Morgunblaðið - 26.07.1985, Síða 30

Morgunblaðið - 26.07.1985, Síða 30
30 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 26. JÚLl 1985 Halla Magnús- dóttir - Minning Torfhleðslunámskeið haldið um helgina Fædd 18. rebrúar 1894 Dáin 16. júlí 1985 Já, Halla mín var fædd í Merki- gerði á Akranesi 1894. Þar höfðu foreldrar hennar, Magnús Halls- son og Jónína Jónsdóttir, dvalist aðeins í tvö ár, en þar áður og á eftir í nágrenni Hafnarfjarðar og inn í meginþéttbýli Fjarðarins eru þau komin þegar árið 1902. Ég fluttist með foreldrum mín- um sunnan af Vatnsleysuströnd til Hafnarfjarðar í október 1921 og var þá 26 ára. Nær enga vinnu var að fá fyrr en í marzmánuði á næsta ári, en þá réðst ég í fisk- vinnu á Langeyrarmölum. Þetta fyrirtæki nefndist Hlutafélagið Höfrungur, og var þar verkstjóri Guðmundur Jónasson, fæddur Strandaringur eins og ég. Já, vissulega var gott að fá peninga greidda vikulaga. En hvað var það, samanborið við aðra hamingju sem mér hlotnaðist þarna? í verkakvennahópnum var Halla Magnúsdóttir. Við fórum víst fljótt að veita hvort öðru athygli. En aldrei bað ég hennar og hún ekki mín. Þarna hafa víst „augun talað ástanna mál“, því 14. októ- ber 1922 göngum við Halla Magnúsdóttir og Jón Helgason í hjónaband réttu ári eftir að ég fluttist í Fjörðinn. Fyrst fengum við til íbúðar herbergi sem var að- eins rúmlengd á breidd, en um fjórir metrar á lengd. Svo höfðum við frjálsa umgengni um íbúð for- eldra minna og í sameiningu not- uðum við eldhúsið. Ekki var það af ósamkomulagi við foreldra mfna að við fluttumst í Góðtemplara- húsið um haustið 1923, heldur hitt, að þarna fengum við frí ljós og kol til upphitunar og eldamennsku. Þar á móti bar okkur að skúra salargólfið eftir hvern fund eða hverja samkomu sem þar fór fram. Seinni veturinn sem við vor- um þarna fæddist okkur sonur. Það var mjög erfið fæðing. Varð að sækja Þórð Edilonsson lækni og taka barnið með töngum. Við vorum sæl og þakklát þegar þetta var afstaðið en sælan var skammvinn. Sonurinn varð bráð- kvaddur aðeins þriggja nátta. Eft- ir tveggja vetra veru okkar í Góð- templarahúsinu á sumrin var þar ekkert að gera settumst við al- gjörlega að á Hverfisgötu 21 B og fluttust þá foreldrar mínir þar upp á loftið. Þarna fæddist okkur annar sonur 10. júlí 1926. Hann heitir Magnús, tók kennarapróf og stundaði barnakennslu i nokkur ár. Hann hefur nú með höndum vörzlu við Byggðasafn Hafnar- fjarðar. Hans kona er Dagný Ped- ersen frá Skive við Limafjörð í Danmörku. Þau eiga þrjú börn, Jón, Höllu og Önnu. Öll kveðja þau móður, tengdamóður og ömmu með söknuði og þökk fyrir liðna tíð. Við Halla áttum vel saman. Báðum látið nægja þriggja vetra nám í barnaskóla. En það varð okkur gott framhaldsnám að ganga í félagsskap. Var það eink- um í stúkunni Morgunstjörnunni, en við gengum fljótlega í hana og komumst þar í embætti. Þótt mað- ur væri í fyrstu hálf feiminn að taka til máls á hefðbundinn hátt, þá lagaðist það fljótt. En best þótti okkur að flytja eitthvað í bundnu máli. Við vorum bæði ljóð- elsk og gerðum stundum vísur. Fórum við oft með þær í félaga- hóp. Halla hafði þennan arf frá föður sínum, Magnúsi Hallssyni, sem var bráðsnjall hagyrðingur. Ég erfði þetta frá móður minni, Ragnhildi Magnúsdóttur. Líka vorum við í Kvæðamannafélagi Hafnarfjarðar og það er ég auðvit- að enn, sem og í Morgunstjörn- unni. Ég á engin orð til að þakka sem vert er þessum lífsförunaut mínum um nær sextíu og þriggja ára skeið. Minningin um þessa ástvinu mína skal djúpt greypt í hug minn og hjarta. Eiginlega finnst mér Halla mín vera ennþá hjá mér. Jón Helgason Torfuhleðslunámskeið verður haldið við nýja leikskólann Sælu- tröð 27. og 28. júlí nk. Sælutröð er við veginn þar sem ekið er út á Reykjavíkurflugvöll. Um næstu helgi er áætlað framhaldsnám- skeið. Torfhleðslunámskeiðið er MENNINGARSJÓÐUR vestfirskar æsku veitir styrki, eins og undan- farin ár, til ungmenna til fram- haldsnáms sem ekki geta stundað það í heimabyggð sinni. Forgang um styrk úr sjóðnum hafa annars vegar ungmenni, sem misst hafa fyrirvinnu sína, föður eða móður, og ungmenni einstæðra mæðra. Hins vegar hafa konur, sem ekki hafa fullt launajafnrétti, forgang. Á síðasta ári voru veittar 37.000 krónur og 14.000 krónur, sem ekki var vitjað. Árin 1983 og 1982 var alls veitt úr sjóðnum 51.000 krónur til sjö vestfirskra ungmenna búsettra á Vestfjörð- um. Ef umsóknir berast ekki frá Vestfjörðum koma eftir sömu reglum til greina umsóknir Vest- firðinga, sem búsettir eru annars staðar. Umsóknir þurfa að send- ast fyrir lok júlí og þurfa með- mæli að fylgja frá skólastjóra eða öðrum sem þekkir umsækjanda, efni hans og ástæður. Umsóknir Leiðrétting í VIÐTALI við Emil Ásgeirsson, Gröf, fyrir skömmu kom fram að búið væri að jafna sumarbú- stað Einars Jónssonar lista- manns við jörðu. Svo er þó ekki og er beðist velvirðingar á mis- tökunum. undir handleiðslu Tryggva G. Hansen og kostar námskeiðið 100 krónur á dag. Byrjað verður klukkan 13.00 báða dagana. Kaffitími verður klukkan 17.00 og síðan er gert ráð fyrir að unnið verði til kvölds. sendist „Menningarsjóði vest- firskrar æsku“, c/o Sigríður Valdemarsdóttir, Njálsgötu 20, jarðhæð, 101 Reykjavík. Bæklingur Farfugla: Ferðist ódýrt ÚT ER KOMINN hinn árlegi upplýs- ingabæklingur Farfugla, „Ferðist ódýrt“. í honum er aö finna upplýs- ingar um það 21 farfuglaheimili sem starfrækt er hér á landi í sumar. Sex ný heimili hafa verið opnuð á árinu og eru þau á Varmalandi í Borgarfirði, Reykjanesi við ísa- fjörð, Dalvík, Lónsá við Akureyri Höfn í Hornafirði og í Þórsmörk. Fyrir eru farfuglaheimili í Reykja- vík, Breiðuvík, ísafirði, Blönduósi, Akureyri, Húsey, Seyðisfirði, Beru- nesi, Stafafelli, Höfn' Reynis- brekku, Fljótsdal, Leirubakka, Hveragerði og Vestmannaeyjum. í bæklingnum er einnig að finna upplýsingar um ýmsar aðrar leiðir til að komast í ódýrt og skemmti- legt sumarleyfi. Hér má nefna ýmis ferðatilboð bæði innan lands og utan og kynntir eru aðrir ódýrir gististaðir en farfuglaheimilin. Bæklingnum er dreift um land allt og kemur bæði íslendingum og erlendum ferðamönnum að gagni þar sem hann er bæði á íslensku og ensku. (Úr fréttatilkynningu) Morgunblaöid/B.G. Kaffihús opnar í Ólafsvík FYRR í sumar var opnað kaffihús í Ólafsvík sera hlaut nafnið Kaldilæk- ur. Þrjár konur sjá um reksturinn, Steinunn Tryggvadóttir og Guð- munda og Halla Eyjólfsdætur. Á myndinni eru: Guðmunda, lengst til vinstri, Nteinunn og Halla. Á veggjum eru myndir eftir Kjartan Guð- jónsson listmálara. Styrkir vestfirsk ungmenni til mennta smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar | Hraunhellur Sjávargrjót, holtagrjót, rauóa- malarkögglar og hraungrýtl tll sölu. Bjóöum greiöslukjör. Simi 92-8094 Dyrasímar — Raflagnir Gestur rafvirkjam., s. 19637. Tek að mér málningu á þökum ásamt smávægilegum viögeröum. Tilboö og tímavinna. Uppl. í síma 611098 eftir kl. 20. Karl Jósepsson, Skeljagranda 7. Húsbyggjendur — Verktakar Variö ykkur á móheliunni. Notiö aöeins frostfrítt fyllingarefni i húsgrunna og götur. Vörubilastööin Þróttur utvegar allar geröir af fyllingaretni, sand og gróöurmold. Vörubílastööin Þróttur, s. 25300. e UTIVISTARFERÐIR Ódýrar sumarleyf isferð- ir með Útivist 1. Sumardvöt I Útivistarskálan- um Básum. Básar er sannarlega staöur fjölskyldunnar. Hálf vlka, vikudvöl eöa lengur. Skipulagö- ar gönguferöir mánud., þriöjud., fimmtud. og um helgar. Ódýrasta og eitt skemmtilegasta sumar- leyfiö. 2. Landmannalaugar — Reykjar- dalur — Þóramörk - 5 dagar. 7.-11. ágúst. Bakpokaferö 3. Hálendishringur 3.-11. ágúal. Qæsavötn — Askja — Kverkfjöll. Gott tækifæri tll aö upplifa margt þaö helsta sem miöhálendl is- lands býöur uþp á. Fararstjóri: Ingibjörg S. Ásgeirsdóttir 4. Hornstrandir — Hornvfk 1.-6. ágúst. Fararstjóri: Gísli Hjartar- son. 5. Borgarfjöröur eystri — Sayö- is-fjöröur — S dagar 3.-11. ágúst.Ganga um vfkurnar og Loömundar- fjörð til Seyöisfjaröar. Fararstjóri: Jón J. Elíasson. 6. Gðngu- og hestaferð um •yötfiröj 4 Ausfuriandi, berja- ferö. Ath. breytta áætlun. 8 daga ferö. Brottför 18. ágúsl. Nánari uppl. og farmiöar á skrlfst. Lækjargötu 6a, simar 14606 og 23732. Í l.f J UTIVISTARFERÐIR Útivistarferöir Ferðir um veralunarmanna- helgina 2.-S. ágúst: 1. Núpaataöarakógar. Fallegt og afskekkt svæöi innaf Lóma- gnúpi. Tjaldaó viö skógana. Gil. gljúfur og fossar Genglö á Súlu- tinda og fl. Möguleiki á silungs- veiöi. Fararstj. Þorleifur og Kristj- án. 2. Eldgjá - Langisjór - Land- mannalaugar: Gist í góöu húsl viö Eldgjá. Ganga á Sveinstind o.fl. Hringferö aö Fjallabakl. 3. Hornatrandir Hornvfk: Tjaldbæklstöö i Hornvík. Ganga á Hornbjarg og víöar. Fararstjóri: Gísli Hjartarson. 4. Dalír - Breiöatjaröareyjar: Gist í svefnpokaplássi. Hringferö um Dali, fyrir Klofning og viöar. Sigling um Breiöafjaröareyjar. Stansaö i Flatey. 5. Þórsmörk: Brottför föstud. kl. 20.00. Ennfremur daglegar feröir alla helgina Brottför kl. 8 aö morgni. Frábær gistiaösfaöa i Utivistarskálanum Básum. Gönguterölr viö allra hæfi. Farar- stjóri: Bjarki Haröarson. 6. Kjöfur - Keriingarfjöll: Gist i húsi. Hveravellir. Snækollur o fl Hægt aö hafa skiöi. Uppl. og farmiöar á skrtfst., Lækjarg. 6a, aímar: 14606 og 23732. Sjáumst, Útivlst. Helgarferðir 26.-28. júlí 1. Þórstnörk. Gist i mjög góöum skála Utivístar i Básum. Básar eru hlýlegur og rólegur staöur. Fariö i gönguferölr viö allra hæfi. 2. Landmannalaugar — Ektgjá — Hótmaérión. Gönguferðir um Lauga- og Eldgjársvæóiö. Skemmtileg hringferö aö Fjalla- baki. Ekiö hetm um Fjallabaks- leiö syörí. Gist i góöu húsi viö Eldgjá. Fararstjóri: Kristján M. Baldursson. Uppl. og tarm. á skrifst. Lækjargötu 6a, símar: 14606 og 23732. Einsdagsferö f Þórsmörk á aunnudag. Notfæriö ykkur einn- ig miövikudagsferðir Utivistar f Þórsmörk. Bæöi dagsferöir og til sumardvalar. Brotttör kl. 8. Ath.: Utiviatarferðir aru fyrir alla, unga aem aldna. Sjáumst f næstu faró, Útivist. m Útívístarferðir Ferðir um verslunarmanna- helgina 2.-5. ágúat: 1. Núpsstaðarskógar. Tjaldaö viö skógana. Fallegt og fáfariö svæöi innaf Lómagnúp. Gengiö á Súlutinda og viöar. Mögulelki á silungsveiöi. Silungsveisla of vel veiöist. 2. Hornstrandir — Hornvik. Tjaidbækistöö í Hornvík. 3. Eldgjá — Langisjór — Land- mannalaugar. Gist í góöu húsi viö Eldgjá. Gengiö á Sveinstind o.fl. Hringferö aö Fjallabaki. 4. Dalir — Breiöafjaröarayjar. Gist i svefnpokaplássi. Hringferö um Dal. fyrir Klofning og viöar. Slglt um Breiöafjaröareyjar. Stansaö i Flatey. 5. Þórsmörfc. Brottför föstud. kl. 20.00. Ennfremur daglegar feröir alla helgina. Brottför kl. 8 aö morgni. Frábær gistiaöstaöa f Utivistarskálanum Básum. Gönguferöir viö allra hæfl. 6. Eldgjá — Álftavötn — Strútalaug. Góö bakpokaferö. Göngutjöld. Upplýsingar og far- mióar á skritst. Lækjarg. 6a, símar: 14606 og 23732. Sjáumst, Útivist. FERÐAFÉLAG ÍSLANDS ÖLDUGÖTU3 SÍMAR 11796 og 19533. Dagsferöir sunnudag 28. júlí: 1. Kl. 06. Þórsmörk — dagafaró. Alh.: m/lengri dvöl i Þórsmörk. 2. Kl. 10. Krfsuvfkurbjarg — Ræningjaatfgur. Ekiö um Krísu- vtk aö Ræningjastig Verö kr. 400. 3. KL 13. Læfcjaveilir — Ketil- atigur — Ssltún. Létt gönguleiö yfir Sveifluháls. Verö kr. 400. Miðvikudagur 31. júlí: 1. Kl. 00. Þórsmörk. Dvalargest- ir — dagsferö. Góö gistiaöstaöa. Mikil náttúrufegurö Ath.: Fræöslurit nr. 1 ar komið út, „GðnguMöir aó Fjallabaki" ettir Guöjón Ó. Magnússon. Feröafélag Islands. FERDAFÉLAG ÍSLANDS ÖLDUGÖTU 3 SÍMAR11798 og 19533. Helgarferðir 26.-28. júlí: 1) Þórsmörfc. Dvöl i Þórsmörk gerlr sumarleyfió ánægjulegra og öóruvísi. Aöstaöan i Skagfjörös- skála er sú besta í óbyggöum og þeim fjölgar sem láta ekki sumar- iö liöa án þess aö dvelja hjá Feróaféfaginu í Þórsmörk. 2) Landmannalaugar — Eldgjá. Gist i sæluhúsi F.l. Fariö í Eldgjá og aö Ófærufossi (Fjallabaksleiö nyrörl). 3) Hveravellir — Þjófadalir. Gengiö á Rauökoll og viöar. Gist i sæluhúsi F.l. 4) Atftavatn (syðri Fiallabaks- laiö). Gist í sæluhúsi F.l. Göngu- feröir um nágrenniö. Ath.: miövikudagaferðir i Land- mannalaugar. Uþplýsingar og farmióasala á skritstofu Ferðafélagsins, Öldu- götu 3. Feröafélag Islands. UTIVISTARFERÐIR

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.