmetistegundir verði frjáls-
ar frá 15. desember til 1. mars,
en enginn innflutningur leyfður
1. apríl til 15. nóvember. Tómat-
ar, paprika , grænkál og fleiri
tegundir verða frjálsar í desem-
ber til og með mars, en enginn
innflutningur í maí til nóvem-
ber. Frjáls innflutningur verði á
hvitkáli og gulrótum í janúar til
maí, en enginn júní til desemb-
er. Blómkál verður frjálst einum
mánuði lengur en hvítkálið og
ýmsar aðrar káltegundir verða
frjálsar 1. janúar til 1. júlí en
innflutningur á þeim bannaður í
ágúst til nóvember.
Undir nefndarálitið skrifa:
Guðmundur Sigþórsson, deild-
arstjóri í landbúnaðarráðu-
neytinu sem var formaður
nefndarinnar, Kristján Bene-
diktsson garðyrkjubóndi, Ingi
Tryggvason formaður Stéttar-
sambands bænda, ólafur
Björnsson kaupmaður, Magnús
Sigurðsson kartöflubóndi, örn
Bjarnason læknir og Sveinn
Björnsson skrifstofustjóri í
viðskiptaráðuneytinu. Jón Óttar
Ragnarsson matvælafræðingur
sagði sig úr nefndinni á starfs-
tíma hennar og Árni Árnason
framkvæmdastjóri Verslunar-
ráðs íslands skilaði séráliti þar
sem hann lýsir sig andvígan til-
lögum nefndarinnar og gerir til-
lögur um aðrar innflutn-
ingsreglur.
Borgarstarfs-
menn samþykktu
NÝGERT samkomulag borgaryf-
irvalda og Starfsmannafélags
Reykjavíkurborgar, um breyt-
ingar á launaliðum gildandi sam-
nings til samræmis við breytingar
á samningum ASÍ og BSRB, var
staðfest á fundi í félaginu í fyrr-
akvöld.
Um 120 manns sátu fundinn og
var samkomulagið samþykkt með
öllum atkvæðum gegn tveimur.