Morgunblaðið - 26.07.1985, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 26.07.1985, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ, FQg,TUDAQUR26, JÚLl 1985 . 35 Gudmundur Garðar Hafliðason - Minning Fæddur 23. desember 1936 Dáinn 17. júlí 1985 Mig langar að minnast frænda míns, Guðmundar Garðars Haf- liðasonar, Irabakka 2, nokkrum orðum, en hann andaðist 17. þ.m. aðeins 48 ára gamall. Foreldrar hans voru hjónin Gislína Guðmundsdóttir frá Hvammi í Grindavík og Hafliði Jónsson, Sunnuhvoli, sama stað. Foreldrar Gislínu voru Valgerður Einarsdóttir og Guðmundur Þor- láksson en Hafliða, Gróa Eiríks- dóttir og Jón Engilbertsson. Gislína og Hafliði stofnuðu heimili í Þórkötlustaðanesi og nefndu hús sitt Þórshamar. Þar byggðu einnig húsið Arnarhvol hjónin Jóhanna Einarsdóttir og Engilbert bróðir Hafliða. Þriðja húsið Höfn var þarna líka. Guðmundur Garðar fæddist á heimili foreldra sinna 23. desem- ber 1936. Það má nærri geta að mikii gleði ríkti hjá foreldrunum um jólin. Það má næstum segja að þeir hafi eignast sitt eigið jóla- barn, rétt skapað og að því er virt- ist alheilbrigt. Það var indælt fyrir lítinn dreng að alast þarna upp. Rétt við húsið var tjörn, sem var reyndar sjór, og var í henni flóð og fjara. Það var gaman að sjá sjóinn gjósa upp úr jörðinni á nokkrum stöðum eins og litla gosbrunna þegar flæddi að. Þarna var byggð bryggja úr grjóti og litlum bátum siglt fram og aftur. Fyrirmyndin var nærtæk þar sem búendur Þór- kötlustaðahverfis og Hrauns gerðu út frá Nesinu skammt frá íbúðarhúsunum. Á vetrarvertíðum var því oft mannmargt í Nesinu og oft glatt á hjalla. Fólk tók að- komusjómenn víða að af landinu inn á heimili sín. Þannig var það á heimili Gíslínu og Hafliða, en hann gerði út ásamt föður sínum, bróður, tengdaföður og mágum. Bátur þeirra hét Ármann. Annars unnu þeir feðgar mest við smíðar. Foreldrar Guðmundar Garðars höfðu fáeinar kindur og endur sem kunnu vel að meta flæðitjörnina. Hafliði keypti sér vindmyllu og raflýsti húsið. Hann hafði einnig síma, sem þá var ekki eins algeng- ur og nú. Þannig var æskuheimili Guðmundar Garðars þangað til hann flutti á 10. ári. Hafliði seldi þá húsið og fjölskyldan flutti til Reykjavíkur þar sem hann átti heima upp frá því og samlagaðist þéttbýlinu vel jafn félagslyndur og hann var. Fyrstu árin átti fjöl- skyldan heima á Sólvallagötu 41. Tengslin við Grindavík rofnuðu þó ekki og á haustin var komið í rétt- irnar. Þá var beðið hjá ömmu og afa á Sunnuhvoli þangað til safnið kom og því fylgt í áfangastað. Þegar Guðmundur Garðar var 12 ára varð hann fyrir þeirri sáru sorg að missa móður sína úr blóðsjúkdómi eftir stutta legu. Þá reyndist honum afbragðs vel fjöl- skylda Andrésar Björnssonar síð- ar útvarpsstjóra. Frú Margrét var honum eins og besta móðir og verður það aldrei fullþakkað. Nú kom Guðmundur Garðar oftast til Grindavíkur á sumrin og dvaldi hjá Valgerði ömmu sinni sem búin var að missa mann sinn og naut nú gleðinnar af aukinni samveru við drenginn sem líktist henni svo mjög í útliti og skapi. Hann lét seinna elstu dóttur sína bera nafn hennar. Feðgarnir bjuggu saman einir um sinn. Hafliði kvæntist svo aft- ur Önnu Guðmundsdóttur og Guð- mundur Garðar eignaðist góða stjúpu, það sýndu tengsl hans við hana eftir að faðir hans dó á páskadag 3. apríl 1983. Guðmundur Garðar kvæntist 8. febrúar 1958 Sigríði Sólveigu Ágústdóttur úr Reykjavík og stofnuðu þau heimili á Bræðra- borgarstíg 37. Þau eignuðust 5 börn sem öll lifa. Þau eru: Gísli Hafliði fram- reiðslum., f. 5. nóvember 1957, kona Hildur Backman; Ingi Már er stúdent, f. 16. ágúst 1960, Valgerð- ur, f. 3. mars 1963, Jóhanna f. 4. mars 1968, Ingibjörg, f. 27. febrúar 1972. Son hafði Sigríður eignast áður en hún giftist frænda mínum, Ágúst Jónas Guðmundsson sjó- mann. Hann er að mestu leyti al- inn upp hjá móðurömmu sinni, Sumarrós Guðmundsdóttur. Síð- ustu árin sem Rósa lifði átti hún heimili sitt hjá Sigríði dóttur sinni og Guðmundi Garðari á Ira- bakka 2. Ágúst átti þar heimili áfram þangað til hann flutti til Vestmannaeyja og keypti sér hús þar. Hann á litla, fallega dóttur, Unu Þóru, sem stundum kom í heimsókn til ömmu og afa í Reykjavík og þau svo endurguldu. Guðmundur Garðar vann ýmis störf um ævina, t.d. í frystihúsi, einnig hjá Sæbjörgu við Granda- garð og á sendibílastöð, en síðustu 18 árin vann hann við teppalagnir i tengslum við Teppaland. Eitt er þó ótalið og er það tón- listin. Hann hafði unun af að hlusta á tónlist og taka þátt i henni. Hann spilaði á trommur með ýmsum um 30 ára skeið, í Reykjavík eða úti á landi um helg- ar, þar af lengst með Guðmundi Ingólfssyni. Síðustu árin spilaði hann með hljómsveit Ásgeirs Sverrissonar og Jóns Sigurðssonar í Hreyfilshúsinu og Hótel Borg. Tónlistaráhugann átti hann sameiginlegan með móðurfólki sínu. Jón Ingi, bróðir Valgerðar ömmu hans, átti fiðlu sem hann lék á, Sveinn átti fimmfalda har- monikku og spilaði á böllum í Grindavík, en nótur pantaði hann frá Danmörku. Jóhanna eignaðist harmoníum, sem enn er til i ætt- inni, yfir 60 ára gamalt. Þau voru móðursystkini hans. Þeirra tíma hljómflutningstæki var líka á heimilinu og mikið var sungið. Guðmundur Garðar mun oft hafa verið þreyttur vegna mikillar vinnu og síðustu árin komu í ljós veikindi þau er urðu honum ofviða. Öll þessi ár hafði leynst í honum meðfæddur hjartagalli sem nánasta fólkið hans hafði ekki vitað um fyrr en undir það síðasta. Vegna meðfæddrar glað- værðar og hressilegrar framkomu alla tíð leyndist hve honum hrak- aði ört. Guðmundur Garðar var ávallt tilbúinn að gera öðrum greiða ef hann gat og örstuttu áður en hann dó gerði hann móðursystur sinni þann greiða að aka með legstein austur í Laugardælakirkjugarð á leiði móðurbróður síns er andaðist fyrir tæpum 2 árum. Hann hafði mikla þörf fyrir úti- veru og stundaði lax- og silungs- veiðar í frístundum sínum, aðal- lega með eldri syni sínum. Eina á kaus hann öðrum fremur, og þar í fögru umhverfi Norðurár átti hann svo síðustu stundir lífs síns hér í heimi. Guð geymi hann að eilífu, styðji og huggi konu hans, börn, stjúp- son, tengdadóttur og afabarnið í þessari miklu sorg. Jóhanna Siguróardóttir Það er eitthvað svo fjarri að hugsa um dauðann þegar við erum í fullu fjöri og á besta aldri. Þegar mér var tilkynnt að vinur minn og vinnufélagi, Guðmundur Garðar Hafliðason, væri látinn setti mig hljóða. Þetta var svo ótrúlegt, ekki hann Gæi — hann sem var alltaf svo kátur og hress. Mér fannst allt fara úr skorðum og allt breytast, við vorum að vinna saman þremur dögum áður, hlógum og göntuðumst eins og alltaf. Gæi sótti mig þá heim því við fórum og keyptum blóm handa vinnufélaga okkar og við röbbuð- um mikið saman á leiðinni í vinn- una, við höfðum alltaf um nóg að tala. Þær eru ekki svo ófáar stund- irnar í gegnum sl. 15 ár sem við Gæi sátum saman og rifjuðum upp skemmtilegar uppákomur sem hentu okkur í starfi okkar og hlógum okkur alveg máttlaus. Hann var alltaf svo jákvæður og kátur. Ekki var síður gott að vinna með honum, hann var alltaf mjög drifandi og með þessa góðu lund sem er svo nauðsynleg I þessu starfi. Það eru kannski ekki allir sem skilja það hvað þarf að vera mikil samstaða milli manna í lít- illi fjögurra manna hljómsveit svo hún skili sem bestum árangri. Þá þarf dugnað, þolinmæði og góða lund. I þessu öllu á Gæi mikinn heiður. Það er stórt skarð núna í okkar litla hópi. Ég þakka Gæa fyrir öll árin sem hann var vinnufélagi minn og góð- ur vinur og ég þakka alla hjálp- semina og greiðviknina sem hann sýndi mér. Sigga mín, ég sendi þér og fjöl- skyldu þinni mínar innilegustu samúðarkveðjur og bið Guð að styrkja ykkur í þessari miklu sorg. Guð blessi minnningu Gæa. Didda Þegar góðir félagar og vinir hverfa út úr lífi manns, fyrirvara- laust, er því líkast sem opnist tómt rúm, innra með manni, rúm sem við vissum ef til vill ekki að væri þar til, vegna þess að sá sem átti þar sæti, fyllti það svo vel, að engu var þar við að bæta. Þeegar ég heyrði lát Guðmund- ar Garðars Hafliðasonar var mér þannig farið. Við hittumst fyrst fyrir um það bil fimm árum. Svo stóð á að mig vantaði trommara í hljómsveit mína og hann hljóp í skarðið, með þeim afleiðingum að síðan höfum við unnið að því að leika fyrir dansi í Hreyfilshúsinu og á Hótel Borg.. Ástæðurnar fyrir því að ég bað Guðmund Garðar að taka fast sæti með okkur voru margar, en hæst ber í mínum huga ósérhlífni hans, áreiðanleiki og sá góði andi, sem hann flutti með sér. Ég hef oft sagt að jafngóðan trommara hefði ég eflaust getað fengið, en betri félaga aldrei. Þar sem lítill hópur á að vinna saman, á þröngu sviði er nauð- synlegt að fólkið hafi hæfileika til að aðlaga sig hvert öðru, gera gott úr mistökum og meiningarmun, sem óhjákvæmilegt er að komi fyrir, þar sem fleiri einstaklingar eigi að mynda eina heild. Þegar slíkt kom fyrir hjá okkur var gjarnan viðkvæðið hjá Guð- mundi Garðari: Þetta er allt i lagi, við hlægjum bara að þessu, það verður betra næst. Þessi orð hans held ég að lýsi vel viðhorfi hans til félaganna og starfsins, hafa fulla ábyrgðartilfinningu en taka hlut- ina ekki of alvarlega. Þessi fáu orð mín eiga ekki að vera ævisaga eða upptalning, að- eins þakkir til manns, sem af til- viljun varð á leið minni og var fyrst og síðast góður drengur. Ég hef verið beðinn að flytja sérstakar kveðjur og þakkir frá Félagi íslenskra hljómlistar- manna, en í þeim félagsskap reyndist hann eins og annars stað- ar traustur og góður félagsmaður og brást aldrei því, sem honum var til trúað. Að lokum vil ég flytja eiginkonu hans, Sigríði S. Ágústsdóttur, börnum og öðrum aðstandendum innilegar samúðarkveðjur frá mér og félögum okkar í hljómsveitinni. Jón Sigurðsson Guðmundur Garðar Hafliðason er fallinn frá langt um aldur fram. Hann hafði áður kennt þess meins er lagði hann að velli. Þrátt fyrir vitneskjuna um að ganga ekki heill til skógar lét Garðar það ekki á sig fá og gekk til starfa og leiks til hinstu stundar sem fullhraust- ur væri. Hann var einstakt ljúfmenni í umgengni og ávallt léttur í sinni enda félagslyndur. Garðar var einstaklega laginn verkmaður og vann hvert verk af lagni og samviskusemi — án þess flýtis og óðagots sem svo oft fylgir ákvæðisvinnu. Garðar hafði einn- ig mikið yndi af hljómlist og spil- aði í mörg ár í danshljómsveitum. Hin síðari ár stundaði Garðar stangaveiði af áhuga og þar leið honum vel. Við erum sannfærð um að hann kvaddi þennan heim í síð- ustu veiðiferð sinni sáttur við bæði guð og menn. Minning um góðan dreng og frábæran starfsfélaga lifir með okkur. Við vottum eiginkonu og fjöl- skyldu Garðars okkar innilegustu samúð. Samstarfsfólk í Teppalandi. Ég átti erfitt með að trúa frétt- inni um að Guðmundur Garðar Hafliðason væri látinn langt um aldur fram. Minningarnar hrönnuðust upp. Síðustu helgina í júní áttum við gott tal saman í sumarferð Teppa- lands í Þórsmörk. Við ræddum um heima og geima og Garðar sagði mér skemmtilegar veiðisögur enda var hann mikill áhugamaður um stangveiði. Ekki sagði hann mér frá veikindum sínum, sem ég vissi ekkert um og lögðu hann að velli svo stuttu síðar. Ég hef grun um að hann hafi farið sáttur við sig og sína þar sem hann var staddur á árbakkan- um er hann kvaddi þennan heim. Fyrir tæpum 18 árum keyrði Garðar sendibíl og keyrði meðal annars fyrir Innréttingabúðina (seinna Teppaland). Þáverandi verslunarstjóri, Sig- mundur Guðbjarnarsson, og Guð- jnundur Garðar voru kunningjar og ég man að Sigmundur sagði við mig að þarna fengjum við traust- an og öruggan bílstjóra og það voru orð að sönnu. Það var ekki aðeins að Garðar keyrði gólfteppin á hina ýmsu staði heldur hóf hann einnig að leggja teppin og var hann hin síð- ari ár einn allra færasti teppa- lagningamaður sem völ var á. Alla tíð er vinna þurfti sérstök vandaverk var Garðar kallaður til. Hann vann öll verk af mikilli natni og samviskusemi. Þrátt fyrir að hann ynni í ákvæðisvinnu flýtti hann sér aldrei um of við nokkurt verk, aðalatriðið var að skila verkinu fullkomlega. Það er mikill sjónarsviptir að slíkum manni. Hljómlistin átti hug hans og muna sjálfsagt margir eftir and- liti Garðars bak við trommusettið. Guðmundur Garðar var ákaf- lega dagfarsprúður maður, skemmtilegur og þægilegur í öll- um samskiptum og hans er sárt saknað af vinum og vinnufélögum. Ég þakka Guðmundi Garðari samfylgdina og bið góðan guð að styrkja eiginkonu, börn og aðra ástvini. Víóir Finnbogason Hamrahlíöarkórinn fær lof áheyrenda StrasHhorjj, 25. júll, frá Jóni Ólafwryni, blaóamanni MorjfunblaÓHinH HAMRAHLÍÐARKÓRINN, sem nú er á söngferðalagi um Frakkland, hefur sungiö víða við mjög góðar undirtektir og ennfrcmur fengið mjög góða dóma í blöðum í Strassborg. Kórinn hefur haldið þrenna tónleika undir stjórn Þorgerðar Ingólfsdóttur. Frá hinum fyrstu hefur þegar verið greint í Morgun- blaðinu og það sem einkum þótti gefa tónleikunum gildi var að dagskráin var mjög fjölbreytt. Þrír kórar komu þá fram i stórri tónleikahöll i Strassborg og voru þeir reyndar frá þremur heimsálf- um. Auk þeirra komu fram klarin- ettuleikarar á heimsmælikvarða. Kórinn söng á útitónleikum í miðborg Strassborgar á þriðju- daginn i steikjandi hita. Daginn eftir voru haldnir tónleikar í gömlu leikhúsi í borginni. Þeir tónleikar voru teknir upp og munu því lifa áfram á segulbandi. Um helgina stendur til að kór- inn fari i ferðalag til að syngja á tónleikum i borg skammt frá Strassborg. Kórinn er væntanleg- ur heim aftur nk. þriðjudag. t Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúö og vinarhug viö andlát og útför ÁSBJÖRNS SIGURJÓNSSONAR, Álafosai, Mosfellssveit, og vottuöu minningu hans viröingu. Ingunn Finnbogadóttir og fjölskylda. t Innilegar þakkir fyrir auösýnda samúö og hlýhug viö andlát og útför eiginmanns míns, JÓNS BJÖRNSSONAR, tyrrverandi yfirfiskmatsmanns. Gröf, Reyðarfiröi. Sérstakar þakkir til laskna og starfsfólks sjúkrahússins Neskaup- staö. Fyrir hönd vandamanna, Nanna Þorsteinsdóttir. Lokað kl. 13.00-16.00 dag vegna jaröarfarar GUÐMUNDAR G. HAFLIOASONAR. Víöir Finnbogason hf. Teppaland — Dúkaland, Grensásvegi13.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.