Morgunblaðið - 06.07.1985, Page 20
20
MOROUKBLÁÐIÐ, LAUGARDAGUR 6. JÚLÍ1985
Norskt víkingaskip
fórst við Færeyjar
Níu manns bjargað, sem með skipinu voru
l*órsböfn, 5. júlí. Frá frétUritara Morgunblaðains, Jogvan Arge.
NORSKT víkingaskip frá Stavanger fórst við Færeyjar á fimmtudagskvöld,
en níu manns, sem með því voru, komust allir lífs af. Fékk skipið á sig
brotsjó í sundinu milli Hesteyjar og Koltureyjar með þeim afleiðingum, að
það brotnaði í spón og sökk á 25 sekúndum. Tókst fólkinu að halda sér á
floli með björgunarvestum.
Maður einn í Norðurdal varð
þess var fljótlega, að slys hafði
orðið og reri hann út á árabáti til
að bjarga fólkinu. Björgunar-
skipið Tjaldrid kom síðan á vett-
vang og tók fólkið um borð. Tals-
vert brak úr víkingaskipinu náðist
einnig. Er svo að sjá sem skipið
hafi brotnað í marga hluta. Heíur
það greinilega ekki þolað öldurótið
og harða vindhviðu, sem það lenti
í.
í hópi þeirra sem með skipinu
voru var eins árs gamalt barn. Var
það klætt í björgunarvesti er
óhappið skeði. Heldur móðir
barnsins því fram, að það hefði
varla lifað óhappið af ef það hefði
gertz hálftíma síðar, því þá hefði
barnið verið háttað í koju og ekki
verið með björgunarvesti.
Víkingaskipið hóf ferð sína frá
Stavanger í Noregi og kom við í
Leirvík á Hjaltlandi á leið sinni til
Færeyja. Margir þeirra, sem voru
með skipinu, voru lagðir í sjúkra-
hús í Þórshöfn. Heilsu þeirra er þó
ekki talin hætta búin og verða þeir
væntanlega útskrifaðir þaðan í
dag.
Suður-Afríka:
Tveir læknar sekir um van
rækslu vegna dauða Bikos
Jóhanneriarborg, 5. júlí. AP.
Læknaráðið í Suður-Afríku
fann tvo hvíta lækna, sem starfa
á vegum hins opinbera, seka um
vanrækslu í tengslura við dauða
blökkumannaleiðtogans Steve
Biko, sem lést árið 1977.
Læknaráðið, sem situr í Pretor-
íu-fylki, komst að þeirri niður-
stöðu að Benjamin Tucker, fylkis-
læknir í Pretoríu, og Ivor Land
hefðu falsað læknisskýrslu Bikos
og þeir hefðu ekki sinnt honum
sem skyldi, skömmu áður en hann
lést í varðhaldi lögreglunnar.
Tucker verður bannað að stunda
lækningar í þrjá mánuði, en ráðið
frestaði refsingunni um tvö ár.
Land slapp með áminningu, en
ráðið hafði heimild til að gera
báða læknana brottræka úr
læknastéttinni.
Líkskoðun leiddi í ljós að Biko
lést af völdum höfuðáverka, sem
hann hafði sennilega hlotið í átök-
um við lögreglu. Eftir dauðann
varð Biko að nokkurs konar písl-
Norður-írland:
Sjö slasast
í spreng-
ingu IRA
Belfast, Noróur-írlandi, 5. júlí. AP.
SPRENGJA sprakk í dag í
sendiferðabfl nálægt landa-
mænim írlands og Norður-
írlands með þeim afleiðing-
um að sjö manns slösuðust
lítillega. Hinir slösuðu voru
þrír lögreglumenn og fjórir
borgarar.
írski lýðveldisherinn, IRA,
hefur lýst ábyrgð á sprengju-
tilræðinu á hendur sér.
Dómstóll á Norður-írlandi
sýknaði í dag 20 mótmælendur,
sem ákærðir voru fyrir hermd-
arverkastarfsemi. Dómarinn,
sem dæmdi í málinu, neitaði að
taka til greina vitnisburð
manns, Williams Allen, sem
kvað mennina 20 hafa staðið að
ýmiss konar ólöglegri starfsemi;
allt frá því að eiga aðild að
hryðjuverkasamtökum til morð-
tilræða.
Dómarinn sagði aftur á móti
að Allen, sem afplánar nú fang-
elsisdóm fyrir morð, hefði hvað
eftir annað logið fyrir rétti og
því bæri ekki að taka vítnisburð
hans til greina.
arvotti í augum blökkumanna,
sem berjast gegn hvíta minnihlut-
anum í Suður-Afríku.
Ekkja Bikos, Nontsikeleld, sagði
í samtali við fréttamenn að hún
væri ánægð að sannleikurinn í
málinu væri nú loksins kominn í
ljós, en hún hefði búist við að
læknarnir hlytu þyngri refsingu.
Á sama tíma og tilkynnt var um
úrskurð læknaráðsins voru tveir
unglingar skotnir til bana og fleiri
særðir í átökum við lögregluna i
bænum Duduza, austur af Jóhann-
esarborg. Lík annars hinna látnu
lá enn á götunni nokkrum klukku-
stundum eftir árásina og að sögn
sjónarvotta hótaði lögreglan að
skjóta á hvern þann sem nálgaðist
líkið. Einnig voru nokkur ung-
menni handtekin og haldið í bygg-
ingu, sem lögreglan hefur girt með
gaddavír.
Hundruð hvítra námsmanna
efndu einnig til mótmæla í Jó-
hannesarborg vegna morðanna á
Matthew Goniwe og þremur öðr-
um leiðtogum blökkumanna.
Mótmælendurnir gengu um með
spjöld þar sem þeir skoruðu á
stjórnvöld að hætta pólitískum
fjöldamorðum og ofsóknum gegn
blökkumönnum. Lögreglan var
viðstödd mótmælaaðgerðirnar, en
skarst ekki í leikinn þar sem þau
fóru friðsamlega fram. Mótmæl-
endumir höfðu raðað sér upp báð-
um megin við aöalgötur borgar-
innar, til að forðast að brjóta lög
sem banna fjöldasamkomur á göt-
um úti.
Goniwe var 38 ára gamall kenn-
ari í bænum Cradock í Höfðafylki,
en var rekinn í byrjun ársins 1984.
Hann hvarf ásamt þremur fylgis-
mönnum sínum þann 27. júní er
þeir voru á leið til Cradock. Lík
þeirra fundust skömmu síðar í bíl
Goniwes. Höfðu þeir verið stungn-
ir og brenndir til bana.
Afríkuríkið Guinea:
■
l
p
AP/Simamynd
8000 ára garrdar múmíur
í noröurhluta Chile, nánar tiltekiö í Arica, fundust nýlega þrjár múmíur.
Myndin af þeim, sem hér birtist, var tekin í safni bæjarins. Líkin, sem
smurö voru með þessum hætti, eru af karli og tveimur börnum og er
talið aö þau séu um 8000 ára gömul. Sé þessi aldursgreining rétt er hér
um næstum 3000 árum eldri múmíur að ræöa en þær sem taldar eru
elstar í Egyptalandi. Vísindamenn binda vonir viö að þessi fundur veröi
til aö veita þeim betri innsýn í sögu mannlífs í Ameríku.
Valdaránstilraun
rann út í sandinn
_ (Vmakry, Guinea, S. júlf. AP.
UTVARPIÐ í Conakry, höfuöborg Afríkulýðveldisins Guinea, greindi frá því
í dag, að valdarán Diara Traore, menntamálaráðherra landsins, hefði mis-
heppnast. Kvað útvarpiö herinn hafa full tök á stjórninni.
Franskir blaðamenn í höfuð-
borginni segja, að hersveitir hlið-
hollar Lansana Conte forseta hafi
brotið valdatöku Traore á bak aft-
ur. Hafi Ousane Sow, varnarmála-
ráðherra, stjórnað gagnbylting-
unni. Þeir segja, að svo virðist sem
nokkur hópur óbreyttra borgara
hafi fallið í átökum við valda-
ránsmenn og hafa stjórnvöld stað-
fest það. Engar tölur um mannfall
hafa þó verið nefndar.
Frönsku blaðamennirnir segja
ennfremur, að til óspekta hafi
komið í höfuðborginni í morgun
þegar stuðningsmenn Conte for-
seta úr hópi óbreyttra borgara,
sem söfnuðust saman til að lýsa
Barn fær ÓT-veiki
vegna brjóstagjafar
Sidney, Ástralíu, 5. júlí.AP.
ÓNÆMISTÆRING (ÓT-veiki) hefur nú verið greind í fyrsta skipti í ung-
abarni, eftir fæðingu þess, að sögn ástralsks læknis sem segir að þessar
upplýsingar varpi nýju Ijósi á hvernig sjúkdómurinn berst á milli manna.
„Þetta er mjög alvarlegt, því
þetta er ný hlið á sjúkdóminum
sem við vissum ekki um, þ.e.
tengsl móður og ungabarns,"
sagði Julian Gold, yfirmaður
rannsóknar- og heilsugæslustöð-
var fyrir ónæmistæringarsjúkl-
inga í Sidney.
„Þetta skýrir að nokkru hvern-
ig sjúkdómurinn berst á milli
rnanna," sagði Gold. Hann bætti
við að drengurinn, sem nú er orð-
inn um eins árs gamall, hafi
sennilega fengið ónæmistæringu
í gegnum brjóstagjöf. Móðir
drengsins fékk sjúkdóminn í
gegnum blóðgjöf sem hún fékk
daginn eftir að hún átti drenginn.
Gold sagði að hundruðir barna
í Bandaríkjunum væru fædd með
ónæmistæringu, en í þessu tilfelli
væri ekki um fæðingargalla að
ræða, og kom ekki í ljós að dreng-
urinn hefði sjúkdóminn fyrr en
móðir hans kom með hann í skoð-
un fyrr á árinu, áhyggjufull yfir
þvf að drengurinn virtist ekki
dafna vel.
Gold sagðist ekki vilja hræða
mæður um allan heim með þess-
um fréttum, og sagði að allt blóð
sem gefið væri sjúklingum í Ástr-
alíu værr nú rannsakað gaum-
gæfilega og væri búið að koma
upp sérstökum blóðrannsóknar-
kerfum í öllum blóðbönkum þar í
landi. Gold er einnig í sérstakri
opinberri nefnd sem sett var á fót
til að komast að upptökum sjúk-
dómsins.
Heilbrigðismálaráðherra Ástr-
alíu, Neal Blewitt, sagði að
ónæmistæring væri að ágerast í
Ástralíu og spáði hann að í lok
næsta árs myndu um 600 manns
þjást af sjúkdóminum, eða 600%
fleiri en í dag.
Gold rannsakaði um 1.000
sjúklinga í síðasta mánuði og
fann að 20% þeirra höfðu á ein-
hvern hátt komist í tæri við
ónæmistæringu. Af 100 tilfellum
sem talin voru ólæknandi, hafa 42
þegar látist. Gold sagði þetta
vera mikið áhyggjuefni, þar sem í
Englandi væri búið að greina 100
tilfelli af ónæmistæringu, en þar
byggju um 57 milljónir manna. í
Ástralíu væri búið að greina jafn
mörg tilfelli en þar byggju aðeins
15 milljónir manna.
yfir stuðningi við hann, réðust á
verslanir í eigu fólks af Malinke-
ættflokknum, sem Traore tilheyrir.
Útvarpið í Conakry hafði skýrt
frá því í morgun, að Traore hefði
steypt Conte forseta og ríkisstjórn
hans af stóli. Höfðu fylgismenn
Traore-útvarpsstöðina þá á sínu
valdi. Conte rændi sjálfur völdum í
landinu í fyrra stuttu eftir að þá-
verandi þjóðarleiðtogi, Ahmed Sek-
ou Toure, sem ríkt hafði um árabil,
lést.
Conte forseti var staddur á fundi
Efnahagsbandalags Vestur-Afríku
í Lome, höfuðborg Togo, þegar Tra-
ore lét til skarar skríða gegn hon-
um.
Hið misheppnaða valdarán Tra-
ore er ekki talið vera af pólitískum
toga spunnið, heldur hafi verið um
að ræða deilur milli ættflokka og
einstaklinga.
Traore varð forsætisráðherra
Guinea eftir valdatöku Conte 3.
apríl 1984. Deilur innan ríkis-
stjórnarinnar urðu þess valdandi,
að í desember í fyrra lagði Conte
forseti niður embætti forsætisráð-
herra og skipaði Traore I embætti
innanríkisráðherra, sem fer með
menntamál. Er talið að forsetanum
hafi þótt sem forsætisráðherrann
væri farinn að skyggja á sig. Þá er
einnig talið að það skipti máli, að
Traore er af ættflokki Malinke-
manna, en Conte af ættflokki
Soussou-manna. í Guinea búa fjór-
ir ættflokkar og teljast um 60%
íbúanna til Malinke- og Peul-
ættflokksins. Ættflokkur forsetans
telur um 18—20% íbúanna.
Haft er eftir vestrænum stjórn-
arerindreka í Conakry, að stjórn
Conte hafi látið margt gott af sér
leiða. Hún hafi hrint í framkvæmd
ýmsum félagslegum umbótum, lát-
ið lausa pólitíska fanga og haldið
áfram þeirri samvinnu við ríki á
Vesturlöndum, sem hófst á síðustu
valdaárum Sekou Toure.