Morgunblaðið - 26.07.1985, Page 9

Morgunblaðið - 26.07.1985, Page 9
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 26. JÚLÍ 1985 9 Hugheilar kveöjur og þakklæti sendi ég bömum mínum, tengdabörnum, barnabörnunj,, systur og vinum sem glöddu mig meö hlýhug og gjöfum á sjötugsafmæli mínu 23. júlí sl. Guö blessi allt þetta góöafólk. Hanna María Fríðjónsdóttir. UM ÞESSA HELGI: VERK EFTIR BACH Laugard. kl. 15: Goldberg-tilbrigðin. Ketil Haugsand, sembal Laugard kl. 17 og sunnudag kl. 15: Heildarverk Baehs tyrlr viola da gamba og sembal. Laurence Dreyfus. viola da gamba. Ketil Haugsand, sembal. Sunnudag kl. 17: Messa. ÓKEYPIS AÐGANGUR Áætlunarferöir frá Umferöarmiöstööinni í Reykjavík laugardag og sunnudag kl. 13. Veittur er 65% afsláttur af fullu fargjaldi. Börn innan 12 ára greiða helmingi minna en fullorðnir. Þetta fargjald er aðeins selt báðar leiðir og bóka verður þær samtímis, minnst 14 dögum fyrir brottför. Greiða skal farseðil að fullu um leið og bókað er. Engar breytingar eru leyfilegar né endurgreiðslur. (Athugið: Apex-trygg- ingu.) Rautt Apex gildir aðeins á ákveðnum dögum, t.d. á þriðjudögum til London. Lágmarksdvöl er 1 vika en hámarksdvöl 4 vikur. Gildir ekki til Ameríku. FLUGLEIDIR Sökudólgurinn fundinn? Samstarfshópur um bætt kjör verkafólks og sjómanna í Vestmannaeyjum ritstýrir Fréttabréfi í Eyjum, þar sem nýlega er fariö höröum orðum um þá sem stóöu fyrir nýgeröum kjarasamningum. Sérstaklega er ráöist á þá, sem voru málsvarar fisk- vinnslufólks viö samningsgerðina. i Stak- steinum í dag er rýnt í þaö sem í þessu blaði segir i leit aö því, hver sé sökudólgur- inn aö mati útgefenda Fréttabréfsins. ASÍ orðið að reiknistofnun? Eftir reynshi launafólks og verkalýðsrekenda af hinum ólíku leiðum, sem farnar hafa verið í kjara- deilum hér á landi, er í raun furðulegt, að nokkr- um skuli detta í hug að mæla með því að allt skuli sett í bál og brand með verkfblhim og upphlaupum af því tagi. I Vestmanna- eyjum er gefið út Frétta- bréf verkafólks og sjó- manna. Á forsíöu nýjasta töhiblaðs þess er birt myndin sem fylgir Stak- steinum. Á mótmælaspjald- inu, sem maðurinn í miðju hringsins er með, stendur: Stéttabaráttunni er aítýst Og undir myndinni stend- ur þetta: „Mynd þessi er lýsandi fyrir það ástand sem nú ríkir á vinnumarkaðinum í dag. Aðþrengdum verkalýð þessa lands er boðin dúsa sem hann getur ekki hafn- að vegna þeirra þrenginga sem samsæri milliliðaauö- valdsins og þýja þess á þingi hefur komið þeim í. VSf hefur um stund tekist að vinna gálgafrest og væntanlega tekst þeim sem makka á bakvið að maka krókinn enn lengur.“ l*cssi orð f blaði sem gefið er út af sjómannafé- laginu Jötni, verkakvenna- félaginu Snót og verkalýðs- félagi Vestmannaeyja og lýtur ritstjórn „samstarfs- hóps um bætt kjör verka- fólks og sjómanna í Vest- mannaeyjum", verða ekki túlkuð á annan veg en sem harkaleg árás á forystu- sveit Alþýðusambands fs- lands. Enda er það ræki- lega undirstrikað í greinum í blaðinu sjálfu. I»ar segir meðal annars: „Nú er nýlega búið að gera kjarasamninga milli aðila vinnumarkaðarins. Nú sem áður sveik ASf- mafían hátíðleg loforð sín um að rétta hlut fiskverk- unarfólks. I»að er Ijóst nú sem aldrei áður að Alþýðu- sambandið hefur breyst úr því að vera baráttutæki í höndum verkafólks í það að vera reiknistofnun, þar eru þeir ætíð sammála um niðurstöðu Ásmundur Stef- ánsson og Magnús Gunn- arsson hjá VSI. En hvað nú? Átt þú að berjast sem skynlaus skepna um skammt þinn til klæóis og matar? Er ekki kominn tími til að gefa forystunni frí?“ Hér er fast að orði kveð- ið en þó óljósL Ástæða er til að draga í efa að sann- gjarnir dómar séu þarna felldir um þá sem nafn- greindir eru. Hitt er annað mál aö hinn nafnlausi greinarhöfundur ætti að skilgreina betur, hvað hann á við með þeim dylgj- um að tala um „ASI- mafiu", þá ætti hann að kveða skýrar að orði um þá forystumenn sem hann vill á bak og burt. Hóað í gras- rótinni f Eréttabréfi verkafólks og sjómanna í Vestmanna- eyjum segir ennfremur: „Sú mikla ólga og sú mikla reiði sem kraumar undir niðri hjá fiskvinnslu- fólki um land allt, þarf nú senn að fá útrás og brjótast fram. Einn stór kökkur stendur þó sem þrándur í götu þess arna. Hinn al- menni maður með stinginn og skófluna hefur aldrei aðstöðu til umræðu um sín áhuga- og kjaramál. I>að væri verðugt verkefni fyrir verkalýðsfélögin í Vest- mannaeyjum að nota þá góðu aðstöðu sem hér er og hóa saman nokkrum hóp af slíkum mönnum. Slíkur grasrótarhópur gæti síðan undirbúið sig til átaka á þingi Verkamannasam- bandsins í haust, en þar þarf veruleg uppstokkun að fara fram. Fjskvinnslufólk á ekki að þurfa að hlýta forsjá ncinna loðinlcppa, ef það stendur saman. ASf-foryst- an mun í framtíðinni ástunda samskonar blckk- ingar, svik og rán og sams- konar djöfla-glímu gagn- vart fLskvinnslufólki. Nú er annaðhvort fyrir fólk að koma saman og ræða sín mál eða krjúpa og kyssa á vöndinn kúgarans sem þaö hatar.“ f Staksteinum hefur mörg tilvitnun verið birt, sem undrun vekur fyrir þá sem standa utan þess hóps, sem til er vitnað. Fáar til- vitnanir hafa verið jafn svæsnar og þessi. Er reióin jafn mikil og orðalagið gef- ur til kynna? Eða er hinn nafnlausi höfundur aðeins að blása til harðrar orrustu með þessum hætti? Hver verða viðbrögðin? Forystumenn í verka- lýðshreyfingunni hljóta að staldra við skrif eins og þessi sem birtast í mál- gagni þriggja verkalýðsfé- laga í Vestmannaeyjum. I*eir hljóta að bregóast við þessari hörðu gagnrýni með einhverjum hætti. Sá maður í forystusveit- inni, sem snerist í flesta hringi í síðustu kjarasamn- ingum og segist aö minnsta kosti standa næst fisk- vinnshifólkinu, er Guð- mundur J. Guómundsson, forseti Verkamannasam- bandsins, formaður Dags- brúnar og þingmaöur Al- þýðubandalagsins. Frá því var skýrt fyrir skömmu á forsíðu l>jóðvilj- ans, að Guðmundur J. hefði hætt við að hætta sem forseti Verkamanna- sambandsins á þingi þess nresta hausL Gaf Guð- mundur J. stórorðar yfir- lýsingar í blaðið af þessu tilefni um nauðsyn þess að hann sæti áfram og rakti það meðal annars til óánægju meðal fisk- vinnslufólks vegna ný- geröra kjarasamninga. Á að skilja afstöðu þeirra í Vestmannaeyjum, sem hér hefur verið lýsL sem stuðn- ing við Guömund J. eða sem andstöðu við hann? Með hliðsjón af því sem segir um grasrótina og átök á þingi Verkamanna- sambandsins er varla unnt að túlka viðhorf Vestmann- eyinga á annan hátt en þann. að þeir ætli í slag við sjálfan Guðmund J. Guö- mundsson. Kópavogsvöllur Breiðablik — ÍBV í kvöH M. 20.00 tGS B* áss Útvegsbanki íslands, Kópavogi P® Banki Kópavogsbúa smi(|juN»rn Smiðjuvegi 14d. Opiö allar nætur ISPAN HR Breiðablik í ^ BYKO umbro Kópavogsnesti, Nýbýlavegi 10, sími 42510.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.